Morgunblaðið - 31.10.2009, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
rannsókn eða frásögn liggur að baki
henni, þetta er aðeins haugur af
misgóðu myndefni sem hefur verið
klippt saman. Myndin er hvorki
fugl né fiskur og augljóslega lítill
metnaður lagður í hana sem er
synd því að hún vanvirðir alla
ástríðuna, kappið og stórbrotna
hæfileika sem lágu að baki fyr-
irhuguðum tónleikum.
Michael Jackson var aðljúka æfingum á end-urkomutónleikaröðsinni þegar hann féll
frá hinn 25. júní síðastliðinn. Upp-
selt var á alla fimmtíu tónleikana
sem hefjast áttu 13. júlí og mikil
eftirvænting lá í loftinu. Ekkert
hafði verið til sparað við uppsetn-
inguna og tónleikaröðin hefði vafa-
laust orðið eitt stórfenglegasta
sjónaspil allra tíma. En enginn má
sköpum renna og sýningin féll um
sjálfa sig án stjörnunnar. Tekið
hafði verið upp myndefni á meðan á
sviðsæfingum stóð og það er uppi-
staðan í This Is It sem nú er sýnd
um allan heim. Þetta er ekki heim-
ildamynd með rentu þar sem engin
Fyrri hluti myndarinnar er frem-
ur vélrænn og kvikmyndatakan er
léleg enda var myndefnið upp-
haflega ekki ætlað til almennrar
sýningar. Það er lítt áhugavert að
sjá þreifingar og nákvæma vinnu
sem fer í að skapa töfra ef ekki er
rýnt í blóð, svita og tár sem liggja
að baki og því er myndin heldur
ekki vel heppnuð baksviðsmynd.
Michael er að útsetja sviðshreyf-
ingar sínar og raular tónlistina við
án þess að heyra almennilega í sér
eða undirleiknum. Hann segist
meira að segja margoft vera að
halda aftur af sér og spara röddina.
Tónlistin er hvorki fullæfð né hljóð-
blönduð og því nýtur áhorfandinn
hennar ekki. Listamaðurinn Mich-
ael sem var afar vandvirkur og
metnaðarfullur hefði líklega aldrei
viljað að fólk heyrði svona lélegan
og óútsettan flutning á meist-
araverkum sínum.
Seinni helmingur myndarinnar
vinnur aðeins á en þar eru lögin
hljóðblönduð og æfingar sem eru
langt komnar eru klipptar flott
saman við magnað grafískt efni sem
nota átti í sýningunum. Dansarar
eru komnir í búninga og allt virðist
vera að smella saman í mikilfeng-
leika en það er helst til seint í rass-
inn gripið. Rúsína í pysluendanum
nær ekki að bjarga myndinni þó að
hún kæti aðdáendur vafalaust mik-
ið.
Það hefði verið hægt að gera svo
mikið fyrir þessa mynd. Ræða hefði
mátt meira við allt ástríðufulla og
hæfileikaríka fólkið sem kom að
sýningunni og rýna betur í ferlið að
baki sýningunni – í eitthvað meira
en sviðsþreifingar. Einnig hefði ver-
ið hægt að gefa betri og persónu-
legri mynd af Michael í anda þess
sem var gert í Dont Look Back
[sic], skrautlegri heimildarmynd
Pennebaker um Bob Dylan frá
1967. Mörgum áhorfendum kemur
eflaust til með að finnast þeir svikn-
ir því að það fer lítið fyrir töfra-
ljómanum sem þeim var lofað.
Hraklegt spennufall!
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó
This Is It (Stundin er runnin upp!)
bbnnn
Leikstjórn: Kenny Ortega. Aðalhlutverk:
Michael Jackson. Tónlistarmynd, heim-
ildamynd. 112 mín. Bandaríkin, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYND
This is it „Þetta er ekki heimildamynd með rentu þar sem engin rannsókn
eða frásögn liggur að baki henni,“ segir meðal annars í dómnum.
Leikstjórinn Kenny Ortega er
þekktastur fyrir dansútsetn-
ingar sínar en hann stýrði
meðal annars dansatriðunum
í Dirty Dancing (1987) og
myndabandi Madonnu við lag-
ið „Material Girl“ (1985).
