SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Síða 41
1. ágúst 2010 41
F
lestir tengja Washington-ríki í Bandaríkjunum við Seattle, Kyrrahafsborg-
ina við Puget-flóa, sem hefur verið ein helsta miðstöð sjávarútvegs, flug-
vélasmíði, rokktónlistar og hugbúnaðarframleiðslu í Bandaríkjunum.
Þeir sem koma til Seattle gætu átt erfitt með að trúa að í þessu sama ríki sé
að finna einhver bestu vín Bandaríkjanna og einhvern örasta vöxt vínframleiðslu í
heiminum, þrátt fyrir að svæðið sé um það bil á sömu breiddargráðu og bestu vín-
gerðarsvæði Frakklands, í kringum 46 gráður norður. Loftslagið í borginni tekur mið
af nálægðinni við Kyrrahafið, það getur verið napurt á veturna en á sumrin verður
allt fagurgrænt á skógi vöxnu svæðinu enda úrkoma mikil.
Þetta breytist allt ef flogið er í austururátt yfir Cascades-fjallgarðinn, framhjá eld-
fjallinu Mt. Helena, hæsta fjalli Bandaríkjanna. Á sléttunni sem tekur við af Cascades-
fjöllum er úrkoma jafnsjaldgæf og hún er algeng í Seattle. Vestan við Cascades er að
finna úrkomumestu svæði Bandaríkjanna. Austur af Cascades er árleg úrkoma hins
vegar einungis 15-20 cm á ári og því geta vínræktendur notað áveitukerfi til að
stjórna vatnsmagni og fá hina fullkomnu útkomu. Til samanburðar má geta að úr-
koma í Bordeaux í Frakklandi er meira en þrefalt meiri.
Miðstöð vínræktar í Washington er einmitt þarna í suðausturhluta ríkisins, þar
sem landamæri Washington, Oregon og Idaho
skerast þótt sum stærri fyrirtæki séu einnig
með útstöðvar skammt frá Seattle í grennd við
markaðinn. Öll ræktun og næstum því öll vín-
gerð fer fram á þessu svæði. Nokkur fyrirtæki
flytja hins vegar þrúgur til Seattle-svæðisins
og eru, af sögulegum ástæðum, með víngerð-
arhús þar.
Víngerð í Washington má rekja aftur til árs-
ins 1825 og í kringum 1910 mátti finna vínrækt
á flestum svæðum í ríkinu. Það er hins vegar
ekki fyrr en á áttunda áratug síðustu aldar að
víngerðin tekur kipp og fer að færast í nútíma-
legt horf. Árið 1981 voru víngerðarfyrirtæki 19
talsins en eru í dag hátt í sjö hundruð. Nýtt
leyfi til vínframleiðslu er gefið út af yfirvöld-
um á um tíu daga fresti.
Washington er nú næstmikilvægasta rækt-
unarsvæði Bandaríkjanna þótt ræktunin sé
einungis brot af þeirri kalifornísku. Þar eru nú
ræktuð um 160 þúsund tonn af þrúgum árlega á móti 3,7 milljónum tonna í Kali-
forníu.
Vínframleiðsla í Washington er annars vegar í höndum nokkurra mjög stórra fyrir-
tækja og hins vegar fjölmargra smærri framleiðenda. Chateau St. Michelle Wine Esta-
tes ber höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki en innan samsteypunnar er meðal annars
að finna víngerðarhúsin Chateau St. Michelle, Columbia Crest og Snoqualmie.
Í þessari þróun má segja að felist einn helsti ímyndarvandi Washington. Vínin frá
St. Michelle eru það þekkt að fæstir tengja þau beint við Washington og flestir aðrir
framleiðendur eru það litlir að framleiðsla þeirra fer ekki víða. Fæstir þeirra voru líka
til fyrir tveimur eða þremur árum og enn er staðan sú að fleiri neytendur tengja
Washington frekar við eplarækt en vínrækt.
Þegar spurt er um vín frá Washington eiga því margir erfitt með að nefna nöfn ein-
hverra tiltekinna framleiðenda. Vínin eru líka oft dýrari en sambærileg vín frá Kali-
forníu og Evrópu sem ekki síst má rekja til þess hve litlir framleiðendurnir eru og
njóta þar af leiðandi ekki stærðarhagkvæmni.
Það eru því vín eins og St. Michelle sem draga vagninn og ekki spillti fyrir þegar vín
frá því fyrirtæki var valið vín ársins af bandaríska víntímaritinu Wine Spectator.
Washington-vínunum fjölgar stöðugt á slíkum listum og þau eru farin að velgja Kali-
forníuvínunum undir uggum.
Líkt og önnur víngerðarhéruð skiptist Washington í fjölda minni svæða. Einu hinu
þekktasta, Walla Walla-dalnum, er best lýst sem tæplega fimmtíu kílómetra langri og
þrjátíu kílómetra breiðri dæld, umluktri hæðum er hafa mikil áhrif á loftslagið. Sum
svæði eru stundum borin saman við suðurhluta Rónardalsins hvað aðstæður varðar
og Syrah nýtur sín einstaklega vel hér.
Stíll vínanna er töluvert frábrugðinn þeim kaliforníska. Ávöxturinn er ferskari,
svalari og vínin eru sýrumeiri. Maður gæti með öðrum orðum sagt evrópskari.
Á Red Mountain, minnsta og yngsta víngerðarsvæði Washington, eru hins vegar
kjöraðstæður fyrir Cabernet Sauvignon. Af öðrum helstu svæðum má nefna Yakima
og Horse Heaven Hills.
