Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6 9 8 5
7 4
1 2 9 4
9 4 6 2 7 8
8 6
8 4 7
2 5
7 1 8 2
7 8 3
1 2
3 4 1
5 3 9
2 9 4
4 1 5 8
3 2 8
5 9 1 2
6 1
4 5
1 8 7 6
3 7 2
8 4
3
8 6 1 2
4 7
2 5 6
2 5 9 3 7 8 1 6 4
4 7 3 6 1 5 8 2 9
8 6 1 9 2 4 5 7 3
6 3 2 1 4 7 9 8 5
5 4 8 2 9 6 7 3 1
1 9 7 8 5 3 6 4 2
3 1 6 5 8 2 4 9 7
7 8 5 4 3 9 2 1 6
9 2 4 7 6 1 3 5 8
3 9 4 8 1 5 6 7 2
6 5 7 3 2 4 1 8 9
8 2 1 9 6 7 4 5 3
2 1 3 7 5 6 8 9 4
4 6 9 1 8 2 7 3 5
5 7 8 4 9 3 2 1 6
7 3 5 6 4 1 9 2 8
1 8 6 2 3 9 5 4 7
9 4 2 5 7 8 3 6 1
8 6 9 2 1 3 7 4 5
3 5 7 8 6 4 1 2 9
2 1 4 7 5 9 3 6 8
7 3 1 4 9 8 6 5 2
5 4 2 6 3 7 8 9 1
9 8 6 5 2 1 4 3 7
4 9 3 1 8 2 5 7 6
6 7 8 9 4 5 2 1 3
1 2 5 3 7 6 9 8 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 17. nóvember,
321. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Víkverji horfir á auglýsingar ísjónvarpi meira sem skemmti-
efni en beina auglýsingu um tiltekna
vöru, hann lætur a.m.k. auglýsingar
ekki stjórna neyslu sinni og inn-
kaupum – nema í undantekning-
artilfellum. Gott dæmi um skemmti-
legar auglýsingar og leiðinlegar
auglýsingar sést þessa dagana á
skjánum frá tveimur trygginga-
félögum. Auglýsingar Varðar eru
sérlega vel heppnaðar að mati Vík-
verja og fyndið hvernig þekktar per-
sónur úr Íslandssögunni eru dregnar
inn í nútímann, eins og Gunnar á
Hlíðarenda, Hallgerður langbrók,
Jónas Hallgrímsson og Einar Ben.
Jafn skemmtilegar og þessar auglýs-
ingar eru þá fær Víkverji kjánahroll
af leiðindum við að horfa á auglýs-
ingar Sjóvár um vegaaðstoð. Al-
gjörlega misheppnaður húmoristi á
ferð sem hannaði þær auglýsingar.
Víkverji er ánægður með sitt trygg-
ingafélag, þrátt fyrir svimandi hækk-
anir á iðgjöldum, en lítil hætta á að
hann skipti yfir í Sjóvá eða hringi í
þessa vegaaðstoð.
x x x
Víkverji hefur verið meðal aðdá-enda Eiðs Smára Guðjohnsen
knattspyrnumanns en er núna ekki
sáttur við sinn mann. Viðbrögð hans í
fjölmiðlum við gagnrýni á frammi-
stöðuna með nýja liðinu, Mónakó,
voru honum ekki til framdráttar.
Ungur sonur Víkverja hefur einnig
litið upp til Eiðs Smára en hann varð
stórt spurningarmerki í framan við
lestur á ummælum Eiðs í Frétta-
blaðinu, þar sem athugasemdir voru
gerðar við holdafar og knatt-
spyrnuhæfileika þess íþróttafrétta-
manns sem hafði vogað sér að gagn-
rýna Eið Smára, þ.e. Harðar
Magnússonar.
Svona gera menn ekki, hugsaði
Víkverji með sér, og Eiður Smári
verður að þola gagnrýni þegar illa
gengur jafnt og aðrir íþróttamenn.
Vonandi láta íþróttafréttamenn ekki
deigan síga við að veita atvinnumönn-
unum aðhald. Eiður Smári og félagar
gátu þannig rekið af sér slyðruorðið í
landsleiknum gegn Lúxemborg um
helgina en gerðu það ekki. Einhverjir
virkuðu saddir þar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 samfleyttur, 8
lélega spilið, 9 fjalls-
topps, 10 spil, 11 fiskur,
13 líffærið, 15 hættu-
lega, 18 ledda, 21 hreysi,
22 veður, 23 hinn, 24
sambland.
