Organistablaðið - 01.09.1987, Síða 25
Námsstefna um sálmafræði
27.-29. september 1987
Á komandi hausti veröur haldin námsstefna um sálmafræöi fyrir guöfræði-
nema, presta og organista. Stefnan verður haldin í Norræna húsinu dagana
28. og 29. september nk.. Að henni standa Guðfræðideild Háskóla íslands,
Norræna húsið, Prestafélag íslands, sálmabókarnefnd og söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar.
Tilgangurinn er m.a. að koma til móts við brýna þörf fyrir kennsluefni um
íslenska sálmasögu og að kynna strauma og stefnur í sálmasöng á Norður-
löndunum. Efnið er mjög umfangsmikið og ekki að ætla að því verði gerð
tæmandi skil á tveimur dögum. Um það verður fjallað í fyrirlestrum fimm
íslenskra fyrirlesara og fjögurra norskra, jafnframt kynningu á nýjum
sálmum, söng og umræðum. Norsku fyrirlesararnir eru allir þekktir á sviði
sálmafræðanna á Norðurlöndum. Svein Ellingsen sálmaskáld og myndlistar-
maður og sr. Eyvind Skeie sálmaskáld eiga báðir fjölmarga sálma í nýju
sálmabókinni en organistinn og tónskáldiö Trond Kverno mörg sálmalög. All-
ir voru þeir mjög virkir í sálmabókarnefndinni sem stóð að norsku bókinni.
Námsstefnan er endurmenntunarnámskeið fyrir starfandi presta. Það er
von aðstandenda námsstefnunnar að prestar, organistar og annað áhuga-
fólk sjái sér fært að sækja þetta námskeið og verða virkir þátttakendur í „nýj-
um söng“. Þátttökutilkynningarsendistfyrir 15. septembertil Guðfræðideild-
ar H.Í., Bjarna Sigurðssyni eða Herði Áskelssyni.
Dagskrá:
Sunnudagskvöldið 27. september: Hallgrímskirkja
kl. 17.00: Sálmadagskrá, sameiginlegur kvöldverður þátttakenda og
completorium
Mánudagur 28. september: Norræna húsið
kl.10.00: Fyrirlestur I - Davíðsharpa frumkristninnar, sr. Sigurjón
Guðjónsson
kl. 11.00: Fyrirlestur II - Kaþólsk helgikvæði, Knut Ödegaard skáld
kl. 12.00: Hádegishlé. (hægt er að fá ódýran málsverð í veitingasal
Norræna hússins
kl. 13.30: Fyrirlestur III - Lútherssálmar á íslandi, sr. Bjarni Sigurðsson
dósent
kl. 14.30: Fyrirlestur IV - Norska sálmabókin nýja, Svein Ellingsen skáld
ORGANISTABLAÐIÐ 25