Á síðustu árum hafa Cabernet-vín og þá ekki einungis Cabernet Sauvignon heldur
einnig Cabernet Franc verið að sækja í sig veðrið í Washington, að ekki sé nú minnst á
Syrah-þrúguna sem dafnar vel á þessum slóðum. Þróunin er hröð og stöðugt er verið
að leita að nýjum svæðum og máta mismunandi þrúgur inn á ólík ræktunarsvæði.
Meirihluti framleiðslunnar í Washington er raunar hvítvín eða um 52 prósent. Það
eru ekki síst Riesling-vínin frá Washington sem vekja athygli.
Næst: La Rioja
Allt á fullu í
Washington
Vín 101.
Nítjándi hluti
Steingrímur
Sigurgeirsson
Washington er nú næstmikilvægasta
ræktunarsvæði Bandaríkjanna þótt
ræktunin sé einungis brot af þeirri kali-
fornísku.
boði, en mér dettur í hug, silungur, lax
og selur.
Selasetrið á Hvammstanga er skyldu-
heimsókn eins og Verslunarminjasafnið
í Galleríi Bardúsu. Potturinn og pannan
á Blönduósi er skemmtilegur fjöl-
skylduveitingastaður þar sem hægt er
að fá selasteik með piparsósu. Kaffi-
húsið Við árbakkann, er vel þekkt hjá
þeim sem gefa sér tíma, stoppa og njóta
á ferðalögum. Á Laugarbakka er fal-
legur sveitamarkaður þar sem boðið er
upp á fornt handverk og ýmislegt sem
minnir á víkinga og matvæli af svæð-
inu. Þarna eru mörg vötn þar sem
veiddur er silungur og svæðið er þekkt
fyrir laxveiði. Hvítserkur er ótrúlega
tilkomumikill þegar að honum er kom-
ið, og er upplifunin
ennþá magnaðri
ef
manni tekst að sjá sel. Kollugljúfur og
Vatnsnes eru algengir staðir til að skoða
og náttúrlega Borgarvirki en þar hélt
Regína Ósk ótrúlega skemmtilega tón-
leika á Unglistahátíðinni Eldur í Húna-
þingi á föstudaginn fyrir viku, sem við
hjónin erum ennþá sársvekkt yfir að
hafa misst af. Fjöruhlaðborðið á Vatns-
nesi þar sem heimafólk leggur metnað
sinn í að framreiða þjóðlegar veitingar
á vestanverðu Vatnsnesi. Hátíðin var
fyrst haldin 1994 og hefur vakið vin-
sældir og athygli síðan er annar við-
burður sem við hjónin höfum ekki enn
upplifað en eigum vonandi eftir að gera
það. Byggðasafnið á Reykjum er eitt af
skemmtilegustu byggðasöfnum lands-
ins, ég set það algjörlega með söfnum
eins og Byggðasafninu í Laugum í Sæ-
lingsdal og Byggðasafninu á Skógum og
hvet ég allar fjölskyldur til að heim-
sækja þessi söfn. Kvöldverðurinn okkar
sl. laugardag á hótelinu á Laugarbakka
hafði sérstaka merkingu fyrir mig
þar sem hann bar upp á fer-
tugsafmælið mitt og
vil ég þakka öllu
heimafólki og
starfsfólki fyrir
að gera kvöld-
stundina ógleym-
anlega. Að ógleymdum
vinum sem lögðu lykkju á
leið sína til þess að heilsa upp
á okkur. Mér finnst við hæfi að
gefa hér nokkrar hugmyndir um hvað
hægt er að gera við silung.
Þau eru mörg en örugg handtökin við matargerðina.
Silungstartar
í þara
3 msk. soðin grjón
50 g silungur
½ skalottlaukur
1 msk. kóríander
Svartur pipar
Salt
1 noriblað
4 blaðlauksræmur (soðnar og snöggkældar)
Saxið í eitt lauk, koríander og bleikju. Blandið
grjónum saman við og smakkið til með salti og
svörtum pipar. Setjið þarablaðið á þar til gerða
bambusmottu til að búa til rúllu. Setjið maukið á
mitt blaðið og rúllið þaranum þétt utan um. Sker-
ið í 4-6 parta og bindið upp með blaðlauksræm-
unum.
Hrísgrjónakoddi með silungi og noriblaði
4 msk. soðin grjón
4 silungssneiðar, örþunnar
Sterk sriracha-chilisósa
1 noriblað skorið í ræmur
Mótið grjónin með skeið eða í höndunum þann-
ig að úr verði fjórir jafnir bitar. Setjið örlitla doppu
af chilisósu á koddann og silungssneiðina ofan
á, rúllið bitanum inn í noriræmuna.
Hrísgrjónakoddi með silungi og papriku
4 msk. soðin grjón
4 silungssneiðaræ, skornar örþunnt
4 paprikuræmur
Örlítið af vasabimauki
4 blaðlauksræmur, forsoðnar og snögg-
kældar
Mótið grjónin með skeið eða í höndunum
þannig að úr verði fjórir jafnir bitar. Látið ör-
litla doppu af vasabimauki falla á koddann
áður en silungssneiðin er sett ofan á. Bindið
bitann upp með blaðlauknum.
Sítrusmarineraður silungur með salvíu
4 fallegir ferkantaðir silungsbitar með
roði
1 sítróna, safi og börkur
1 msk. sushi-edik
Salt
4 blöð fersk salvía
Svartur pipar
Rifið börkinn af sítrónunni og setjið í skál.
Kreistið safann yfir, blandið edikinu og sax-
aðri salvíu saman við og smakkið til með
salt og pipar. Látið silungsbitana liggja í 20
mín. í blöndunni áður en þeir eru bornir fram.