Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 36
eftir að Flosi væri látinn. Flosi Ólafsson er litríkasti persónuleiki sem ég hef kynnst, hann hafði svo miklu meira að miðla en nokkur annar, ekki aðeins var skopskyn hans algerlega óviðjafnanlegt, en það var einlægni hans líka og kannski ekki síst metnaður hans. Hann lagði sig alltaf allan fram við það sem hann tók sér fyrir hendur og það kom manni oft á óvart hvað hann var vandvirkur, nákvæmur og agaður. Flosi var mikill fjölskyldu- maður og fylgdist mjög náið með börnum sínum, barnabörnum og öðrum ættingjum. Ógleymanlegar eru lýsingar hans á hæfileikum Flosa Ólafssonar, sonarsonar síns, í hestamennsku. Þær voru slíkar að engu líkara var en þetta væri hann sjálfur. Það allrabesta sem Flosi átti var Lilja, konan hans. Hún hefur gegn- um árin verið honum allt og stutt hann og á mikinn þátt í öllu því sem Flosi hefur tekið sér fyrir hendur. Verið stoð hans og stytta gegnum lífið og glettni hennar og skapferli hefur áreiðanlega oft reynst Flosa uppspretta til ýmissa verka. Ég vil færa Lilju, Óla, Önnu, barnabörnum og örðum ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur okkar Guðnýjar. Gísli Alfreðsson. Mig langar til að skrifa fáeinar línur um hann Flosa sem verður jarðsunginn í Reykholti næsta laug- ardag. Ég held að ég hafi séð hann í fyrsta sinn þegar ég bjó í Vest- mannaeyjum með þáverandi eigin- manni mínum, Leifi Þórarinssyni. Flosi var þá í leikhópi sem fór kringum landið til að skemmta þjóðinni. Hópurinn, fimm manns, held ég, leit inn til okkar í kaffi, og margt var spjallað. Nokkrum árum síðar sá ég Flosa í veislu í Reykjavík. Hann var með brosmildri konu, á aldur við mig, í svörtum, ermalausum kjól. Þau voru hin kátustu, og ég komst að því að hún hét og heitir enn: Lilja Margeirsdóttir. Ég var svo lánsöm að við urðum miklar vinkonur og erum það enn. Þau Flosi bjuggu handan við Tjörnina, við Skothúsveginn held ég, og ekki var að sökum að spyrja, gestagangurinn var ótrúlegur. Ég man að Agnar Þórðarson rithöfund- ur, sem nú er látinn, sagði að heim- ili þeirra ætti að heita Litla Saga, því Hótel Saga, sem við þekkjum flest, gnæfði yfir nágrennið. En þar kom að þau höfðu fengið nóg og fluttu upp í Borgarfjörð. Þar gátu þau alið hesta, Ólafi syni sín- um til mikillar gleði, trúi ég. Ég naut líka gestrisni þeirra ríkulega, var stundum í lausum her- bergjum þeirra í Reykholti og stundum í auðum veiðihúsum, eða bara heima hjá þeim sjálfum. Hlýja ykkar hefur snortið mig og mína djúpt. En nú hefur Flosi kvatt og við syrgjum hann sárt. Elsku Lilja mín, Guð veri með þér og þínum og hjálpi ykkur að komast yfir þennan erfiða kafla í lífinu. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar, og þú færð líka hlýjar kveðjur frá Kristjáni og fjölskyldu okkar. Þín Inga Huld. mörgum árum hefði verið flutt í ein- lægni. Hvort hann væri í raun slík- ur náttúruunnandi. „Nei, Gunna mín, ég veit ekki hvað kom mér til að flytja þetta blaður fyrir jafn in- dæla konu og þig. Helst vildi ég auðvitað malbika yfir þennan gróð- urreit hennar Lilju. En hvað gerir maður ekki, maður leggst meira að segja á fjóra fætur og reytir arfa fyrir þá heittelskuðu.“ Það er ein- mitt það, sagði ég hrærð. Þið eruð svo samhent og ástfangin. „Elskan mín, láttu þér ekki detta það í hug, við rífumst alveg rosalega þegar enginn heyrir til,“ sagði Flosi og dýfði haus og öllu ofan í heita pott- inn, þegar hann kom upp úr aftur sagði hann: Það var nú bara í gær eftir klukkutíma rifrildi að ég horfði djúft í augu hennar og sagði: „Lilja, okkur þykir þrátt fyrir allt mjög vænt hvoru um annað“ – „okkur?“ Öskraði hún á mig „við sem höng- um bara saman á húsinu!