Lóðrétt | 2 líkamshlutar,
3 kona, 4 hljóðfærið, 5
alda, 6 draug, 7 espið, 12
skán, 14 smágerð sletta,
15 vitur, 16 hyggur, 17
ræktuð lönd, 18 fram-
endi, 19 þekktu, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kafli, 4 gusta, 7 rætin, 8 urðar, 9 arð, 11 aura,
13 hríð, 14 fimar, 15 stál, 17 ólga, 20 gró, 22 ormur, 23
lætin, 24 tunga, 25 asnar.
Lóðrétt: 1 karfa, 2 fótur, 3 inna, 4 gauð, 5 siður, 6 afræð,
10 rómar, 12 afl, 13 hró, 15 skott, 16 álman, 18 lotan, 19
arnar, 20 gróa, 21 ólma.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O b5 6. Bb3 Bb7 7. d3 Be7 8. a4
O-O 9. He1 d6 10. Rbd2 Ra5 11. Ba2 c5
12. Rf1 h6 13. Re3 He8 14. Bd2 Rc6 15.
c3 Bf8 16. axb5 axb5 17. Db3 Dd7 18.
Dxb5 Ba6
Staðan kom upp í stúlknaflokki
heimsmeistaramóts 20 ára og yngri
sem lauk fyrir skömmu í Puerto Ma-
dryn í Argentínu. Sigurvegari mótsins,
Swaminathan Soumya (2297) frá Ind-
landi, hafði hvítt gegn Kubra Ozturk
(2176) frá Tyrklandi. 19. Bxf7+! Dxf7
20. Hxa6 Hxa6 21. Dxa6 hvítur er nú
tveim peðum yfir og með léttunnið tafl.
21…Dc7 22. b4 Kh7 23. b5 Rb8 24.
Da4 Rbd7 25. Ha1 Hb8 26. c4 Rb6 27.
Ba5 Ha8 28. Dd1 Ha7 29. Ha4 Be7 30.
Rf5 Bf8 31. Bxb6 Dxb6 32. Da1 Hf7
33. Ha8 Rh5 34. Da6 Dc7 35. b6 Dd7
36. Ha7 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Á ljóshraða.
Norður
♠G6543
♥K94
♦G83
♣G9
Vestur Austur
♠K ♠1092
♥876 ♥ÁG532
♦95 ♦1062
♣ÁK10732 ♣86
Suður
♠ÁD87
♥D10
♦ÁKD74
♣D4
Suður spilar 4♠.
Fyrir sléttri viku tók Ísak Örn Sig-
urðsson upp hönd suðurs í hrað-
sveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur.
Ísak vakti á Standard-tígli og vestur
stakk inn 2♣. Sú sögn gekk til Ísaks.
Hann sýndi nú hámarksopnun með 2♠
og norður lyfti í fjóra.
Vestur hirti tvo slagi á ♣ÁK, skipti
svo yfir í ♥8 og austur tók á ásinn.
Vörnin hefur fengið þrjá slagi og mis-
heppnuð spaðasvíning liggur í loftinu.
En nei, Ísak skellti kóngnum stökum í
bakhöndinni og vann sitt spil: „Vestur
hafði aðeins sýnt ás-kóng í laufi, en
meira um vert þótti mér pass austurs
við 2♣. Það kom á ljóshraða. Með ♥ÁG
og ♠K hefði austur alla vega íhugað
málin smá stund.“ Rétt athugað og
sanngjörn verðlaun.
Gylfi Baldursson og félagar leiða
keppnina eftir tvær lotur, en niðurstaða
fæst í kvöld.
