Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 22
✝
Hjartkær eiginmaður minn,
ÁRNI ÓSKARSSON,
Engjavegi 51,
Selfossi,
lést á Fossheimum Selfossi sunnudaginn
15. nóvember.
Heiðdís Gunnarsdóttir.
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
✝ Guðbjörn NíelsJensson fæddist í
Reykjavík 16. júlí
1934. Hann andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut 7. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Björg Einarsdóttir, f.
17. júlí 1901, d. 21.
febrúar 1990 og Jens
Runólfsson, f. 27.
október 1895, d. 9. maí
1977. Systkini Guð-
björns eru Guðný, f.
19. nóvember 1924, d.
16. júlí 2005, Helga Jóna, f. 14. mars
1926, Rafn Ingólfur, f. 2. september
1927, Einar Vilhelm, f. 5. apríl 1930,
d. 20. október 1994, Sigurður, f. 8.
maí 1931, d. 10. mars 1932, Sig-
urður, f. 2. nóvember 1932, og Val-
fríður, f. 7. september 1936. Guð-
björn kvæntist 31. desember 1955
Guðrúnu R. Pálsdóttur, f. 29. janúar
1937. Foreldrar hennar voru Ása
Björnsdóttir, f. 29. apríl 1913, d. 17.
mars 2000 og Páll Rögnvaldsson, f.
2. september 1903, d. 8. ágúst 1976.
Börn Guðbjörns og Guðrúnar eru:
1) Ása Linda, f. 1. janúar 1955, maki
mars 1991. Fyrir átti Rafnar Þór
Ragnar Pál, f. 11. ágúst 1976, með
fyrrverandi sambýliskonu sinni, Evu
H. Kristjánsdóttur, f. 22. október
1959. Langafabörn Guðbjörns eru
þrjú.
Guðbjörn fæddist í Reykjavík en
ólst upp í foreldrahúsum í Hafn-
arfirði ásamt systkinum sínum, fyrst
á Selvogsgötu og síðar að Köldukinn
7. Guðbjörn og Guðrún hófu búskap
sinn í Hafnarfirði en fluttu fljótlega
til Reykjavíkur, bjuggu fyrstu árin í
Laugardalnum, síðar í Ásgarðinum
en undanfarin tuttugu ár í Fanna-
fold. Guðbjörn var mjög fé-
lagslyndur maður og virkur í fé-
lagsmálum og á yngri árum var
hann félagi í söngkvartett Hreyfils
en undanfarin ár vann hann að-
allega að kórstörfum með Breiðfirð-
ingakórnum og kór Eldri Þrasta í
Hafnarfirði. Guðbjörn vann fyrstu
árin sem atvinnubílstjóri en hóf síð-
ar nám í húsgagnasmíði hjá Krist-
jáni Siggeirssyni og starfaði við þá
iðngrein þar til hann lét af störfum
sökum aldurs.
Útför Guðbjörns fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 17. nóvember og
hefst athöfnin kl. 13.
Ragnar H. Ragn-
arsson. Börn þeirra
eru Guðbjörn Hilmir,
f. 24. maí 1985, Guðný
Björg, f. 11. apríl
1990, og Sveinn, f. 25.
desember 1989, d. 25.
desember 1989. Fyrir
átti Ása Linda Arnar
Geir Stefánsson, f. 7.
mars 1975 með fyrr-
verandi eiginmanni
sínum Stefáni Karls-
syni, f. 2. september
1952. 2) Gunnar Páll,
f. 10. mars 1956, var
kvæntur Auði Pétursdóttur, f. 15.
apríl 1962. Þau slitu samvistum.
Börn þeirra eru Linda Björk, f. 22.
september 1980, Erna Guðrún, f. 30.
júlí 1988, og Bjarki Páll, f. 14. júní
1994. 3) Björgvin Jens, f. 16. júlí
1957, maki Steinunn G. Jónsdóttir, f.
23. mars 1959. Börn þeirra eru Ingv-
ar Þór, f. 15. ágúst 1977, Birgir Örn,
f. 10. nóvember 1981, og Berglind
Ósk, f. 19. september 1983. 4) Rafn-
ar Þór, f. 21. apríl 1959, maki Guð-
rún Á. Eðvarðsdóttir, f. 21. janúar
1961. Börn þeirra eru Brynjar Eddi,
f. 28. júní 1985, og Róbert Darri, f. 6.
Elsku Bjössi.
Mig langar að þakka þér fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum saman
og kveðja þig með þessu fallega ljóði.
