Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 ✝ Flosi GunnlaugurÓlafsson fæddist í Reykjavík 27. október 1929 og hefði því orð- ið áttræður sl. þriðju- dag. Hann lézt á Landspítalanum 24. október sl., í kjölfar umferðarslyss. For- eldrar Flosa voru Ólafur Jónsson verzl- unarmaður í Reykja- vík og Anna Odds- dóttir, síðar Stephensen, kaup- kona í Reykjavík. Hálfsystkini Flosa samfeðra eru Guðmundur Óskar, sóknarprestur, nú látinn, Sverrir, viðskiptafræð- ingur í Reykjavík, og Sigríður Jón- ína, nú búsett í Ástralíu. Hálfsystkini Flosa sammæðra eru Þuríður Frið- jónsdóttir Stephensen, kennari, Ólafur Stephensen, kennari í Sví- þjóð, og Guðlaug Stephensen, sjúkraliði. Kjörforeldrar Ólafs voru Flosi Sigurðsson trésmíðameistari og Jónína Jónatansdóttir verkalýðs- foringi, föðursystir Ólafs. Anna, móðir Flosa, var dóttir Guðlaugar Kristjánsdóttur, trésmiðs á Eyr- arbakka, og Odds Bjarnasonar, skó- smiðs í Reykjavík. Eiginkona Flosa er Lilja Mar- geirsdóttir, f. 5. maí 1936. Hún er dóttir Margeirs Sigurjónssonar, for- stjóra í Reykjavík, og Kristínar Laufeyjar Ingólfsdóttur húsfreyju, Árið 1989 flutti Flosi að Bergi í Reykholtsdal og hefur búið þar síð- an. Bækur Flosa eru m.a. Slett úr klaufunum, 1973, Hneggjað á bók- fell, 1974, Leikið lausum hala, 1975, Í kvosinni, 1982, og Ósköpin öll, 2003. Í kvosinni er endurútgefin árið 2009 í tilefni áttræðisafmælis höf- undar. Leikrit eftir Flosa eru m.a. Bakkabræður, barnaleikrit í út- varpi, 1957, Prívatauga, sakamála- leikrit fyrir útvarp, 1958, Þorskhall- arundrin, gamanópera í útvarpi, 1958, Ringulreið, gamanópera færð upp í Þjóðleikhúskjallaranum 1967 og sýnd í sjónvarpi 1976, Örlagah- árið sýnt í sjónvarpi 1967 og Slúðrið, fært upp hjá Leiklistarskóla ríkisins 1978. Flosi þýddi söguna Bjargvættinn í grasinu eftir J.D. Salinger, 1975. Fyrir Þjóðleikhúsið hefur hann þýtt söngleikina Prinsessuna á bauninni, Gæja og píur, Chicago, Oliver Twist og Söngvaseið. Er þýðing hans á því síðastnefnda notuð í uppfærslu Borgarleikhússins á söngleiknum um þessar mundir. Þá þýddi hann fyrir leikhúsið leikritin Hallær- istenór, Verið ekki nakin á vappi og Himneskt er að lifa. Þá þýddi hann óperetturnar Sardasfurstynjuna og Kátu ekkjuna fyrir Íslenzku óperuna en auk þess talsvert af sönglagatext- um og útvarpsleikritum. Flosi var um hríð formaður Leik- arafélags Þjóðleikhússins og sat í stjórn Félags íslenzkra leikara. Flosi verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju í dag, 31. október, og hefst athöfnin klukkan 14. sem lifir tengdason sinn, 99 ára að aldri. Sonur Flosa og Lilju er Ólafur, hljóðfæra- leikari, tónlistarkenn- ari og hrossabóndi. Hann er kvæntur El- ísabetu Halldórsdóttur kennara; eru börn þeirra Anna og Flosi. Dóttir Flosa og Veru Kristjánsdóttur er Anna Ingibjörg, mynd- listarmaður og kenn- ari, gift Bjarna Hjart- arsyni. Börn þeirra eru Flosi, Ólöf, Halla, Hjörtur og Ævar. Langafabörn Flosa eru átta. Flosi ólst upp í kvosinni í Reykja- vík. Hann útskrifaðist stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1953. Hann nam leiklist við Leiklist- arskóla Þjóðleikhússins árin 1956- 1958 og leikstjórn og þáttagerð hjá Brezka ríkisútvarpinu á árunum 1960-1961. Flosi var leikari og leik- stjóri hjá Þjóðleikhúsinu frá 1958, stofnaði Nýtt leikhús 1959 og starf- rækti það um hríð. Hann var fast- ráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu á árunum 1960-1998 og urðu hlutverk hans þar hátt á annað hundrað. Flosi samdi, stjórnaði og leikstýrði fjölda þátta í revíuformi fyrir útvarp og sjónvarp, m.a. fimm áramóta- skaupum og fjölmörgum öðrum þáttum á árunum 1962-1970. Þá hef- ur hann leikið í fjölda kvikmynda. Elsku afi. Missirinn er mikill og skrítið að hugsa til þess að þú takir ekki á móti mér aftur með hlýju faðmlagi, pínu stríðni og hrossahlátri. Hringir til að segja