Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 www.noatun.is GRILLAÐUR KJÚKLINGUR KR./STK. 998 MEÐ HEIM HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott! 0000 Jólagjöf veiðimannsins www.veidikortid.is 32 vatnasvæði á aðeins kr. 6.000 Fæst hjá N1, veiðivöruverslunum, www.veidikortid.is og víðar FRÉTTASKÝRING Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is ÖRN Ragnarsson, yfirlæknir heilsu- gæslusviðs á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, segir að við útreikninga ráðuneytisins sé ekki tekið tillit til þess að öldrunarstofnanir í Skaga- firði heyri undir stofnunina. Víða ann- ars staðar séu slíkar stofnanir reknar með fjárveitingu frá ráðuneyti félags- mála. Þar sem sú er ekki raunin hvað varðar þá starfsemi sem heyri undir Heilbrigðistofnunina skekki það sam- anburðinn við aðrar stofnanir þannig að stofnunin virðist fá hærri fjárveit- ingar en aðrar sambærilegar stofn- anir. Vill Örn meina að með þessum að- ferðum sé ekki allur sannleikurinn sagður og ryki sé slegið í augu fólks. „Við höfum sýnt fram á þetta, það hefur enginn vefengt það,“ segir Örn um vankantana sem bent hefur verið á í reiknilíkani ráðuneytisins. Kvört- unum hefur ekki verið sinnt, að sögn Arnar, og segir hann ráðuneytið ekki hafa orðið við beiðni um að fá upplýs- ingar um reiknilíkönin. „Við sýnum fram á það í okkar út- reikningum að við fáum miklu minna framlag en aðrar sambærilegar stofnanir,“ segir Hafsteinn Sæ- mundsson, forstöðumaður Heilbrigð- isstofnunarinnar. Hann telur for- sendur samanburðar ráðuneytisins á stofnunum ótækar og því sé sam- anburðurinn ónothæfur. Refsað fyrir fyrirhyggju? Álfheiður Ingadóttir heilbrigð- isráðherra segist ekki vita til þess að sérstaklega hafi verið deilt um for- sendur útreikninga ráðuneytisins hvað varðar niðurskurð til heilbrigð- isstofnana landsins. Hún segir rétt að stofnunin þurfi að þola nokkuð meiri niðurskurð en aðrar stofnanir sem að jafnaði sæta 7-8% skerðingu fjárveit- inga þegar litið er til heilbrigðisþjón- ustunnar sjálfrar og stjórnsýslunnar innan hennar. Þennan mun segir hún aðallega koma til af því að hjúkr- unarrýmum fækki á Sauðárkróki þar sem þau hafi verið mjög vannýtt. Því sé fjárveitingin í raun leiðrétt með þessum niðurskurði. „Þessi stofnun hefur haft sæmilega rúmar fjárveitingar og reksturinn hefur verið mjög góður þannig að hún er á margan hátt betur í stakk búin til að takast á við niðurskurð en [aðrar stofnanir,]“ segir Álfheiður. Örn lítur þetta öðrum augum. „Það er í raun verið að refsa okkur fyrir að sýna fyr- irhyggju,“ segir hann og kveður stofnunina hafa dregið saman seglin fyrr á árinu þegar ljóst var að sult- arólin yrði hert. Því sé í raun höggvið á ný í sama knérunn. Frumvarp til fjárlaga fyrir kom- andi ár liggur nú fyrir fjárlaganefnd Alþingis sem mun fara yfir það áður en þriðja umræða um það fer fram í þinginu. Gagnrýna aðferðir heilbrigðisráðuneytis Deilt um skert framlög til Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks Skorið niður Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi til fjárlaga stendur til að skera fjárveitingar til HS niður um tæplega hundrað milljónir króna. Í HNOTSKURN » Til stendur að skera niðurfjárveitingar til Heilbrigð- isstofnunarinnar á Sauðár- króki um sem nemur 10%. » Upphaflega stóð til aðskera niður um 11,3%, 100,8 milljónir, en fallist var á breytingar við 2. umræðu Al- þingis um fjárlagafrumvarpið. » Álfheiður, Hafsteinn ogÖrn hafa öll ritað greinar eða setið fyrir svörum um mál- ið í vikublaðinu Feyki. Örn Ragnarsson Álfheiður Ingadóttir Óánægja er á Heilbrigðistofn- uninni á Sauðárkróki með niður- skurð skv. fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir fjárlaganefnd. Eru reikniaðferðir heilbrigðis- ráðuneytisins sagðar ótækar. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.