Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 21.12.2009, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM HHHH „Ein magnaðasta mynd ársins” S.V. - MBL HHHH Roger Ebert - Chicago Sun-Times HHHH „Þrekvirki!” - HS, Mbl ÍSLENSKT TAL JÓLAMYNDIN 2009 BIÐIN ER Á ENDA! Nýr kafli í kvikmyndasögunni hefst í kvöld! Missið ekki af þessari byltingarkenndu stórmynd frá James Cameron leikstjóra Titanic. TILNEFNINGAR TIL GO LDEN GL OBE VERÐLAUNA BESTA MYND - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTA TÓNLIST - BESTA LAG BÍÓUPPLIFUN ALDARINNAR! SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Avatar 2D kl. 5 - 6:45 - 8:30 - 10:10 B.i.10 ára Saw 6 kl. 8 - 10 B.i.16 ára Bad Lieutenant kl. 5:30 - 10:30 B.i.16 ára Julie and Julia kl. 5:20 - 8 LEYFÐ Avatar kl. 4(550kr) - 6 - 8 - 10 (Kraftsýning) B.i. 10 ára 9 kl. 4(550kr) B.i.10 ára Avatar 3D kl. 2:40 (950kr) - 6 - 9:20 B.i.10 ára Avatar 2D kl. 2:40 (600kr) - 6 - 9:20 B.i.10 ára Anvil kl. 4(600kr) - 6 B.i.7 ára Whatever Works kl. 5:50 - 8 B.i.7 ára A Serious Man kl. 3:30(600kr) - 10:10 B.i.12 ára Desember kl. 8 - 10 B.i.10 ára Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þegar Hollywood reynir aðgera sér grein fyrir þvíhvað er mikilvægast í líf-inu grípur áhorfendur oft- ar en ekki löngun til að leggja á flótta. Einkanlega þegar um er að ræða fjölskylduvæna gamanmynd með boðskap, líkt og Old Dogs. Leikstjórinn Becker gerði prýði- lega hluti í Wild Hogs fyrir nokkr- um árum, hún átti góða kafla og leikaravalið var frumlegt og vel lukkað. Að þessu sinni er Travolta aftur mættur til leiks og ekki með neinn meðaljón sér til halds og trausts, heldur Robin Williams, og Matt Dillon styrkir myndina í litlu hlut- verki. Að þessu sinni bregst sagan, sem á að vera fyndið grín fyrir fjöl- skylduna um tvo góða vini og við- skiptafélaga. Dan (Williams) er í gamalkunnum, elskulegum ham sem rómantískur piparsveinn. Charlie (Travolta) er sá svalari, frá- skilinn, en að manni skilst reka þeir einhvers konar sportvöruviðskipti. Óvæntar truflanir verða á rekstr- inum þegar Vicki (Preston), fyrr- verandi kona Charlies (þau voru gift fáeina daga niðri í Flórída fyrir sjö árum), birtist skyndilega í New York með tvíbura í eftirdragi. Zach (Rayburn) og Emily (Ella Bleu Travolta) eru ávextir þessa skamm- lífa ástarævintýris og æxlast málin þannig að vinirnir taka krakkana að sér. Nóg um það, en á þessum tíma- punkti á Old Dogs að verða heilu stórfjölskyldunum ómældur gleði- gjafi en útkoman er þynnkulegir hálfbrandarar og mislukkaðir aula- brandarar um viðskipti vinanna og krakkagrislinganna. Það gengur allt á afturfótunum við að skemmta þeim og okkur, Bernie Mac og Dil- lon bæta lítið úr skák. Old Dogs lyppast smám saman niður á aftur- endann, skrípalætin verða sjaldnast brosleg og ekki annað að sjá en Williams vilji ólmur falla í gleymsku og dá og svipaða sögu er að segja af Travolta. Þessar gömlu stjörnur mega aldeilis muna sinn fífil fegurri. saebjorn@heimsnet.is Hæpnir uppalendur Old Dogs „Þessar gömlu stjörnur mega aldeilis muna sinn fífil fegurri.“ Sambíóin Old Dogs bbnnn Leikstjóri: Walt Becker. Aðalleikarar: John Travolta, Robin Williams, Kelly Preston, Seth Green. 95 mín. Bandarík- in. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Það hefur gengið á ýmsu á löngum ferli gamanleikarans Robins Williams. Hann nálgast sextugsaldurinn óðfluga, hefur leikið í um 90 myndum og verið treyst til ýmissa ábyrgðarstarfa, líkt og að kynna á Óskars- verðlauna-afhendingarhátíðum. Williams er undarlegur karakter og af því einkennist furðulegt hlutverkavalið. Robert Altman kom honum í sviðsljósið í hlut- verki Stjána bláa í Popeye, sem hlaut misjafna dóma. Bestu hlut- verkin hans eru í Good Morning, Vietnam (́87); Dead Poetś So- ciety (́89) og The Fisher King (́91), en fyrir hlutverk sín í þess- um myndum uppskar hann Ósk- arsverðlaunatilnefningar. Mitt uppáhald er hins vegar Mrs. Do- ubtfire (́93), þá átti hann sann- arlega skilið að vinna til verð- launanna en var ekki einu sinni tilnefndur. Að því kom að hann hampaði Óskarinum, það var fyrir Good Will Hunting (́97). Eins má nefna The World According to Garp og Moscow on the Hudson. Hortittirnir eru margir, á meðal þeirra verstu verður að nefna Club Paradise, Toys, Jack, The Bicentennial Man, að ógleymdri hörmunginni Patch Adams. Tröppugangur tilveru Robins Williams

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.