Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð kr
10.900. pakkinn með poka,
strengjasett og stilliflautu. 4/4
stærð 15.900.- Rafmagnsgítar-
pakkar frá kr. 39.900. Þjóðlaga-
gítarpakkar frá 19.900.-
Hljómborð frá kr. 8.900.-
Trommusett kr. 79.900.- með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is0
Hljómtæki
Heyrnartól mikið úrval!!!
Rafgrein.is - Eigum til allar gerðir af
heyrnartólum, verð frá 1.999 krónum.
Mikið úrval af hljómtækjum, DVD og
CD. Bollum með Bítlum og fl.
www.rafgrein.is - Skipholti 9.
Atvinnuhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði - Leiga
Til leigu er nýstandsett og endurnýjað
340 fm iðnaðarhúsnæði við
Hyrjarhöfða 110 Rvk. Mikil lofthæð,
rúmgott malbikað útisvæði.
Upplýsingar í síma: 896-9629.
Til sölu
Háaleitisbraut 68
Sími 568 4240
Jólagjöf
hestamannsins
fæst í Ástund
Postulín og kristall
gjafavörur í úrvali.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Poolkjuðar
Mikið úrval. Verð frá 7,300
www.www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
S. 568-3920.
Pool er kúl
Poolborð 5 -6 – 7 feta borð. Verð frá
43 .000 frábær borð, kjuðar og kúlur
fylgja með.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
S. 568 3920.
LauraStar
gufustraujárn með gufuþrýstingi.
Tækni atvinnumannsins fyrir heimili.
Upplýsingar í síma 896 4040.
www.laurastar.com
Kristalsljósakrónur, postulín,
kristalsglös, handskornar trévörur frá
Tékklandi og Slóvakíu.
Uppl. í s. 544 4331,
opið laugardag og sunnudag.
Kristals-ljósakrónur. Ný sending.
Handslípaðar, vandaðar kristals-
ljósakrónur á góðu verði.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
Sími 544 4331.
Kristals-hreinsisprey
Ný sending. Hreinsisprey fyrir kristal-
ljósakrónur og kristal.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Borðtennisborð
Riley - STIGA. Verð frá 39.900.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
S. 568 3920.
50% afsláttur. Myndlist, glerlist,
nytjalist. Mikið úrval af fallegum
íslenskum jólagjöfum. Gallerí, Aust-
urstræti 6,101 Reykjavík. Nóg af
bílastæðum í Ráðhúsi Rvíkur, sími
695-0495.
Verslun
Vasaúr, quarz, mekkanísk, gyllt,
silfruð - Erlend úr og nýtt íslensk
merki: YRSA. Verðbil 15.500,- til
29.500,- Frí áletrun til jóla. Einnig
úrval armbandsúra. ERNA, Skipholti
3, s. 552 0775, www.erna.is
BASARINN
Full búð af fjölbreyttum vörum á góðu
verði. Bækur, föt, skrautmunir og
leikföng. Vörur frá Afríku, jólavörur
o.fl. Látið skynsemina ráða og verslið
ódýrt.
Nytjamarkaður Kristniboðs-
sambandsins Grensásvegi 7, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 12-17.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Óska eftir
Kaupi frímerki, umslög, kort og
seðla Kaupi frímerki, umslög,
póstkort med frímerkjum á og seðla,
síðan fyrir 1960. Upplýsingar í
síma: 691 7794, Sverrir.
kvæða og skemmtilega í umhverfinu
var hans aðalsmerki í lífinu.
Að leiðarlokum erum við ákaflega
þakklát fyrir að hafa fengið að kynn-
ast og eiga samleið með þessum ein-
staka vini okkar, hann var svo mann-
bætandi og gerði lífið eitthvað svo
jákvætt og skemmtilegt. Við geym-
um í huga okkar yndislega kvöld-
stund með þeim Laufeyju og Hans
hjá vinum okkar nú í nóvember, mjög
var af vini okkar dregið, andinn þó
óskertur og húmorinn á sínum stað.
Þessu kvöldi gleymum við seint.
Elsku Laufey, Henrik og Helen
Sif, megi minningin um góðan eig-
inmann og föður vera ykkur huggun í
sorg ykkar.
Helga og Björn.
Það var árið 1977 sem ég hitti
Hans í fyrsta sinn. Við vorum báðir
nýráðnir sem flugumsjónarmenn hjá
Cargolux-flugfélaginu í Lúxemborg
– hann frá Íslandi, ég frá Ástralíu
með millilendingu í Aberdeen.
Við urðum þegar í stað góðir
vinnufélagar og vinir enda var margt
líkt með okkur. Báðir höfðum við
brennandi áhuga á flugi og flug-
rekstri og á skipum og bátum. Hans
hafði reynslu af hvoru tveggja og
sagði mér marga söguna af sjó-
mennsku sinni á íslenskum fiskiskip-
um og íslensku kaupskipi sem sigldi
frá Southend í Englandi og endaði að
lokum í Líbýu.
En Hans var líka menntaður flug-
maður og hafði starfað sem atvinnu-
flugmaður á Íslandi. En til allrar
óhamingju missti hann flugskírteini
sitt af völdum sjúkdóms og neyddist
til að hverfa af þeirri starfsbraut sem
hann hafði markað sér. Hinn endan-
legi úrskurður varð honum áfall sem
hann var lengi að jafna sig á – sem
var að hann gæti ekki starfað meira
sem atvinnuflugmaður.
