Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3 1. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
295. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Sunnudags Mogginn
er nú borinn út með
laugardagsblaðinu
«TÓK ÞÁTT Í SÖNGKEPPNI Í TYRKLANDI
SÖNG FYRIR FJÖGUR
ÞÚSUND MANNS
«HVORKI FUGL NÉ FISKUR
Myndin This Is It
fær tvær stjörnur
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
SAMANLAGÐAR skuldir Haga og
móðurfélagsins, 1998 ehf., nema
tæplega 60 milljörðum króna.
Ljóst er að rekstri Haga er ætlað
að standa undir bæði eigin skuld-
um og skuldum 1998 ehf. Greint
hefur verið frá því að 1998 hafi
nokkrar vikur til að koma með
fjárframlag upp á 5-7 milljarða kr.
inn í félagið til að geta haldið yfir-
ráðum í Högum. Fulltrúar Nýja
Kaupþings hafa þegar tekið sæti í
stjórn 1998.
Hagar, sem reka m.a. versl-
anirnar Hagkaup, Bónus og 10-11,
eru eina eign eignarhaldsfélagsins
1998 sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og fjölskyldu. Hagar
voru nýverið endurfjármagnaðir
með því að greiða upp skuldabréfa-
flokk með lánum frá Nýja Kaup-
þingi og NBI. Þá var haft eftir
Finni Árnasyni, forstjóra Haga, í
Morgunblaðinu að uppreiknað verð
hefði verið 10-11 milljarðar kr.
1998 fékk 263,5 milljónir evra að
láni hjá Kaupþingi á árinu 2008 til
að kaupa Haga út úr Baugi. Á
gengi dagsins í dag nemur upp-
hæðin ríflega 48 milljörðum króna.
Óvíst með arðgreiðslur
Engar breytingar hafa orðið á
eignarhaldi 1998, að sögn Jóhann-
esar Jónssonar, og skriflegur
samningur um samstarf um fjár-
mögnun félagsins liggur fyrir.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir í samtali við Morgunblaðið að
félagið hafi ekki greitt út neinn arð
síðan 1998 keypti reksturinn af
Baugi. Hann segir forgangsmál að
Hagar standi við skuldbindingar
sínar og ekki sé ljóst hvenær eig-
endur geti vænst arðgreiðslna.
Högum ætlað að standa
undir 60 milljarða skuld
» Skuldir 1998 ehf.
nema 48 milljörðum
» Engar breytingar
á eignarhaldi
» Arður ekki verið
greiddur
Morgunblaðið/Golli
Hagar Ljóst þykir að rekstri Haga sé ætlað að standa undir bæði eigin skuldum og skuldum móðurfélagsins 1998.
Stjórnarmenn í Nýja Kaupþingi neita allir að tjá sig um mögulegar afskriftir
Hagar hafa ekki greitt út neinn arð síðan 1998 ehf. keypti reksturinn af Baugi
Fá frest 22
Enginn stjórnarmanna Nýja Kaup-
þings vildi tjá sig um málefni eign-
arhaldsfélagsins 1998 þegar eftir
því var leitað í gær eða hvort rætt
hefði verið innan stjórnar bankans
að afskrifa hluta skulda 1998.
Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri
bankans, vildi heldur ekki tjá sig
þegar Morgunblaðið náði af hon-
um tali í gærkvöldi.
Í stjórn Nýja Kaupþings sitja
Erna Bjarnadóttir formaður, Jón-
ína Sanders, Helga Jónsdóttir,
Drífa Sigfúsdóttir, Jóhannes Rúnar
Jóhannsson og Theódór Sigur-
bergsson.
Fengust ekki til að tjá sig um málið
Uppboð hefjast
í næstu viku á 56
íbúðum í fjöl-
býlishúsinu á
Sjónarhóli 20 á
Bifröst í Borg-
arfirði. Íbúða-
lánasjóður er
gerðarbeiðandi
uppboðanna sem
eru tilkomin
vegna langvarandi vanskila Selfells
ehf., sem er þinglýstur eigandi
byggingarinnar. Um hríð hefur
verið uppi ágreiningur vegna
meintra galla á umræddri bygg-
ingu og hafa leigugjöld því ekki
verið greidd, sem er rót þeirrar
stöðu sem málið er nú komið í.
