Morgunblaðið - 06.11.2009, Page 6

Morgunblaðið - 06.11.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „MIÐAÐ við þá fjölgun nýskráðra sem leitað hafa til okkar á árinu gerum við ráð fyrir að um 3.500 fjölskyldur muni leita til okkar eft- ir mataraðstoð fyrir þessi jól, en í fyrra fór fjöldinn í um 2.700 fjöl- skyldur,“ segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar sem hefur yfirumsjón með innanlandsaðstoðinni. Líkt og fyrir síðustu jól hyggst Hjálparstarf kirkjunnar standa að matarúthlutun fyrir jólin með stuðningi Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og í samvinnu við Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur. Að sögn Vilborgar hefst úthlut- unin sennilega um miðjan desem- ber og fer hún fram í húsnæði við Norðlingabraut. Þessu til viðbótar hyggst Hjálparstarf kirkjunnar vinna með Hafnarfjarðardeild og Kópavogsdeild RKÍ sem og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs og Hafnarfjarðar að úthlutun í fyrr- nefndum sveitarfélögum. Nýverið bárust fréttir af því að stjórn Pokasjóðs hygðist annað ár- ið í röð styrkja Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarf kirkjunnar um í kringum 50 milljónir króna til mat- argjafa fyrir jólin. Hjálparstofn- anirnar eru að stærstum hluta háð- ar velvilja jafnt fyrirtækja sem einstaklinga um stuðning við starf sitt. „Sem betur fer eru margar heildsölur, fyrirtæki, áhafnir skipa og einstaklingar sem styrkja okkur sérstaklega um jólin. Annars væri þetta ekki hægt,“ segir Vilborg. Atvinnuleysi, skuldir og lág laun oftast nefnt Eins og sjá má í meðfylgjandi grafi leituðu 735 fjölskyldur til Hjálparstarfs kirkjunnar eftir mataraðstoð í september sl. Til samanburðar má geta þess að árið 2008 voru fjölskyldurnar 206 en ár- ið 2007 voru þær 152 í sama mán- uði. Í hópi þeirra sem leituðu til Hjálparstarfsins á tímabilinu frá júlí til september sl. sögðust 35% þurfa aðstoð vegna lágra launa, 27% nefndu skuldir, 23% atvinnu- leysi, 8% veikindi og 7% háa húsa- leigu. Að sögn Vilborgar hefur fjöldi þeirra sem leita sér aðstoðar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar aukist jafnt og þétt síðan 2007, þó þörfin fyrir aðstoð toppi ávallt fyrir jólin og í kringum páska ár hvert. Einn- ig hefur nýskráning styrkþega aukist töluvert milli ára. Þannig voru nýskráningar á tímabilinu frá júlí til september árið 2007 alls 16, á sama tíma árið 2008 voru þær 28 en í ár alls 247. Vilborg segir áberandi hversu mjög yngra fólki, þ.e. fólki undir fertugu, fjölgi í hópi þeirra sem þurfa á aðstoð að halda, en hjá Hjálparstarfinu á Háaleitisbraut 66 er hægt að fá margvíslega að- stoð s.s. matargjafir, föt, aðstoð með kostnað vegna skólabóka, lyfja- og lækniskostnað. Helm- ingur þeirra sem leituðu eftir að- stoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar á tímabilinu frá júlí til september á þessu ári var 39 ára og yngri. Sé hins vegar aðeins horft til þeirra sem leituðu sér aðstoðar í fyrsta skiptið á tímabilinu frá júlí til sept- ember reyndust 65% þeirra yngri en 39 ára. Í hópi nýskráðra á tíma- bilinu frá júlí til september sögðu 44% atvinnuleysi ástæðu þess að þeir þyrftu að leita sér aðstoðar, 23% nefndu skuldir og 22% lág laun. Stærri fjölskyldur eiga erfitt „Það er langt síðan við urðum vör við aukningu á þörf eftir að- stoð,“ segir Ragnhildur G. Guð- mundsdóttir, formaður Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur, og bendir á að þróunin hafi verið á þá leið allt frá árinu 2007. Að sögn Ragnheiðar leituðu 480 ein- staklingar eftir matargjöfum frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í lok síðasta mánaðar, en nefndin stendur fyrir úthlutun matar á hverjum einasta miðvikudegi allan ársins hring í Hátúni 12. Ragnhild- ur tekur undir það með Vilborgu að mikið hafi fjölgað í hópi þeirra sem yngri eru, þannig séu ungling- ar allt niður í 14-16 ára að leita eft- ir aðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkurborgar. Aðrir þeir sem þurfa á matargjöfum