Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 ✝ Gísli Búasonfæddist á Fer- stiklu á Hvalfjarð- arströnd 4. mars 1928. Hann lést á heimili sínu á Fer- stiklu 25. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Margrét X. Jónsdóttir, f. 4.7. 1893, d. 7.4. 1993 og Búi Jónsson, f. 9.2. 1897, d. 30.8. 1973. Systkini Gísla eru Kristín Ríkey Frið- semd, f. 1925, d. 1993 og Vífill, f. 1929. Gísli kvæntist 12.11. 1955 Sess- elju Ólöfu Guðmundsdóttur, f. 24.4. 1933, d. 12.4. 2009. Foreldrar hennar voru Ásta Jónsdóttir, f. 6.4. 1901, d. 15.9. 1975 og Guðmundur Björnsson, f. 2.9.1896, d. 27.1. 1989. Fyrir hjónaband eignaðist Gísli tvíburadætur með Guðrúnu Ágústsdóttur. Þær eru: Helga, f. 18.6. 1948, maki Ketill Bjarnason, f. 1945. Synir þeirra Bjarni Skúli, f. 1966 og Baldur Þór, f. 1968. Barna- börnin eru sex. Margrét, f. 19.6. f. 1980, Heimir Berg, f. 1982, Birk- ir Hrafn, f. 1993 og Adda Malín, f. 1995. Barnabörnin eru þrjú. 5) Guðmundur, f. 5.4. 1965, maki Sig- urlaug Gísladóttir, f. 1965. Börn þeirra Guðmundur Þór, f. 1986, Erla, f. 1990 og Sesselja Rós, f. 1999. Gísli bjó alla sína ævi á Ferstiklu, fyrst í foreldrahúsum og síðan með fjölskyldu sinni í eigin húsnæði frá árinu 1956. Auk hefðbundinnar skólagöngu í heimasveit stundaði hann nám við Hérðaðsskólann í Reykholti. Gísli þreytti einnig ung- ur meirapróf sem nýttist honum síðar í starfi olíuflutningamanns. Gísli og Sesselja stunduðu búskap á Ferstiklu, fyrst í blönduðu fé- lagsbúi með foreldrum Gísla, bróð- ur hans og mágkonu, en árið 1967 var búrekstri þeirra skipt upp. Gísli og Sesselja ráku upp frá því sauðfjárbú til ársins 2001. Með- fram búrekstri vann Gísli mörg haust sem kjötmatsmaður hjá Slát- urfélagi Suðurlands, jafnframt því að sitja í stjórn þess fyrirtækis um árabil. Störf í þágu sveitar sinnar vann Gísli meðal annars sem hreppsnefndarmaður og síðar sem hreppstjóri til margra ára. Útför Gísla fer fram frá Hall- grímskirkju í Saurbæ í dag, 31. október, kl. 14. 1948, maki Axel Jóns- son, f. 1945. Börn þeirra Jón Gunnar, f. 1966, Guðrún Jó- hanna, f. 1969, og Eva Björk, f. 1981. Barnabörnin eru sex. Gísli og Sesselja eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Ásta Björg, f. 27.11. 1953, maki Örlygur Stef- ánsson, f. 1953. Synir þeirra Stefán Gísli, f. 1974 og Búi, f. 1976. Barnabörnin eru þrjú. 2) Búi, f. 10.4. 1955, maki Harpa Hrönn Davíðsdóttir, f. 1961. Börn þeirra Davíð, f. 1976, Kristín Edda, f. 1981, Birna Dröfn Birg- isdóttir, f. 1982, Ágúst Gísli, f. 1990, Búi Hrannar, f. 1991 og Ko- beinn Hróar, f. 1997. Barnabörnin eru fjögur. 3) Erla, f. 25.9. 1956, maki Baldur Gíslason, f. 1954. Börn þeirra Gísli Arnar, f. 1975, Jón Sævar, f. 1978 og Guðrún Sesselja, f. 1982. Barnabörnin eru þrjú. 4) Vilhjálmur, f. 23.8. 1959, maki Bára Valdís Ármannsdóttir, f. 1960. Börn þeirra Ármann Rúnar, Sunnudagur, síminn hringir. Hug- ur og hjarta fyllist sorg og trega. Gamli Guð sem öllu ræður hefur kallað Gísla tengdaföður minn á sinn fund. Gísli var nýkominn heim af sjúkrahúsinu og allir vongóðir um að nú myndi hann hressast þar sem allt gekk vel. Það er stutt stórra högga á milli fyrir börnin okkar Búa, að þurfa að fylgja báðum ömmum sín- um og svo afa Gísla til grafar á að- eins sex mánuðum. Afi Gísli, eða afi gamli eins og börnin okkar kölluðu hann, hafði mikið aðdráttarafl. Glettinn húmor- inn og skemmtilegur í viðræðum. Sagði sögur frá fyrri tímum og sam- ferðafólki á svo fræðandi og skemmtilegan hátt að unun var á að hlýða. Þær voru margar og góðar