Morgunblaðið - 17.11.2009, Side 32

Morgunblaðið - 17.11.2009, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009 Hugmyndina að nýjastahamfara- og heimsend-istryllinum sínum sækirhöfundurinn, Roland Emmerich, til tímatals Maya-indjána. Þessi forna menningarþjóð endaði það í fyrndinni án nokkurra skýringa á ártalinu 2012. Þá er ljóst hvaðan nafnið er komið. Ein aðalpersónanna er Jackson Curtis (Cusack), mislukkaður rithöf- undur sem vinnur fyrir sér sem ekill Yuris Karpovs (Zlatko Buric) rúss- nesks milljarðamærings í Los Angel- es. Kate (Peet), kona hans, er farin frá honum með börn þeirra tvö, Noah (Liam James) og Lilly (Morgan Lily). Í myndarbyrjun telur hún sig hafa fundið vænlegra mannsefni í lækn- inum Gordon (Tom McCarthy). Ann- ar burðarás myndarinnar er vís- indamaðurinn Helmsley (Ejiofor), sem uppgötvar hrikaleg sólgos sem geta haft ófyrirsjáanleg og ill áhrif á lífið á jörðinni innan tíðar. Hann kem- ur upplýsingunum til forsetans, Thomasar Wilsons (Glover), og þjóðir heims koma sér saman um undan- komuleið – fyrir þá útvöldu, vel að merkja. Emmerich hefur áður gert nokkrar slíkar hamfaramyndir, þær minnisstæðustu, Independence Day og The Day After Tomorrow, flestir vilja gleyma Godzilla og 10.000 B.C. Nýja myndin toppar ekki hans bestu verk en það liggur í augum uppi að hún á eftir, með sínum voldugu brell- um og markaðssetningu, að verða vinsælasta poppkornsmynd næstu vikurnar, ef ekki allt árið. Hún líður nokkuð fyrir óhóflega lengd og flatar og lítt áhugaverðar persónur en eink- um þegar á líður verður spennan þrælmögnuð og brellurnar gerast ekki flottari. Tilefnið er ærið; jörðin umpólast með tilheyrandi umbrotum, við sjáum heilu heimsborgirnar rísa og hrynja líkt og spilaborgir og ein tilkomumesta brella sögunnar er flóðbylgjan mikla í myndarlok. Svo er að sjá sem persónusköpunin líði nokkuð fyrir mikilfengleik brelln- anna, ágætur leikhópur þarf ekki að láta reyna mikið á hæfileikana, 2012 er brellumynd fyrir augað og fín af- þreying sem slík. saebjorn@heimsnet.is Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn, Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri 2012 bbbnn Leikstjóri: Roland Emmerich. Aðalleik- arar: John Cusack, Chiwetel Ejiofor, Amanda Peet, Oliver Platt, Thandie Newton, Danny Glover, Woody Harrel- son, George Segal. 160 mín. Bandaríkin. 2009 SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Arkirnar hans Emmerichs 2012 „Hún líður nokkuð fyrir óhóflega lengd og flatar og lítt áhugaverðar persónur en einkum þegar á líður verður spennan þrælmögnuð og brell- urnar gerast ekki flottari.“ Á ÁTTUNDA áratugnum var kynnt til leiks ný og öflug hljómburð- artækni í kvikmyndahúsum sem nefndist Sensurround. Hún byggð- ist á miklu kröftugri bassahljóm en áður tíðkaðist og naut sín einkar vel í Earthquake (’74), fyrstu mynd- inni með þessari áhrifaríku nýjung. Maður hafði á tilfinningunni að Laugarásbíó skylfi og nötraði, en það var umboðsaðili Universal, sem átti einkaleyfið. Nokkrar myndir voru gerðar til viðbótar með Sens- urround, m.a. stríðsmyndin Midway (’76) og Rollercoaster (’77). Skömmu síðar komu THX, full- komnara Dolby-kerfi og fleiri nýj- ungar í bíóhljóðtæknibúnaði til sög- unnar og eru ráðandi í dag og njóta sín best í „stórslysamyndunum“, eins og þær voru kallaðar, ham- faramyndum á borð við 2012. Upphaf „stór- slysamyndanna“ LEIKARINN Tom Cruise vill að Katie Holmes leiki illmenni í næstu Mission: Impossible-kvikmynd en Cruise fer með hlutverk njósnarans Ethans Hunts í þeim myndum. Hann þráir að vinna með eiginkonu sinni og trúir því að hlutverk illmennis í fjórðu Impossible- myndinni yrði fullkomið fyrir hana því hann vill ekki að þau leiki par á hvíta tjaldinu. „Tom er æstur í að fara með Mission Impossible í nýja átt og hann sér Katie sem stóran hluta af því,“ segir heimild- armaður. „Cruise og Holmes hefur dreymt um að vinna saman nú í nokk- urn tíma en hugmyndin um að þau fari með hlutverk pars í rómantískri gam- anmynd er frekar leiðinleg. Þetta gæti gefið þeim tækifæri til að skemmta sér saman, bæði sem par og hetjan og ill- mennið á tökustað.“ Reuters Hjónin Tom Cruise og Katie Holmes. Eiginkonan sem illmenni SÖNGVARARNIR Friðrik Ómar og Jógvan Hansen héldu tónleika í Salnum í Kópavogi um helgina vegna útkomu geisladisksins Vinalög sem er einn vin- sælasti diskur landsins um þessar mund- ir. Á honum syngja þeir íslensk og fær- eysk dægurlög á tungumálum beggja þjóða. Þetta voru aðrir útgáfutónleikar þeirra í Salnum en þeir hafa líka haldið tónleika í Færeyjum í tilefni af útkomu Vinalaga. Morgunblaðið/Eggert Innlifun Friðrik Ómar og Jógvan eru góðir saman. Vinir Jógvan Hansen og Friðrik Ómar ásamt hljómsveit; Pétur V. Pétursson, Vignir Þór Stefánsson, Benedikt Brynleifsson, Greta Salóme Stefánsdóttir og Róbert Þórhallsson. Gestir Sigursveinn Þór Árnason og Regína Ósk Óskarsdóttir létu sig ekki vanta á tónleikana enda miklir vinir söngvaranna. Vinaleg stemning í Salnum YFIR 32.000 GESTIR EIN VINSÆLASTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA ER LOKSINS KOMIN Í ÞRÍVÍDD SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Nia Vardalos, stelpan úr "My big fat greek wedding" er loksins komin til Grikklands í frábærri rómantískri gamanmynd. Frá fram- leiðendum Tom Hanks og Rita Wilson. Ásamt leikstjóra "How to loose a guy in ten days". FRÁ FRAMLEIÐENDUM MICHAEL BAY KEMUR HÖRKUSPENNANDI MYND Í ANDA SEVEN 4 FÓRNARLÖMB! 4 LEYNDARMÁL! SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI / ÁLFABAKKA HORSEMEN kl. 5:50 - 8 - 10:20 16 TOY STORY 1 m. ísl. tali kl. 63D L LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50 - 8 - 10:20 16 COUPLES RETREAT kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 LAW ABIDING CITIZEN kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP ORPHAN kl. 10:20 16 MORE THAN A GAME kl. 8 7 ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6 L THE INFORMANT kl. 8 - 10:20 L THE INFORMANT kl. 5:50 LÚXUS VIP A T / KRINGLUNNI MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8-10:10 L COUPLES RETREAT kl.8:10D 12 LAW ABIDING CITIZEN kl.6 -8:10-10:30 16 GAMER kl.10:30 16 TOY STORY 1 m. ísl. tali kl.6:153D L 3D-DIGITAL GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.