SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Síða 35

SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Síða 35
13. júní 2010 35 A llt sem ég hef heyrt um Ísland frá nem- endum mínum bendir til þess að Ís- lendingar hafi sönginn í bein- unum. Það er eins og allir Ís- lendingar hafi sungið í kórum og foreldrar þeirra líka. Þess vegna hef ég þessa ímynd af Íslandi í hausnum,“ segir bandaríska sópransöngkonan Janet Williams sem verður ein kennara og söngvara sem koma fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í lok mánaðar. Williams mun halda mast- erklassa, námskeið fyrir lengra komna tónlistarnema, í söng og jafnframt koma fram í tón- leikasalnum Hömrum ásamt píanóleikaranum Héctor Eliel Márquez og klarinettleik- aranum Björn Nyman. Tilvon- andi nemendur hennar á Ísa- firði í sumar verða þó ekki fyrstu íslensku nemendurnir hennar. „Hrund Ósk Árnadótt- ir sem er hæfileikarík sópr- ansöngkona, Einar Finnsson tenór og Gunnar Jóhannsson,“ segir Williams og reynir að stafa sig í gegnum torræð ís- lensk nöfnin eftir bestu getu. „Eiginmaður minn gerir alltaf grín að mér út af þessum fjölda íslenskra nemenda. Hann segir að það geti enginn verið eftir á Íslandi!“ segir Williams og hlær. Glæstur ferill Williams hefur langt stund á söng í yfir þrjátíu ár og er með gráðu í söng frá Ríkisháskól- anum í Michigan í Bandaríkj- unum. Þá útskrifaðist hún með meistarapróf frá Háskólanum í Indiana. Hún hóf söngferilinn í San Fransiskó en gekk síðar til liðs við Ríkisóperuna í Berlín í Þýskalandi þar sem hún hefur sungið ófá burðarhlutverkin. Þá hefur Williams hlotið lof fyrir frammistöðu sína í mörg- um þekktustu óperuhúsum heims eins og Metrópólítan og Parísaróperunni, auk auðvitað Ríkisóperunnar í Berlín. Williams hefur kennt mast- erklassnámskeið beggja vegna Atlantsála, í Lundúnum, París og Berlín en einnig víðsvegar um Bandaríkin. Núna kennir hún við tón- og leiklistarskól- ann í Rostock auk Lotte Leh- mann-akademíunnar í Berlín þar sem hún býr. Fyrir fjórum árum stofnaði hún svo sinn eigin skóla þar sem hún tekur að sér unga og efnilega nem- endur auk þess að hjálpa reyndum söngvurum til að þróa með sér nýja fram- komutækni. Hafði ekki heyrt um hátíðina Williams hafði aldrei heyrt um tónlistarhátíðina á Ísafirði áður en hún var fengin til þess að taka þátt. Hún segir áhugavert hvernig það kom til að hún tæki þátt í hátíðinni í ár. „Ís- lensku nemendurnir mínir hér í Berlín þekktu aðra íslenska námsmenn í borginni og þeir þekktu skipuleggjendurna. Þannig var ég fenginn í þetta,“ segir Williams. Hefðbundinn íslenskur klíkuskapur nær greinilega langt út fyrir land- steinana. Williams hafði þó heyrt um Íslensku óperuna sem hún seg- ir hafa framleitt marga frábæra söngvara. Frá íslenskum nem- endum sem hún fékk í nokkra tíma til sín hafi hún heyrt um fegurð landsins og menningu. Hún hélt þó að ekki væri mikið um hátíðir af þessu tagi á Ís- landi eða að ungir söngvarar hefðu mörg tækifæri til að koma fram hér. Það kom henni því á óvart þegar hún fór að kynna sér hátíðina og sá hvaða erlendu nöfn hafa tekið þátt undanfarin ár á Við Djúpið. Eins og gefur að skilja hefur Williams aldrei komið til landsins áður en hún segist hlakka til að upplifa land og menningu. „Allt sem ég hélt um Ísland reyndist vera rangt. Ég hélt að þetta væri kalt og eyðilegt land en síðan sá ég myndir og heyrði sögur frá ís- lenskum nemendum mínum um fegurð þess. Vinir mínir segja að þetta sé andlegur stað- ur þar sem náttúran er í há- vegum höfð. Landið hljómar eins og afar sérstakur staður í mínum eyrum.