stundirnar þar sem setið var í eld- húskróknum á Ferstiklu, spilað, spjallað og mikið hlegið, oft ansi fjöl- mennt. Eitt var það sem veitti Gísla hvað mesta ánægju, en það var að hafa allan afkomendaskarann í kring um sig, og það fundum við öll. Enda lá leiðin oftast beint heim að Fer- stiklu til afa og ömmu. Þá var oft boðið upp á heimabakaða brauðið og kæfuna hennar ömmu Sísíar og svo bláberin sem afi tíndi og frysti. Það kunnu börnin vel að meta. Þegar heim skyldi haldið fylgdi afi ávallt til dyra og kvaddi litlu börnin. Vakti kosshljóðið sem hann myndaði ávallt kátínu hjá þeim. Það var mikið tekið frá Gísla þeg- ar hún Sísí okkar lést í apríl síðast- liðnum. Söknuðurinn var sár. Nú er hann kominn til hennar og veit ég að hún hefur tekið á móti honum fagn- andi með bros á vör. Gísla vil ég þakka samfylgdina í þau 20 ár síðan ég kom í fjölskylduna. Ég bið Guð að blessa Gísla og mun minningin um hann lifa í hjörtum okkar sem eftir stöndum um ókomin ár. Börnum hans og öðrum aðstand- endum votta ég mína dýpstu samúð. Harpa Hrönn Davíðsdóttir. Elsku afi Gísli, mikið var ég slegin á sunnudaginn þegar ég heyrði að þú hefðir kvatt okkur. Á ýmsu átti ég von, en ekki þessu. Í kjölfar fréttanna fylltist ég doða, og það var fyrst í kvöld sem ég áttaði mig al- mennilega á því að ég á aldrei aftur eftir að ganga inn um dyrnar hjá ykkur ömmu á Ferstiklu og finna fyrir allri þeirri hlýju og gleði sem ávallt mætti manni þegar maður kom í heimsókn. Ótal góðar minningar koma upp í kollinn þegar ég hugsa til baka. Ég var sex ára þegar ég kynntist ykkur ömmu en þið tókuð mér strax sem einu af barnabörnunum. Oft fékk ég að taka þátt í sveitastörfunum og naut ég þess mikið. Ég verð ykkur ævinlega þakklát fyrir alla þá hlýju og ást sem þið veittuð mér. Hrannar Birgir fékk því miður ekki tækifæri til að eyða miklum tíma með þér en hann hafði þó alltaf gaman af því að koma í sveitina til þín. Ég hugga mig við það að hann fær þó að kynnast afa sínum, sem minnir mig stundum svo mikið á þig, Búi fékk þessa yfirvegun og rólega yfirbragð frá þér og þegar hann tek- ur fram píputóbakið og leyfir Hrannari að finna lyktina af því, sem sá stutti kann svo sannarlega að meta og þefar eins hressilega og hann getur, fyllist ég hlýjum minn- ingum um þig. Það gleður mig að hann fær að upplifa sams konar stundir með afa sínum og ég fékk að upplifa með þér. Ég mun ávallt minnast þín með gleði í hjarta. Þín er sárt saknað en ég reyni að hugga mig við það að nú eruð þið amma saman á ný. Guð geymi þig elsku afi. Birna Dröfn Birgisdóttir. Elsku afi. Nú hefur þú kvatt þenn- an heim og ert farinn til ömmu Sísí- ar. Það er skrýtið og sorglegt að vita að ég muni aldrei eiga eftir að hlusta á þig segja mér sögur aftur, sögur úr sveitinni frá fyrri tíma. Ég á erfitt með að trúa því að ég eigi aldrei eftir að ganga inn í húsið og sjá þig sitja inni í eldhúsinu þínu og leysa kross- gátur. Þú tókst alltaf vel á móti öll- um og þér þótti gott að hafa afkom- endur þína hjá þér og það sást vel. En þinn tími var víst kominn á meðal okkar. Þú munt ætíð lifa í hjarta mínu og verð ég alltaf þakklátur fyr- ir að hafa fengið að kynnast þér. Ég mun alltaf muna eftir þér og þínum kveðjukossum. Ég votta öllum að- standendum mína dýpstu samúð. Búi Hrannar Búason. Elsku afi, síðasti dagurinn sem við eyddum saman verður mér ávallt minnisstæður fyrir þær sakir að hann var sá síðasti. Einnig er hann minnisstæður fyrir að fyrr um morg- uninn fórum við í búð eina sem seldi trúlofunarhringi, þú