að halda eru eldri borgarar, öryrkjar, útlend- ingar og einstæðingar. „Það er greinilegt að stærri fjölskyldur og einstæðir foreldrar eiga mjög erfitt nú um stundir,“ segir Ragnhildur. Að mati allra viðmælenda Morg- unblaðsins munu margir eiga erfitt með að gefa jólagjafir í ár. Að vanda verður jólagjöfum safnað frá almenningi undir jólatrjám í Kringlunni og Smáralindinni. Þörfin aldrei verið meiri  Hjálparstofnanir búa sig undir mikla fjölgun hjálparbeiðna fyrir jólin  Sífellt fleiri ungar fjölskyldur ná ekki endum saman og þurfa mataraðstoð ÍSLENSK kona, Linda Björk Magn- úsdóttir, var í gær handtekin af lög- reglunni í Plattsburgh í New York- ríki í Bandaríkjunum, en Linda hafði verið eftirlýst í tæpan sólar- hring og mikil leit gerð að henni. Linda Björk, sem er 42 ára göm- ul, flúði úr gæsluvarðhaldi á mið- vikudag en hún var upphaflega handtekin af bandarískum alríkis- lögreglumönnum sem ólöglegur innflytjandi þegar hún kom inn í landið frá Kanada, þar sem hún hefur verið búsett síðustu mánuði. Að sögn föður hennar, Magnúsar Þórs Sigmundssonar, á Linda Björk kærasta í Bandaríkjunum og taldi hann líklegt að óþolinmæði hefði valdið því að hún reyndi að komast yfir landamærin. Utanríkisráðuneytið, í samstarfi við sendiráð Íslands í Washington, vinnur að því að afla nánari upplýs- inga frá lögreglu í New York-ríki en þær höfðu ekki fengist í gær- kvöldi. Hins vegar er ljóst að Linda Björk er ekki grunuð um alvarleg afbrot og var ekki talin hættuleg af lögreglu þótt hún hafi gerst sek um lögbrot. Íslensk kona í haldi í BNA NEYÐARSENDAR sem rjúpna- skyttur myndu bera á sér sem örygg- isbúnað eru framtíðin, að sögn Sig- mars B. Haukssonar formanns Skotveiðifélags Íslands. Í Morgun- blaðinu í gær nefndi Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi að hann vildi að fólk sem gengi til rjúpa væri í endurskinsvestum í skærum litum enda gæti slíkt auðveldað björg- unarsveitarmönnum leit og aðgerðir, ef vá bæri að höndum. Sigmar telur hins vegar eðlilegra að skoða aðrar leiðir svo sem neyðar- senda enda fáist þeir sífellt nettari og ódýrari. „Þegar menn lenda í villum á fjöllum eða veikjast skyndilega gætu þeir dregið út lítinn pinna í sendinum, sem sendir þá út hljóðmerki í nokkra sólarhringa svo hægt er að staðsetja nákvæmlega og það auðveldar björgunarsveitum að bregðast við,“ segir Sigmar. Hann bendir einnig á að æ fleiri rjúpnaskyttur noti GPS tæki og sífellt fleiri staðir á hálendinu þar sem veiðimenn fara um séu í geisla GSM-kerfisins og það auki öryggi. Þá verði að hafa í huga að á haustin fari oft um 3.000 manns í rjúpu um hverja helgi og það hve sjaldan bregði út af sanni, að rjúpnaskyttur fari með gát og beri virðingu fyrir duttlungum náttúrunn- ar. sbs@mbl.is Skyttur beri neyð- arsenda og gemsa 3.000 manns ganga til rjúpna um hverja helgi Sigmar B. Hauksson „Fyrir síðustu jól fengu á bilinu 500-600 fjölskyldur sérstaka jólaúthlutun hjá okkur, en miðað við ásóknina í aðstoðina það sem af er þessu ári þá gerum við ráð fyrir að þurfa að aðstoða 1.000-1.200 fjölskyldur með jólamatinn í ár,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Ís- lands, og tekur fram að alls séu um 2.000 fjöl- skyldur á skrá hjá Fjölskylduhjálpinni. „Fólk kemur ekki til okkar nema í algjörri neyð,“ segir Ásgerður. Að sögn Ásgerðar leita að jafnaði um 350 fjöl- skyldur til Fjölskylduhjálparinnar í Eskihlíð á hverj- um miðvikudegi þegar mat er úthlutað. Fyrsta jólaúthlutun Fjöl- skylduhjálparinnar verður miðvikudaginn 2. desember, en síðan verður úthlutað miðvikudagana 9. og 16. desember sem og mánudag- inn 21. desember. Spurð hvort hún sjái mun á hópi þess fólks sem leiti sér aðstoðar segir Ásgerður áberandi hversu mjög hafi fjölgað í hópi þeirra sem eru yngri en þrítugir. Þar sé bæði um að ræða ungt fólk sem nýbyrjað sé að búa, einstæðinga og einstæðar mæður. Einnig sé mjög mikið um að þeir sem séu atvinnulausir leiti sér aðstoðar. Reikna með tvöfalt fleiri fjölskyldum í ár Fjölskylduhjálpin Mataraðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar 14 5 4 1 0 Vestfirðir 7 3 1 Vesturland 16 9 3 3 20 Suðurnes 12 65 29 0 27 1 Höfuðborgar- svæðið 7 10 Norðurland vestra 77 17 11 Suðurland Austurland 74 19 14 Norðurland eystra Úthlutanir frá júlí til september milli starfsára eftir landshlutum júl.