Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8 112 Reykjavík
Opið til 22:00 til jóla
einfaldlega betri kostur
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
35%
AF ÖLLU
JÓLASKRAUTI
Christmas. Kúlukerti, háglans.
Einnig til gull og silfur.
Ø7,5 cm. Verð 495,- NÚ 320,-
Ø9 cm. Verð 795,- NÚ 495,-
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
ÓÁNÆGJA er meðal starfsmanna
fjarskiptafyrirtækisins Skipta vegna
þess að stjórn félagsins hefur frest-
að umsömdum launahækkunum sem
taka áttu gildi um áramót.
Talsmaður Skipta segir hinsvegar
að frestunin byggist á ákvæði sem
samið hafi verið um í síðasta kjara-
samningi.
Skipti tóku ekki þátt í stöðug-
leikasáttmálanum svokallaða á sín-
um tíma en sömdu hinsvegar við
starfsmenn sína um að laun þeirra
myndu hækka um 2,5% nú um ára-
mótin. Þeirri hækkun hefur hins-
vegar verið frestað um hálft ár og
tekur hún því gildi í júní. Að sögn
Péturs Þ. Óskarssonar, talsmanns
Skipta, fylgja Skipti ákvæðum
kjarasamnings SA og ASÍ sem stöð-
ugleikasáttmálinn byggist á. Í
samningnum sem var gerður við Fé-
lag íslenskra símamanna í desember
í fyrra var sérstaklega tekið fram að
kæmi til þess að forsendunefnd ASÍ
og SA næðu samkomulagi um breyt-
ingu á kjarasamningum skyldi hið
sama gilda um þennan samning.
Skipti hafa lagt til að félagsdómur
verði fenginn til að skera úr um mál-
ið, þar sem ágreiningur sé um túlk-
un
Símamenn eru ekki sáttir við
frestunina og í þeirra hópi hefur
komið fram sú gagnrýni að Skipti
séu að nýta sér ákvæði í stöðug-
leikasáttmálanum þegar það henti
en sniðgangi á sama tíma þau atriði
hans sem eru launþegum til hags-
bóta. Félagsmenn FÍS hjá Skiptum
hafi ekki fengið 3,5% hækkun í sum-
ar eins og almennir launþegar og nú
þurfi þeir að bíða enn frekar eftir
launahækkunum.
Grétar Guðmundsson, formaður
FÍS, segir að félagsmenn hafi
fundað um málið að undanförnu og
að öllu óbreyttu verði frestuninni
vísað til félagsdóms eftir áramót.
Símamenn ósáttir
Skipti fresta launahækkunum sem taka áttu gildi um áramót
á grundvelli framlengingar stöðugleikasáttmálans
Í HNOTSKURN
»Skipti voru ekki aðili aðstöðugleikasáttmálanum.
»Sömdu við Félag íslenzkrasímamanna um 2,5%
launahækkun um áramótin.
»Skipti vilja fresta hækk-uninni vegna framleng-
ingar stöðugleikasáttmálans
en hún felur í sér frestun á
umsömdum launahækkunum
þar til í sumar.
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
GYLFI Arn-
björnsson forseti
ASÍ segir grein-
armun vera á að-
komu Björgvins
Thors Björgólfs-
sonar, eins
stærsta eiganda
Verne Holding
sem hyggst reisa
gagnaver á Suð-
urnesjum, að fjárfestingum hér á
landi eftir efnahagshrunið og mögu-
legum afskriftum í bankakerfinu á
lánum svokallaðra útrásarvíkinga til
þess að fyrirtæki í þeirra eigu geti
verið rekstrarhæf. Fjárfesting Verne
sé ný af nálinni – nýtt samstarf með
nýjum skuldbindingum – en í hinum
tilfellunum sé verið að reyna að
bjarga verðmætum, sem gætu síðar
gengið upp í mögulegar skaðabóta-
kröfur. Alþingi verður að leggja m.a.
bönkunum leiðsögn í hvar mörkin
liggja og hér sé að hans mati gengið
of langt.
Gylfi segir að það liggi í augum
uppi að bankarnir og fleiri hafi
gríðarlega mikla hagsmuni af því að
fyrirtæki m.a. á borð við Haga o.fl.
komist í gegnum þessa kreppu og að
hann geri ráð fyrir að bankarnir
gangi fram með hagsmuni sína og
kröfuhafa þegar kemur að úrlausnum
slíkra fyrirtækja. Á sama tíma verði
þó að keyra áfram rannsókn á
hruninu og ábyrgð einstakra aðila á
því og á endanum leiða þau mál lykta.