„Þetta mál tengist ekki skólanum
en hefur eigi að síður valdið okkur
ýmsum vanda,“ segir Ágúst Ein-
arsson, rektor Háskólans á Bifröst,
í samtali við Morgunblaðið.
Háskólinn á Bifröst leysti nýlega
til sín á annað hundrað íbúðir sem
áður voru í eigu Mosturs, dóttur-
félags Nýsis hf. sem nú er gjald-
þrota. Íbúðalánasjóður fjármagn-
aði á sínum tíma framkvæmdir við
byggingu íbúðanna. Þau lán eru nú
komin í vanskil og fara eignirnar
því að óbreyttu í uppboðsmeðferð
hjá sýslumanni, að sögn Guðmund-
ar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
Íbúðalánasjóðs. sbs@mbl.is
56 íbúðir á Bifröst verða
seldar á nauðungaruppboði
Háskólinn á Bifröst
Endurbygging Domus Medica er
á teikniborðinu og gæti kostnaður
við framkvæmdir orðið einn millj-
arður króna. Byggt verður nýtt
þjónusturými með aðalinngangi og
bílakjallari á tveimur hæðum.
Starfsemi læknamiðstöðvarinnar
við Egilsgötu kallar á aukinn húsa-
kost, meðal annars vegna aukins
tækjabúnaðar og rannsóknarstofa.
aij@mbl.is | 14
Ætla að stækka Domus
Medica fyrir milljarð króna
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MB BANKI skoðar nú hvort
eitthvað sé á bak við fréttir
norsks dagblaðs af athafna-
manninum Endre Røsjø, að
sögn Margeirs Péturssonar,
stjórnarformanns bankans. Til
stendur að Røsjø leggi MP
banka til nýtt hlutafé og greiði fyrir það 1.400
milljónir króna. Eftir það verði hann næststærsti
hluthafi bankans á eftir Margeiri.
Røsjø hefur kært dagblaðið Dagens Næringsliv
(DN) til lögreglu fyrir umfjöllun þess um viðskipti
hans og norska olíufyrirtækisins DNO. Fullyrðir
blaðið jafnframt að Røsjø hafi bæði hótað blaða-
manni sem og boðið honum háar fjárhæðir fyrir
upplýsingar um heimildarmenn.
Fullyrðir norska blaðið að félag í eigu Røsjøs,
Pinemont Securities, hafi haft milligöngu um
greiðslur frá DNO til bandaríska erindrekans Pet-
ers Galbraiths. Segir jafnframt að DNO hafi greitt
Galbraith fyrir að hafa auðveldað fyrirtækinu að
fá olíusamninga við stjórnvöld í Kúrdahéruðum
Íraks árið 2004.
Tengsl Røsjøs við norska olíufyrirtækið og for-
stjóra þess, Helga Eide, eru enn nánari sam-
kvæmt frétt DN. Árið 2004 ákvað Eide að ráða
Røsjø sem ráðgjafa. Skömmu síðar lánaði félag í
eigu Røsjøs, Centennial AS, Eide fimm milljónir
norskra króna, andvirði um 110 milljóna íslenskra
króna á núvirði.
Lánsféð notaði Eide til að kaupa hlutabréf í
DNO, sem ári seinna höfðu nær fjórfaldast í verði.
Mun Røsjø hafa boðið blaðamanni DN um 10 millj-
ónir íslenskra króna fyrir upplýsingar um heim-
ildir fréttarinnar, sem hann telur byggða á stoln-
um gögnum. | 22
MP skoðar málefni Røsjøs
Endre Røsjø
Endre Røsjø, sem til stendur að verði hluthafi í MP banka, er borinn þungum
sökum í norsku dagblaði Er sagður hafa hótað blaðamanni og borið á hann fé