Morgunblaðið - 21.12.2009, Page 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Auður Tryggvadóttir
✝ AuðurTryggvadóttir
fæddist í Fell-
strandarhreppi,
Dalasýslu, 31. júlí
1943. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 9.
desember sl. For-
eldar hennar eru
Tryggvi Gunn-
arsson frá Skorravík í Fellstrand-
arhreppi, Dalasýslu, f. 12. desember
1884, d. 16. ágúst 1954, og Kristín Guð-
munda Elísabet Þórólfsdóttir frá Von-
arholti í Kirkjubólshreppi, Strandasýslu,
f. 20. nóvember 1917. Alsystkini Auðar
eru Svanur Breiðfjörð, f. 1940, látinn,
Gunnar, f. 1941, Ásdís, f. 1942, Gissur, f.
1944, Edda, f. 1946, Þorgeir, f. 1947,
Guðborg, f. 1948, Tryggvi, f. 1949 og
Sigríður, f. 1951. Systkini samfeðra eru,
Ólafur, f. 1911, Einar Breiðfjörð, f. 1913,
Svava, f. 1915, Soffía, f. 1916, Ebba, f.
1919, Hildiþór, f. 1920, Ása, f. 1922, Jó-
hanna, f. 1923, Lilja, f. 1924 og Jóna, f.
1927. Á lífi eru Jóna og Jóhanna.
Auður giftist Birni Stefáni Guð-
mundssyni frá Reynikeldu í Dalasýslu
árið 1962, þau skildu. Börn þeirra eru 1)
Helgi G. Björnsson bankaútibússtjóri, f.
1961, maki Kristín Emilsdóttir. Börn,
Hlynur, f. 1991, Heiðrún Björk, f. 1992,
og Álfrún Lind, f. 2005. 2) Guðbjörg
kennari, f. 1962, maki Haraldur Braga-
son, látinn. Börn, Auðunn, f. 1990,
Helga, f. 1992, og Margrét, f. 2000. 3)
Elísabet Björg snyrtifræðingur, f. 1963,
maki Jón Engilbert Sigurðsson. Synir,
Pálmi, f. 1980, faðir Rögnvaldur Pálma-
son, og Stefán Geir, f. 1990, faðir Jón
Skúli Sigurgeirsson. Börn Jóns Eng-
ilberts eru Sigurður Einar, f. 1996,
Marta María og Súsanna Erna, f. 1998.
Auður starfaði lengst af í Sundhöll-
inni í Reykjavík eða í um 20 ára skeið og
áður vann hún hjá Mjólkusamsölunni í
Reykjavík um nokkurra ára skeið.
Útför Auðar fór fram í kyrrþey frá
Digraneskirkju fimmtudaginn 17. des-
ember 2009.
Meira: mbl.is/minningar
Jóhanna Jónsdóttir
✝ JóhannaJónsdóttir
var fædd í Hafn-
arfirði 14. sept-
ember 1963.
Hún lést sunnu-
daginn 6. des-
ember 2009.
Foreldrar hennar
voru Jón Helgi
Jóhannesson, f. 20.9. 1913, d. 6.6.
1982 og Jóna Kristín Hallgríms-
dóttir, f. 22.6. 1919. Systkini Jó-
hönnu eru Hafsteina Helga Magliolo,
f. 1940, búsett í Bandaríkjunum, Jó-
hannes Hafberg, f. 1943, d. 1963,
Ingibjörg Sigríður, f. 1945, búsett á
Selfossi, Stefán Sigurjón, f. 1946, d.
1993, Jón Helgi, f. 1950, búsettur í
Hafnarfirði, Helgi E., f. 1958, bú-
settur í Hafnarfirði.
Jóhanna eignaðist þrjú börn,
Stefán Hafberg Sigurðsson, búsett-
ur í Hafnarfirði, f. 1983, dóttir hans
er Alma Rán, f. 2004, Heiða Arn-
ardóttir, búsett í Danmörku, f. 1987,
Lísa Arnardóttir, f. 1988, d. 2009.
Útför Jóhönnu fór fram í kyrrþey
þriðjudaginn 15. desember 2009.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Auður
Tryggvadóttir
Höfundur: Þórdís Una Gunn-
arsdóttir
Birgir Björnsson
Höfundur: Ingimundur Einar
Grétarsson
Meira: mbl.is/minningar
✝ Hermann Helga-son fæddist á
Grímslæk í Ölfusi
31. janúar 1929.