“ Það var ekki lítið hvað henni Lilju þótti sinn heittelskaði fyndinn þarna í vorsól- inni í heitum potti. Og ég sem þótt- ist nú loksins vera farin að kunna á ólíkindatólið Flosa Ólafsson. Get að- eins sagt: Guð minn, hvað ég sakna þín, kæri vinur. Guðrún Ásmundsdóttir. Flosa verður ævinlega minnst fyrir hið óborganlega skopskyn hans og afrek hans á sviði lista, en vinir hans minnast hans ekki síður fyrir hlýju hans og einlæga vináttu. Þær eru margar stundirnar sem við eyddum saman í gegnum tíðina og alltaf fór maður af hans fundi með bros á vör og veröldin varð bjartari í huga manns. Síðari ár höfum við Guðný og Benedikt Árnason og Erna farið í dagsheimsóknir til Lilju og Flosa eins oft og því varð viðkomið. Ástríkt hjónaband þeirra og andinn á Bergi gerðu sérhverja heimsókn einstaka og eftirminni- lega. Náið samband okkar Flosa hefur verið mér mjög mikilvægt, hann var minn trúnaðarvinur og töl- uðum við reglulega saman í síma auk þess sem tölvur okkar voru samtengdar. Því eru minningarnar margar en núna finnst mér þó dýr- mætast síðasta samtal okkar á spít- alanum daginn fyrir andlát hans. Þegar ég gekk inn ganginn varð mér litið inn í fyrsta herbergið og þar sat Flosi á stól og var að lesa próförk að löngu viðtali sem birtist við hann í Morgunblaðinu daginn eftir. Hann var ánægður með við- talið og sagði mér að hann ætti líka von á heimsókn frá sjónvarpinu daginn eftir. Ég átti von á að sjá fárveikan mann miðað við það sem ég sá í gær, þegar ég heimsótti hann á gjörgæsluna, en það var nú aldeilis ekki. Hann var í fínu skapi og ekki vantaði glettnina frekar en fyrri daginn og sat ég hjá honum og röbbuðum við saman um heima og geima í nær tvo klukkutíma. Að vísu var mér ljóst að hann var veru- lega slasaður, en miðað við allt og allt datt mér jafnvel í hug að ekki liði langt þangað til hann fengi að fara heim. Ég hélt því heim léttur í skapi og skrifaði sérstakar kveðjur frá Flosa til vinar okkar Benedikts Árnasonar sem er nú staddur í Mexíkó. Það var því eins og reiðarslag þegar ég fregnaði síðdegis daginn Eitt það fyrsta sem kemur upp í hugann við ótímabært andlát míns kæra vinar Flosa Ólafssonar er að hann var einn af þeim mönnum sem við máttum hvað síst við að missa á Íslandi í dag. Fyndinn, hlýr, skír og gráglettinn. Ástmögur þjóðarinnar. Nema hvað, Flosi gerði það „sjött af“ eins og Færeyingar orða snögga afgreiðslu og ég veit að Lilja skilur. Að Flosa gengnum finnst mér ég vera að missa hluta af æsku minni, þar sem ég var heimagangur á heimili þeirra Lilju í Tjarnargöt- unni öll mín unglingsár. Við Óli Flosa erum jafnaldrar og æskuvin- ir, í sömu „strákaklíkunni“. Alltaf vorum við, þessir stundum óstýri- látu krakkar, jafn velkomin í horn- húsið á Tjarnargötunni. Alltaf voru Flosi og Lilja jafn hlý og góð við okkur unglingana, sama á hvaða tíma sólarhrings við áttum þar leið um. Stundum var gleðskapur í gangi, stundum bara kósíheit og kakó. Alltaf var skilningurinn jafn mikill og aldurslaus vinátta þeirra elskulegu hjóna. Vinátta mæðra okkar Lilju, Ólafar og Laufeyjar, nær síðan svo langt aftur í tímann að það væri efni í heila bók. Það var engin tilviljun að Flosi þýddi alþjóðlega biblíu unglinga í tilvistarkreppu, Bjargvættinn í grasinu, eftir J.D. Salinger. Flosi vissi um hvað málið snerist. Hann skildi sálir unglinga öðrum mönnum betur, enda trúi ég að hans eigin sál hafi verið ung til hinsta dags. Stundum sat Flosi í eldhúsinu með hausverk og var að spá í hvern fjandann hann ætti að taka fyrir í næsta laugardagspistli í Þjóðviljan- um. Hann spurði sextán ára stelpu hvaða hugmyndir hún hefði og stundum spunnum við sitthvað skemmtilegt saman. Þetta var á gullnum tíma Helgarblaðs Þjóðvilj- ans; Flosi var með sína brilljant pistla og Ingó mágur hans tók frá- bær viðtöl og teiknaði óborganlegar myndir, m.a. af Flosa. Pistlar Flosa féllu ekki alltaf í góðan jarðveg, enda var hann stríðinn með afbrigð- um. Samkvæmt mínum kynnum af Flosa varð ég þó aldrei vör við ann- að en að hann héldi sig réttum meg- in við meinfýsi – þó alveg á mörk- unum, eins og góðir húmoristar gera. Eins og flestir bestu húmoristar þessa heims þekkti Flosi líka þung- lyndi. Lýsingar hans á morgun- drunganum voru engu líkar og hittu marga í hjartastað. Hann gat lýst því af þvílíkri snilld hvernig það væri að vakna