mér hvað sé óhemju langt síðan ég hafi komið, og til að fylgjast með hvað ég sé að gera og segja skoðun þína. Stundum vorum við ekki sammála og mér fannst þú vera með óþarfa afskiptasemi og áhyggjur. En nú sé ég að auðvitað var þetta ekkert annað en vænt- umþykja. Ég lít á mig sem ríka manneskju að hafa alist upp við þær aðstæður að eiga alltaf tvö heimili bæði hjá foreldrum mínu og hjá þér og ömmu. Það var unaðs- legt að horfa á sambandið sem þið amma áttuð og hvað það einkennd- ist af mikilli virðingu, ást og vin- áttu. Stundum fannst mér þú óþarf- lega kröfuharður við hana og hafði orð á því en þá sagði hún: „svona vil ég hafa það og svona er ég búin að ala hann upp“. Ég ætla að kveðja þig með ljóði, Ástarkveðja til Lilju, sem þú ortir til ömmu Alltaf man ég ástin mín upphafskynnin ljúfu þau voru einsog sólarsýn í suddaveðri hrjúfu. Æ hvað ég var ungur þá óvaxinn úr grasi þú varst yngri, björt á brá og barnaleg í fasi. Alltaf hef ég óskað mér ávöxt þessa fundar að fá að hvíla í faðmi þér fram til hinstu stundar. Elsku amma, missir þinn er mik- ill og bið ég góðan Guð að styrkja þig og leiða næstu daga. Þín Anna Ólafsdóttir. Ein af síðustu minningunum um hann stóra bróður minn er eins og málverk: hann liggur í heita pott- inum á Bergi með lokuð augun og sölnað haustlaufið af trjánum flýtur allt í kringum hann. Eitt andartak hvarflar að mér að hann sofi eða hann sé dáinn. Svo opnar hann augun, brosir og býður mér í pottinn. Við spjöllum saman, ég man nú ekki um hvað það var, kannski sagðir hann mér þá að rútína væri ágæt, hann færi t.d. í sjoppuna á hverjum degi og keypti sér snickers og eina kalda kók. Ég veit líka að hann borðar alltaf demantssíld á morgnana og kornflex með rjóma. Rjómi skal það vera. Nú er þessi stóri bróðir minn farinn og það með hvelli eins og vænta mátti. Hann var stóri bróðir í þess orðs fyllstu merkingu; fyrir- ferðarmikill. Hann ruggaði svo sannarlega bátnum svo ég horfði stóreyg á. Það var mikil spenna kringum bróður, allt gat gerst, allt var að gerast. Hann var blíður og góður en líka oft reiður og mikið stríðinn. Ósköp er nú miklu leiðinlegra þegar þú ert farinn og auðvitað hefðum við getað vakað lengur en varla verið betri hvort við annað. Farðu í friði, elsku bróðir. Þuríður Friðjónsdóttir Stephensen. Mjök erum tregt tungu at hræra eða loptvætt ljóðpundara; esa nú vænligt of Viðurs þýfi né hógdrægt ór hugar fylgsni. Svo orti skáldið, hetjan og Borg- firðingurinn Egill Skallagrímsson í sorg sinni eftir dauða sona sinna, Þorsteins og Gunnars. Nú líður mér eins þegar tvífari Egils, Flosi Ólafs- son, er allur. Ég var átta ára þegar systir mín Lilja tók unnusta sinn, Flosa, á æskuheimili okkar á Brávallagötu. Með okkur Flosa tókust þegar kær- leikar sem vörðu alla ævi. Hann varð mér meira en mágur, varð eldri bróðir, faðir og meistari. Eng- inn hefur haft meiri áhrif á líf mitt. Hann mótaði mig frá upphafi. Skóp lífssýn mína, skoðanir og skopgáfu. Við urðum nánir og heils- uðumst og kvöddumst ávallt með faðmlögum og kossum. Ég ólst meira upp á heimilum Flosa og Lilju en hjá raunverulegum foreldr- um mínum. Lilja hafði alltaf verið stóra systir mín með móðurígildi og eftir kynnin við Flosa varð ég sem sonur þeirra. Flosi var fyrirferðarmikill maður. Nærvera hans var yfirþyrmandi. En ávallt hlý eins og sumarvindur. Það leið öllum vel í návist Flosa. Hann var blíður, skilningsríkur, fróður og skemmtilegur fram úr hófi. Hann var sannur listamaður; vel að sér í tónmennt, bókmenntum og myndlist. En fyrst og fremst var hann lífskúnstner sem ekkert var heilagt. Af honum lærði ég að bera ekki of mikla virðingu fyrir neinu eða neinum. Þetta viðhorf mótaði pólitíska og félagslega heimssýn mína: Að hlæja að sem flestu. Nú er sterkur og kröftugur hlát- ur hans þagnaður. Þrúgandi þögnin og tómið tekið við. En ég á ennþá Lilju. Það