SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Blaðsíða 6
6 1. ágúst 2010 Jorge Valdano 1994-1996 Vicente del Bosque 1996 og 1999-2003 Á ýmsu hefur gengið hjá Real Madrid í tíð Raúls enda forsetar verið fljótir að láta þjálfara fjúka við minnsta mótbyr. Alls hafa 15 mismun- andi þjálfarar þjálfað Raúl á 16 árum en tveir þeirra tvisvar, þeir del Bosque og Capello. 15 þjálfarar Arsenio Iglesias 1996 Jupp Heynckes 1997-1998 Guus Hiddink 1998-1999 Mariano García Remón 2004 Manuel Pellegrini 2009-2010 Juande Ramos 2008-2009 Carlos Queiroz 2003-2004 José Antonio Camacho 2004 John Toshack 1994-1996 Vanderlei Luxemb- urgo 2004-2005 Juan Ramón López Caro 2005-2006 Bernd Schuster 2007-2008 Fabio Capello 1996-1997 og 2006-2007 R aúl Madrid“ var fyrirsögnin á vefútgáfu spænska íþrótta- dagblaðsins Marca þegar gull- drengurinn Raúl González til- kynnti að hann hefði leikið sinn síðasta leik fyrir Real Madrid. Þeir eru enda fáir knatt- spyrnumennirnir í dag sem eru jafn sam- ofnir liðum sínum og hinn 33 ára gamli Raúl sem batt í vikunni enda á 16 ára vist sína á Santiago Bernabéu, heimavelli Madridinga. „Að vera leikmaður Real Madridar er stærsti draumur sem ég get ímyndað mér. Í dag vil ég umfram allt að allir viti að í hverri leik- fléttu, hverju hlaupi og hverri hreyfingu innan vallar reyndi ég alltaf að gefa allt sem ég átti,“ sagði Raúl tárvotur á blaðamanna- fundi þar sem hundruð manns kvöddu þessa goðsögn þeirra hvítklæddu. Örlögin höguðu því þannig að þessi tákn- mynd Real-manna hóf ferilinn í unglinga- liði erkifjendanna í Atlético Madrid við bakka Manzanares-árinnar í suðurhluta borgarinnar. Hinn alræmdi forseti Atlético, Jesús Gil, ákvað hins vegar að það væri pen- ingaeyðsla að halda úti unglingastarfi og lagði það niður. Í kjölfarið færði Raúl sig norður til Real þar sem hann átti eftir að móta sögu liðsins næstu tvo áratugina. Það var núverandi framkvæmdastjóri Real Madrid sem þá var þjálfari liðsins sem gaf hinum 17 ára gamla Raúl sitt fyrsta tæki- færi með aðalliðinu tímabilið 1994/95 í úti- leik gegn Real Zaragoza og varð hann þar með yngsti maður sögunnar til að leika með því. Næsti leikur unglingsins var nágranna- slagurinn við „Atleti“, hið fullkomna svið til þess að skora fyrsta markið af 323 fyrir liðið í því sem urðu 741 leikur fyrir Madridinga. Tók hann fram úr argentísku goðsögninni Alfredo di Stéfano sem markahæsti leik- maður í sögu liðsins Real Madrid vann spænsku deildina á fyrsta tímabili Raúls og aragrúi titla fylgdi í kjölfarið. Alls vann hann sex deildartitla, þann síðasta tímabilið 2007/08, varð markakóngur deildarinnar tvisvar og vann þrjá meistaradeildartitla. Þrátt fyrir alla þessa velgengni yfirgefur Raúl liðið án þess að hafa hampað spænska konungsbik- arnum. Annað lýti á annars fullkomnum ferli Raúl var landsliðið sem olli ítrekað vonbrigðum á meðan það naut enn krafta framherja síns og fyrirliða. Luis Aragonés tók þá ákvörðun að skilja Raúl útundan í forkeppni Evrópukeppninnar árið 2008 og átti hann ekki afturkvæmt í liðið eftir það þrátt fyrir mikla fjölmiðlaherferð af hálfu Madridarpressunnar. Árangur spænska landsliðsins eftir brotthvarf Raúls hlýtur því að vekja með honum ljúfsárar kenndir. Þrátt fyrir að hetjur Real, gamlar og nýjar hafi verið einróma í lofi sínu um Raúl; fyrr- um liðsfélagi hans Fernando Hierro sagði að treyja Real Madridar væri samofin húð hans, veitir útskúfunin frá landsliðinu ákveðna innsýn inn í aðra hlið á fyrirlið- anum. Hann þótti drottna yfir búningsklefa landsliðsins, einum of að mati Aragonésar, og hið sama var uppi á teningnum hjá Real. Raúl var þeirrar skoðunar að lið hans stæði fyrir ákveðin gildi innan og utan vallar, vinnusemi og sjálfsfórn, en svo heppilega vildi til að sjálfur var hann holdgervingur þeirra gilda. Þeir sem ekki uppfylltu þau áttu ekki von á góðu frá fyrirliðanum eins og Ronaldo hinn breiðari fékk að reyna. Raúl lék sinn síðasta leik í hvítu treyjunni á útivelli gegn Real Zaragoza, hringnum var lokað. Eftir glæsilegan feril hafði mikilvægi fyrirliðans dvínað hægt og bítandi hjá liðinu og ljóst var að hann yrði að leita annað til þess að fá að spila reglulega. Þýska liðið Schalke bauð honum að halda ferlinum þar áfram næstu tvö árin. Í kolaborginni Schalke stendur hann eflaust upp úr sem slípaður demantur. Holdgervingur Real Madrid Raúl yfirgefur spænsku risana eftir 16 ára veru Raúl grætur og gnístir tönnum á kveðjustundinni í Madrid. Reuters Vikuspegill Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Raúl González Blanco fæddist ár- ið 1977 í Madrid, höfuðborg Spánar, þar sem hann hefur alið manninn alla tíð síðan - þar til nú. Í vikunni skrifaði hann undir tveggja ára samning við þýska lið- ið Schalke undir stjórn Felixar Magaths sem hefur verið í tit- ilbaráttu síðustu ár. Schalke verður aðeins annað liðið sem Raúl spilar fyrir á löngum ferli. Síðbúin vistaskipti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.