Morgunblaðið - 21.12.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 21.12.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 www.noatun.is ELDAÐUR LAMBABÓGUR KR./STK. 1498 MEÐ HEIM! HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott! Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SÍÐUSTU daga í jólaversluninni hefur nokkuð borið á tilkynningum um þjófnaði úr verslunum eða til- raunum til þess. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu er fjöldi tilkynninga um búðarhnupl þó svipaður það sem af er ári, miðað við sama tíma í fyrra. Þá hafi hins vegar orðið gríðarleg aukning frá árinu 2007. Á síðasta ári var fjöldi slíkra tilkynninga 1.150 en árið 2007 voru slík mál ríflega 800. Fram til 16. desember sl. höfðu frá ára- mótum 1.133 mál af þessum toga. Sé litið á fjölda tilkynninga eftir lögreglustöðvum á höfuðborg- arsvæðinu hefur orðið lítils háttar fækkun á þeim flestum. Und- antekningin er Kópavogur og Breiðholt, á lögreglustöð 4, þar sem hefur orðið 13% aukning á milli ára. Þá hefur tilkynntum þjófnuðum fjölgað á miðborgarstöðinni, sem einnig er með vesturbæ Reykjavík- ur og Seltjarnarnes. Fiktað við merkingar Henning Freyr Henningsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, segir talsvert hafa borið á búð- arhnupli eftir að kreppan skall á í fyrra. Síðan þá hafi verslunareig- endur verið betur meðvitaðir um þetta vandamál og gert auknar ráð- stafanir í forvarnarskyni, sem og að fræða starfsfólkið betur. „Tilraunir til þjófnaðar verða eðlilega fleiri eftir því sem versl- unin eykst síðustu vikurnar fyrir jól. Verslanir eru með meiri við- búnað og ráða fleiri öryggisverði, bæði einkennis- og óeinkenn- isklædda, og upplýsa starfsfólkið einnig betur,“ segir Henning. Lögreglan er kölluð til í alvar- legri tilvikum en yfirleitt eru málin kláruð á staðnum, eins og hann orðar það, þar sem í flestum til- vikum sé þjófnaðurinn ekki mikill. Hins vegar hefur borið á því í aukn- um mæli að óprúttnir aðilar hafa fiktað í þjófavarnarmerkingum verslana með þar til gerðum bún- aði. Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segist hins vegar ekki hafa orðið var við sérstaka aukningu á þjófnaði úr verslunum, eða tilraunum til hnupls. Þannig hafi minna borið á hópum sem skipulagt hafa þjófnaði. „Hjá okkur í Kringlunni er alltaf veruleg aukning í öryggisgæslu á þessum annatíma auk þess sem verslanir eru margar hverjar farnar að ráða sérstaka gæslumenn í versl- anir sínar um jólin,“ segir Sigurjón en Kringlan stóð fyrir sérstöku námskeiði í nóvember fyrir starfs- fólk verslana. Gekk það út á að draga úr hættu á þjófnaði og hvern- ig bregðast ætti við þegar upp kæmist um þjófnað. Námskeið var liður í að bæta forvarnir verslana Kringlunnar og var mjög vel sótt, að sögn Sigurjóns. Meira hnupl eftir kreppu  Stóraukin öryggisgæsla og fræðsla í verslunum vegna búðarhnupls  Fleiri mál tilkynnt til lögreglu í Kópavogi, Breiðholti og miðbænum en annars staðar Tilkynningar til lögreglu um búðarhnupl Lögreglustöð 1 Háaleiti, Hlíðar, Laugardalur 2006 2007 2008 2009 233 295 418 376 Lögreglustöð 2 Álftan., Garðab., Hafnarfj. 2006 2007 2008 2009 51 61 94 67 Lögreglustöð 4 Árb.Grafv.Grafh.Kjaln.Kjós,Mos. 2006 2007 2008 2009 56 68 89 64 Lögreglustöð 5 Miðb., Seltarnarn., Vesturb. 2006 2007 2008 2009 104 145 182 209 11331150 811 684 Alls 2006 Alls 2007 Alls 2008 Alls 2009 Lögreglustöð 3 Breiðholt, Kópavogur 2006 2007 2008 2009 240 242 367 417 Tölur eru á reiki um hve mik- il rýrnun er í verslunum landsins vegna þjófnaða. Tal- ið er að rýrnun sé frá 1-2% af veltu og upphæðir nemi árlega 5-6 milljörðum króna. Á vef Öryggismiðstöðv- arinnar eru nokkrar ráðlegg- ingar til verslunareigenda til að verjast hnupli. Hafa þarf auga með þeim sem eru í áberandi víðum fötum, klæða sig vitlaust eftir veðri, spyrja um hluti án þess að sýna áhuga, virðast ekki vita hvað þeir vilja og ráfa um verslunina eða versla í kringum opnun eða lokun. Einnig að hafa auga með þeim sem eru með barnavagna, kerru, tösku eða poka. Þá eru þeir vara- samir sem horfa mikið í kringum sig eða halda á mörgum hlutum í einu. Milljarða króna tap GESTIR Kópavogssundlaugarinnar vissu varla hvaðan á sig stóð veðrið í gær þegar svanur lenti á einni braut- inni og tók til við að synda eins og ekkert annað væri eðlilegra. Tók hann nokkra spretti með mannfólkinu og lét það ekki trufla sig. Hvarf hann svo á braut áður en starfsfólkið gat rukkað fuglinn um aðgangseyri! Óvæntur sundgestur í Kópavogi Ljósmynd/Bylgja Baldursdóttir Í SAMSTARFI við Reykjavíkur- borg munu sorp- hirðufyrirtæki og íþróttafélög bjóða borgar- búum upp á að hirða jólatré við heimilin eftir jól- in. Íþróttafélögin nota verkefnið til fjáröflunar og munu fara um hverfi borgarinnar með kerrur og bjóða fólki að flytja trén í endurvinnslu gegn gjaldi. Einnig verður hægt að fá þessa þjónustu hjá Íslenska gámafélaginu og Gámaþjónustunni eða að borg- arbúar fari sjálfir með jólatrén í Sorpu. Jólatrén hirt gegn gjaldi í borginni Trén Hirðing ekki lengur ókeypis. 3 dagar til jóla HYMNODIA, kammerkór Akureyr- arkirkju, verður með jólatónleika í kirkjunni í kvöld klukkan 20. Meðal hugljúfra jólalaga sem kórinn flyt- ur eru Kom þú, kom vor Immanúel, Sjá himins opnast hlið, Immanúel oss í nátt, Heims um ból, Jólanótt, Opin standa himins hlið, Jólagjöfin, Hin fegursta rósin er fundin, Það aldin út er sprungið, Ó Jesúbarn blítt, Lúra sér lúra og Jól, jól, skín- andi skær. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Jólatónleikar Hymnodiu í kvöld Barnajólaball SÁÁ verður haldið í Von í Efstaleiti 7 þriðja í jólum, sunnu- daginn 27. des- ember, kl. 15. Dansað verður í kringum jólatréð og miklar líkur á að jólasveinars kíki í heimsókn með glaðning handa börnunum. Hljómsveitin Klassík sér um að leika jólalögin og ýmsar veitingar verða á boðstólum. Barnajólaball SÁÁ þriðja í jólum Morgunblaðið/RAX Búðarhnupl Fyrst eftir kreppuna bar meira á þjófnuðum úr verslunum. Vandamálið er þó enn víða til staðar, ekki síst nú síðustu daga fyrir jól.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.