Hann lést á Land-
spítala Fossvogi, 13.
desember 2009. For-
eldrar hans voru
Helgi Eyjólfsson
húsasmíðameistari,
f. 29. september
1906, d. 17. sept-
ember 1995 og Guð-
björg Sigurð-
ardóttir, f. 19.
desember 1908, d.
10 febrúar 1994. Systkini Her-
manns eru Sigurður Ragnar
Helgason, f. 17. janúar 1943 og
Helga Helgadóttir, f. 3. mars
1947.
Eiginkona Hermanns er Oddný
Sigríður Jónasdóttir, f. í Reykja-
vík 1. október 1929, þau giftust 8.
október 1966. Foreldrar hennar
voru Jónas Sigurðsson, f. 18. júní
1906, d. 26. maí 1973 og Sigríður
Petrína Sigurðardóttir, f. 25. apr-
íl 1908, d. 24. febrúar 1934. Her-
mann og Oddný eignuðust 2 dæt-
ur: 1) Sigríði Helgu, f. 18.
september 1964, í sambúð með
Ian David McAdam. Börn þeirra
eru Helga Solveig og Davíð Þór.
2) Guðbjörgu Eddu,
f. 12. mars 1967, á
hún eitt barn, Odd-
nýju Sjöfn Ríkarðs-
dóttur.
Hermann ólst upp
í Reykjavík, gekk í
Austurbæjarskóla og
varð stúdent frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1949.
Hann lauk lögfræði-
prófi frá Háskóla Ís-
lands 1955 og rak
lögfræðiskrifstofu
og fasteignasölu í
Reykjavík í félagi við skólabróð-
ur sinn Agnar Biering. Einnig
starfaði Hermann alla tíð við
byggingarframkvæmdir og var
sérfræðingur í flestu sem sneri
að húsbyggingum. Hann stýrði
byggingu margs konar íbúðar- og
verslunarhúsnæðis ásamt því að
annast rekstur og sölu á fast-
eignum. Hermann var auk þess
til langs tíma framkvæmdastjóri
verslunarmiðstöðvarinnar Suð-
urvers.
Hermann verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju í dag, mánu-
daginn 21. desember og hefst at-
höfnin kl. 13.
Meira: mbl.is/minningar
Í dag kveð ég minn elsta og nán-
asta vin, Hermann Helgason.
Um það leyti sem lýðveldið var
stofnað á Íslandi í miðri styrjöld
komu saman nokkur uppburðarlítil
ungmenni til náms í gamla Ágúst-
arskólanum í Iðnaðarmannahúsinu
við Tjörnina. Þetta var sá hópur
sem hafði staðist inntökupróf í
Menntaskólann en verið úthýst
vegna plássleysis. Á ýmsu gekk
næstu árin. Margir sneru sér að
öðru en góður hópur útskrifaðist
úr MR vorið 1949. Þessi hópur hef-
ur haldið vinskap alla tíð, þó nokk-
uð sé tekið að fækka.
Við Hermann urðum snemma
góðir kunningjar og vinir, bröll-
uðum margt, ferðuðumst og flækt-
umst saman og hefur það haldist
óslitið um það bil 65 ár, sem er
drjúgur hluti af mannsævinni.
Við vorum svo lánsamir að
kvænast góðum konum sem urðu
einnig nánir vinir og sama má
segja um börnin okkar. Við höfum
umgengist hvert annað eins og fjöl-
skylda og betur verður ekki lýst
vináttu okkar og trausti hvers til
annars.
Hermann var sá maður úr mín-
um samstarfs- og kunningjahópi
sem ég treysti best. Skarpskyggni
hans var óbrigðul, hann sá í gegn-
um allt blaður og feluleik, ýtti
hisminu til hliðar og komst að
raunverulegri niðurstöðu sem æv-
inlega var rétt, en því fylgdi líka
óbilandi skopskyn svo ánægjulegt
var að leggja í slíkar könnunar-
ferðir með honum. Við ferðuðumst
mikið saman um heiminn og frá
þeim ferðum eru margar skemmti-
legustu minningarnar mínar. Nú er
sem ég finni hvasst olnbogaskot og
rödd hvíslar að mér að nú sé komið
nóg.
Kæra Ossý og fjölskylda, við Gi-
sela og fjölskylda sendum ykkur
kærar samúðarkveðjur.
Árni Jónsson.
Í mínum huga hafa Hermann og
pabbi þekkst frá því í fornöld.
