Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 24
24 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Klappastíg 44 – Sími 562 3614
Enskt Seville marmelaði
Fyrir jólamorgunmatinn
Jarðaberjasulta
Góð í jólabaksturinn
Sítrónu-Lime marmelaði
Gott á ristað brauð og kex
Piparrótarsósa
Góð með Roast Beef og reyktum laxi
Cranberry sósa
góð með Kalkún, Villibráð og Paté
Myntuhlaup
Gott með lambakjöti
Ómissandi með
jólamatnum
ÞESSI orð hafa verið látin falla á
erfiðleikatímum þjóðarinnar og efa-
laust býr einhver von á bak við þau.
En skoðum málið betur, hvaða guð
er átt við, er það Guð gamla testa-
mentisins, eða hins nýja. Ef við er-
um kristin þjóð þá trúum við því að
almáttugur Guð gamla testament-
isins sem í Nóaflóðinu eyddi jörðina
og síðar Sódómu og Gómorru til við-
vörunar þeim sem síðar kynnu að
lifa óguðlega, hafi búið sjálfum sér
líkama og dvalið mitt á meðal okkar
sem Drottinn Jesú Kristur. Hann
hafi opinberað þann vilja sinn að
leggja sjálfan sig í duft dauðans til
að við mættum lifa. Allt þetta
dásamlega frelsunarverk til að eign-
ast vini og bræður meðal manna. En
við verðum að þiggja náðargjöfina
og leggja af öll okkar illskuverk.
Sem þjóð höfum við brotið nánast öll
boðorð Guðs og sem þjóð upp-
skerum við eftir því. Hvað höfum við
gert? Við höfum stolið, myrt ófæddu
börnin okkar, og kynferðisleg spill-
ing er vegsömuð einnig af kristinni
kirkju sem hefur jafnvel breytt
Biblíunni eftir kröfum viðkomandi.
Sem þjóð höfum við yfirgefið Guð og
gleymt þeirri blessun sem hann gaf
okkur með landinu okkar elskaða
sem núverandi ráðamenn ætla að af-
henda enn óguðlegri ráðamönnum
en þeir eru sjálfir. Guð eða Drottinn
Jesú Kristur, sem er nafn hans, hef-
ur tekið vernd sína frá landinu góða
og íbúum þess vegna afbrota þeirra.
Okkar eina leið til bjargar er að snúa
okkur af öllu hjarta til hans, iðrast
afbrotanna og biðja hann að fyr-
irgefa okkur og lækna land okkar.
Ég vil segja frá því sem hann
sýndi mér. Í miðnætursýn var ég við
sjávarströndina og þar var hús fern-
ingslaga með hurð sem sneri að
sjónum. Ég leit til hafs og sá stóra
öldu koma og skella á húsinu án þess
að skaða það þótt svo að hrikti í. Ég
horfði aftur út yfir hafið og sá enn
stærri öldu koma og skall hún á hús-
inu, braut upp hurðina og fyllti húsið
að einum þriðja og einn af fjórum
stólpum sem húsið stóð á brotnaði,
sá var sjávarmegin til hægri. Aftur
leit ég út yfir hafið og sá nú hringiðu
skammt frá landi og var eins og það
kraumaði í sjónum og voru svört kýli
í hringiðunni. Enn einu sinni leit ég
út yfir hafið og sá þá skelfilega háa
öldu sem náði hátt upp í himininn,
hún var vel úti á hafinu á leið til
lands og þar lauk þessari sýn.
Tveim, þremur vikum síðar um
miðja nótt hófst enn á ný miðnæt-
ursýn, enn var ég við sjávarströnd-
ina og upplifði beint framhald af
fyrri sýninni, þessi skelfilega háa
alda var komin alveg að landinu og
var við það að hvolfast yfir og í öldu-
faldinum geisaði kolsvart illsku
óveður.
Þetta hafði mjög mikil áhrif á mig,
en þetta var fyrir hrun bankanna og
ég hef bókstaflega séð sýnina rætast
fyrir augum mínum.
Fyrst með hruni Glitnis, síðan
bankakerfisins, og að lokum með
sýkingu síldarstofnsins sem miklar
vonir voru bundnar við. Mér ber
skylda til að vara ykkur öll við því að
þau áföll sem þegar hafa komið yfir
okkur eru ekkert hjá því sem er að
koma.
Enn ítreka ég að aðeins Drottinn
Jesú getur frelsað þjóð okkar. Ég
veit að margir munu undrast þessi
skrif en svo verður að vera.
SIGÞÓR GUÐMUNDSSON,
Lautasmára 12, Kópavogi.
