Saga - 1973, Page 120
Þorleifur Þorleifsson:
Járnhrautin í Reykjavík 1913 > 1928
FORMÁLI
Frásagnarbrot þessi um jámbrautina í Reykjavík og hlut hennar
í hafnargerðinni 1913—1917, og siðar við ýmsa flutninga, eru
flest fengin í viðtölum við Pál Ásmundsson járnsmið, fyrrverandi
eimreiðarstjóra við járnbrautina, og fest á blöð í þeim tilgangi
einkum að forða frá gleymsku ýmsum fróðleiksmolum um eftir-
minnilegan og merkan þátt i sögu verklegra framkvæmda hér á
landi. Sá fróðleikur færi ella forgörðum að Páli gengnum, en hann
er vafalaust flestum mönnum fróðari um hafnargerðina í Reykjavík.
Verður því við að bæta hér, að aðeins fátt eitt af vitneskju Páls
er rakið í frásögn þessari og þá einna helzt það, er lýtur beint að
rekstri járnbrautarinnar.
Margvíslega og mikilsverða aðstoð við frekari útvegun og könnun
heimilda hefur ívar Helgason gjaldkeri veitt. Ennfremur ber að
þakka Agli Hallgrímssyni frá Vogum, stærðfræðikennara, fyrir
könnun og upplýsingar um kort eða uppdrætti af Reykjavík frá
fyrri árum.
Þegar áttir eru tilgreindar, er miðað við réttvísandi NORÐUR,
en ekki fylgt gamalli málvenju í Reykjavík, því samkvæmt henni
er norðurátt í daglegu tali oftast 30—40° austan við landfræðilegt
norður.
Þeim, sem kanna vildu sögu hafnargerðarinnar nánar, er bent á
dagblöð frá þessum árum (Vísir, Morgunblaðið) og kort, er sýna
legu járnbrautarinnar, en þau eru geymd hjá Mælingadeild Reykja-
víkurborgar. Ljósmyndir eru nokkrar til í Minjasafni Reykjavíkur
og Þjóðminjasafni íslands, svo og hjá höfundi (úr safni Páls
Ásmundssonar).
Reykjavík 197S
Þorleifur Þorleifsson.