er huggun í tóminu. Nú erum torvelt: Tveggja bága njörva nipt á nesi stendr; Skalt þá glaðr með góðan vilja ok óhryggr heljar bíða. Þakka þér elsku Flosi, fyrir veg- ferðina. Þú hefur gert líf mitt svo miklu betra og skemmtilegra. Ingólfur Margeirsson. Elsku stóri bróðir. Já, þú varst svo sannarlega stóri bróðir. Þegar ég var lítil fórst þú út í heim að læra en ég var bara lítil stelpa sem safn- aði servíettum. Þú vissir af því og varst duglegur að safna fyrir mig hvar sem þú komst í London, settir í brún stór umslög og sendir Dullu litlu systur. Það var líka oft glatt á hjalla þegar við Óli sátum sitt hvor- um megin við þig á píanóbekknum og sungum m.a. Karíjóka. Þú varst mikil tilfinningavera, gast verið meyr eins og lítið barn, glaður, leið- ur en líka skapmikill. Sumir báru óttablandna virðingu fyrir þér en ég var alltaf óttalaus gagnvart þér. Ég man eitt aðfangadagskvöld, þú fékkst bók í jólagjöf, mig minnir að hún hafi verið eftir Guðmund Böðv- arsson, þú gast ekki beðið með að byrja að lesa hana og fyrr en varði byrjuðu tárin að renna niður kinn- arnar á þér. Fyrir mér voruð þið Lilja eitt, þú sagðir svo oft: „hún Lilja mín er svo æðislega skemmtileg, svo er hún alltaf svo flott“. Þú barst allt undir Lilju sem þú varst að gera, hún var þinn aðalgagnrýnandi. Lilja var þér allt. Það reyndi oft á þolrifin hjá Lilju þegar mikið var að gera og ég veit að öllu sem þú gerðir átti hún stóran þátt í. Það var gott að koma upp að „Stóra Aðal Bergi“, þú breiddir út faðminn og brostir svo blítt og sagð- ir: „nei, ert þú komin, elskan mín?“ og brúnu fallegu augun sögðu svo margt. Lilja reiddi fram veitingar og svo var setið í eldhúsinu og spjallað lengi. Ég kveð þig með söknuði, elsku stóri bróðir. Elsku Lilja mín, ég veit að sökn- uður ykkar allra er meiri en orð fá lýst. Megi góður Guð styrkja ykkur. Þín Guðlaug (Dulla). Þegar ég heimsótti Flosa frænda á Landspítalann föstudaginn 23. október heilsaði hann mér að venju Flosi Ólafsson ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN VALTÝSDÓTTIR, Haukanesi 5, Garðabæ, áður Sogavegi 220, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 16. október. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Guðbjörn Guðjónsson, Bergþóra Guðbjörnsdóttir, Karl Ásmundsson, Guðbjörn Karlsson, Julia Karlsson, Karl Rúnar Karlsson, Caitlin Dulac, Jóhann Ingi Karlsson og langömmubörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, BALDVIN ÁSGEIRSSON fyrrverandi framkvæmdastjóri, Furulundi 15c, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 28. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginnn 5. nóvember kl. 13.30. Ívar Baldvinsson, Valur Baldvinsson, Óttar Baldvinsson, Ásrún Baldvinsdóttir, Vilhjálmur Baldvinsson, Gunnhildur Baldvinsdóttir, Aðalbjörg Baldvinsdóttir, Stefán J. Baldvinsson og fjölskyldur. ✝ Elsku hjartans dóttir okkar, GUÐRÚN HEBA ANDRÉSDÓTTIR, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 29. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Andrés Sigmundsson, Þuríður Freysdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SVALA ÁRNADÓTTIR, Ekrusmára 1, Kópavogi, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 29. október. Björn Pálsson, Margrét Erla Björnsdóttir, Sverrir Guðmundsson, Björn Fannar Björnsson, Sandra Dögg Björnsdóttir, Hafþór Davíð Þórarinsson, Bjarki Rúnar Sverrisson, Björn Þór Sverrisson og systkini. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR J. S. FLÓVENZ fyrrv. framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, Kópavogsbraut 88, lést miðvikudaginn 28. október. Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz, Ólafur G. Flóvenz, Sigurrós Jónasdóttir, Brynhildur G. Flóvenz, Daníel Friðriksson, Margret G. Flóvenz, Tryggvi Stefánsson, Gunnar Gunnarsson, Bera Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.