Guð blessi Ísland
Frá Sigþór Guðmundssyni
EFTIR lok síðari
heimsstyrjaldarinnar
byrjaði barátta og um-
sátur um V-Berlín sem
þá var í miðju Austur-
Þýskalandi, DDR. Þar
áttust við vesturveldin
og Sovétríkin, sem
reyndu hvað þau gátu
að einangra V-Berlín,
þá var komið á loftbrú
frá vestri sem færði
íbúum nauðsynjavörur.
Byggður var steinveggur sem að-
skildi Þýskaland í tvo hluta, til þess
að hefta för úr austurhluta Þýska-
lands til vesturs. Settar voru upp
herstöðvar vítt og breitt um heim-
inn, þar með talið í Keflavík. Kapp-
hlaupið snerist upp í ógnarjafnvægi
þar sem báðir aðilar juku vopna-
magn sitt til ógnunar hinum, kjarna-
vopnaeign var orðin það mikil að
hægt var, og jafnvel er ennþá nóg til
til að tortíma öllu lífi á jörðinni
mörgum sinnum. Þar kom að menn
settust niður og gerðir voru samn-
ingar sem leiddu til hjöðnunar og
fækkunar í vopnabúrum stórveld-
anna, fækkunar herstöðva og minni
umsvifa í Evrópu og Ameríku.
Þessi stutti formáli kemur mér í
hug þegar litið er til ástandsins á Ís-
landi. Hjá stjórnvöldum ríkir ákveð-
ið ógnarjafnvægi, ekki þarf að hafa
um það mörg orð, það þekkja allir
landsmenn, forsætisráðherra leggur
allt kapp á Icesave og ESB/AGS
sem á sér ógnvænlegan feril, með
stuðningi síns flokks, sem er með
hjartað í buxunum vegna mögu-
leikans á að tapa völdum (og hlunn-
indum). Hinn flokkurinn (VG-h og
VG-v?) vill allt til vinna að þóknast
samstarfsflokknum hvað sem það
kostar, allt fyrir völd og ESB, jafn-
vel þótt það setji allt þjóðfélagið í
skuldafen um langa framtíð. Ógn-
arjafnvægið er svo mikið að ef hinir
sitja ekki og standa eins og þeim
þóknast sem stýra þjóðarskútunni
sem ekki veit hvar hún er stödd, þá
eru þeir beittir þvingunum, pöntuð
eru álit sem eru forskrifuð til að
halda ógnarjafnvæginu og svo langt
er gengið að jafnvel systurflokk-
urinn í Noregi er fenginn til að rétta
sína hjálparhönd til að styðja við
foringjann.
Þjóðarhagsmunir
eru settir neðar flokks-
hagsmunum án þess
svo mikið sem að at-
huga hvort ekki sé
möguleiki á lánalínu
(yfirdráttarheimild) frá
svokölluðum vina-
þjóðum okkar sem vert
er að setja stórt spurn-
ingarmerki við, enda
sýna þeir sitt rétta
andlit þegar á þarf að
halda. Blindni okkar
stjórnmálamanna er al-
gjör, þjóðarhagsmunir eru settir
skör neðar en flokkshagsmunir.
Aumingja Ömmi situr í súpunni,
Steingrímur (sem reytir hár sitt,
það sem eftir er) reynir að halda
hjörðinni saman, en eitt eru þeir
sammála um, þar er að almenningur
skal herða sultarólina: Skattar
hækkaðir, fundnir upp nýir, gamlir
skattar endurvaktir og allir skulu
þeir settir í hæstu hæðir, þannig á
að loka gatinu, þannig á að kenna
sauðsvörtum almenningi hvernig á
að haga sér í kreppu, ekkert er heil-
agt lengur, hinn almenni borgari,
sjúkir, öryrkjar og eftirlaunaþegar
hafa hin breiðu bök og þar eiga
byrðarnar að vera.
Tími Jóhönnu er kominn en hann
líður hratt, fylgið hrynur, hennar
tími er brátt á enda. Báðir armar
VG eru á niðurleið, þess vegna
hljóta þessir aðilar að skilja að
þeirra tími er á enda, þeir ráða ekki
við þjóðarskútuna, sem hrekst und-
an veðri og vindum, stjórnlaust, vél-
arvana, með öll segl í henglum,
framundan er skerjagarður ESB/
AGS. Stöðugleikasáttmálinn er að
falla á tíma, Íslendingar að missa þá
litlu von sem bundin var við þessa
stjórn, menn bíða eftir því að sjá
hárin rísa á skalla Steingríms, sem
er miklu líklegra en að eitthvað vit-
rænt gerist.
