Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 26
26 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Ég fékk ótrúlega mikla at-hygli úti í Tyrklandi afþví að ég var fyrsti Ís-lendingurinn sem tók þátt í þessari keppni. Ég fór í sjón- varpsviðtal og tvö blaðaviðtöl,“ segir Selma Þórhallsdóttir sem tók í sum- ar þátt í alþjóðlegri söngkeppni ung- menna í Ankara í Tyrklandi, svokall- aðri Turkce Olimpiyatlar. Selma er 12 ára en í keppninni voru ungmenni á aldrinum 12-20 ára. Skilyrði fyrir þátttöku var að þau ættu ekki heima í Tyrklandi og að þau gætu sungið á tyrknesku. Selma er fædd og uppal- in á Íslandi en þar sem hún á tyrk- neska móður, þá talar hún bæði ís- lensku og tyrknesku, svo þetta var ekkert vandamál fyrir hana. „Þetta var rosalega gaman og ótrúlegt æv- intýri. 700 krakkar frá 115 löndum tóku þátt og sumum þeirra kynntist ég það vel að ég er enn í sambandi við þau á netinu. En þetta var líka rosalega mikil vinna. Ég þurfti að vakna klukkan sex á morgnana og var á fullu allan daginn, bæði við að kynna Ísland í básnum mínum og svo voru æfingar fyrir keppnina. Það er líka mjög heitt á þessum tíma í Tyrklandi,“ segir Selma sem söng án undirleiks fyrir um fjögur þúsund áhorfendur og gerði það með mikl- um sóma. Búið þið í snjóhúsum? Selma klæddist íslenskum þjóð- búningi sem vakti mikla athygli en krakkarnir sem tóku þátt voru allir í þjóðbúningum frá sínu landi. „Þetta var mjög litríkt, allir þessir fallegu búningar, meðal annars frá Alaska, Tansaníu, Kólumbíu, Egyptalandi og Aserbaídsjan svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Zeynep, mamma henn- ar, og bætir við að þátttaka Selmu hafi verið mikil landkynning fyrir Ís- land. „Við vorum með bæklinga um Ís- land og fólk var mjög forvitið um landið og spurði ótal spurninga. Margir vissu ekki hvar Ísland er og héldu til dæmis að það væri nálægt Ástralíu og aðrir spurðu hvort hér væru snjóhús,“ segir mamma henn- ar og hlær. „Við fórum saman í þetta ævintýri, ég og dætur mínar þrjár, þær Selma, Telma og Helma. En á næsta ári ætlar íslensk vinkona Selmu að taka þátt í keppninni fyrir hönd Íslands, hún Klara Margrét Arnarsdóttir, og nú erum við að kenna henni tyrkneskt lag. Þá ætl- um við með harðfisk, hangikjöt og ís- lenskan ost með okkur til að leyfa fólki að smakka eitthvað sem er al- veg séríslenskt,“ segir Zeyneo sem hefur búið á Íslandi í um tuttugu ár og hún er ein af þeim sem standa að því að stofna tyrkneskt-íslenskt menningarfélag hér á landi sem verður í Síðumúla 15. „Það eru svo margir Tyrkir sem búa á Íslandi og eiga íslenska maka. En þetta félag er opið fyrir alla.“ Söng fyrir hönd Íslands í Tyrklandi Í Ankara Selma á keppnisdaginn ásamt tveimur vinkonum sínum frá Kólumbíu sem einnig tóku þátt. Selma heldur enn sambandi við suma krakkana sem hún kynntist í keppninni. Yngri systur hennar, þær Telma og Helma, standa með henni við brot af þeim 115 fánum sem flaggað var á stóra deginum. Morgunblaðið/Heiddi Heima á Íslandi Selma er glaðlynd stelpa og æfir körfubolta á fullu. Margir vissu ekki hvar Ís- land er og héldu til dæmis að það væri nálægt Ástr- alíu og aðrir spurðu hvort hér væru snjóhús. Hún söng án undirleiks fyrir fjögur þúsund manns þegar hún fyrst Ís- lendinga tók þátt í al- þjóðlegri söngkeppni í Tyrklandi í sumar. Hún þurfti að svara mörgum og stundum skrýtnum spurningum um Ísland. