Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 Hættumatsnefnd Mýrdalshrepps Í samræmi vi› ákvæ›i laga nr. 49/1997 og regluger›ar nr. 505/2000 hefur veri› unnin tillaga a› hættumati vegna ofanfló›a fyrir Vík í Mýrdal. Tillagan liggur nú frammi til kynningar á skrifstofu Mýrdalshrepps. Athugasemdum skal skilað til Mýrdalshrepps í síðasta lagi þriðjudaginn 1. desember 2009. Hættumat fyrir Vík í Mýrdal SAMTÖKIN Heimili og skóli hafa formlega ýtt úr vör átaki gegn einelti með kynningu á fræðsluhefti fyrir foreldra um einelti. Í tilefni átaksins vill SAFT vekja athygli á rafrænu einelti með tilvísan í nýja könnun. Meðal niðurstaða í könnuninni er að 15% barna segja að sér hafi verið strítt, orðið fyrir áreitni, ógnað eða farið hjá sér í gegnum spjall á netinu síðustu 6 mánuði. Þetta er sama hlut- fall og árið 2007, en það var 10% árið 2003. Fleiri börn segjast hafa fengið skilaboð í farsíman sem voru óþægi- leg eða hræddu þau, voru tæp 10% árið 2007 en fór í 12% í ár. Tæp 20% barna sögðust hafa feng- ið tölvupóst sem olli þeim áhyggjum eða hræddi. Sama hlutfall var 16% árið 2007 og 13% árið 2003. 12% barna hafa sett texta á netið sem var andstyggilegur í garð ann- arrar persónu eða hóps, en voru 15% árið 2007 og 9% árið 2003. Fjöldi barna sem telja það ólög- legt að ljúga um aðra á netinu er 55% en var 52% árið 2007. 50% barna telja það ólöglegt að hrella aðra á netinu sem er engin breyting frá árinu 2007. 15% barna hafa orðið fyrir stríðni eða áreitni á netinu Í HNOTSKURN »Rafrænt einelti birtist áýmsan hátt, sem skilaboð í netpósti, SMS eða myndir af ýmsum toga. Tæp 20% barna sögðust hafa fengið tölvupóst sem olli hræðslu Í NÆSTU viku munu öll grunnskólabörn í 1.-3. bekk í Reykjavík fá endurskinsvesti að gjöf frá Reykjavíkurborg. Börnin eru hvött til að nota vestið á leið til og frá skóla og við önnur tækifæri, til dæmis á leið í tómstundarstarf, svo þau sjáist betur í umferðinni á dimmustu mánuðum ársins sem nú fara í hönd. Þá munu börn í 4.-6. bekk einnig fá afhent endurskinsmerki. Kjartan Magn- ússon, formaður menntaráðs, afhenti fyrstu vestin í gær í Álftamýrarskóla og krakkarnir í 1-3 bekk fylgja honum hér yfir gangbraut. Hann sagði krakkana hafa verið hæstánægða og þau hafi kallað þetta lögguvesti því lögreglan sem mætti á svæðið var einnig klædd slíku vesti. Það hafi verið heilmikil upphefð fyrir þau að klæðast samsvar- andi búningi og lögreglan. Hann sagði nauðsyn- legt að ítreka notkun endurskinsmerkja úti í um- ferðinni á hverju hausti en borgin mun gefa um 5000 vesti á næstu vikum. Mikilvægt er að for- eldrar séu góð fyrirmynd og noti sjálfir end- urskinsmerki. Hægt er að auka öryggi í umferð- inni margfalt með því að nota þau einföldu og ódýru öryggistæki sem endurskinsmerki eru. Börn sem eru með endurskin sjást fimm sinnum fyrr en ella. Að gefa endurskinsvesti er liður í um- ferðaröryggisátaki sem menntaráð Reykjavík- urborgar ákvað að efna til nú á haustmánuðum. Átakið er í samvinnu við lögregluna, Umferð- arstofu og SAMFOK, samtök foreldra grunn- skólabarna í Reykjavík. khk@mbl.is Nauðsynlegt að börnin sjáist vel á dimmustu mánuðum ársins Morgunblaðið/Árni Sæberg Börn fá endurskinsvesti að gjöf frá borginni Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is UMRÆÐAN um nýtt fyrirkomulag atvinnuleysis- trygginga er rétt að hefjast og ýmsar útfærslur mögulegar. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í erindi sem hann flutti á ársfundi Vinnumálastofnunar í gær. Fram kom hjá Vilhjálmi að ríkisstjórnin hefði léð máls á viðræðum en það væri grundvallarsjónarmið að þeir sem borgi bæturnar, þ.e. atvinnulífið, beri meiri ábyrgð ásamt því að þeir sem fái þjónustuna komi að stjórnuninni. Fyrirkomulag trygginganna verði að vera þannig að þær feli í sér bæði hvata til árangurs og hagkvæmni. Þær hugmyndir sem rætt hafi verið um byggi ekki á því að hverfa aftur til eldra fyrirkomulags heldur að horfa til framtíðar. Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands gerðu kröfur um breytingar í viðræðum um stöð- ugleikasáttmálann. