Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 27/12 kl. 14:00 Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00
Sun 27/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - tryggðu þér miða strax
Jesús litli (Litla svið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00
Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Sun 27/12 kl. 22:00 Lau 16/1 kl. 22:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn
Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta
sýn
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Skoppa og Skrítla í jólapakkann
Gjafakort Borgarleikhússins
– gjöf sem lifnar við
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 23/1 kl. 15:00
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Fös 29/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 30/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 6/2 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Lau 16/1 kl. 15:00
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 19:00
Gjafakort á tilboðsverði til jóla!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Sun 27/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Ókyrrð (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00
Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
Ela é carioca er fyrstabreiðskífa brasilískusöng-og leikkonunnarJussanam sem gefin er
út á Íslandi. Hún hefur verið bú-
sett og starfandi í Reykjavík frá
árinu 2008 og
hefur þegar
auðgað íslenska
tónlistarflóru,
m.a. með tón-
leikum á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur
sl. haust. Platan
hefur að geyma úrval frægra
brasilískra bossa-nova standarda,
flestar úr smiðju Antônio Carlos
Jobin og textahöfundarins Vinicius
de Moraes. Lögin hlutu mörg hver
heimsfrægð á sjötta og sjöunda
áratug 20. aldar þegar bossa nova
bylgjan gekk yfir, m.a. í flutningi
João Gilberto og hans kollega, og
hljóma því kunnuglega og ljúflega
í eyrum.
Rödd Jussanam er björt og
áferðarfögur og hentar þessari
tónlistarstefnu fullkomlega. Hún
gefur öðrum vinsælum bossa-
söngkonum á borð við Invete San-
galo og Rosa Passos eiginlega
ekkert eftir í þokkafullri og hisp-
urslausri túlkun, þótt það við-
urkennist að portúgalskan vefjist
nokkuð fyrir undirritaðri. Undir-
leikshljómsveitin hennar saman-
stendur af Hauki Gröndal á saxó-
fón, Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar,
Þórði Högnasyni á kontrabassa og
Erick Qvick á trommur, þótt að
láðst hafi að geta þess síðast-
nefnda í bæklingi, útgáfunni til
nokkurs lasts. Meðleikurinn er í
heildina góður þó hann eigi það
stundum til að vera nokkuð þung-
ur í vöfum hjá strengjaleikurum.
Erick Qvick trommar þó í góðri
sátt við léttan tónlistarstílinn og
Haukur Gröndal blæs léttar og
viðeigandi línur yfir tregabundinn
hljómaganginn.
Því er fagnað að örlagavindar
hafa blásið ferska bossa nova
strauma hingað til lands og verður
áhugavert að fylgjast með Juss-
anam í nánustu framtíð.
Geisladiskur
Jussanam – Ela é carioca bbbnn
ALEXANDRA KJELD
TÓNLIST
Kærkomið
í kuldanum
Lífsreynslan er til þess fallinað þroska einstaklinginn,“skrifar Hallgrímur Jóns-son frá Laxamýri í niður-
lagi minngabókarinnar Reynslu-
slóðir lögreglumanns og
íþróttakappa. Víst er að margir muni
hafa ánægju af að lesa minningar
Hallgríms, enda hefur hann komið
víða við á rúmum 80 árum.
Bakgrunnur Hallgríms er um
margt óvenjulegur. Faðir hans, Jón
H. Þorbergsson, braust ungur til
mennta í landbúnaðarfræðum og
keypti Bessastaði á Álftanesi 34 ára
að aldri og hóf þar búskap. Elstu
börn þeirra Elínar Vigfúsdóttur
fæddust á Bessastöðum, þar á meðal
Hallgrímur. Árið 1928 keyptu Jón og
Elín stórbýlið og
hlunnindajörðina
Laxamýri í
Suður-Þingeyja-
sýslu og þar ólst
Hallgrímur upp.
Margir í fjöl-
skyldunni hafa
reynst vel ritfær-
ir; Jón ritaði ævi-
minningar sínar, sem og Björn
Gunnar sonur hans, Elín gaf út
ljóðabók og Þóra systir Hallgríms er
kunn skáldkona. Þá hefur Hall-
grímur áður ritað minningabókina Á
slóðum manna og laxa sem kom út
árið 1985.
Fyrsti hluti bókarinnar fjallar um
fjölskyldu og æsku Hallgríms. Kem-
ur þar margt fróðlegt fram, til að
mynda um búskaparhætti, verklag
og um fólk sem hann hafði kynni af,
ættingja, vinnufólk og nágranna.
Fyrir þá sem þekkja til Laxár í Aðal-
dal er þetta einkar fróðlegur hluti,
enda fjallað um nytjar af ánni og fólk
sem tengdist veiðunum, til að mynda
bræðurna frá Garði í Aðaldal.
Hallgrímur vakti snemma athygli
fyrir líkamsburð og hóf hann
snemma að stunda íþóttir. Hann
varð einn helsti fjálsíþróttakappi
þjóðarinnar, snjall kringlukastari og
kúluvarpari. Stærsti hluti minning-
anna hverfist um íþróttaferilinn, um
hin ýmsu mót og keppnisferðir.
Kemur þar margt fróðlegt fram.
Lengstan hluta starfsferilsins
starfaði Hallgrímur sem lögreglu-
maður, og samhliða því við önnur
störf, þar á meðal dyravörslu á
skemmtistöðum. Lengst af starfaði
hann í Reykjavík en leiddi um tíma
lögregluna í Vestmannaeyjum. Segir
hann frá ýmsum upplifunum og eru
það oftar en ekki átök og vandamál
sem tengjast áfengisdrykkju og
slarki. Er manni oft nóg um þær að-
stæður sem laganna vörðum er boðið
uppá.