varst fljótur til og spurðir konuna í afgreiðslunni hvort hún seldi þá ekki alveg örugg- lega. Hún játaði því, og þá sagðir þú það vera gott því þessi ungi maður ætti eftir að líta inn einhvern tíma og þá í þeim erindagjörðum. Ég hló nú að þessu og hélt að þú værir að fífl- ast með mig, þangað til ég sá brosið og augnsvipinn sem einkenndust af gleði, þreytu, værð og tilhlökkun að komast heim í sveitina. Því það sem þú varst að reyna að segja mér var að þú værir búinn að upplifa þetta allt en ég ætti það allt eftir, þessari stund gleymi ég aldrei. Svo voru það margar fleiri stundir, langflestar gleðilegar. Það voru til að mynda fjárhúsaferðirnar okkar þar sem þú kenndir mér svo ótal margt, öll spil- in sem við spiluðum, sögustundirnar við eldhúsborðið niðri í bæ, bjórinn sem við drukkum í rólegheitunum meðan við spjölluðum um daginn og veginn. Einnig er það minnisstætt þegar við sátum við eldhúsborðið í þögninni einni saman sem var þó svo róandi og hlý að hún virkaði sem hið besta samtal. Svo eru það öll jólin með þér og ömmu, yndislegar stund- ir það voru. Að lifa án allra þessara stunda verður erfitt að venjast og tilhugsunin ein veldur mér djúpri sorg og tárum, sem ég veit að breyt- ast í gleðitár. Því gjöfin sem þú varst mér í þessu lífi er og verður ómet- anleg. Einnig er huggun í því að þú og amma eruð nú sameinuð á ný. Að lokum, eins og ég sagði svo oft: „Afi, bless á meðan.“ Guðmundur Þór Guðmundsson. Elsku afi Gísli. Það var sárt að fá fréttirnar af andláti þínu síðastliðinn sunnudag, það var svo óraunveru- legt. Þú sem varst svo hress og kát- ur kvöldið áður. Þá töluðum við sam- an vel og lengi og þá aðallega um veiði og það tímabil sem framundan er. Það var mér mikils virði að fá að vera heimagangur hjá þér og ömmu Sísí, sem við kvöddum nú síðastliðið vor. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég fór að bralla ýmislegt með þér. Mér eru minnisstæðar allar ferðirnar okkar þegar við vorum að skrölta á Land Rovernum í fjárhúsin að gefa fénu, þú með pípuna og sixpensar- ann og 10.10-veðurskeytin tekin um leið. Margar veiðiferðir fórum við saman, bæði í lax- og skotveiði þar sem þú kenndir mér bæði á byssu og bráð. Það var ekki slæmt veganesti fyrir ungling eins og mig með brenn- andi áhuga á veiðiskap að hafa slíkan mann mér við hlið. Þú þekktir landið þitt vel, varst vel lesinn og sjaldan kom maður að tómum kofunum, þeg- ar spurt var. Það var oft glatt á hjalla heima á Ferstiklu hjá þér og ömmu enda margir sem komu þar við. Oft var gripið í spil ef svo bar við og gat það reynst þrautin þyngri að bera sigur úr býtum. Húmorinn var sjaldan langt undan og ekki var laust við að smástríðnispúki væri stundum í þér. En allt var það nú vel meint og meiddi engan, eins og þú sagðir stundum sjálfur. Þú varst mér svo mikil fyrirmynd þegar ég var lítill að ég var meira að segja framsóknar- maður eins og þú, en við förum svo ekkert nánar út í það. Það er margs að minnast um mann sem er manni kær, en þær minningar geymi ég á góðum stað elsku afi. En nú veit ég að þú og amma eruð saman á ný. Ykkur mun ég aldrei gleyma. Ykkar, Stefán Gísli Örlygsson. Við upprifjun minninga um afa í sveitinni kemur margt fram í hug- ann en fyrst og fremst þakklæti fyrir ótal góðar stundir. Það er óhætt að segja að afi hafi verið ein mín helsta fyrirmynd og kennari sem ég mun alltaf búa að. Afi hafði mikinn metnað fyrir því að eiga fallegan fjárstofn og það átti hann óumdeilanlega. Ég á margar minningar tengdar búskapnum, sér- staklega