“ Eins og áður segir hefur Williams kennt masterklass- námskeið í heimsborgum eins og Lundúnum, París og Berlín. Það hljóta því að vera talsverð viðbrigði að halda námskeið í nokkur þúsund manna bæ á hjara veraldar. „Smæðin skiptir engu máli. Mig langar mikið til að sjá þetta land sem ég hef heyrt svo margt um. Ég er því glöð og spennt fyrir hátíðinni á Ísafirði og hlakka til að hitta þátttakendurna sem elska sönglistina eins mikið og ég geri,“ segir söngkonan. Reynir að slátra ekki málinu Williams ber íslenskri tónlist vel söguna sem hún segist hafa kynnst í gegnum nemendur sína í gegnum tíðina. Þegar hún var stödd í Indíana í Bandaríkjunum hafi fyrrver- andi kennari hennar mælt með að þeir íslensku söngnemar sem þar voru, sem hún taldi með þeim bestu, syngju á ís- lensku enda ætti hún sér fal- lega tónlistarhefð. Williams hefur því látið nemendur sína koma með verk bæði eftir ís- lenska samtímahöfunda og gömul þjóðlög til þess að æfa sig á hjá henni. „Þegar þú syngur á móðurmáli þínu verður söngurinn algerlega náttúrulegur og röddin kemur út á eðlilegan hátt. Það er mun auðveldara að byrja að finna rödd þína á móðurmálinu heldur en ef þú syngur á er- lendu máli. Þegar fólk syngur á framandi tungu vill það oft gleyma undirstöðuatriðunum og reynir að syngja eins og því finnst að erlenda málið eigi að hljóma.“ Lögin sem íslensku nemend- urnir hafa komið með í tíma til hennar segir hún vera talsvert erfiðari en hún hafði haldið. „Ég hef sungið á mörgum tungumálum en þetta var erf- itt. Þegar maður syngur á er- lendu máli hjálpar oft að kunna hrafl í málfræði þess og hljóð- fræði, hvernig sérhljóðarnir og samhljóðin liggja. Einn íslensk- ur nemandi minn var svo elskulegur að útskýra fyrir mér stafrófið og leggja til lög sem ég gæti hugsanlega sungið. Ætlar stórsöngkonan Janet Williams þá að spreyta sig á lagi á íslensku þegar hún kem- ur fram á Ísafirði í lok mán- aðar? „Ef afraksturinn verður boðlegur þá reyni ég það kannski!“ segir Williams og hlær. „Ég ætla samt ekki að böðlast á tungumálinu ykkar!“ segir hún að lokum. Óperusöngkonan Janet Williams er búsett í Berlín þar sem hún kennir meðal annars íslenskum söngnemum. Íslendingar með söng í beinunum Janet Williams er sópransöngkona sem kennt hefur í París, Lundúnum og Berlín. Ísafjarðarbær bætist í hóp heimsborganna í lok mánaðar. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Hátíðin hefur frá upphafi byggst á þessum mast- erklössum og lengi vel var þetta eina árlega hátíð- in sem bauð upp á námskeið fyrir lengra komna tónlistanemendur,“ segir Greipur Gíslason, fram- kvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Við djúpið sem nú er haldin í áttunda skipti á Ísafirði. Í ár er boðið upp á þrjú aðalnámskeið, fyrir fiðlu, píanó og söng, þar sem íslenskir tónlistarnemar geta lært af er- lendum lærimeisturum. „Síðan hafa þeir tónlist- armenn sem kenna námskeiðin líka haldið tón- leika. Þeir kenna á daginn og halda tónleika á kvöldin,“ segir Greipur. Greipur segir Ísafjörð vera mikinn tónlistarbæ og aðsókn hafi verið góð undanfarin ár. Bærinn sé virkur þátttakandi í hátíðinni og þannig geti þátttakendur á námskeiðunum æft sig í heimahúsum Ísafjarð- arbúa enda erfitt að sjá öllum fjöldanum fyrir hljóðfærum öðruvísi. „Hátíðin var áður nokkurs konar feluhátíð. Hugmyndin varð til í Reykjavík svo hátíðin kom einhvern veginn til Ísafjarðar og fór aftur þegar henni lauk. Takmark mitt hefur verið að gera hátíðina ísfirska þannig að Ísfirðingar viti af hátíðinni og ísfirskir tónlistarmenn fái tækifæri til að stíga á stokk,“ segir Greipur. Kennt á daginn, spilað á kvöldin Greipur Gíslason

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.