Er ég mætti sál þinni bjartri og hlýrri
ég skildi þá þrá er til ljóssins þú barst,
þá fjötra er líf þitt á sál þína lagði og
lausn þá er dauðinn þér gaf.
Ég virði þig vinur og veg þinn til lausnar,
það frelsi er hlotnast þér nú,
ég finn þína bjargföstu trú.
Um heilaga brú, inni í heimana björtu
handan við lífið liggur þín leið,
í svanslíki flýgur og frelsinu fagnar,
leiðin til ljóssins er víðáttu breið.
Þú svífur um dyr þær er eilífðin opnar,
þar englar himnanna fagna þér dátt,
við kveðjum þig vinur og vegsemdar
biðjum
kærleika guðs í auðmýkt og sátt.
(Björg.)
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Þín
Guðrún (Gunna).
Ástkær faðir okkar er látinn eftir
hetjulega og æðrulausa baráttu við
krabbamein.
Við systkinin eigum margar góðar
minningar frá uppvaxtarárum okkar,
fyrst í Bræðraparti við Engjaveg í
Laugardalnum, sem var eins og sveit í
borg, og síðar í Ásgarðinum. Við vor-
um svo lánsöm í lífinu að eignast góða
foreldra sem var alla tíð umhugað um
sína fjölskyldu, börnin og barnabörn-
in. Pabbi hafði yndi af því þegar fjöl-
skyldan kom saman og var alla tíð
mjög stoltur af öllum afkomendum
sínum og fylgdist alltaf vel með þeim í
leik og starfi. Hann var skapgóður
maður, brosmildur og glettinn og var
fljótur að sjá skondnu hliðarnar á
mönnum og málefnum sem kom ber-
lega í ljós í veikindum hans. Pabbi var
söngmaður mikill, góður á gítar og
var hann alltaf til í að spila og syngja
þar sem fólk kom saman í afmælum,
ferðalögum eða öðrum mannamótum
og var þá hrókur alls fagnaðar. Ekki
var hægt að halda veislur nema pabbi
syngi gömlu kontrílögin, sem hann
söng af svo mikilli snilld, þau lög sem
hann og mamma höfðu svo gaman af.
Foreldrar okkar byggðu sér sum-
arhús í Grímsnesinu og þar naut
pabbi sín vel við að smíða og dytta að
húsinu, enda lærður húsgagnasmiður
og góður fagmaður. Skemmtilegast
fannst honum þegar öll fjölskyldan
kom saman í bústaðnum og var þá oft
glatt á hjalla. Pabbi hafði alltaf gaman
að ferðast hvort sem var innan- eða
utanlands en skemmtilegast þótti
honum að fara til sólarlanda. Hann
var alltaf til í allar ferðir sem stungið
var upp á, og vildi hann helst vera sem
lengstan tíma í þeim ferðum.
Elsku pabbi, við vitum að vel hefur
verið tekið á móti þér og mun minn-
ingin um einstakan föður lifa með
okkur. Megi Drottinn Guð blessa þig.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að
hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvel-
ur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið
hlæið og syngið með glöðum hug, lyft-
ist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið
glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur
og ég, þótt látinn sé, tek ég þátt í gleði
ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Blessuð sé minning þín,
Ása Linda, Gunnar Páll,
Jens, Rabbi og fjölskyldur.
Elsku afi Bjössi, margar góðar
minningar eigum við um þig og viljum
við með örfáum orðum minnast þín.
Þú varst hrókur alls fagnaðar hvar
sem þú komst. Þú varst mikil fé-
lagsvera og vel liðinn af fólki á öllum
aldri. Þú varst fyndinn, glettinn og
góður afi, sem gantaðist við okkur
barnabörnin og höfðum við gaman af.
Okkur er minnisstætt þegar við vor-
um yngri og þú lékst við okkur í ka-
rate eða „harakíri“ eins og þú orðaðir
það. Við minnumst þess líka hvað þér
þótti það gaman seinasta sumar, þeg-
ar fjölskyldan hittist í bústaðnum hjá
okkur í Grímsnesinu og við nutum
þess að vera saman. Afi var alltaf
tilbúinn að spila á gítarinn sinn og var
það ein af uppáhaldsstundum okkar
þegar við sungum með þér. Þú áttir
það sameiginlegt með okkur að kalla
þig stoltan Hafnfirðing og FH-ing og
fylgdist með í gegnum okkur.
Viljum við þakka þér fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum með
þér og munum við geyma þær hjá
okkur og minnast þín ætíð.