Ef niðurstaðan verður að þessir ein-
staklingar hafi gerst sekir og skapað
sér skaðabótaábyrgð þá verði að
minnsta kosti einhverjar eignir og
verðmæti sem hægt yrði að ganga að.
Munur á
Björgólfi
og Högum
Gylfi Arnbjörnsson
Forseti ASÍ segir
nauðsynlegt að
bjarga eignum
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Björgólfur Thor
Björgólfsson
KARL og kona voru handtekin um
hádegi í gær eftir háskalegan
flótta undan laganna vörðum.
Hófst flóttinn í Hafnarfirði þegar
lögregla bar kennsl á bíl sem stol-
ið var í Árbæ í fyrrinótt. Öku-
maðurinn sinnti ekki stöðvunar-
merkjum lögreglu og hófst því
eftirför.
Ökufanturinn ók á ofsahraða um
Hraunahverfið og komst út á
Reykjanesbrautina. Ók hann mjög
greitt til norðurs og hluta leiðar-
innar á móti umferð. Ökuferðin
tók enda á mótum Fífuhvamms-
vegar og Hlíðardalsvegar þegar
lögregla ók á bifreiðina til að
stöðva hana. Við þetta valt hún og
fólkið var tekið höndum en það
slapp lítið meitt frá veltunni.
Ökumaðurinn er um þrítugt og
hefur oft komið við sögu lögreglu.
Er hann talinn hafa verið undir
áhrifum vímuefna en að sögn lög-
reglu liggur ekki fyrir hver vímu-
gjafinn var.
Í tilkynningu frá lögreglu segir
að tveir lögreglumenn hafi leitað á
slysadeild að eftirförinni lokinni
og að 3-4 lögreglubílar hafi
skemmst í henni, þar af einn nokk-
uð mikið. Þá skemmdust tveir
bílar sem ökufanturinn keyrði á,
auk þess sem hið stolna ökutæki
stórskemmdist. Mildi þykir að ekki
fór verr, en akstur ökufantsins
mun hafa skapað stórhættu þar
sem margt fólk var á ferli og hann
ók um íbúðarhverfi.
skulias@mbl.is
Flótti á ofsahraða undan laganna vörðum skapaði vegfarendum stórhættu
Keyrðu á bílinn til að binda enda á flóttann
Morgunblaðið/RAX
Verktakar á Austurvöll
Verktakar ætla að aka vinnuvélum sínum að Austurvelli í dag Skora á stjórn-
völd að auka fjárheimildir til framkvæmda og ráðast í arðbærar framkvæmdir
VERKTAKAR efna til mótmæla í dag og beinast
þau gegn stjórnvöldum. Þeir sem standa að að-
gerðunum skora á þingheim að ráðast þegar í stað
í arðbærar framkvæmdir til þess að koma hjólum
atvinnulífsins í gang. Hilmar Konráðsson, for-
stjóri Verktaka Magna og talsmaður mótmæl-
enda, segir að staða verktaka um þessar mundir
sé alvarleg og að engin önnur starfsgrein hafi orð-
ið fyrir jafn miklum samdrætti og jarðvinnu- og
byggingariðnaðurinn. Þegar góðærið var í há-
marki voru tæplega 18 þúsund störf í þessum
geira en í dag telur hann ekki ósennilegt að þau
séu einungis um 5 þúsund. Hilmar segir að vertak-
arnir sem standa að mótmælunum vilji að fjárveit-
ingar ríkissjóðs til framkvæmda verði auknar þar
sem engar nýjar framkvæmdir séu ráðgerðar
samkvæmt fjárlögum.
Mótmælendur hyggjast aka á vinnutækjum sín-
um frá Hafnarfirði klukkan 13.45 að Austurvelli
en þar er ráðgert að afhenda fjárlaganefndar-
mönnum áskorun um úrbætur. Mótmælaakstur-
inn fer fram í samstarfi við lögreglu og segir Hilm-
ar ætlunina ekki vera að trufla almenna umferð.
Menn vilji með akstrinum sýna að að baki vinnu-
vélunum standi fólk sem eigi fjölskyldur og vilji
eiga sér framtíð hér á landi. ornarnar@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmæli Verktakar ætla að mótmæla í dag.