Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
✝ Jón GunnlaugurSveinsson fæddist
á Siglufirði 10. apríl
1929. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, Árskógum,
26. nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar hans
voru Freyja Jóns-
dóttir húsmóðir, f. í
Reykjavík 22. sept-
ember 1897, d. í
Reykjavík 11. október
1984, og Sveinn Guð-
mundsson síldarsalt-
andi og síldarkaup-
maður á Siglufirði, f. á Tröðum í
Staðarsveit á Snæfellsnesi 18. mars
1897, d. á Siglufirði 26. ágúst 1937.
Eftirlifandi systkini Jóns eru Guð-
mundur, f. 30. október 1930. Ragn-
ar, f. 7. mars 1932, Hólmfríður Guð-
rún, f. 16. febrúar 1935, og Sveinn, f.
4. desember 1936.
Jón kvæntist Önnu Jónu Ingólfs-
dóttur 7. júní 1952. Börn þeirra eru:
1) Ingólfur, f. 17. október 1952. Ing-
ólfur kvæntist Elínborgu Halldórs-
dóttur, f. 15. apríl 1952. Börn þeirra
Anna Rósa, f. 24. október 1970 og
Jón Óskar, f. 1. janúar 1976.
Ingólfur kvæntist Rögnu Hall-
dórsdóttur, f. 7. maí 1955. Synir
þeirra eru Viðar, f. 30. maí 1983 og
Ívar, f. 7. júni 1989.
2) Guðrún, f. 2. ágúst 1954. Sonur
hennar og Þorsteins Birgissonar, f.
8. ágúst 1951, er Agn-
ar Kristján Þor-
steinsson, f. 8. júní
1972. Dóttir hennar
og Marteins B. Heið-
arssonar, f. 12. desem-
ber 1952 er Íris Rut
Marteinsdóttir, f. 8.
febrúar 1974. Lang-
afabörnin eru 9.
Jón byrjaði ungur
að vinna á sumrin í
síldarverksmiðjunni
Rauðku á Siglufirði
eða 12 ára gamall og
vann þar næstu sum-
ur. Um 17 ára aldur fór hann fyrst á
sjó einn vetur auk þess sem hann
stundaði alla þá vinnu sem gafst í
landi næstu árin, svo sem síld-
arvinnu, smíðar og annað sem til
féll. Eftir fullnaðarpróf lauk hann
námi við Iðnskóla Siglufjarðar og
einnig lauk hann prófi síðar í skip-
stjórnarnámi fyrir fiskiskip.
Lengst af var hann skipstjóri
Hring SI34 frá Siglufirði, einnig á
ýmsum minni bátum frá Siglufirði.
Árið 1977 hætti Jón sjómennsku og
flutti til Reykjavíkur og vann þar við
bæði járnsmíði, trésmíði og síðast
við netagerð hjá bróður sínum Guð-
mundi netagerðarmeistara.
Útför Jóns fer fram frá Selja-
kirkju í dag, 17. nóvember og hefst
athöfnin klukkan 13.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri stóri bróðir, Nonni.
Með hlýhug og þökk langar okkur
að minnast þín með nokkrum orðum.
Þú varst elstur af okkur fimm og
kynntist alvöru lífsins átta ára gam-
all er við misstum föður okkar.
Við tóku erfiðir tímar og varð að
senda okkur systkinin í sveit, til mis-
langrar dvalar, svo móðir okkar gæti
unnið úti. Eins og títt var í þá daga
fórum við að afla tekna, eftir getu og
varst þú 12 ára kominn í vinnu hjá
síldarverksmiðjunni Rauðku. Síðan
tóku önnur störf við, enda marga
munna að metta. Ekki var lífið þó
eintómt basl. Við áttum líflega æsku
og minningar hrannast upp þegar
hugurinn reikar til ungdómsáranna á
Siglufirði.
