Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 25
Stór- fréttir í tölvu- pósti Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 – meira fyrir áskrifendur ÍS L E N S K A /S IA .I S /S A L 48 08 9 11 .0 9 er borinn út með Morgunblaðinu á laugardögum og kemur þér strax í sunnudagsskap. er fullur af nýju efni, fréttskýringum, viðtölum og pistlum og með honum færðu hina sívinsælu Lesbók og spennandi barnablað. Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Sunnudagur tvo daga í röð ÉG VAR alinn upp í viðskiptaumhverfi. Faðir minn heitinn, Guðlaugur Bergmann, átti Karnabæ, starf- rækti bókaútgáfu, tók þátt í skipa- og flug- rekstri, starfrækti hótel og kom víða við í við- skiptalífinu. Ég hef á síðustu tíu árum fetað í fótspor hans að mörgu leyti og staðið í sjálfstæðum rekstri, þ.á m. við fyrirlestrahald, jóga- kennslu, útgáfu, ráðgjöf og fleira. Forsendur viðskipta virðast vera mjög svipaðar hvort sem maður er að reka jógastöð, tölvuskóla, alþjóðlegt vörumerki eða matvöruverslun. For- sendurnar snúast alltaf um að fram- leiða eða bjóða upp á vandaða vöru eða þjónustu á samkeppnihæfu verði um leið og kostnaði er haldið í lág- marki. Neikvætt viðhorf við viðskipta Ástæða þess að ég skrifa þess grein núna er almennt neikvætt viðhorf til viðskipta á Íslandi og víðar. Vissulega hafa fyrirtæki á alþjóðavísu brotið forsendurnar sem ég nefni hér að of- an og það þarf að gera róttækar breytingar í regluverki og umgjörð viðskipta, sérstaklega á sviði fjár- málastarfsemi, en að megninu til eru þeir sem stunda viðskipti, sérstaklega þeir sem eru með smáan eða millistór- an rekstur, mikilvægir stólpar í grunnstoðum samfélagsins. Það nei- kvæða viðhorf til viðskipta og verð- mætasköpunar sem nú ríkir hjá stórum hluta íslenska samfélagsins getur stefnt framtíðarmöguleikum okkar á alþjóðasviðinu í voða. Viðskipti almennt góð Viðskipti hafa í ald- anna rás komið á friði milli landa, sameinað heimsálfur, komið á menningarlegum sam- skiptum og sýnt mönn- um fram á að heild- arávinningur af friðsamlegri og ábata- samri umgengni tekur alltaf stríðsátökum fram. Í nýrri bók „Forces of Fortune“ segir höfund- urinn Vali Nasr að friðsamleg við- skipti milli Vesturlanda og íslamskra ríkja séu stór hluti af lausn deilunnar á því svæði. Hann tekur dæmi um tyrkneska leðursala sem skipta við saumastofur og hönnuði í Evrópu. Þeir velja síður öfgakennda jíhad hugmyndafræði vegna þess að það skaðar viðskiptahagsmuni þeirra. Viðskipti hafa hins vegar fengið á sig það orð að snúast um einstaklings- hyggju og að þau séu í eðli sínu sjálf- hverf. Við faðir minn ræddum mikið um ábyrgð fyrirtækja áður en hann féll frá. Fyrir tíu árum síðan vorum við farnir að ræða um efnahagslegt, samfélagslegt og umhverfisuppgjör fyrirtækja, uppgjör sem eru þegar farin að eiga sér stað á breskum og bandarískum mörkuðum. Fyrirtæki þurfa að sýna hagnað á fjárhagssvið- inu, sýna fram á hvernig þau skila aft- ur til samfélagsins sem þau starfa innan og gæta þess að þau gangi ekki á takmarkaðar auðlindir án þess að gera ráðstafanir til að bæta fyrir ágang sinn. Margt má bæta til að við- skipti verði „algóð“ fyrir mannkynið en hingað til hefur jákvæður ávinn- Eftir Guðjón Bergmann » Forsendurnar snúast alltaf um að framleiða eða bjóða upp á vandaða vöru eða þjónustu á samkeppni- hæfu verði um leið og kostnaði er haldið í lágmarki. Guðjón Bergmann Höfundur er rithöfundur, fyrirlesari, jógakennari og áhuga- maður um sanngjarnt, skapandi og ábatasamt viðskiptalíf. ingur þeirra reynst meiri en neikvæð- ar afleiðingar að mínu mati. Gallinn við ríkisrekstur Til samanburðar hefur rík- isrekstur aðrar forsendur sem leiða í flestum tilfellum til of mikils fjáraust- urs og þangað til að þeim forsendum verður breytt mun ríkið halda áfram að stækka og auka fjárþörf sína á kostnað borgaranna. Áður en ég bendi á megingallann í forsendum ríkisreksturs vil ég segja að mjög mikið af mikilvægri samfélagsþjón- ustu er í höndum ríkis og sveitarfé- laga, þjónustu sem ég myndi helst ekki vilja afhenda óheftum markaðs- öflum, þótt að framkvæmdarhliðin mætti vissulega læra sitthvað af einkarekstri. Hér er gallinn. Rík- isrekstur gengur fyrir fjárlögum. Ríkisreknar deildir, stofnanir, stofur og hvað annað sem ríkið rekur eiga að starfa innan þeirra laga. Ef að rekstr- areiningarnar sýna frumkvæði, nýta fjármuni viturlega og eiga afgang að rekstrarári loknu fá þær minna fjár- magn á næsta ári. Þeim er refsað fyr- ir viturlegan rekstur. Þeir sem hins vegar fara alltaf fram úr fjárlögum (og brjóta þannig lög sem þeim er aldrei refsað fyrir að brjóta) fá iðu- lega meira fjármagn að ári. Þeim er verðlaunað fyrir vitleysuna og það lendir á skattborgurum. Íslendingar þurfa viðskipti Íslendingar munu ekki komast út úr kreppunni án framkvæmdarafls, sköpunargleði og einkaframtaks við- skiptageirans. Ef einhvern tímann hefur verið mikilvægt að stækka kök- una er það núna. Minni sneiðar af stærri köku munu færa íslenska rík- inu mun meiri hagnað en stórar sneiðar af minnkandi köku. Nú þegar hafa fjölmargir íslenskir við- skiptamenn og ráðgjafar þeirra sýnt fram á leiðir til að koma aftur á hag- vexti í íslensku hagkerfi. Ég vona að einhver sé að hlusta! Forsendur viðskipta – forsendur ríkisreksturs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.