sauðburðinum en yfir þann tíma reyndi ég að vera sem mest í sveitinni. Þar kynnist ég afa best og þeim kostum sem hann bjó yfir. Tvennt vil ég ekki láta hjá líða að nefna í minningu afa. Það er áhugi hans á veiði og spilamennsku. Af hvoru tveggja höfðum við báðir sér- stakt yndi. Við spiluðum oft á fé- lagsvistum í sveitinni sem og á Skag- anum þar sem afi vann að mig minnir alltaf! Þegar afi kom í heim- sókn í bústaðinn þá var gjarnan gef- ið í Treikort og þar vann afi líka oft- ast. Veiðimennskan fylgdi afa alla tíð, hann veiddi bæði með byssu og stöng en síðustu árin var hann meira í ráðgjafahlutverki fyrir afkomendur sína og fylgdist vel með gangi mála. Seinni hluta sumars fór afi með okk- ur fjölskyldunni vestur í Djúpadal í sinn síðasta veiðitúr hér á jörð. Hann naut sín vel, gat sameinað helstu áhugamál sín að veiða, tína bláber og spila. Það er huggun harmi gegn að skyndilegt fráfall afa geti orðið til þess að hann hitti aftur ömmu Sísí sem dó í vor. Án efa er amma búin að baka handa honum hveitikökur og nesta hann út á nýjar veiðilendur þar sem gömlu félagarnir bíða með flugustöngina klára, stuttan taum og White Wing á endanum. Hvíl þú í friði elsku afi minn. Búi Örlygsson. Komið er að kveðjustund. Við kveðjum góðan vin, Gísla eða afa í sveitinni eins og hann var ávallt kall- aður á heimili okkar Búa. Ég var svo lánsöm að kynnast hjónunum Gísla og Sísí fyrir rúmum 10 árum þegar dóttursonur þeirra kynnti mig fyrir þeim. Strax varð mikill vinskapur okkar á milli og eigum við fjölskyld- an margar góðar minningar úr sveit- inni. Erfitt er að nefna Gísla á nafn án þess að minnast líka á Sísí því þau hjónin voru með því yndislegasta fólki sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Þau gáfu mikið af sér og er ég reynslunni ríkari fyrir vikið. Ekki er skortur á jákvæðum lýs- ingarorðum þegar lýsa á Gísla; heið- arlegur, sanngjarn, ljúfur og einlæg- ur eru orð sem koma fyrst upp í hugann. Hann var mikill húmoristi og félagsvera og þótti mjög vænt um að fá fjölskyldumeðlimi í heimsókn, svo ekki sé minnst á Ferstiklufesti- valið. Búskapurinn var honum kær og lagði hann mikinn metnað í að koma upp góðum fjárstofni en berja- tíðin var hans annar annatími þar sem ekki var keppst við að tína í föt- ur heldur fylla heilu frystikisturnar. Börn okkar Búa, Ásta María og Ósk- ar Gísli, eiga góðar minningar um afa sinn sem ávallt var til í sprell, lofa þeim að gefa í fjárhúsunum, smala, spila og fara í berjaferðir sem gátu tekið óvænta stefnu. Talaði afi þá alltaf um hversu dugleg börnin voru og höfðu mikinn áhuga og út- hald. „Afa-kossinn“ er það sem börnin koma til með að muna eftir þegar þau hugsa til afa í sveitinni. Lífið getur verið ófyrirsjáanlegt og skrítið. Að hugsa til þess að þau hjónin ættu eftir að kveðja þetta líf svo snöggt og með svo stuttu milli- bili er nokkuð sem engan óraði fyrir fyrr á þessu ári. Huggun okkar get- ur falist í tilhugsuninni að þau, amma og afi, hafi tekið upp þráðinn frá því í vor og séu farin að huga að nýjum ferðalögum. Kæra fjölskylda, megi góður guð styrkja okkur öll í sorginni og hjálpa okkur að varðveita fallegar minning- ar um góðan vin. Rakel Óskarsdóttir og börn. Látinn er Gísli Búason, sem var góður vinur fjölskyldunnar og ein- stakur nágranni í áratugi. Það er bjart yfir minningu hans og í hugann koma nokkrar myndir honum tengd- ar. Ferstikla var bærinn hans. Þar fæddist Gísli og átti heima allt sitt líf. Hann elskaði fjörðinn sinn, fagra Hvalfjörðinn, og vildi hvergi annars staðar