Það varð hlutskipti stóra bróður að
vera fyrirmynd okkar, jafnt í leik og
starfi. Að sumri snerist lífið um síld-
ina og sjóinn, en skíðaíþróttin iðkuð
af kappi alla vetur. Sagt var að í
skíðakeppni hafir þú átt fallegasta
stökkið, að lokinni þjálfun í Noregi.
Sjómennskan varð þitt ævistarf,
þú varst sjómaður af lífi og sál, vel
liðinn, ljúfur og farsæll í starfi.
Var það mikið áhyggjuefni móður
okkar er bræðurnir voru um tíma
þrír saman á togara, en þó varla eins-
dæmi í þá daga.
Öll komumst við til fullorðinsára
með góðri hjálp vina og ættingja, þú
fórst í iðnskólanám, aflaðir þér skip-
stjórnarréttinda, keyptir skip og lífið
hélt áfram.
Makar komu til sögunnar, börnin
okkar fæddust hvert af öðru og sam-
gangur milli fjölskyldna hefur ætíð
verið góður.
Elsku Nonni bróðir, við kveðjum
þig með þakklæti og flytjum Önnu
Jónu og fjölskyldu þinni samúðar-
kveðjur.
Systkinin.
Andlátsfregnir koma oft á óvart,
en svo var ekki þegar okkur í fjöl-
skyldu minni barst andlátsfregn
Jóns Sveinssonar frá Siglufirði.
Hann var lengi búinn að stríða við
erfið veikindi og dvaldi mörg undan-
farin ár á Hjúkrunarheimilinu Skóg-
arbæ þar sem hann kvaddi, föstu-
dagskvöldið 6. nóvember sl., rúmlega
áttræður að aldri.
Jón var mikill Siglfirðingur enda
fæddur þar og uppalinn. Þegar hug-
urinn hvarflar til baka er margs að
minnast en fæst af því verður tíund-
að hér. Jón var elstur fimm systkina
sem öll voru ung að árum þegar faðir
þeirra, Sveinn Guðmundsson, lést.
Þá stóð móðirin, Freyja Jónsdóttir,
ein uppi með barnahópinn sinn en
hún var hraust og dugleg kona, átti
góða nágranna, var félagslynd, geð-
góð og hafði það hvetjandi áhrif á allt
hennar líf. Til að framfleyta börnum
sínum þurfti hún að vinna mikið sem
aðallega fólst þó í síldarvinnu á sumr-
in. Snemma fór Jón að rétta móður
sinni hjálparhönd og var það henni
mikill styrkur.
Jón var aðeins 12 ára gamall þegar
hann fór að vinna sumarvinnu í Síld-
arverksmiðjunni Rauðku. Það hefði
þótt barnaþrælkun nú til dags. Sigl-
firsk börn og unglingar sóttu skóla-
nám sitt af kappi en utan skóla voru
allir komnir upp í fjall á skíði enda
hafa Siglfirðingar löngum verið
landsþekktir skíðamenn. Drengirnir
hennar Freyju voru engir eftirbátar
í þeim efnum enda unnu þeir til
margra verðlauna á því sviði, t.d. fór
Jón, sem hér er minnst, eitt sinn á
Holmenkollen-leikana í Noregi þar
sem hann hlaut ný stökkskíði í verð-
laun fyrir góða frammistöðu. Eftir
því sem árin liðu fækkaði ferðunum í
fjallið og önnur brýnni verkefni tóku
við. Jón var mjög hagur í höndum,
það nýttist honum vel síðar, einkum
þegar hann fór að stunda sjó-
mennsku sem var lengi hans aðal-
starf. Hann tók skipstjórnarpróf og
var í áraraðir skipstjóri á Hring
SI-34 sem gerður var út frá Siglu-
firði.
Ég minnist þessa tíma alveg sér-
staklega því fjölskylda mín, Anna
Jóna, Jón og börn þeirra áttu heima í
sama húsi að Suðurgötu 62 á Siglu-
firði. Þá var vel fylgst með afla-
brögðum og hvernig gekk í útgerð-
inni, það var enginn dans á rósum að
eiga lífsviðurværi sitt undir sjósókn
þegar sækja þurfti í öllum veðrum
frá „ströndinni við ysta haf“. Jón var
harðduglegur sjómaður og allt gekk
vel hjá honum þann tíma sem hann
stundaði sjóinn.
