SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Blaðsíða 40
É
g man vel eftir því þegar ég
grillaði í fyrsta skipti, snemma í
mínum búskap. Þá voru grill
ekki í hvers manns eigu og ég
kunni ekkert að grilla. Það var keypt
ódýrt, þrífætt kolagrill, kol og upp-
kveikilögur, grillið sett upp á svölunum,
allt gert klárt og svo var kveikt upp. Það
átti ekkert að ráðast á garðinn þar sem
hann var hæstur, heldur var ákveðið að
byrja bara á pylsum svona í fyrstu at-
rennu.
Allir biðu spenntir og svangir. En upp-
kveikilögurinn brann upp og þótt við
þættumst sjá þess merki að það hefði
vissulega kviknað í kolunum héldu þau
áfram að vera svört lengi vel. Og það
barst lítill hiti frá þeim. Það leið óratími
þar til grár litur fór að færast yfir þau löt-
urhægt og enn lengri tími þar til við
ákváðum að þau hlytu að vera orðin nógu
heit. Og pylsurnar voru hálfkaldar því
við vorum banhungruð og nenntum ekki
að bíða lengur.
Það er langur tími síðan og ég er búin
að grilla ansi margt. Þegar ég var að byrja
að grilla heyrði ég margoft fullyrt að það
væri ekki hægt að grilla heilan kjúkling
nema þá á snúningsteini en eins og marg-
ir vita núna er einmitt alveg einstaklega
auðvelt að matreiða heilan kjúkling á
grilli – eða kalkúna, ef út í það fer, ef
grillið er stórt og með háu loki. Margir
héldu því líka fram að það væri bara hægt
að grilla fisk innpakkaðan í álpappír en
það er nú öðru nær.
Ef maður kann að nota grillið sitt, og
ekki síst lokið á því, er líklega fátt sem
ekki er hægt að matreiða á því. Það er
hægt að grillsteikja nánast hvaða kjöt,
fisk og grænmeti sem er, grilla ávexti,
baka brauð og pítsur og baka kökur (ég á
uppskrift að kransaköku bakaðri á grilli
en hef reyndar aldrei séð ástæðu til að
prófa hana). Lokað grill er að mörgu leyti
eins og ofn, hitinn endurkastast frá lok-
inu aftur niður að matnum svo að hann
grillast á öllum hliðum, ekki bara að neð-
an eins og þegar grillið er opið. Þess
vegna þarf oft ekki að snúa matnum.
Chorizo-kjúklingur
Það er hægt að stinga ýmsu undir haminn
á kjúklingnum áður en hann er eldaður,
til dæmis ferskum kryddjurtum eða sítr-
ónusneiðum. Hér notaði ég spænska
chorizo-pylsu sem mér finnst gefa mjög
skemmtilegt bragð en það mætti líka
nota pepperóní. Hamurinn situr laust á
bringunni og það er ekkert mál að stinga
hendinni inn undir hann til að losa hann
frá.
Núverandi grillið mitt er lítið Weber-
grill með einum brennara í miðju og öðr-
um í hring þar utan um, sem hentar mjög
vel fyrir grillun við óbeinan hita. Þó er
hætt við að kjúklingurinn fari að brenna á
vængjunum, þar sem hann er breiðastur,
og þess vegna smeygi ég oft álpapp-
írsræmu undir efri hluta fuglsins til að
hlífa honum.
Frá pylsum til kalkúna
Sumarið er tíminn sem Íslendingar skríða úr híði
sínu og byrja að grilla í garðinum eða á svöl-
unum.
Nanna Rögnvaldardóttir
Uppskriftin að þessum
sjávarfangspinnum á sér
karabískar rætur.
Matur