SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Síða 44

SunnudagsMogginn - 01.08.2010, Síða 44
44 1. ágúst 2010 Gítarleikarinn Ben Keith lést í vikunni eftir að hafa fengið hjartaáfall á meðan hann var í heimsókn hjá tónlistarmanninum Neil Yo- ung á búgarði hans í Norður-Kaliforníu. Keith sem var einna best þekktur fyrir kjöltugítar- leik sinn vann með Young í nærri fjóra ára- tugi. Þeir kynntust fyrst þegar Young fékk Keith til að spila á kjöltugítar á plötunni Harvest sem kom út árið 1972. Á löngum ferli sínum vann Keith með tón- listarfólki á borð við Patsy Cline, Ringo Starr, Emmylou Harris, Todd Rundgren, The Band og Warren Zevon. Hann var 73 ára. Gítarleikarinn Ben Keith fellur frá Ben Keith spilaði á kjöltugítar á plötu Neils Youngs, Harvest, árið 1972. Fyrir tveim árum heyrðust fréttir þess efnis að kvikmynd byggð á ævi Jerrys Garcia, for- sprakka Grateful Dead, væri í pípunum. Myndin sem á að fjalla að stærstum hluta um æsku og síðari ár Garcia sem dó árið 1995 verður byggð á bókinni Dark Star: An Oral Biography On Jerry Garcia eftir rithöf- undinn Robert Greenfield, en hann hefur m.a. skifað bækur um Rollings Stones og Timothy Leary. Eftir að nýr framleiðandi tók við myndinni lítur nú allt út fyrir að tökur á henni fari að hefjast fljótlega. Búið er að ráða leikstjórann Amir Bar-Lev og hefur Topper Lilien verið fenginn til að skrifa hand- ritið. Ekki hefur verið tilkynnt hverjir fari með aðalhlutverkin í myndinni. Kvikmynd byggð á ævi Jerrys Garcia Ekki er búið að ákveða hver leikur Jerry Garcia í væntanlegri kvikmynd. „Því miður, ég get það ekki, ég er ekki með það í möppunni minni.“ Svona svaraði tónlist- armaðurinn Daniel Johnston aðdáanda þegar hann kallaði og bað um lagið „Speeding Motor- cycle“ á tónleikum Johnstons á Hróarskelduhátíðinni árið 2001. Það er varla hægt að lýsa Johnston, sem hefur átt við geðræn vandamál að stríða frá því á unglingsárunum, betur en með þessu svari hans í Danmörku, því til að geta spilað lögin sín þarf hann að vera með þau skrifuð niður á blaðið fyrir framan sig og að þessu sinni var „Speed- ing Motorcycle“ ekki að finna í möpp- unni. Í septembermánuði árið 1983 tók Johnston upp eina af sínum þekktustu plötum á kassettuna sem hann kallaði Hi, How Are You og var það sjötta platan sem hann gaf út á eigin vegum. Johnston hefur sagt í viðtölum að platan hafi verið það erfið í smíðum að hann hafi verið á barmi taugaáfalls og því hafi hann einnig gefið henni titilinn The Unfinished Al- bum. Vínylútgáfa af plötunni var gefin út af Homestead Records árið 1988 og fyrir þremur árum var hún endurútgefin af plötufyrirtæki Johnstons, Eternal Yip Eye Music. Lagasmíðar 15 laga plötunnar eru langt frá því að vera þær flóknustu í brans- anum, en með einföldum gítargripum og djúpum textum um allt á milli himins og jarðar tókst Johnston að búa til plötu með tónlist sem hefur skapað honum nafn sem einn af virtari textasmiðum síðustu áratuga. Það sem Johnston hefur fram yfir aðra tónlistarmenn eru textar hans og lífreynslan sem hann syngur um . Því engin furða að tónlistarmenn eins og David Bowie, Beck og Kurt Cobain heit- inn hafi lýst yfir aðdáun sinni á tónlist hans. Árið 2006 kom út heimild- armyndin The Devil and Daniel Johnston og fjallar hún um ævi sérvitringsins og þá djöfla sem hann hefur þurft að berjarst við. Fyrir þá sem vilja fræðast meira um þennan mikla tónlistarsnilling er hún skylduáhorf. Matthías Árni Ingimarsson Poppklassík Daniel Johnston - Hi, How Are You: The Unfinished Album Hæ, hvernig hefur þú það? Ég hef það bara … J ohn Anthony Gillis fæddist í Detroit í Michigan-ríki í Bandaríkjunum inn í kaþólska fjölskyldu en faðir hans var húsvörður fyrir erkibiskupdæmi Detroit og mamma hans var ritari kardínálans. Það var því ekki fjarri drengnum sem heimurinn átti eftir að kynnast sem