vera. Heimili Gísla og Sísíar var griðastaður, þar sem öllum var tekið opnum örmum. Alltaf var tími fyrir spjall og gott kaffi. Menn og dýr voru vinir hans. Alla ævi átti Gísli kindur og hann var sauðfjárbóndi að ævistarfi. Hann annaðist vel um skepnurnar. Gísli var mikill mannvinur og sem barn var gott að vera í návist hans. Fá að fylgja honum eftir við bústörfin, gefa á garðann, sækja kindurnar, sjá að hann þekkti þær allar og finna hvernig hann var hirðir þeirra. Gísla var lagið að fela börnum verkefni sem hæfðu aldri og þroska. Það var mikill áfangi þegar þeim aldri var náð að maður mátti stjórna heyblás- aranum og þjappa í hlöðunni á milli vagna. Gísla voru falin margvísleg verk- efni í sveitinni. Hann var lengi í hreppsnefndinni og var hreppstjóri. Það voru skemmtilegar ferðir þegar farið var og kosið utankjörstaðar á heimili hans. Gísli hafði einstaklega fallega rithönd og var mjög vand- virkur í störfum sínum. Hann var greindur maður, vel lesinn, viðræðu- góður og hafði skemmtilegt skop- skyn. Gísli hafði sterka réttlætis- kennd og var skoðanafastur. Lífsgleði Gísla smitaði út frá sér. Það var augljóst að hann hafði gam- an af lífinu, naut hvers dags og þakk- aði fyrir allt það góða sem lífið hafði fært honum. Hann taldi sig lánsam- an mann, hafði lifað langa ævi, átt góða konu og fengið að fylgjast lengi með börnum sínum og ört stækkandi hópi afkomenda þeirra. Öllum sem Gísla voru kær sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu Gísla Búa- sonar. Systkinin frá Saurbæ; Sigríður Munda, Guðjón Ólafur, Jóney og Einar Kristján. Þegar góðir vinir falla frá hrekkur maður við og gengur ósjálfrátt á vit minninganna. Nú er það Gísli Búa- son sem óvænt hefur verið kallaður af heimi þessum. Í júnímánuði árið 1988 tókust kynni með sex hjónum þá stöddum í Móseldalnum í Þýskalandi. Á meðal þessara hjóna voru þau Gísli og Sísí á Ferstiklu svo og við hjónin á Laxa- mýri. Þessi hjónahópur tók svo að ferðast saman utanlands og innan og hélst svo í nær 20 ár. Þá voru og heimsóknir innan hópsins tíðar. Aldrei bar skugga á þessi kynni og allar samverustundir voru því bæði gleði- og ánægjustundir. Gestrisni þeirra Ferstikluhjóna var ósvikin og kom beint frá hjart- anu og saman skópu þau hinn góða anda heimilisins. Gísli var maður góðum gáfum gæddur og fjölfróður, enda naut hann bæði trausts og trúnaðar. Einn af hans hæfileikum var sá að hann var prýðisvel hagmæltur og voru vísurnar hans vel vandaðar eins og allt sem hann lét frá sér fara, hvort heldur voru andans verk eða handa. Náttúrubarn var Gísli og naut hann sín vel úti í náttúrunni, hvort heldur það var á berjamó eða með veiðistöngina sína við einhverja lax- veiðiána í Borgarfirði. Hann var maður hlédrægur og ljúfur og fór hvorki með flaustri né hávaða. Eins og slíkum er tamt mun hann hafa betur notið sín í þröngum vinahópi en í fjölmenni og kannski best í tveggja manna tali. Nú hefur dauðinn höggvið þrjú skörð í þann vinahóp sem hér er að framan getið og er þeirra horfnu sárt saknað af þeim sem eftir standa. Í þessu tilfelli er minningin um góðan vin fjársjóður sem mölur og ryð fær eigi grandað. Hlotnist þér gnótt af gæðum, Guð faðir leiði þig. Lýsi þér ljós af hæðum, lífsins á ókunna stig. (Vigfús Bjarni Jónsson) Um leið og við hjónin þökkum Gísla kærar stundir og kynni góð óskum við honum yndis á ókunnri strönd og sendum öllum hans að- standendum hugheilar samúðar- kveðjur. Sigríður og Vigfús, Laxamýri. Gísli Búason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.