Við kveðjumst nú með söknuði,
elsku afi, og munt þú alltaf eiga sér-
stakan stað í hjarta okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Hvíl þú í friði.
Þín barnabörn,
Ingvar Þór, Birgir Örn
og Berglind Ósk.
Okkur systkinin langar til að minn-
ast Bjössa bróður okkar með örfáum
orðum, en meðal okkar gekk hann
alltaf undir því nafni.
Hann hét fullu nafni Guðbjörn
Níels eftir kærum fósturforeldrum
Bjargar móður okkar, en þau bjuggu
að Hafranesi við Reyðarfjörð. Þangað
kom amma okkar Vilhelmína móður
okkar í fóstur, eftir að afi, Einar
Borgfjörð, lést langt fyrir aldur fram.
Bjössi ólst upp í foreldrahúsum í
Hafnarfirði ásamt 6 systkinum.
Húsakynnin voru oft þröng, eins og
algengt var í þá daga, en verulega
rættist úr þeim, er við fluttum, í nýtt
hús að Köldukinn 7 í Hafnfirði, sem
foreldrar okkar byggðu.
Eins og venja var á þessum árum
voru börn send í sveit strax og þau
gátu farið að hjálpa til og þar var
Bjössi engin undantekning. Hann fór
fyrst í sveit 9 ára gamall og hvert
sumar eftir það fram að fermingu.
Eftir það vann hann ýmis störf þar til
hann hóf nám í húsgagnasmíði.
Guðbjörn Níels Jensson
Leiðrétt
æviágrip
Mistök urðu við
upptalningu systk-
ina í æviágripi um
Rósu Ólafsdóttur,
sem birtist í Morg-
unblaðinu 14. nóvember. Hið rétta
er eftirfarandi: Systkini Rósu: látin
eru Óskar, Engilbert, Laufey, Katr-
ín, Ólafía og Júlía. Á lífi eru Björg-
vin, Jónína, Unnur, Kristín og
Ágúst.
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
MAGNEA THOMSEN,
Lundi 1,
Kópavogi,
áður til heimilis að Ennishlíð 4,
Ólafsvík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að
morgni sunnudagsins 15. nóvember.
Útför verður auglýst síðar.
Guðmundur J. Sveinsson,
Sigurður Sveinn Guðmundsson, Guðrún Jenný Sigurðardóttir,
Anna Margrét Guðmundsdóttir, Unnar Freyr Bjarnason,
Tómas Guðmundsson, Sonja Erna Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR MARGRÉT GÍSLADÓTTIR,
Hlévangi,
áður til heimilis að
Sólvallagötu 6,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi föstudaginn 13. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Magnús Bergmann,
Gunnar Bergmann, Anna Gunnarsdóttir,
Sigríður Benía Bergmann, Gísli Einarsson,
Helga Fanney Bergmann, Jóhann H. Grétarsson,
Gunnar Sæþórsson, Heiðdís Jónsdóttir,
Jóhann Axel Thorarensen, Ásdís Kristinsdóttir,
Jóna Katrín Gunnarsdóttir, Tryggvi Þór Róbertsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar kæri
BENEDIKT DAVÍÐSSON
lést að morgni föstudagsins 13. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn
20. nóvember kl. 15.00.
Finnbjörg Guðmundsdóttir,
Guðríður Helga Benediktsdóttir, Hagerup Ísaksen,
Viggó Benediktsson, Diljá Markúsdóttir,
Elfa Björk Benediktsdóttir, Magnús Reynir Ástþórsson,
Jóna Benediktsdóttir, Henry Bæringsson,
Guðbergur Egill Eyjólfsson, Birna Kristín Friðriksdóttir,
Stefnir Benediktsson,
Birna Eik Benediktsdóttir,
Kári Walter Margrétarson,
afa- og langafabörn.
✝
Faðir okkar,
BÖÐVAR JÓNSSON
bóndi á Gautlöndum,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga laugardaginn
14. nóvember.
Útförin fer fram frá Skútustaðakirkju Mývatnssveit
sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Ásgeir, Jóhann, Jón Gauti, Sigurður Guðni og Björn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR HREIÐAR ÁRNASON
flugvirki,
Mánatúni 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum laugardaginn
14. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Frímúrarareglunnar
á Íslandi.
Margrét Steingrímsdóttir,
Árni Gunnarsson, Sjöfn Óskarsdóttir,
Vilborg Gunnarsdóttir, Gunnar Aðalsteinsson,
Guðrún Erla Gunnarsdóttir, Þorgrímur Páll Þorgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.