-sept. 2009 júl.-sept. 2008 júl.-sept. 2007 Þróun aðstoðar milli starfsára Ástæða fyrir úthlutun júl.-sept. 2009 Hlutfall aldurshópa sem fá afgreitt í fyrsta skipti júl.-sept. 2009 Skipting styrkþega eftir kyni og aldri júl-sept 2009 350 300 250 200 150 100 50 0 0-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80-89 Konur Karlar Júlí ‘07 Sept. ‘09 Jól ‘09 (áætlun) 3000 2500 2000 1500 1000 500 0 35 0 0 1594 2728 239 892Jól 2007 Jól 2008 Páskar Páskar 0-19 ára 4% 20-29 ára 36% 30-39 ára 25% 40-49 ára 17% 50-59 ára 13% 60-69 ára 2% 70-79 ára 3% Lág laun 35% Skuldir 27% Veikindi 8% Há húsaleiga 7% Atvinnuleysi 23% 27% 35% 23% 7% 8% 25% 36% 17% 13% 2% 3% 4% 0 STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður VG, segir að frum- varpið um per- sónukjör hafi verið sent til stjórnmálaflokk- anna til um- sagnar í sumar. Stjórn VG telji að breyta þurfi frumvarpinu og tryggja ákveðinn kynjakvóta. „Við í stjórn VG unnum vand- aða og gagnrýna umsögn um frumvarpið. Gagnrýnin beinist að ákveðnum þáttum. Við viljum sér- staklega tryggja kynjajafnrétt- issjónarmið, en það er ekki gert í núverandi mynd frumvarpsins,“ sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið. Steingrímur sagði að þetta sjónarmið stjórnar VG hefði al- veg legið fyrir og því hefði verið komið á framfæri, bæði í þing- flokki VG og í ríkisstjórninni. „Við höfðum fyrirvara á stuðn- ingi við málið í óbreyttri mynd sinni, en við féllumst á að það væri lagt fram á Alþingi,“ sagði Steingrímur. Steingrímur sagðist telja að frumvarpið myndi taka breyt- ingum í meðförum þingsins og það yrði lagfært. agnes@mbl.is Viljum tryggja kynjakvóta Steingrímur J. Sigfússon „FJARVERAN á sér eðlilegar skýr- ingar,“ segir Dagur B. Eggertsson, fulltrúi Samfylkingar í stjórn Faxa- flóahafna. Hann hefur fyrir hönd flokks síns setið fimm af ellefu fund- um í hafnarstjórn frá áramótum, samkvæmt því sem fulltrúi Fram- sóknarflokks í stjórn greinir frá, og hefur því fengið 160 þúsund krónur fyrir hvern stjórnarfund sem hann hefur setið fyrir hönd síns flokks á þessu ári. Upplýsingarnar koma í kjölfar þess að fulltrúar minnihluta í borg- arstjórn spurðust fyrir um mætingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokks í skipu- lagsráði borgarinnar, en hann hefur „lítið sést á fundum“ eins og minni- hlutinn sagði. Greiddar eru 80.112 kr. á mánuði fyrir setu í stjórn Faxaflóahafna. Björk Vilhelms- dóttir, varamaður Dags, hefur setið sex fundi í hans fjarveru. Viðbótarkostn- aður Faxaflóa- hafna fyrir að kalla inn vara- mann er 10.140 kr. á fund. Dagur hefur á þessu kjörtímabili setið tvívegis í stjórn Faxaflóahafna. Fyrra skiptið var 2006 til 2007 og þá segist borgarfulltrúinn hafa mætt á alla fundi nema ef vera skyldi einn þegar farið var í „siglingu um sundin blá“ eins Dagur kemst að orði. Í lok ágúst 2008 tók Dagur aftur sæti í stjórn Faxaflóahafna. „Það hefur ekki verið leyndarmál að ég kallaði inn varamann í stjórnina í að- draganda síðustu alþingiskosninga,“ segir Dagur sem kveðst þar hafa haft ýmsum skyldum að gegna sem varaformaður flokks síns. Í ágúst sl. hafi hann svo þurft að afboða sig með skömmum fyrirvara þegar honum og eiginkonu hans fæddist sonur. Dag- ur hefur nú sagt sig úr stjórninni. „Pólitíkin er komin á undarlegar brautir þegar fara þarf að tilgreina svo persónulegar, alkunnar og eðli- legar skýringar á fjarveru á einstaka fundum af því Framsóknarflokkur- inn telur sig eiga harma að hefna í umræðu,“ segir Dagur. sbs@mbl.is Fjarveran er eðlileg  Dagur hafnar ásökunum um slaka mætingu á fundi Faxa- flóahafna  Segir sig úr stjórn  Annríkt hjá varaformanni Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.