að morgni og finnast himinninn vera að hrynja. Settist svo niður eftir morgunkaffið og skrifaði pistil sem gladdi hálfa þjóð- ina. Hann var heldur ekki einungis gamanleikari. Man til dæmis eftir honum í mögnuðu hlutverki í Lé konungi í Þjóðleikhúsinu, þvílíkt þungum og flottum. Flosi átti marga strengi í sinni hörpu. Eftir að þau Lilja fluttu í Borgar- fjörðinn átti ég því láni að fagna að ríða nokkrum sinnum út með Flosa, í stuttum og lengri ferðum. Held að mér hafi sjaldan þótt jafn vænt um hól eins og þegar Flosi talaði um það hvað ég sæti hestinn vel – ekki þó í minni áheyrn. Það var nefni- lega ekki hans stíll. Hann var hins vegar einn besti hestamaður þessa lands og ekki síðri séntilmaður en grallari. Flosi og Lilja gerðu rétt í því að flytja í Borgarfjörðinn – á Stóra- Mikla-Aðalberg, eða hvað það nú var sem elsku kallinn kaus að kalla það í gríni. Þar leið þeim vel með vinum og afkomendum og þangað var ekki síður gaman að koma en í Tjarnargötuna, þó að þeirra væri vissulega saknað úr Vesturbænum. Mér finnst ég næstum heyra Flosa segja glaðbeittan: „Maður losnaði þó allavega við að verða átt- ræður.“ Einhvern veginn finnst mér líka að brosið hans Flosa eigi eftir að lifa með okkur um ókomin ár. Kært kvaddur, Hildur Helga Sigurðardóttir.  Fleiri minningargreinar um Flosa Ólafsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. 36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 Flosi Ólafsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, bróðir, stjúpi og afi, ÞORLÁKUR GESTUR JENSEN, Skúlagötu 64, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi fimmtudaginn 22. október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Blóm og kransar afbeðnir, þeir sem vilja minnast hans láti Krabbameins- félagið njóta þess. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar læknis og Kristjönu hjúkrunar- fræðings, ásamt öllu starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir alla ástúð og hlýju, er þið sýnduð, honum og okkur. Guð blessi ykkur öll. Hólmfríður Jónsdóttir, Hálfdán Ingi Jensen, Soffía Sveinbjörnsdóttir, Hulda Margrét Þorláksdóttir, Davíð Ingvason, Guðni Óskar Jensen, Kristbjörg Sveinsdóttir, Jón Múli Franklínsson, börn og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LIS PÁLSSON, Eskihlíð 8a, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 29. október. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15.00. Zóphónías Pálsson, Páll Zóphóníasson, Áslaug Hermannsdóttir, Hjalti Zóphóníasson, Sigrún Haraldsdóttir, Bjarki Zóphóníasson, Ulrike Baierl, Margrét Zóphóníasdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EYGLÓ V. HJALTALÍN, Hrísateigi 27, Reykjavík, lést miðvikudaginn 28. október. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 4. nóvember kl. 13.00. Blóm eru afþökkuð, en bent er á Kristniboðs- sambandið eða líknarfélög. Vigfús Hjartarson, Sigursteinn Hjartarson, Jytte Hjartarson, Pálmi G. Hjartarson, Guðmundur B. Hjartarson, Björg D. Snorradóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær sonur minn, SÆVAR MÁR INGIMUNDARSON, búsettur í Bamberg, Þýskalandi, lést þriðjudaginn 6. október. Hann var jarðsunginn þar fimmtudaginn 15. október. Minningarathöfn um hann verður haldin í Grafar- vogskirkju miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Jóna Hjaltadóttir. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, VILHELM SIGURÐUR ANNASSON skipstjóri, lést á Landspítalanum mánudaginn 26. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Særún Axelsdóttir, G. Margrét Vilhelmsdóttir, Jörgen Fröik, Guðný Anna Vilhelmsdóttir, Trausti Magnússon, Sjöfn Vilhelmsdóttir, Jónas Hlíðar Vilhelmsson, Bylgja Hilmarsdóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, EINARS JÓNSSONAR bifvélavirkja, Langagerði 118, Reykjavík. Björg J. Ragnarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Halldór Þórólfsson, Ragnar Einarsson, Ívar Örn Halldórsson, Gísli Halldórsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.