Morgunblaðið - 21.12.2009, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2009
FRÁBÆR SPENNUMYND
Í ANDA SCREAM OG
I KNOW WHAT YOU DID
LAST SUMMER
ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
JIM CARREY
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
HHHH
„JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI ÞRÍVÍDD
SEM SLÆR ÚT ANNAÐ ÁÐUR HEFUR SÉST“
„CARRY ER ENGUM LÍKUR...“
– S.V – MBLBYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
ÞRIÐJA
STÆRSTA FRUM-
SÝNINGAR-
HELGI ALLRA
TÍMA Í USA
STÆRSTA
BÍÓOPNUN
Í USA Í ÁR!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
EINHVER FLOTTUSTU
BARDAGAATRIÐI
SEM SÉST HAFA Í
LAAANGAN TÍMA!SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
TVEIR VINIR TAKA AÐ SÉR
7 ÁRA TVÍBURA MEÐ
ÁKAFLEGA FYNDNUM
AFLEIÐINGUM OldDogs
JOHN TRAVOLTA OG ROBIN
WILLIAMS FARA Á KOSTUM Í
ÞESSARI SPRENGHLÆGILEGU
MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„AFÞREYING MEÐ HRÖÐUM HASAR, SJÓNRÆNUM
NAUTNUM... SEM HALDA ATHYGLI ÁHORFANDANS.“
*** H.S.-MBL
HÖRKU
HASAR-
MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
/ ÁLFABAKKA
OLDDOGS kl. 6-8D-10:10D L DIGITAL
OLDDOGS kl. 8 - 10:10 LÚXUS
SORORITYROW kl. 8 -10:20 16
NINJAASSASSIN kl. 8 - 10:10 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30-8-10:30 12
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:30 LÚXUS
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.5:503D ótextuð 7
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl.5:50 7
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.8 7
LAW ABIDING CITIZEN kl.5:50 16
AVATAR kl. 8 - 11 10
OLD DOGS kl. 8 - 10 L
/ KEFLAVÍK
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
PANDORUM kl. 10:40 16
PARANORMAL ACTIVITY kl. 8 16
MORE THAN A GAME kl. 10:20 7
/ SELFOSSI
/ KRINGLUNNI
LES CONTES D'HOFFMAN Óperaendurflutt kl.6 L DIGITAL
OLD DOGS kl.8 -10 L DIGITAL
SORORITY ROW kl.10:30 16
NINJA ASSASSIN kl.10:40 16
THE TWILIGHT NEW MOON kl.5:30-8 12
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D ótextuð 7 3D-DIGITAL
OLD DOGS kl. 8 - 10 L
MY LIFE IN RUINS kl. 8 L
NINJA ASSASSIN kl. 10 16
/ AKUREYRI
Að fá bata á alvarlegumsjúkdómi er ekkert annaðen kraftaverk, það vitaþeir best sem reynt hafa.
Slíkt kraftaverk fjallar hún um
heimildarmyndin hans Einars Más
Guðmundssonar, Sigur í tapleik. En
það dugar skammt að fyllast krafti
og bjartsýni í áfengismeðferð sem
öðrum sjúkdómsmeðferðum; spáss-
era síðan út í lífið og halda sig hólp-
inn. Obbinn af alkóhólistum þarf að
fara oftar en einu sinni og tvisvar í
áfengismeðferð, því það er tvennt
sem þarf til að kraftaverkið gerist.
Því lýsir sálmaskáldið góða manna
best: „Trúðu á tvennt í heimi … Guð
í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér.“
Góður ásetningur dugar ekki einn
til, viljinn, staðfestan og trúin eru
hvert öðru nauðsynlegra.
Inn á þessi sannindi kemur Einar
Már í textuðum hugleiðingum sem
eru hollt og uppbyggilegt leiðarljós
bæði þeim sem eru að leita sér lækn-
inga í fyrsta og vonandi eina skiptið,
sem hinum á sinni endalausu eyði-
merkurgöngu.