Mamma kallaði þá gjarnan síams-
tvíbura, því þeir voru alltaf sam-
stiga. Ef annar keypti skópar á
góðu verði linnti hinn ekki látunum
fyrr en hann fann enn ódýrari skó.
Hér um árið var gleði þeirra mikil í
Þýskalandi þegar þeir fundu út að
bjórinn með silfurtappanum var
ódýrari en sá með gulltappanum …
þar til þeir uppgötvuðu að sá silf-
urslegni var léttbjór.
Þegar ég var lítil hélt ég að Her-
mann væri risinn í skjaldarmerk-
inu, hann munaði ekki um að ferja
konur og börn fram og til baka yfir
Botnsána ef svo bar undir. Þannig
mun ég alltaf minnast hans, svo
sterkur og stór, nánast eins og
annar faðir fyrir mér.
Elsku Ossý, Sigga og Guðbjörg:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Ingunn.
Mig langar fyrir hönd okkar fé-
laganna í K-21 að minnast trausts
og góðs félaga í fáeinum orðum.
Hermann Helgason var einn
stofnenda klúbbsins fyrir ríflega
fjörtíu árum síðan og var hann
virkur og góður meðlimur á meðan
heilsa hans hans leyfði auk þess að
sitja í stjórn klúbbsins stærstan
hluta þess tíma. Hermann var hóg-
vær maður og afburðakurteis en
ekki mikið fyrir að láta á sér bera,
en þegar hann lét sitt álit í ljós var
hlustað á hann. Hermann var lög-
fræðingur að mennt og í okkar fé-
lagsskap var óskrifuð regla að eng-
inn samningur var undirritaður án
þess að Hermann færi gaumgæfi-
lega yfir hann, enda bárum við fé-
lagarnir mikla virðingu fyrir hon-
um og þekkingu hans á
lögfræðilegum álitaefnum.
Hermann var fyrir utan að vera
góður lögfræðingur afar laghentur
við smíðar og fékk félagsskapurinn
að njóta þess þegar sumarhús
klúbbsins voru byggð, bæði á
Laugarvatni og eins í Skálmafirð-
inum. Oddnýju eiginkonu Her-
manns kynntumst við félagarnir og
eiginkonur okkar einnig ágætlega
og sendum við henni og fjölskyldu
þeirra hjóna hugheilar samúðar-
kveðjur um leið og við kveðjum
góðan og virtan félaga.
F.h. K-21,
Eiður H Haraldsson, formaður.
Hermann Helgason
✝
PÁLL DANÍELSSON,
Miðbraut 23,
Seltjarnarnesi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 14. desember.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 22. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gustav Einarsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Kambi,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 17. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. desember kl. 15.00.
Sveinn E. Magnússon, Guðrún Guðmundsdóttir,
Sigurbjörg I. Magnúsdóttir, Viðar Jónsson,
Oddný S. Magnúsdóttir, Ingimundur Guðmundsson,
Einar Magnússon, Margrét Steingrímsdóttir,
Helga Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HALLDÓR FRIÐRIKSSON,
Smáratúni 7,
Keflavík,
lést miðvikudaginn 16. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 22. desember kl. 13.00.
Sigríður Vilhelmsdóttir,
Óla Björk Halldórsdóttir,
Sigríður Björg Halldórsdóttir, Kristján Sigurpálsson,
Sævar Halldórsson, Susie Ström,
Þórunn María Halldórsdóttir, Axel Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
GUÐLAUGUR EYJÓLFSSON,
Árskógum 8, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 19. desember.
Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 30. desember klukkan 13.00
Margrét S Jónsdóttir,
Helga Eygló Guðlaugsdóttir, Reynir Garðarsson,
Jón S. Guðlaugsson, Þórkatla Þórisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku hjartans sonur okkar
ÓLAFUR JAKOBSSON
Vogalandi 8
Reykjavík
er látinn.
Guð veri með ykkur öllum.
Guðrún Gerður Guðrúnardóttir,
Jakob Kristinn Jónasson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, fósturföður okkar, tengdaföður og
afa,
ÁSTVALDAR HÓLM ARASONAR
frá Borg á Mýrum,
A-Skaftafellssýslu,
til heimilis Brekkubyggð 18,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Karítasar, deildar 11-E á Landspítalanum
og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir kærleiksríka umönnun.
Sigríður Hera Ottósdóttir,
Bergdís Lilja Kristinsdóttir Paul, Graham John Paul,
Halla Kristín Guðlaugsdóttir, Gísli Örn Arnarson
og barnabörn.