SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Side 36

SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Side 36
36 1. ágúst 2010 vopna hafa þær mikil áhrif,“ segir Janni með áherslu og bætir við íhugul: „Það má læra mjög mikið um sterkar konur af lestri Íslendingasagnanna.“ Galdrasýningin í uppáhaldi Við skrifin sótti Janni einnig í hinar Ís- lendingasögurnar sem hún las, norræna goðafræði auk þess sem hún segir blaða- manni að hún eigi safn af íslenskum þjóð- sögum sem Jón Árnason safnaði. „Ég vann að langmestu leyti með Njáls- sögu, en önnur áhrif leynast víða í bók- inni, ekki síst í fjalli Munins. Líklega not- aði ég þar Laxdælu mest og Egilssögu, auk þess sem þar má finna setningar úr Gísla sögu og Grettissögu, en sumar þeirra eru mun lauslegar þýddar eða aðlagaðar frá upphafsverkinu en aðrar. Ég las líka nor- ræna goðafræði þaðan sem Muninn og Freki koma, og hinn eineygði eigandi þeirra sem Ari er svo snjall að nefna ekki á nafn. Skáldamjöðurinn fær sitt hlutverk í bókinni sem og eldjötnar, en þeim breytti ég mun meira en persónum Íslend- ingasagnanna. Kannski af því að þeir virkuðu á mig frekar sem eins konar frumkraftur en persónur. Ég las þónokk- uð af þjóðsögum, en endaði á að vitna fyrst í lokaorð Snorra Sturlusonar: „Eigi skal höggva.“ Nokkrar tilvitnanir eru úr galdraþulum frá 17. öld, og einnig vitna ég lauslega í andmæli þeirra sem voru lög- sóttir fyrir fjölkynngi, og ýmislegt sem sagt var um galdra á þessum tíma.“ – Þú fórst einmitt á Galdrasýninguna á Ströndum. Var það lærdómsríkt? „Já, Galdrasýningin og Kotbýli kukl- arans eru mínir uppáhaldsstaðir í ferð- inni!“ hrópar Janni og fær blik í augun. „Mjög skemmtilegt atvik átti sér stað þar. Við Larry eyddum nokkrum klukkutím- um á safninu og fórum síðan að Hótel Laugarhóli þar sem við gistum. Þegar við komum þangað sagði eigandinn að hann væri með símaskilaboð fyrir okkur. Við urðum mjög hissa þar sem við þekktum ekki neinn á Ströndum. Það var þá Sig- urður Atlason, forstöðumaður safnsins, sem hafði fylgst með blogginu mínu und- anfarna mánuði eftir að ég loggaði mig inn á heimasíðu safnsins. Hann sá að ég var stödd á Íslandi og bauðst til að veita okkur leiðsögn um kotbýli kuklarans sem við auðvitað þáðum! Hann mætti svo í fullum kuklaraskrúða og bæði leiðsögnin og spjallið við hann voru algjörlega ómet- anleg!“ Daginn eftir fóru Larry og Janni aftur á Galdrasýninguna og hittu þar fyrir Björk Bjarnadóttur þjóðfræðing. „Björk sagði nokkuð sem hafði áhrif á „Thief Eyes“. Ég spurði hana út í mis- muninn á huldufólki og álfum og hún benti mér á að norræna goðafræðin virð- ist hafa breyst við komuna til Íslands. Í stað álfa töluðu Íslendingar um huldufólk og í stað risa er talað um tröll. Ég fór þá að pæla í hvernig lönd móta sögurnar sem við segjum, og gerði mér grein fyrir að Freki, sem hafði verið úlfur í fyrstu útgáf- unni af „Thief Eyes“, sem ég skrifaði áður en ég kom til Íslands, yrði að vera refur, þar sem það höfðu aldrei verið úlfar á Ís- landi. Kveldúlfur, forfaðir Ara, var í Nor- egi þegar hann breyttist í úlf. Hvað ætli hann hefði breyst í hefði hann verið á Ís- landi?“ spyr Janni dularfull og vill greini- lega ekki ljóstra upp of miklu um sögu- þráð bókarinnar. Að búa til trúanlegan galdur Hallgerður beitir göldrum til að fá sínu framgengt í bókinni, og blaðamanni lék því forvitni á að vita hversu nákvæmlega Janni hefði farið eftir þeim íslensku göldrum sem hún las sér til um. „Þegar ég skrifaði upphafskafla bók- arinnar í fyrstu heimsókn minni vissi ég strax að galdurinn myndi felast í því að skipta um stað við einhvern á öðrum tíma. Hins vegar lærði ég ekkert um ís- lenska galdra fyrr en í seinni ferð minni fimm árum seinna. Flestir galdrar virðast líka frá seinni tímum en Njála á að gerast á, auk þess sem mér skildist að flestar ef ekki allar galdraþulur sem varðveist hafa hefðu verið góðkynjaðri en álögin sem Hallgerður leggur á Haley og móður hennar. Ég gat ekki séð að til hefði verið nein galdraþula til að skipta um stað í tíma við afkomanda sinn. Og ef hún hefði verið til þá hefði mér fundist mjög óþægi- legt að nota hana, í ljósi þess hversu kraftmikil og hættuleg hún reyndist svo vera!