Organistablaðið - 01.12.1994, Page 11
Páll Kr. Pálsson
Einn af frumherjum íslenskrar organistastéttar er fallinn frá, Páll Kr. Pálsson. Kom
það ekki mjög á óvart þeim sem til þekktu en hann hafði um árabil verið altekinn
svonefndri Parkinsonsveiki.
Páll Kr. Pálsson var merkur tónlistarmaður og virtur vel af samferðamönnum sínum
og starfsbræðrum. Hann var einn af stofnfélögum Félags íslenskra organleikara og
sat í fyrstu stjórn þess . Síðar var hann formaður félagsins langa hríð og átti stóran
þátt í að móta þetta unga félag, en hann vildi veg organistastéttarinnar sem mestan og
þótti skelleggur að tala máli hennar út á við. Hann hafði aflað sér góðrar menntunar
í listinni hér heima og erlendis. Það var í árdaga Tónlistarskólans í Reykjavík sem
hann stundaði nám þar, hélt síðan utan til frekara náms til Svíþjóðar og Danmerkur
en eftir það lá leið hans til Edinborgar þar sem hann sat við fótskör mikilla meistara
þarlendra. Hann varð þannig meðal þeirra fyrstu til að nema og tileinka sér leik og
túlkunarhefð engil-saxneskra þjóða og var stoltur af því.
Eftir heimkomuna tók Páll svo sannarlega til hendinni og markaði djúp spor á
sínum starfsvettvangi. Hann stjórnaði ýmsum kórum og fékkst mikið við kennslu.
Það er undravert hve miklu þessi eljusami maður kom í verk á starfsævi sinni.
Mikið af því voru alls kyns störf svo sem raddsetningar og samning fagbóka fyrir
tónlistar-nemendur og söngkennara, samantekt sönglaga og margt fleira sem ég hygg
11 ORGANISTABLAÐIÐ