Frægastur er hann þó líklega
fyrir tónleikasamstarf sitt við
Michael Jackson á tíunda ára-
tug síðustu aldar. Hann hefur
einnig útsett atriði fyrir Ól-
ympíuleika og Óskarsverð-
launahátíðir en að auki hefur
hann leikstýrt myndum á borð
við High Scool Musical 3
(2008).
Kenny Ortega
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI
REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Auðmenn elska peninga,
en þó sérstaklega
peningana þína!
HHH
„Ef þú sást fyrstu myndina
og fílaðir hana, þá máttu
alls ekki sleppa þessari!“
T.V. – Kvikmyndir.is
Mikil grimmd og logandi
frásögn. Lisbeth Salander
er orðin klassísk og ein
eftirminnilegasta persóna
glæpabókmenntana.
F.E. Rás 2
„Frábær eins og sú fyrsta! Heldur
athygli manns allan tímann!
Maður getur eiginlega ekki beðið
um meiri gæði!“
–H.K., Bylgjan
HHHH
„Stúlkan sem lék sér að eldinum
er ekki síðri en forveri hennar ...
afar spennandi, takturinn betri...
Michael Nykvist og Noomi Rapace
eru frábær í hlutverkum sínum“
– VJV, FBL
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
HHHH
„ALVEG ÓGEÐSLEGA FYNDIN“
– ÞÞ, DV
HHHH
„ZOMBIELAND ER KLIKKUГ
T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„ AÐDÁENDUR VERÐA EKKI
SVIKNIR.“
V.J.V, Fréttablaðið
HHH
D.Ö.J., kvikmyndir.com
HHH
-S.V., MBL
HHHH
ÓHT, Rás 2
HHHH
– H.S., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
EINGÖNGU
SÝND Í
2 VIKUR
ÁÐUR ÓSÉÐ
MYNDEFNI SEM
HEIMURINN HEFUR
BEÐIÐ EFTIR
UPPLIFÐU
LISTAMANNINN
EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ
HANN ÁÐUR.
„Mynd sem þú verður að
sjá í bíó til að fá tónlistina
og upplifunina beint í æð.”
H.A., FM 957
SÝND Í REGNBOGANUM
www.facebook.com/graenaljosid
Nýju ljósi varpað á eitt umdeildasta sakamál síðar
tíma í grípandi og gríðarlega vandaðri heimildarmynd.
Perla sem enginn kvikmyndaunnandi lætur fram hjá
sér fara.
„Í alla staði stórskemmtileg
og áhugaverð, enda söguleg.
Mynd sem ALLIR ættu að hafa
gaman af.”
H. K., Bylgjan
„Loksins sá maður
tónlistarmanninn á bak
við grímuna. Gaman að
skoða á bak við tjöldin og
hljómurinn er einstaklega
góður.”
R. R., Bylgjan
„Grípandi og vel unnin
heimildarmynd um einhvern
áhugaverðasta leikstjóra
kvikmyndasögunnar. Saga
mannsins er vægast sagt
merkileg.“
T.V. – Kvikmyndir.is
„Frábær!“
- Roger Ebert
„Hárbeitt rökræða!
Vönduð og snjöll.“
- The New York Times
„Svo töfrandi og kraftmikil
að eins hefur varla sést áður!“
- Entertainment Weekly
„Gríðarlega grípandi
og vel gerð!“
- The Hollywood Reporter
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5%
endurgreitt
í HáskólabíóSími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Jóhannes kl. 4 - 5:40 - 8 - 10 (bara laugardag) LEYFÐ
Zombieland kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Stúlkan sem lék sér ... kl. 5:40 B.i. 16 ára
Friðþjófur forvitni kl. 4 LEYFÐ
Paranormal Activity (Fors.) kl. 10 (bara á sunnudag) B.i. 16 ára
Wanted and Desired kl. 3:30 (bara sunnudag - 550 kr.) - 5:45 - 8 - 10:15 B.i.12 ára
Zombieland kl. 4 (550 kr.) - 6 - 8 - 10 B.i.16 ára
Broken Embraces kl. 3:20 (550 kr.) - 6 - 9 B.i.12 ára
Stúlkan sem lék sér... kl. 3:20 (550 kr.) - 6 - 9 B.i.16 ára
This it It kl. 3 (550 kr.) - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Capitalism kl. 3 (550 kr.) - 6 - 9 B.i. 7 ára
Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Guð blessi Ísland kl. 3:45 Ath. síðustu sýningar LEYFÐ