Starfsferilinn endaði Hallgrímur
sem umsjónarmaður sundlaugar-
innar í Breiðholti.
Loks má geta að Hallgrímur
fjallar nokkuð um andlega reynslu
og skyggnigáfu, en hann hefur upp-
lifað ýmsa furðulega fyrirburði.
Frásögn Hallgríms Jónssonar er
blátt áfram, forvitnileg og læsileg.
Hann rifjar upp atburði frá ævi sinni
og segir réttilega að örlagaþræðir
mannlífsins spinnist með ýmsu móti
„og oft ekki eins og að er stefnt.“ Líf-
ið sé bæði súrt og sætt. Hallgrímur
horfir þó sáttur yfir veginn og nýtur
þess að miðla reynslu sinni.
Lífsreynslan þroskar
Æviminningar
Reynsluslóðir lögreglumanns og
íþróttakappa
bbbnn
eftir Hallgrím Jónsson frá Laxamýri.
Salka 1009. 288 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Þegar Bryndís HrönnRagnarsdóttir velti fyrirsér hvernig gera mættimyndlistaverk fyrir
blinda ákvað hún að læra píanó-
konsert án þess að kunna nokkuð
fyrir sér á tónlistasviðinu. Fyrir
valinu urðu Goldberg tilbrigðin
sem Johann Sebastian Bach samdi
fyrir svefnlausan vin sinn sem
vantaði eitthvað fagurt til að kyrra
hugann á andvökunóttum. Afrakst-
ur þessa tilrauna Bryndísar er nú
sýndur í Kling & Bang gallerí.
Bryndís er trú uppruna hug-
myndarinnar, þótt ekki sé hægt að
segja að gjörningurinn sé eingöngu
fyrir blinda né heldur að blindir
muni laðast að listaverkinu fremur
en aðrir. Hins vegar heldur lista-
konan sjónrænum eigindum gjörn-
ingsins niðri. Fyrst með bókverki
sem inniheldur tónverkið á blindra-
letri og síðan með því að hunsa
sýningarrýmið.
Í aðal sýningarsalnum standa há-
talarar á gólfi og úr þeim hljóma
Goldberg tilbrigðin í túlkun píanó-
snillingsins Glenn Goulds. Ég kom
mér vel fyrir í horninu þar sem
hljómurinn reyndist hvað bestur til
að njóta fagurra tónanna. En velti
því þá fyrir mér hvers vegna lista-
konan hafi snúið hátölurunum
þannig að hljómurinn magnaðist
hvað helst í þessu eina horni í stað
þess að koma þeim snyrtilega fyrir
í felum og þannig að hljómurinn
mundi beinast í salinn miðjan. Ég
áttaði mig á því að listakonan væri
að gefa sýningarrýminu langt nef.
Eftir að eiga stund með Gould
kom ég mér fyrir í myrkraherbergi
gallerísins til að hlusta á listakon-
una glíma við þessa sömu tóna. Að-
ferð Bryndísar má kalla Suzuki
sjálfmenntun sem byggist á
eftirhermutækni. Þetta er hins
vegar flókið tónverk og ekki hægt
að ætlast til þess að listakonan nái
tökum á því nema þá kannski með
Feneyskum maraþongjörningi
(Bach á hverjum degi í sex mán-
uði?). En það er auðvitað ekki aðal
atriðið hversu vel hún spilar Bach.
Hér er það gjörningurinn sem
skiptir máli.
Bryndís lætur óskýra og óklippta
vídeóupptöku sjá um að miðla
gjörningnum í alls 60-70 klukku-
stundir og getur maður mætt dag-
lega til að fylgjast með þróuninni.
Ég lét viku líða á milli heim-
sókna, horfði og hlustaði á listakon-
una fikta við píanóið í hvort skiptið.
Mér þótti lítið til þess koma. Ekki
bara vegna þess hve illa hún stóð
sig í píanóleik, heldur vegna þess
að þetta var langdregið og leið-
inlegt.
Hugmyndin er vissulega snjöll
og tilraunin fín ögrun við list-
hugtakið. Sýningin er hins vegar
máttlítil. Þess má þó geta að lista-
konan hyggst halda áfram að læra
verkið þannig að gjörningurinn
heldur áfram þótt sýningunni ljúki,
sem máski undirstrikar vægi
gjörningsins gagnvart sýningunni.
Fikt
Kling og Bang gallerí
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir
bbnnn
Opið fimmtudaga – sunnudaga frá 14-
18. Sýningu lýkur 10. janúar 2010. Að-
gangur ókeypis.
JÓN B. K. RANSU
MYNDLIST
Morgunblaðið/Heiddi
Bryndís Hrönn „Hugmyndin er vissulega snjöll og tilraunin fín ögrun við
listhugtakið,“ segir meðal annars í dómnum um sýninguna.
HOLLYWOOD-leikkonan Brittany
Murphy lést í gærmorgun, 32 ára
að aldri.
Leikkonan fékk hjartastopp á
heimili sínu og hringdi eiginmaður
hennar, Simon Monjack, strax á
sjúkrabíl.
Leikkonan var sögð látin þegar
komið var með hana á Cedars-
Sinai-sjúkrahúsið í Los Angeles eft-
ir að sjúkraliðar og læknar höfðu
reynt að koma henni til lífs aftur
eftir hjartastoppið.
Murphy lék á ferli sínum í fjölda
vinsælla kvikmynda, m.a. Clueless,
Sin City og 8 Mile.
Brittany
Murphy látin
Murphy Látin fyrir aldur fram.