Á Siglufirði átti Jón öll sín bestu
ár. Fjölskyldan flutti síðan til
Reykjavíkur á 8. áratugnum og eign-
aðist fallegt heimili í Reykjavík. Að
endingu sendum við Önnu Jónu og
fjölskyldu hennar innilegar samúð-
arkveðjur með þökk fyrir liðin ár.
Blessuð sé minning Jóns Sveinsson-
ar.
Hulda Steinsdóttir og börn.
Jón Sveinsson ✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
RAGNHILDUR G. FINNBOGADÓTTIR
frá Fremri-Hvestu,
Arnarfirði,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
9. nóvember.
Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Sigríður Bjarnadóttir, Kristján Bersi Ólafsson,
Margrét Bjarnadóttir, Guðni Sigurjónsson,
Guðbjörg Bjarnadóttir, Ægir Jóhannsson,
Kristófer Bjarnason, Janthuan Uansa-Ard,
Marínó Bjarnason, Freyja Magnúsdóttir,
Jón Bjarnason, Halla Hjartardóttir,
Ingibjörg Halldóra Bjarnadóttir, Albert Sigurður Albertsson,
Elín Bjarnadóttir, Smári Adolfsson,
Gestný Bjarnadóttir,
Katrín Bjarnadóttir,
Dagur Bjarnason, Valborg Mikaelsdóttir,
Ragnar Gísli Bjarnason,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
HELGI EIRÍKSSON
aðalbókari,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn
13. nóvember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 20. nóvember kl. 15.00.
Sigrún Dúfa Helgadóttir, Gunnar Karlsson,
Eiríkur Helgason, Þórunn Kristinsdóttir,
Sigurjón Helgason, Vilhelmína Haraldsdóttir,
Ingólfur Helgason,
Jón Helgason, Sigrún Gréta Magnúsdóttir,
Anna Sigríður Helgadóttir, Ívar Gunnarsson,
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
✝
Hjartkær móðir mín, systir, amma okkar og
langamma,
JÓHANNA HINRIKSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
laugardaginn 14. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 20. nóvember og hefst athöfnin
kl. 15.00.
Guðríður Sigurðardóttir,
Sigríður Hinriksdóttir,
Jóhanna Árnadóttir,
Sigurður Árnason, Brynhildur Tinna Birgisdóttir,
Þórdís Elín Sigurðardóttir.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar,
HARALDUR ÁSGEIRSSON
verkfræðingur
frá Sólbakka í Önundarfirði,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
15. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
20. nóvember kl. 11.00.
Elísabet Haraldsdóttir, Gunnar Örn Guðmundsson,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Hallgrímur Guðjónsson,
Ásgeir Haraldsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir,
Einar Kristján Haraldsson, Helga Guðrún Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HERDÍS STEINSDÓTTIR,
Akurgerði 44,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
13. nóvember.
Útförin verður gerð frá Bústaðakirkju mánudaginn
23. nóvember kl. 13.00.
Lóa Gerður Baldursdóttir, Örn Ingólfsson,
Jón Birgir Baldursson, Þórunn Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
DÓRÓTHEA FRIÐRIKSDÓTTIR,
Hlévangi,
áður til heimilis
Sóltúni 6,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
19. nóvember kl. 13.00.
Dóróthea Jónsdóttir, Pétur R. Hauksson,
Agnes M. Pétursdóttir, Vilhjálmur J. Lárusson,
Edith Þ. Pétursdóttir, Helgi Þ. Guðmundsson,
Páll Árni Pétursson,
Leeann M. May,
Charles Hopkins, Rebecca Hopkins,
Pall Ray Hopkins, Samantha Hopkins
og barnabarnabörn.