Jack White, að ætla sér að verða prestur. Það var hins vegar eftir grunnskóla þegar ákveða átti næstu skref í menntagöngunni sem Jack hafði fengið nýjan magnara í svefn- herbergið sitt en mátti ekki taka hann með í prestaskóla. Þá hætti hann við prestaskólann. Seinna hóf Jack sinn eigin bólstrunarrekstur eftir þriggja ára starfsnám hjá bólstrara og kall- aði fyrirtækið sitt Third Man Upholstery með slagorðið „Your Furniture’s Not Dead“ með litaþema svarts og guls, með svörtum og gulum bíl og fötum við. Jack fékk hins vegar ávítur í rekstrinum fyrir að vera ekki fagmannlegur en allir reikningar voru gerðir út með vatnslitum og innan í húsgögnunum mátti finna ljóð. Jack spilaði sem Jack Gillis fyrir nokkrar hljómsveitir sem gítarleikari og trymbill upp úr 1990 en árið 1996 kynntist hann Meg White sem hann giftist og tók upp nafn hennar en áhuga vakti að hann nefndi hana alltaf systur sína í viðtölum og seinna eftir skilnað þeirra var hún svo heiðursmær í brullaupi hans (árið 2005) við breska módelið Karen Elson sem hann er enn með í dag. Meg fór að læra á trommur um ári eftir að hafa kynnst Jack en hann sagði að þegar hann byrjaði að spila með henni á trommur bara til gamans „þá fannst mér það uppörvandi og endurnýj- andi“ en upp úr því var hljómsveitin The White Stripes stofnuð þar sem hjónin sem sögðust systkini tóku stór stökk fram á við. Árið 1999 gáfu þau út plötuna The White Stri- pes og árið eftir De Stijl sem hefur orðið að al- gjörri cult-plötu sem náði nýjum hæðum eftir að frægðarsól hljómsveitarinnar fór að rísa sem hæst. Með plötunni White Blood Cells árið 2001 varð hljómsveitin ein af þeim stóru í heiminum, með hráum bílskúrsrokkhljóm sínum en Jack notar m.a. Digitech Whammy WH-1 til að búa til þá hljóma sem einkenna hljómsveitina. Seven Nation Army er svo vinsælasta smáskífa hennar en lagið kemur síðan fyrir á plötunni Elephant sem kom út árið 2003. Síðan þá hefur hljóm- sveitin sífellt fest sig í sessi sem ein þeirra stærstu í tónlistarheiminum með plötum eins og Get Behind Me Satan og t.d. lögum eins og „Blue Orchid“, „The Denial Twist“ og „My Doorbell“. Hinn sérvitri White Áður fyllti hann húsgögn af ljóðum og reikninga með litríkum vatnslitum. Í dag fyllir hann tónlistarmenn andríki. Hann er ekki besti bólstrarinn eða viðskipta- maðurinn en John Anthony Gillis úr The White Stri- pes, hinn sérvitri Jack White, þekkir andagift. Guðmundur Egill Árnason gea@mbl.is Jack White er smám saman að setja mark sitt á tónlistarsöguna með hverjum smellinum á fætur öðrum. Jack White er einn stofnenda hljómsveitarinnar The Racon- teurs ásamt Brendan Benson, Jack Lawrence og Patrick Keeler en tveir síðastnefndu eru einnig í The Greenhornes. Þeir voru að spila saman á háalofti í Nashville, Tennesse þegar þeir sömdu lag sem „veitti okkur virkilega inn- blástur“. Umrætt lag er „Steady As She Goes“ sem varð strax gífurlega vinsælt lag. Hljómsveitin hefur gefið út tvær vinsælar plötur, Bro- ken Boy Soldiers sem náði hæst öðru sæti í Bretlandi og þriðja sæti í Bandaríkjunum og Consolers of the Lonely sem náði hæst þriðja sæti í Banda- ríkjunum. Hljómsveitin neitar því að vera of- urgrúppa þrátt fyrir fræga meðlimi. Steady As She Goes Tónlist Nýverið höfðaði fyrirsætan Kirsten Kennis mál gegn hljómsveitinni Vampire Weekend, sem hún segir hafa notað ljósmynd af henni í leyfisleysi á umslagi plötunnar Contra. Jafnframt sakar hún sveitina og ljósmynd- arann um að hafa falsað undirskrift hennar. Fer Kennis fram á tvær milljónir dala í skaðabætur. Nú hefur plötuútgáfa hljóm- sveitarinnar, XL, sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að rétt hafi verið staðið að öllum samningum um notkun á myndinni. Var plötuumslags mynd notuð í leyfisleysi? Reuters Vampire Weekend svarar fyrir sig

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.