Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 Á ÍSLANDI, líkt og annars staðar í heiminum, eru ein- staklingar sem hvergi eiga höfði sínu að að halla og teljast þeir vera ut- angarðs og/eða heimilislausir. Hluti þessa hóps er flest- um dulinn á meðan aðrir eru hluti af birtingarmynd miðbæjarins. Hérlendis hafa rannsóknir á þessum hópi verið af skornum skammti og aldrei hefur þessi hópur verið kortlagð- ur og því hafa tölur um fjölda einstaklinga sem teljast vera utangarðs og/eða heimilislausir á Íslandi verið mjög á reiki. Síðastliðið sumar var fram- kvæmd rannsókn á fjölda og hög- um utangarðsfólks í Reykjavík. Rannsóknin var unnin í samvinnu við nýsköpunarsjóð námsmanna og velferðarsvið Reykjavík- urborgar og byggist á stefnumót- un í málefnum utangarðsfólks sem samþykkt var haustið 2008 af velferðarráði Reykjavík- urborgar. Rannsókn þessi var gerð með markmið stefnumót- unarinnar í huga. Nokkuð hefur verið deilt um fjölda heimilislausra á Íslandi og hefur sérstaklega verið talið að konur og ungt fólkt í hópnum hafi verið vantalin. Mikilvægt er að skilgreina hverjir teljast til þessa hóps svo hægt sé að koma til móts við hann og þróa úrræði sem henta. Við framkvæmd kort- lagningarinnar og vettvangsrann- sóknarinnar var notast við skil- greiningu félagsmálaráðuneytisins á hús- næðisleysi frá árinu 2005 og skil- greiningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á heim- ilisleysi, ETHOS. Kortlagning á utangarðsfólki í Reykjavík var unnin sumarið 2009 í samstarfi við þjónustu- miðstöðvar Reykjavíkurborgar, ennfremur fengust upplýsingar um fjölda utangarðsfólks frá Reykjavíkurdeild Rauða kross Ís- lands, Samhjálp, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Fangels- ismálastofnun ríkisins og Hjálp- ræðishernum. Samkvæmt niðurstöðum kort- lagningarinnar taldist alls 121 einstaklingur utangarðs og/eða heimilislaus í Reykjavík þetta sumar en litið var til þriggja mánaða tímabils meðan á taln- ingu stóð. Af þessum 121 ein- staklingi var 21 í langtíma- búsetuúrræði á vegum Reykjavíkurborgar. Við kortlagninguna kom í ljós að meðalaldur einstaklinganna var 41 ár en þeir voru á aldrinum 18 ára til 75 ára. Fjórðungur hópsins var konur, eða alls 29. Kynjahlutfall og aldursdreifing hérlendis er með svipuðum hætti og annars staðar á Norðurlönd- unum. 95% þeirra sem töldust vera utangarðs og/eða heim- ilislausir voru íslensk að uppruna. Þegar búsetuaðstæður voru skoð- aðar kom í ljós að langflestir gistu við ótryggar aðstæður inni á vinum og ættingjum eða í neyð- arskýlum eins og Konukoti og Gistiskýlinu ásamt því að stór hópur gisti að einhverju eða öllu leyti á götunni. Fjórðungur hóps- ins var einstaklingar sem brátt myndu ljúka stofnanavist á borð við fangelsis-, sjúkra- eða með- ferðarvist og ekki var vitað um fastan samastað að henni lokinni. Konur gistu mun oftar við ótryggar aðstæður inni á vinum og ættingjum en karlar. Þær gistu ennfremur hlutfallslega oft- ar í neyðargistiskýli en karlar og einungis ein kona var skráð í langtímabúsetuúrræði. Tæp 60% hópsins höfðu verið heimilislaus í meira en tvö ár. Við kortlagninguna kom í ljós að ákveðinn hópur sem virtist fá þjónustu í Reykjavík var með lögheimili utan borgarinnar en það er nokkuð ljóst að sveit- arfélögin þurfa að standa saman þegar kemur að þessum mála- flokki. Aðalorsökin fyrir því að fólk varð utangarðs eða heimilislaust var samkvæmt kortlagningunni áfengis- og/eða vímuefnam- isnotkun ásamt geðrænum vanda- málum. Rúmlega tveir þriðju þeirra sem töldust heimilislausir og/eða utangarðs í Reykjavík neyttu áfengis og/eða vímuefna að staðaldri. Meira en þriðjungur hópsins átti við geðræn vandamál að stríða og virðast einstaklingar sem bæði eiga við neysluvanda og geðrænan vanda að stríða vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu gagnvart því að verða ut- angarðs eða heimilislausir. Und- irliggjandi geðræn vandamál geta því mögulega verið ástæða þess að viðkomandi neytir áfeng- is og/eða fíkniefna í óhóflegu magni en stundum getur neysla áfengis og/eða fíkniefna verið ástæða þess að geðræn vandamál geri vart við sig. Rannsóknin hefur veitt nýja sýn á málaflokkinn ásamt því