-
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hittir fólk sem er ekki alltaf í
góðu sambandi við sannleikann. Ræddu
vandamálin við vini þína.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú gætir fundið til efasemda um eig-
ið ágæti í dag og löngunar til að fela þig
fyrir umheiminum. Þér tekst að ljúka ætl-
unarverki og gengur það eins og smurt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Góður ásetningur sigrar alltaf
þann slæma, auk þess sem ástin sigrar
alltaf að lokum. Dagurinn er einnig kjör-
inn til fjárhagslegra vangaveltna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það liggur einstaklega vel fyrir
þér að sannfæra aðra í dag, sérstaklega
almenning. Vertu því ekki smeykur þótt
þér sýnist margt snúið við fyrstu sýn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú mátt eiga von á því að til þín verði
leitað á vinnustað um ráð í sambandi við
viðamikið verkefni. Skuldbindingar
hverfa ekki þótt þú óskir þess.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert með fulla skrifblokk af
markmiðum og ert að endurskoða þau,
henda út og bæta við nokkrum nýjum og
spennandi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert í essinu þínu núna og gengur
auðveldlega í augun á fólki án þess að
leggja nokkuð á þig. Hversdagslegustu
hlutir verða óvenjulegir í dag.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Oftast fyllistu ekki valkvíða,
en valkostirnir eru nú svo girnilegir að þú
veður að hugsa þig vel um. Kannski verð-
ur undarleg eða óvenjuleg manneskja á
vegi þínum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Smávegis bjartsýni væri ekki
úr vegi, en reyndu að spenna bogann ekki
of hátt. Reyndu að ná jafnvægi milli þess
sem þú vonar og hvað þú getur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nú er rétti tíminn til að hefjast
handa við heilsubót. Ef einhver vill létta
undir með þér, skaltu þiggja það með
þökkum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Valdabarátta og ágreiningur
við fjölskyldumeðlimi eru ekki útilokuð.
Viðurkenndu varnarleysið og fagnaðu því
að vera mannlegur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Nú er röðin komin að þér að fá
tækifæri til þess að auka tekjur þínar.
Byrjaðu á því að loka á heimsóknir mál-
glaðra vinnufélaga.
Stjörnuspá
17. nóvember 1938
Vikan kom út í fyrsta sinn.
„Blaði þessu er ætlað að vera
til fróðleiks og skemmtunar,
gagns og gleði góðum les-
endum,“ sagði í ávarpi rit-
stjórans, Sigurðar Benedikts-
sonar. Meðal efnis voru
myndasögur um Gissur gull-
rass og Binna og Pinna.
17. nóvember 1940
Akureyrarkirkja var vígð.
Hún var þá stærsta guðshús ís-
lensku þjóðkirkjunnar, rúm-
aði um 500 manns. Guðjón
Samúelsson, húsameistari rík-
isins, teiknaði kirkjuna og
skipulagði umhverfi hennar,
en upp að henni liggja um
hundrað tröppur.
17. nóvember 1974
Danski píanóleikarinn og háð-
fuglinn Victor Borge kom
fram á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar „við frá-
bærar undirtektir áhorfenda“
að sögn Tímans.
17. nóvember 1995
Mislæg gatnamót Höfðabakka
og Vesturlandsvegar í Reykja-
vík voru formlega tekin í notk-
un.
17. nóvember 2008
Guðni Ágústsson sagði af sér
sem formaður Framsókn-
arflokksins og hætti á Alþingi
eftir rúma tvo áratugi, lengst
af sem þingmaður Suðurlands.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
ÞAÐ verður lítið um dýrðir hjá Leó Jóhannssyni
menntskælingi í dag því þrátt fyrir að eiga 18 ára
afmæli þarf hann að mæta í eðlisfræðipróf. „Þetta
er afmælisgjöfin mín frá skólanum,“ segir Leó í
léttum tón og kvartar ekki, því hann hefur mjög
gaman af stærðfræði og stærðfræðitengdum
námsefnum almennt. Það er því engin tilviljun að
hann skuli stunda nám á eðlisfræðibraut II við
Menntaskólann í Reykjavík. „Það var aldrei vafi,
þetta hefur verið ákveðið síðan ég var lítill og vissi
hvað MR var,“ segir Leó sem segir skólann ekki
hafa valdið vonbrigðum, námið sé frábært, stemn-
ingin afslöppuð og félagslífið frábært. Þrátt fyrir kröfuhart nám gef-
ur Leó sér þó líka tíma fyrir íþróttir því hann hefur æft júdó hjá Júdó-
félagi Reykjavíkur í hátt í sex ár og er kominn með bláa beltið. Hrein
tilviljun réð því að Leó valdi júdó en síðar kom í ljós að júdógenið
leyndist í ættinni. „Ég komst að því eftir á að afi minn stofnaði júdó-
félagið, mjög skemmtileg tilviljun. Hann var hæstánægður og gaf mér
svarta beltið sitt í fermingargjöf.“ Leó segir afmælisdaginn leggjast
vel í sig þrátt fyrir eðlisfræðina, hann stefnir á 9 í prófinu og hugs-
anlega pizzu með félögunum í kjölfarið. una@mbl.is
Leó Jóhannsson menntskælingur 18 ára
Eðlisfræðipróf í afmælisgjöf
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is