“ segir Janni og hlær. „Til að búa til trúanlegan galdur hafði ég augun opin fyrir þeim hlutum sem notaðir voru við galdraiðkanir. Surtar- brandur var nefndur nokkrum sinnum og hann notaði ég, einnig silfurmynt – reyndar stolna frá fátækri ekkju – og alla vega einu sinni var minnst á hrafnskló. Hins vegar man ég ekki eftir að refablóð hafi veri notað, en á Galdrasýningunni má finna galdra þar sem hrafnsblóð er notað og einnig nokkrir mannlegir blóð- dropar. Þar sá ég einnig stein sem notaður var við þessar athafnir og á honum er víst blóð allt frá tímum Íslendingasagnanna. Eftir að Freki hafði breyst í ref hjá mér fannst mér borðliggjandi að bæði refur og hrafn yrðu hluti af galdrinum.“ – Hvaðan er galdrastafurinn á silfur- myntinni sem Hallgerður sendir Haley í gegnum tímann? „Ég bjó hann bara til í anda þeirra galdrastafa sem ég sá. Ég vildi alls ekki nota galdrastaf sem væri þegar til, mér fannst það óvirðing við þá sem upp- haflega bjuggu þá til og þá sem létu þá ganga áfram, einnig þá galdra sem þeir tengjast. Sama með galdurinn sjálfan sem jafnvel hefur gengið í erfðir öldum saman. Sem utanaðkomandi aðili er það hrein- lega ekki viðeigandi að ég noti raunveru- legan galdur í bókinni minni.“ – Hvað fékk þig til að tengja saman galdraiðkun og jarðfræðilega virkni landsins? „Mér fannst það bara eðlilegt, held ég. Hluti af því sem gerir Þingvelli að svo kraftmiklum stað í mínum augum er jarðfræðin, allt þetta skak og kraum sem á sér stað undir yfirborðinu. Þegar ég síðan ákvað að galdurinn hennar Hallgerðar yrði eldgaldur, sem einnig var eðlilegt miðað við jarðfræðina, fannst mér lógískt að láta eldjötna koma við sögu.“ – Heldurðu að galdrar hafi verið við- riðnir gosið í Eyjafjallajökli? Er Hallgerður mætt til leiks á nýjan leik? „Haha! Mér hefur reyndar dottið í hug hvort Haley, sem nú er aftur komin heim til Arizona, sjái fréttirnar af eldgosinu og velti fyrir sér hvort henni hafi mistekist ætlunarverk sitt og hvort enn lifi í öllum eldinum á Íslandi sem hún þurfti að tak- ast á við! Ekki síst þar sem Eyjafjallajökull er í sama dal og Hlíðarendi.“ Dreymir Ísland – Mér skilst að þú sért að vinna að fram- haldi fyrstu bókar þinnar, „Bones of Fearie“. Megum við eiga von á annarri bók um Haley, Ara og Hallgerði? „Eins og er er ég ekki með framhald af „Thief Eyes“ á prjónunum, því mér finnst sú saga fullsögð. En svo veit maður aldrei. Hins vegar held ég að ég muni áreiðanlega vinna meira með Íslendingasögurnar. Eins og er eru bara hugmyndir fljótandi um í hausnum á mér sem bíða eftir því að ég verði tilbúin til að vinna úr þeim.“ – En megum við eiga von á þér til Ís- lands? „Ekki spurning, það eru enn svo marg- ir áhugaverðir staðir sem ég á eftir að heimsækja. Mig langar líka að fara aftur á marga af þeim stöðum sem ég hef þegar komið á. Auk þess sakna ég Íslands. Bæði mig og manninn minn dreymir oft stað- ina sem við ferðuðumst til á Íslandi. Von- andi kemst ég innan nokkurra ára, og þá að haustlagi. Í tvö seinustu skipti kom ég að sumri til, og mig langar að sjá Ísland á annarri árstíð. Það verður líka gaman að fá aftur skyr og pylsu með steiktum lauk,“ segir Janni Lee Simner, skellir upp úr og er svo rokin af stað að árita bækur fyrir æsta aðdáendur. ’ Kvenpersónur eiga ekki bara að vera til staðar og hafa skoð- anir, heldur hafa áhrif á gang mála. Það sem er áberandi við konur í Ís- lendingasögunum er að þótt þær grípi aldrei til vopna hafa þær mikil áhrif. Minningafjalli Munins, þar sem raddir fortíðar íslensku þjóðarinnar óma í berginu, á sér fyrirmynd í Kaldbakshorni á Vestfjörðum.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.