Morgunblaðið - 06.11.2009, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 6. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
300. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
DAGLEGT LÍF
96
ára
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
Eftir Þórð Gunnarsson og Örn Arnarson
thg@mbl.is, ornarnar@mbl.is
Á KRÖFUHAFAFUNDI Glitnis í gær var
greint frá því að skuldabréf upp á samtals 752
milljónir evra, eða sem nemur 139 milljörðum
króna, hefðu ekki verið bókfærð á skuldahlið
bankans þegar hann hrundi í fyrra. Tilkynn-
ingin kom kröfuhöfum bankans í opna skjöldu.
Fram kom á fundinum að bréfin hefðu verið
gefin út í tengslum við endurhverf viðskipti og
ekki seld á markaði. Skuldabréfin hafa þá
væntanlega verið lögð fram sem veð gegn að-
gangi að lausafé.
Á fundinum neitaði Árni Tómasson, formaður
skilanefndar bankans, að svara spurningum um
það hvort um væri að ræða forgangskröfu eða
almenna kröfu, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Hvers eðlis krafan er getur haft
mikil áhrif á endurheimtur á eignum þrotabús
Glitnis.
Líkur á að endurheimtur
hafi verið ofmetnar
Í samanburði við Landsbankann og Kaup-
þing er hlutfall forgangskrafna í þrotabú Glitn-
is tiltölulega lágt. Innlán eru helstu forgangs-
kröfurnar og þar sem Glitnir fjármagnaði sig
aðeins að litlu leyti með erlendum innlánum og
íslensk innlán færðust inn í Íslandsbanka flokk-
ast meginþorri krafna á þrotabúið undir al-
mennar kröfur. Séu þessir 139 milljarðar for-
gangskröfur er ljóst að þær muni hafa
meiriháttar áhrif á uppgjör þrotabúsins.
Viðskipti með skuldabréf Glitnis að undan-
förnu endurspegla væntingar fjárfesta um 20%
heimtur á eignum þrotabúsins. Þessi nýja krafa
mun hækka upphæð krafna í þrotabúið en
væntanlega hafa lítil áhrif á eignir. Þar af leið-
andi má leiða líkur að því að þeir sem hafa fjár-
fest í skuldabréfum bankans hafi ofmetið end-
urheimtur.
Ný 139 milljarða krafa
Skuldabréf upp á 139 milljarða voru ekki færð sem skuld í bókhaldi Glitnis
Gætu haft veruleg áhrif á hversu mikið kröfuhafar endurheimta úr þrotabúinu
HJÁLPARSTOFNANIR eru nú óð-
um að búa sig undir jólin, en gert er
ráð fyrir gríðarlegri fjölgun
hjálparbeiðna miðað við þróun síð-
ustu mánaða. Sem dæmi reiknar
Fjölskylduhjálp með því að aðstoða
um 1.000-1.200 fjölskyldur með
jólamatinn í ár, sem er tvöfalt
meira en í fyrra þegar 500-600 fjöl-
skyldur fengu jólaúthlutun. Svip-
aða sögu segja Hjálparstarf kirkj-
unnar og Mæðrastyrksnefnd. Búast
má við því að ástandið fari enn
versnandi miðað við spá Seðlabank-
ans í gær um að kaupmáttur skerð-
ist um 16% á næsta ári, mun meira
en áður var spáð. Hjálparstofnanir
reiða sig mikið á velviljuð fyr-
irtæki, einstaklinga og áhafnir
skipa fyrir jólin. Án stuðnings
þeirra væri ekki unnt að koma til
móts við ástandið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matargjöf Sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar undirbjuggu í gær matarpakka. Atvinnuleysi og skuldir eru meðal ástæðna þess að fólk sækir aðstoð.
Aldrei hafa fleiri þurft hjálp
Þörfin aldrei verið meiri | 6
RAGNA Árnadóttir dóms-
málaráðherra leggur til að héraðs-
dómurum verði fjölgað um fimm og
aðstoð-
armönnum hér-
aðsdómara
fjölgi jafn-
mikið. Kostn-
aður vegna
dómaranna og
aðstoðarmann-
anna er metinn
90 milljónir.
Ragna leggur einnig til að fjár-
framlög til Hæstaréttar verði aukin
um 16 milljónir. Þessum kostnaði
verði mætt með hækkun dóms-
málagjalds. Á miðvikudag ákvað
Hæstiréttur að fella úr gildi gæslu-
varðhald yfir dæmdum nauðgara
þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði ekki skilað gögnum í tæka tíð.
Ragna segir að í ljósi orða dóm-
stjórans í Reykjavík óttist hún að
fleiri slík mál komi upp. | 22
Héraðsdóm-
urum fjölgað
um fimm
AÐ MINNSTA kosti tólf manns
létu lífið og 31 særðist í skotárás í
Fort Hood herstöðinni í Texas í
Bandaríkjunum í gærkvöld. Einn
árásarmaður var skotinn til bana
og tveir meintir samverkamenn
hans voru handteknir, að sögn
BBC. Þeir eru allir bandarískir
hermenn.
Barack Obama, Bandaríkja-
forseti, tjáði sig um árásina í gær-
kvöld og sagði, að um væri að ræða
hræðilegt ofbeldisverk.
Tólf manns lét-
ust í skotárás
Einföld ráð til að hvítta tennur, fleiri tískubloggarar, í heimi
Skúla er klofbragð gott orð, og sokkabuxur þokkafullra kvenna.
LÖGMANNSSTOFAN Logos sem
sér um uppgjör á þrotabúi Baugs,
sem var lýstur gjaldþrota í mars, sá
um tiltekna þjónustu í Bretlandi fyrir
félag á vegum Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar í september sl.
Stjórn Logos segir þetta hafa verið
mistök en tekur fram að hún telji ekki
að um hagsmunaárekstur hafi verið
að ræða. Starfsmenn Logos í Reykja-
vík hafi ekki áttað sig á hverjir eig-
endur félagsins í Bretlandi eru. | 2
Logos vann
fyrir Jón Ásgeir