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Í DAG, laugardag, verða íslensk- suðurafrísku hjálparsamtökin Enza með dagskrá í Smáralind frá kl. 14- 16. Meðal þeirra sem koma fram eru Friðrik Ómar og Jógvan sem syngja lög af nýjustu plötu sinni auk þess sem Vigdís Arnardóttir, söng- og leikkona, treður upp. Stebbi og Eyfi syngja líka og boðið verður upp á andlitsmálningu og ís fyrir yngstu kynslóðina. Auk þess mun fjöldi annarra skemmtilegra atriða verða í boði listamanna sem allir gefa vinnu sína til styrktar Enza. Enza-samtökin einbeita sér að því að hjálpa stúlkum og konum í Suður-Afríku sem verða barnshaf- andi og þurfa að gefa frá sér barn sitt vegna fátæktar eða útskúfunar. Að vera einstæð móðir í fátækra- hverfum Suður-Afríku er litið horn- auga og í mörgum tilfellum hefur konunum verið útskúfað úr sam- félögum sem þær búa í, eða þá að þær flýja til að halda leyndu að þær séu barnshafandi og gefa síðan barnið frá sér. Í mörgum tilfellanna er stúlkunum nauðgað, en þrátt fyrir að Suður Afríka sé fallegt land sem búi yfir mörgum tækifær- um, þá hefur landið þann vafasama heiður að vera það land þar sem nauðganir eru flestar á heimsvísu. Þar er konu nauðgað á 17 sekúndna fresti samkvæmt könnun Gallup. Í könnuninni kemur meðal annars fram að önnur hver kona í Suður- Afríku á það á hættu að verða nauðgað. Verði konur ófrískar í kjölfar nauðgunar eru þær gjarnan gerðar ábyrgar fyrir nauðguninni og þeim oftar en ekki útskúfað út af skömm yfir því að vera barnshaf- andi utan hjónabands. Yfirleitt eiga stúlkurnar ekki afturkvæmt. Allt niður í 11 ára gamlar stúlkur eru þannig neyddar út í barneignir, því vegna skorts á heilsugæslu upp- götva þær oft ekki að þær eru barnshafandi fyrr en of seint er að framkvæma fóstureyðingu. Ruth Gylfadóttir hafði frum- kvæði að stofnun Enza-samtakanna fyrir tveimur árum. Í fyrstu var hún eina íslenska konan sem starf- aði við verkefnið, í náinni samvinnu við NorSa, sem eru norsk/ suðurafrísk samtök sem starfa á þessu svæði. Í júní 2008 fékk hún svo til liðs við sig 6 duglegar ís- lenskar konur og saman stofnuðu þær Enza með formlegum hætti og hafa samtökin lögheimili og varn- arþing á Íslandi. Ruth er stjórn- arformaður samtakanna og vinkon- ur hennar sem komu að stofnun samtakanna eru allar í stjórn með henni. Ruth hefur verið búsett í Western Cape í fjögur ár ásamt fjöl- skyldu sinni. Starfsemi Enza-samtakanna fer fram í nágrenni Höfðaborgar, í Mbekweni/Newrest-fátækrahverf- inu og Ruth sér um allan daglegan rekstur sem og kennslu. Allt henn- ar starf er í sjálfboðavinnu og mikið er lagt upp úr að hafa enga yf- irbyggingu. Hún segir tvær íslensk- ar konur hafa komið til hennar í Suður-Afríku til sjálfboðastarfa við sjúkraþjálfun og almenna aðstoð. Dagskráin í Smáralindinni í dag er fjáröflunarsamkoma fyrir Enza- samtökin. Söfnunin miðar að því að fá mánaðarleg framlög fyrir rekstri skóla og að festa kaup á húsnæði sem verður tímabundið heimili fyrir stúlkurnar á meðan þær eru að fóta sig í tilverunni. www.enza.is. Söngfólk, skemmtun og ís í Smáralind Ljósmynd/Neil John Smith Tölvutími Ruth að kenna þremur konum í skólanum í Suður Afríku. BARBIE er ekki með nógu granna ökkla, eða það er a.m.k. skoðun skó- hönnuðarins fræga Christian Louboutin. Framleiðandi Barbie- dúkknanna, leikfangarisinn Mattel, hefur hafið samstarf við Louboutin og á hann að verða nokkurs konar guðfaðir Barbie næstu árin. Í því felst m.a. að hann endur- hannar fatnað hennar og lét Loubo- utin eftirfarandi ummæli falla þegar hann ræddi um hvernig hann ætlaði að breyta Barbie: „Hún þarf frá- bæra skó, grennri ökkla og fyrir mér, þar sem ég er með fætur á heil- anum, þarf hún einnig að vera með bognari ristar. “ Barbie Þarf að skella sér í ræktina. Barbie með feita ökkla?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.