SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 6

SunnudagsMogginn - 31.01.2010, Side 6
6 31. janúar 2010 ÞORRINN 2 010 Þorrahlaðborð – fyrir 10 eða fleiri – 1.990 kr. á mann Sjá nánar á www.noatun.is Sendum frítt um land allt www.noatun.is „Þarfir okkar vegna flugumferðarstjórnar á úthafinu eru frábrugðnar því sem gerist á meginlöndunum. Þetta réð því að Flugmálastjórn hóf þróun á eigin kerfum fyrir rúmum þrjátíu árum,“ segir Þorgeir Páls- son. Þessi starfsemi hefur vaxið stöðugt. Alls 25 manns vinna að kerfisþróunarverkefnum hjá TERN Systems auk þess sem hópur tæknimanna og flug- umferðarstjóra hjá Flugstoðum tekur þátt í þeim. „Hér hefur skipt meginmáli að tengja saman not- endurna, það er flugumferðarstjóra og fluggagna- fræðinga við tæknimennina, sem framleiða kerfin. Nú erum við að fara inn í tímabil, þar sem takast á á við rannsóknarverkefni auk þeirra þróunarverk- efna, sem við höfum sinnt undanfarna þrjá áratugi. Þetta gefur Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík tækifæri til að hefja rannsóknir enda mun SESAR-áætlunin bjóða sérstaka styrki í þessu skyni. Flugstoðir eru nú þegar að vinna að rannsóknarverk- efni ásamt Icelandair er lýtur að því að draga úr út- blæstri flugvéla. Um er að ræða áætlun sem EBS og bandarísk stjórnvöld settu á laggirnar til að leita allra leiða til að draga úr útblæstri í flugi milli meg- inlanda,“ segir Þorgeir Pálsson. Þróa ný flugstjórnarkerfi og draga úr útblæstri Sigurður Hólmar Jóhannesson flugumferðarstjóri við störf í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Þekking og reynsla hefur vakið athygli víð um lönd. Morgunblaðið/Sigurður Bogi M iklir fjármunir streyma inn í land- ið vegna alþjóðaflugþjónustunnar sem Flugstoðir veita fyrir Íslands hönd ásamt dótturfélagi sínu Flugfjarskiptum og Veðurstofu Íslands. Íslend- ingar hafa í meira en sextíu ár annast alhliða flugumferðarþjónustu yfir víðfeðmu svæði á Norður-Atlantshafi sem veitt er samkvæmt al- þjóðlegum samningi í umsjón Alþjóðaflug- málastofnunarinnar. Tekjur vegna flugumferðar á íslenska flug- stjórnarsvæðinu, voru rúmir 3 milljarðar króna árið 2009, en þjónustan nær til flugumferð- arstjórnar, flugfjarskipta, flugleiðsögu, kögunar og veðurþjónustu. Tekjur vegna alþjóðaflugsins voru um 65% af heildarveltu Flugstoða og dótt- urfélagsins Flugfjarskipta á síðasta ári. „Þessar tekjur eru gjaldeyrir sem segja má að komi af himnum ofan,“ segir Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða. Miklar sveifur í flugumferð Icelandair var á síðasta ári stærsti við- skiptavinur Flugstoða hvað varðar fjölda flug- véla. Vélar Lufthansa fljúga mestu samanlögðu vegalengdina innan svæðisins og greiða því hæstu notendagjöld. Næst þar á eftir koma Brit- ish Airways, Icelandair og Air Canada „Athyglisvert er að flugfélög á Persaflóa- svæðinu eru farin að fljúga reglulega í gegnum svæðið okkar. Um er að ræða flugvélar frá Ar- abísku furstadæmunum sem eru á leið til eða frá Bandaríkjunum og fara yfir Norður-Evrópu og þá um flugstjórnarsvæðið, sem stjórnað er frá Íslandi. Þessar vélar fljúga þvert yfir svæðið og geta því verið allt að þrjár klukkustundir inni í því. Þetta eru því eftirsóknarverðir við- skiptavinir, sem skila góðum tekjum,“ segir Þorgeir. Á árinu 2009 fóru 101.504 flugvélar um svæðið og er það í þriðja sinn sem fjöldi flugvéla fer yfir 100 þúsunda markið. Árið áður var um- ferðin um 8% meiri og er það mesta umferð í sögunni. „Samdráttinn má rekja beint til efnahags- ástandsins í heiminum. Þó verður að hafa í huga að 2008 var metár og ekki hægt að gera ráð fyrir aukningu á hverju ári. Frá fyrstu tíð hafa verið miklar sveiflur í flugumferð,“ segir Þorgeir. Þróa ný kerfi Á vegum Flugstoða er að hefjast vinna við þróun nýrra kerfa, sem munu nýtast við stjórn flug- umferðar yfir Norður-Atlantshafið í framtíð- inni. Mörg járn eru í eldinum því hér er um að ræða stór þróunarverkefni vegna núverandi kerfa flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík auk sjálfvirks tilkynningarkerfis fyrir flugvélar, svonefnds ADS-B kerfis. Það mun leysa hefð- bundnar ratsjár af hólmi. Gert er ráð fyrir að taka kerfið í notkun á næsta ári á svæði sem nær frá Skotlandi yfir Ísland og áfram vestur yfir Grænland. Flugstoðir annast uppsetningu og rekstur stöðvanna á Íslandi og samþættingu kerfisins, þar með talið þróun hugbúnaðarkerfis flug- stjórnarmiðstöðvarinnar. Það er TERN Systems, sem er í eigu Flugstoða og Háskóla Íslands sem annast hugbúnaðarþróunina í samvinnu við starfsmenn Flugstoða. Verkefni fyrir milljarða Þorgeir segir að mikil reynsla og þekking á þró- un og rekstri flugstjórnarkerfa hafi orðið til á þeim þremur áratugum sem liðnir eru frá því að þróun skeytadreifikerfisins hófst árið 1979. Flugstoðasamsteypan sé vegna þessa, meðal annars eftirsóttur í rannsóknar- og þróun- arverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Þannig eru Flugstoðir þátttakandi í svo- nefndri SESAR-áætlun, sem er rannsóknar- og þróunaráætlun ESB. Markmið hennar er að þróa nýja kynslóð flugstjórnarkerfa fyrir Evrópu sem ætlað er að samhæfa flugumferðarstjórn í álf- unni, auka afkastagetu og tryggja flugöryggi. Umfang þróunarvinnunnar hefur stóraukist á undanförnum misserum og er gert ráð fyrir að tveimur milljörðum króna verði varið til þess- ara verkefna á þessu og næsta ári. Til viðbótar koma svo þróunarverkefni SESAR-áætlunar- innar sem standa munu fram til loka ársins 2016 Gjaldeyrir af himn- um ofan Þekking gerir Flugstoðir eftir- sóttar hjá ESB Unnið er að þróun kerfa við stjórn flugs yfir Atlantshaf. Mörg járn eru í eldinum, segir Þorgeir Pálsson forstjóri Flugstoða. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vikuspegill Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þekking „Við höfum lagt ríka áherslu á að vinna að uppbyggingu innan- lands og nýta þekk- ingu okkar starfs- manna sem hefur leitt af sér ný störf,“ segir Þorgeir Páls- son. Nú vinna Flug- stoðir að rannsókn- arverkefni sem Evrópusambandið og bandarísk stjórnvöld settu á laggirnar til að leita allra leiða til að draga úr útblæstri í flugi milli Norður- Ameríku og Evrópu.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.