Hans sagði mér líka frá tengslum
sínum við Danmörku og Ísland.
Hann var upphaflega danskur ríkis-
borgari en í raun heimsborgari sem
hafði alist upp og mótast í New York,
Kaupmannahöfn og á Íslandi. Hann
fluttist kornungur maður til Íslands
og þekkti því vel til lands og þjóðar,
daglegs lífs og menningar þar. Hann
kenndi mér svo fjölmörg íslensk orð
og setningar sem sum hver eru alls
ekki hafandi eftir.
Hans var mjög fjölskyldurækinn
maður og stoltur af fjölskyldu sinni,
hinni yndislegu eiginkonu Laufeyju
og litlu dásamlegu börnunum sínum,
þeim Helen Sif og Henrik. Þá minnt-
ist hann oft á nánustu ættingja sína –
móður sína, föður og Sif systur, vini
sína og kunningja.
Hans var jákvæður maður og já-
kvæð viðhorf voru ríkjandi í huga
hans. Hann kvartaði sjaldan og hafði
heldur ekki alltof miklar áhyggjur af
hlutunum. Við höfðum svipaðan
húmor og höfðum gaman af svipuð-
um hlutum. Við höfðum t.d. báðir un-
un af kvikmyndunum um Bleika
pardusinn og Blazing Saddles og
höfðum oft á takteinum tilvitnanir úr
þeim þegar við átti.
Gagnkvæm og sterk vinátta okkar
varaði í yfir 32 ár. Hans var góður
vinur og félagi og hans verður mjög
og sárlega saknað. Nokkrir vina og
ættingja minna sem kynntust Hans
hafa óskað eftir því við mig að ég skili
sérstökum samúðarkveðjum til fjöl-
skyldu og ástvina Hans. Þessir vinir
og ættingjar mínir eru Virginia í
Melbourne í Ástralíu, Rome í Dallas í
Texas, Roger í Singapúr og bróðir
minn, Michael, og fjölskylda hans í
Englandi.
Graham Hurst, Lúxemborg.
Í dag kveðjum við með söknuði
góðan vin, Hans Albert Knudsen, en
gleðjumst jafnframt yfir góðum
minningum. Hans kynntumst við
þegar hann kom inn í líf Laufeyjar
vinkonu okkar fyrir rúmum aldar-
fjórðungi og myndaðist fljótt góður
vinskapur, sem hefur dafnað og
þróast með árunum.
Hans var mikill fjölskyldumaður
og var lánsamur í einkalífi sínu. Hann
var umhyggjusamur og stoltur faðir
barnanna tveggja, Henriks og Hel-
enar Sifjar. Hann var tryggur vinur
vina sinna og nutum við gestrisni og
greiðasemi þeirra hjóna ótal sinnum í
gegnum árin á yndislegu heimili
þeirra í Luxemborg.
Það var alltaf jafn skemmtilegt og
upplífgandi að vera í þeirra fé-
lagsskap og höfum við átt margar
ógleymanlegar stundir saman. Það
þurfti oft ekki nema eina hnyttna
setningu með tilheyrandi látbragði
frá Hans til að koma öllum í gott
skap. Leiftrandi húmor og skemmti-
legur hlátur voru einmitt mjög ein-
kennandi fyrir hann og við getum
ekki annað en brosað, þegar við rifj-
um upp hlátursrokur hans, sérstak-
lega er gaman að minnast þess, þeg-
ar hann og Sif systir hans voru
saman í essinu sínu.
Flugið átti hug Hans allan og var
hann lánsamur að geta starfað við
flug á einn eða annan máta mest all-
an sinn starfsaldur. Hann fékk ungur
réttindi sem flugmaður og vann með-
al annars við flugkennslu um tíma, en
missti flugréttindin 26 ára gamall
vegna veikinda. Þessi flugmannsár
voru honum mjög eftirminnileg og
kær og þær eru ófáar sögurnar, sem
við fengum að heyra og það kom allt-
af sérstakur glampi í augu hans, þeg-
ar hann rifjaði upp atvik frá þessum
árum.
Síðustu 25 árin starfaði hann við
flugumsjón hjá Cargolux í Luxem-
borg en fór á eftirlaun fyrir rétt
rúmu ári. Þá átti að láta ýmsa
drauma um ferðalög rætast, en því
miður var honum ætlað annað hlut-
skipti og annars konar ferðalag. Það
hefur verið erfitt að fylgjast með
veikindum vinar okkar allt síðastliðið
ár.
Við heimsóttum Hans og Laufeyju
núna í september og síðan komu þau
til landsins í byrjun vetrar og dvöldu
hjá okkur í tvær vikur. Þrátt fyrir að
Hans væri mikið veikur var hann
sjálfum sér líkur og minningar um
þessar síðustu stundir okkar saman
eru okkur ómetanlegar.
Aðstandendum Hans Alberts vott-
um við okkar innilegustu samúð.
Minning um góðan dreng mun lifa.
Kristín og Valur.
Hans Albert Knudsen
Fleiri minningargreinar um Hans
Albert Knudsen bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.