að gefa greinargóða mynd af fjölda þeirra einstaklinga sem teljast utangarðs og/eða heimilislausir í Reykjavík. Vert er að taka fram að fjöldinn gæti verið vanmetinn þar sem ekki náðist í tæka tíð að fá upplýsingar frá öllum þeim sem koma að málaflokknum. Þessi hópur hefur verið kort- lagður hjá hinum Norðurlanda- þjóðunum með reglulegu millibili og líkt og þessi rannsókn hefur leitt í ljós er rík ástæða til þess að slíkt hið sama sé gert hér- lendis þar sem hópurinn er tölu- vert stærri en talið hefur verið. Rannsóknin hefur því rutt leið- ina í átt að betri og markvissari þekkingu á málaflokknum hér- lendis. Okkar von er sú að Reykjavíkurborg haldi áfram að leggja metnað sinn í vinnu með þessum hópi svo byggja megi upp þjónustu sem mætir einstaklingnum þar sem hann er staddur. Hægt er að nálgast rannsókn- ina á heimasíðu Reykjavík- urborgar. Eftir Elínu Sigríði Gunnsteinsdóttur og Erlu Guðrúnu Sigurðardóttur »Rannsóknin byggist á stefnumótun í mál- efnum utangarðsfólks og sambærileg rann- sókn hefur aldrei verið gerð hérlendis. Erla Guðrún Sigurðardóttir Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir er félagsfræðingur og Erla Guðrún Sigurðardóttir er MA-nemi í félagsráðgjöf. Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir Heimilislausir í Reykja- vík: fjöldi og aðstæður NÚNA fer það tímabil að hefjast þegar menn og konur læðast í felulitafötum um hæðir og hóla og reyna að sitja fyrir jólasteikinni. Þar sem veður hér á landi er síbreytilegt og aðstæður oft erf- iðar viljum við hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg koma nokkrum ábendingum til rjúpna- skyttna. Þrátt fyrir að flestar þeirra kunni vel til verka við veið- arnar er alltaf einhver hópur sem fer á fjöll vanbúinn og án þess að hafa þekkingu og reynslu í verk- efnið. Sá hópur er því miður of stór. Segir það sína sögu að í nóv- ember á síðasta ári voru björg- unarsveitir á landinu kallaðar út 11 sinnum til að leita að eða að- stoða rjúpnaskyttur í vanda. Auðvitað geta allir lent í óvæntum aðstæðum sem þeir ráða ekki við en mik- ilvægt er að reyna að koma hlutum þannig fyrir að það gerist sem sjaldnast. Nú er einungis leyfilegt að skjóta rjúpur þrjá daga í viku, þ.e. föstudag til sunnudags og því skiljanlegt að veiði- menn vilji nýta hvert tækifæri sem gefst. Á veturna er allra veðra von og mikilvægt er að fylgjast með veðri og veðurspám þá daga sem til stendur að fara á veiðar, og fara eftir þeim. Það er betur heima setið en af stað farið ef útlit er fyrir válynd veður. Góð regla er að skilja eftir ferðaáætlun, hvert skal halda og hve lengi, hve margir eru saman. Haldið ykkur við ferðaáætlunina og látið vita ef hún breytist. Hafið hugfast að á fjöllum er jafnan kaldara, hvassara og meiri úr- koma en á láglendinu. Verið því viðbúin því versta en vonið það besta. Nauðsynlegt er að hafa meðferðis vatnsheldan skjólfatnað, orkuríkt neyðarfæði, landakort og áttavita eða gps-tæki. Einnig er gott að hafa meðferðis flautu og sjúkrabúnað. Það er þó ekki nóg að taka með fínu og flottu tækin, við þurfum líka að kunna að nota þau. Hægt er að finna námskeið þar sem kennt er á gps-tæki og áttavita hjá ferðafélögunum og á fleiri stöðum. Snúið við í tæka tíð ef eitthvað kemur upp á, það er engin skömm að því að vera skynsamur. Kallið eftir aðstoð áður en í óefni er komið. Komum heil heim! Eftir Sæunni Ósk Kjartansdóttur Sæunn Ósk Kjartansdóttir » Verið því viðbúin því versta en vonið það besta. Höfundur er starfsmaður slysavarna- sviðs hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Rjúpnaskyttur – meira fyrir áskrifendur JÓLAGJAFIR FRÁ FYRIRTÆKJUM Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 9. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn í síma 569 1134 / 692 1010, sigridurh@mbl.is Glæsilegur blaðauki um allt sem snýr að jólagjöfum frá fyrirtækjum til starfs- fólks og viðskiptavina fylgir Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. nóvember. Þetta er handbókin í ár fyrir stjórnendur sem eiga eftir að ákveða hvað fyrirtækið ætlar að gefa samstarfsaðilum, viðskipta- vinum og eigin starfsfólki í jólagjöf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.