Nú hlýtur það að vera sterkasta
vopnið okkar að senda kynning-
arfulltrúa til allra Norðurlandanna,
ná eyrum almennings og upplýsa
hann um hvað gerðist raunverulega
á Íslandi og hvað við hyggjumst
gera. Stjórnmálamenn á Norð-
urlöndum eru eins og þeir íslensku,
þeir eru uppteknir af sjálfum sér og
sínum sérhagsmunum og sinna
flokka, almenningur hér veit ekki
hvað er í gangi. Þannig er það einnig
á Norðurlöndum, á meðan stjórn-
málamenn þar eru uppteknir af
ESB og eru á fullu að búa í haginn
fyrir gott sæti í Brussel, það á
reyndar við um íslenska stjórn-
málamenn. Öllu skal fórnað fyrir
gott sæti og væn eftirlaun hjá ESB.
Þjóðarhagur skiptir engu máli. Þess
vegna eru þeir sem ráða með það
ógnarjafnvægi sem hefur svo ber-
lega komið í ljós síðustu dagana. Að
Sigmundur Davíð og Höskuldur
Þórhallsson skyldu leyfa sér að
koma með vitrænar tillögur og yf-
irleitt leggja á sig að vinna þjóðinni
gagn, það var ráðherrum ekki að
skapi. Þá var sérpantað álit Stolten-
bergs til bjargar og þar lá hinn póli-
tíski stuðningur, og ógnarjafnvægið
hélst óbreytt, norræn samvinna er
einskis virði.
Þjóðinni er nauðsyn á að ráða-
menn staðsetji sig svo hægt sé að
taka rétta stefnu, því án staðsetn-
ingar eru allar stefnur vitlausar.
Eftir Guðjón
Jónsson
» Almenningur skal
herða sultarólina …
þannig á að loka gatinu,
þannig á að kenna
sauðsvörtum almenn-
ingi hvernig á að haga
sér í kreppu …
Guðjón Jónsson
Höfundur er fv. skipstjórnarmaður.
Ógnarjafnvægið
= kalda stríðið
við Austurvöll
BRÉF TIL BLAÐSINS
SÆLL Bjarni, ég
ætla að taka það
strax fram að ég hef
verið flokksbundinn í
Sjálfstæðisflokknum
frá því ég fékk kosn-
ingarétt, sem sagt í
27 ár. Ég hef aldrei
svikist undan merkj-
um allan þennan
tíma. Það þýðir ekki
það að ég hafi alltaf
verið sammála öllu sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur haft á stefnu-
skrá sinni en valið hefur hingað til
verið mjög auðvelt. Það hefur eng-
inn flokkur haft hingað til neitt
betra að bjóða.
Ég var að hlusta á ykkur for-
menn flokkana mæla með eða á
móti ICESAVE þarna um daginn
við lok 2. umræðu um málið. Datt
engum ykkar í hug að hringja í
sjúkrabíl þegar sá sköllótti byrjaði
að þvæla þarna, fullkomlega með
óráði maðurinn? Nú hefur mað-
urinn þvargað út í eitt um það að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið
fullt af aðvörunum áður en bank-
arnir hrundu en ekkert gert. Er
ekki verið að vara manninn við
núna því sem hann er að gera, en
hvað? Það voru ekki til neinir
sandkassar í Þistilfirði og núna á
gamals aldri þarf hann að taka út
þetta þroskaskeið í lifi sínu. Núna
verðið þið í stjórnarandstöðunni
(nema Þráinn, hann þarf líka að fá
að moka sandi) að gera allt þver-
öfugt við það sem þið teljið best
fyrir okkur fólkið í landinu því
stjórnin hefur margítrekað sagt
að eini tilgangur hennar sé að
gera allt öfugt við það sem Sjálf-
stæðisflokkurinn leggur til. Þetta
erum við búnir að læra á okkar
fyrstu þroskastigum. Það má
aldrei gera neitt í sandkassanum
nema sá sem ræður finni upp á
því.
Eitt af þeim atriðum sem ég hef
verið ósáttur við hjá Sjálfstæð-
isflokknum undanfarin ár er stefn-
an í þessu margumtal-
aða kvótakerfi. Nú
veit ég ekki hvort þú
ert landeigandi fyrir
utan það sem við eig-
um öll sameiginlega
en mig langar til að
biðja þig að setja þig í
spor jarðareiganda, og
það rennur stórgóð
laxveiðiá um jörðina.