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, hefur lýst því yfir opinberlega að hann hafi miklar efasemdir um gagnsemi þess að flytja þjónustu stofnunarinnar annað. Þetta sé flókin opinber þjónusta, sem fari fram samkvæmt lögum. Hann ítrekaði þessi sjónarmið sín á að- alfundinum í gær. Þurfum samhæft átak Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, þakkaði starfsfólki Vinnumálastofnunar mikið og gott starf á liðnu ári þegar hann ávarpaði ársfundinn. Ráðherra sagðist ekki taka undir gagnrýni sem fram hefur komið um að stofnunin sinni ekki þörfum atvinnulausra nógu vel og bætti við að til að sinna þeim þúsundum sem nú eru atvinnulausir dugi ekki ein stofnun. „Við þurfum að bregðast við sem þjóð. Við þurfum samhæft átak gegn þessum gríðarlega vanda. Við Íslendingar höfum góða reynslu af því að bregðast við náttúruhamförum. Þar leggjast allir á eitt og aðgerðir eru samhæfðar. Opinberir aðilar og sjálfboðasamtök vinna saman til að aðstoða fólk og bjarga verðmætum.“ Vilhjálmur Egilsson sagði á fundinum að réttinda- kerfið yrði áfram lögbundið og allir tryggðir. Hug- myndirnar snúist um að Atvinnuleysistryggingasjóð- ur flytjist úr ríkiskerfinu og verði sjálfstæður sjóður með lögbundið hlutverk. Útgreiðslur bóta og öll bak- vinnsla vegna fjármála verði miðlæg. Vilhjálmur sagði að stéttarfélög yrðu helstu veit- endur þjónustunnar til einstaklinga og gerðir yrðu þjónustusamningar við þau um verkefni. Ráðgjafar undir faglegri stjórn sjóðsins muni veita fólki þjónustu en hugmyndin sé m.a. sú að efla vinnumiðlun, en Vil- hjálmur sagði það staðreynd að fyrirtæki hafi lítið not- fært sér þá þjónustu Vinnumálastofnunar. Í stað vinnumarkaðsráða verði byggð upp og rekin stuðn- ingsnet fyrirtækja, annarra vinnuveitenda og ráðn- ingarstofa. Hugmyndavinna á frumstigi Vilhjálmur sagði í niðurlagi erindisins ljóst að að- koma aðila vinnumarkaðarins að samfélagslegum verkefnum hefði skilað árangri. Markmiðin með fyrr- greindum breytingum séu að tryggja betri og virkari þjónustu og meiri hagkvæmni. Hugmyndavinna sé á frumstigi en Samtök atvinnulífsins ásamt Alþýðusam- bandi Íslands muni hafa frumkvæði að þróun málsins. Atvinnuleysið í sjálfstæðan sjóð  Ekki verið að hverfa til eldra fyrirkomulags, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins  Félagsmálaráðherra segist ekki taka undir gagnrýni sem fram hefur komið á Vinnumálastofnun Gissur Pétursson HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur sektað karlmann um 300 þúsund krónur fyrir slæma meðferð á hrossum sem hann hélt. Maðurinn var upphaflega ákærður fyrir að vanrækja aðbúnað, umhirðu og fóðrun á fjórum hrossum, ákæra vegna eins hrossins var dregin til baka, maðurinn var sýknaður vegna eins en sakfelldur vegna tveggja hrossa. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa farið með heyrúllur frá Árnessýslu um Þjórsárbrú, en ekki er leyfilegt að flytja hey milli búvarnarsvæða. Maðurinn var árið 2006 sektaður um 700 þúsund krón- ur vegna illrar meðferðar á ellefu hrossum. Ekki þóttu efni til að svipta ákærða rétti til að eiga og halda búfénað eins og krafist var. Dæmdur aftur fyrir illa með- ferð á hrossum TOLLGÆSLAN stöðvaði í lok september íslenska konu á fertugs- aldri í Leifsstöð. Konan, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, reynd- ist við rannsókn vera með rúmlega 100 grömm af kókaíni falin innvort- is. Fram kemur á vef tollgæslunnar, að lögreglan fékk málið til rann- sóknar. Með 100 grömm af kókaíni innvortis Vilhjálmur Egilsson undirstrik- aði í ræðu sinni að verði sú leið farin að breyta atvinnuleysis- tryggingakerfinu verði leitað til starfsfólks Vinnumálastofnunar um að starfa áfram við atvinnu- leysistryggingar, en nýtt fyrir- komulag utan ríkiskerfisins tel- ur hann að bjóði upp á sveigjan- legri starfsemi. Vinnumálastofnun muni hins vegar áfram sinna ábyrgðar- sjóði launa, fæðingarorlofs- sjóði, útgáfu atvinnuleyfa til út- lendinga og eftirliti með vinnumarkaði og misnotkun ásamt því að úrskurða vegna kærumála, sem upp kunni að koma. Sveigjanlegra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.