Annar mikilvægur og fræðandi
þáttur í Sigri í tapleik, er nærvera
Einars Pálma þjálfara. Hann er
prímusmótor í þeim þætti mynd-
arinnar sem fjallar um fótboltalið
SÁÁ, þjálfar það og hvetur áfram á
æfingum og í leikjum. Gallharður,
vel menntaður og eldklár dugn-
aðarmaður sem virðist ekki líklegur
til að falla í strætið. En þau verða ör-
lög þessa sómamanns, hann „spring-
ur“ enn eina ferðina á miðri leiktíð
og sem fyrir svartagaldur umturn-
ast hann í einu vetfangi úr fyr-
irmyndarmanni í fársjúkan róna.
Hann er lifandi áminning um hversu
djöfullegan óvin alkar eiga í höggi
við, fall hans í myndinni er kannski
lærdómsríkara en allt annað sem
kemur fram í viðtölum og pælingum
í merkri og vel gerðri heimild-
armynd sem ætti að vera til á hverju
heimili.
Trúðu á tvennt í heimi …
Sigur í tapleik Heimildarmynd eftir Einar Már Guðmundsson.
Mynddiskur
Sigur í tapleik
bbbmn
Íslensk heimildarmynd. Leikstjórn og
handrit: Einar Már Guðmundsson. Kvik-
myndataka: Bjarni Grímsson. Klipping:
Baldvin Z. Tónlist: Gunnar Bjarni Ragn-
arsson. Hljóð: Árni Benediktsson. Við-
mælendur: Einar Pálmi, Þórarinn Tyrf-
ingsson, Eyþór Óli Frímannsson, o.fl.
Framleiðendur: Ingvar Þórðarson og
Júlíus Kemp. Gerð með styrk frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands. Kisi.is. Kvik-
myndafélag Íslands 2009. DVD 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
HLJÓMSVEITIRNAR múm og
Seabear héldu tónleika í Iðnó á
föstudagskvöldið.
Húsið var fullt af eftirvænting-
arfullum áheyrendum enda hafði
múm ekki leikið hér á landi í langan
tíma. Með tónleikunum í Iðnó lauk
múm hljómleikaferðalaginu sem var
farið í vegna plötunnar Sing Along
to Songs You Don’t Know.
Margmenni
á múm
múm-liðar Fiðla og selló í fíling.
Starað Gestir fylgdust vel með því sem gerðist á sviðinu.
Seabear Hljómsveitin spilaði nýtt efni í bland við gamalt.
Sungið Örvar, söngvari múm, hafði gaman af því að spila á heimaslóðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Traustasti bakhjarl alkóhólista er
AA-samtökin, sem voru stofnuð til
að berjast við vágestinn Bakkus og
eru byggð á svokölluðu 12 spora
kerfi, sem Einar Már kemur inn á.
Þau eru einfaldlega kennsla í
mannrækt og öllum gagnleg til
umhugsunar:
12 Reynsluspor:
1. Við viðurkenndum vanmátt okk-
ar gagnvart áfengi og að við gæt-
um ekki lengur stjórnað eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur
okkur æðri gæti gert okkur and-
lega heilbrigð að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að fela
líf okkar og vilja umsjá Guðs, sam-
kvæmt skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum rækilega og ótta-
laust siðferðileg reikningsskil í lífi
okkar.
5. Við játuðum misgjörðir okkar
fyrir Guði, sjálfum okkur og ann-
arri manneskju og nákvæmlega
hvað í þeim fólst.
6. Við vorum þess albúin að láta
Guð fjarlægja alla skapgerð-
arbrestina.
7. Við báðum Guð í auðmýkt að
losa okkur við brestina.
8. Við skráðum misgjörðir okkar
gagnvart náunganum og urðum
fús til að bæta fyrir þær.
9. Við bættum fyrir brot okkar
milliliðalaust svo framarlega sem
það særði engan.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfs-
rannsókn og þegar út af bar við-
urkenndum yfirsjónir okkar um-
svifalaust.
11. Við leituðumst við með bæn og
hugleiðslu að styrkja vitund-
arsamband okkar við Guð, sam-
kvæmt skilningi okkar á honum,
og báðum um það eitt að vita vilja
hans og hafa mátt til að fram-
kvæma hann.
12. Við urðum fyrir andlegri vakn-
ingu er við stigum þessi spor og
reyndum því að flytja öðrum alkó-
hólistum þennan boðskap og
fylgja þessum meginreglum í lífi
okkar og starfi.
AA samtökin og sporakerfið