Þú hefur haft af þessu
ágætis tekjur í gegn-
um árin og boðið út
veiðiréttinn á 4 ára
fresti. Nú ber svo við
að hlutirnir eru farnir að snúast
við í höndunum á þér. Leigutaki
árinnar er allt í einu farinn að
leigja einhverjum öðrum og jafn-
vel farinn að selja nokkrar stangir
til annarra fyrir fullt og allt. Þetta
gengur ekki til lengdar, þú vilt
eðlilega fá rentur af jörðinni þinni.
Þess vegna verður þú að snúa
þessu við. Þú vilt eðlilega lofa
þeim sem kunna að veiða halda
áfram að veiða, en vilt fá borgað
fyrir. Því ætla ég að leggja til við
þig að kerfinu verði breytt þannig
að útgerðirnar borgi fyrir veiði-
leyfin visst mikið á kíló (þú getur
örugglega fengið Pétur Blöndal til
að reikna út í byrjun sanngjarnt
verð), svo sér markaðurinn um
það sjálfur þegar fram líða stund-
ir. Þetta breytir engu fyrir út-
gerðirnar ef þær fá að nota þenn-
an kostnað til frádráttar frá
skatti. Þannig fáum við landeig-
endurnir okkar arð strax og út-
gerðirnar geta ekki safnað upp
gróðanum í erlendum dóttur-
félögum eins og þær eru búnar af
gera margar hverjar áratugum
saman. Þetta er ekkert nýfundið
upp núna til að komast framhjá
gjaldeyrishöftunum. Allur kvóti
sem bætist við þann sem nú er
færi á markað. Þannig geta nýir
veiðimenn bæst við en þeir sem
fyrir eru fá að sjálfsögðu að bjóða
í líka.
Ég hef auðvitað fulla samúð
með þeim sem eru nýbúnir að
kaupa kvóta en þeir hljóta að hafa
ætlað að græða á þessu og ætlað
að borga upp fjárfestinguna á ein-
hverjum árum, við getum hugsað
okkur að þeir sem hafa kvóta nú
þegar fái að leigja hann áfram
næstu 10 til 15 árin en eftir það
gæti leigutíminn verið 4 ár, til
dæmis, eins og algengt er með
laxveiðiár. Þetta máttu bara alls
ekki leggja til á Alþingi nema þeg-
ar sandkassaleiknum er lokið.
Evrópusambandið – „eigum við
að ræða það eitthvað“? Eigum við
að hafa Sjálfstæðisflokkinn áfram
Sjálfstæðisflokk eða eitthvað ann-
að? Mín tillaga er – Sjálfstæð-
isflokk. Það hefur enginn af þess-
um samfylkingarsnúðum getað
komið með það almennilega fram í
dagsljósið hvað þeir vilja með að
ganga í þetta samband. Einn mað-
ur, Þorvaldur Gylfason, skrifaði
þó grein í Fréttablaðið í sumar,
nánar tiltekið 27. júlí. Þar telur
hann upp örfá atriði sem við gæt-
um „kannski“ fengið, svo sem
lægri vexti, minni verðbólgu, meiri
samkeppni, meiri valddreifingu og
„örugglega betri mat“. Þessi atriði
flest, ef ekki öll, þurfum við að
uppfylla eins og Pétur Blöndal er
margbúinn að reyna að tyggja of-
an í þetta lið, áður en við göngum
í Evrópusambandið, svo hver er
þá tilgangurinn? Þetta með betri
mat getum við auðveldlega leyst
fyrir Þorvald með því að senda
hann á matreiðslunámskeið. Svo
kórónar hann allt með því að segja
að þótt við fengjum þetta ekki
ættum við samt að ganga í ESB.
Hringjum aftur á sjúkrabíl. Ergo.
Jóhanna og Steingrímur eru að
reyna að skapa ný störf með
þessu. Fyrir hvern? Og hvað
marga? Svar: Það er leyndarmál
fyrir hvern og þetta eru 3 störf.
Hvað skyldu nú þessi störf kosta
ríkissjóð í samanburði við þessi
rándýru störf í álverunum sem
Steingrímur er sífellt tuðandi um.
Eitt að lokum: getur þú spurt
Steingrím að því fyrir mig, ef svo
ólíklega vildi nú til að hann þrosk-
ist upp úr sandkassanum, hvað
eru margir búnir að fá vinnu á
þessu ári hjá vinstri grænu félög-
unum „Eitthvað annað“ og „Fjöl-
breytt og blómlegt vgf“?
Opið bréf til
Bjarna Benediktssonar
Eftir Guðmund
Karl Bergmann
Guðmundur Karl
Bergmann
» Það þýðir ekki
það að ég hafi
alltaf verið sammála
öllu sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft
á stefnuskrá sinni en
valið hefur hingað til
verið mjög auðvelt.
Höfundur er húsasmíðameistari.