SunnudagsMogginn - 19.09.2010, Page 35

SunnudagsMogginn - 19.09.2010, Page 35
19. september 2010 35 Ingvar kom að undibúningi nýs hjólagarðs í Skálafelli, sem opnaði í ágústbyrjun en þar hefur jafnframt verið haldin keppni í fjalla- bruni. „Þar er sérstaklega lögð áhersla á að það geti hver sem er komist niður brautina. Sá sem er góður kemst hratt niður en aðrir geta komist niður án þess að setja sig í sér- staka lífshættu.“ Hann segir braut eins og þá í Skálafelli geta opnað íþróttina fyrir almenningi. „Ein- mitt þetta stækkar íþróttina. Fjallabrunið hef- ur verið lokuð íþrótt, þú þarft að hafa nógu mikinn áhuga til að kaupa þér rándýrt hjól og byrja að stunda það á þessum örfáu brautum sem við höfum á Íslandi. Það er ekki hver sem er sem tekur þetta stökk. Skálafell er staður sem þú getur kynnst íþróttinni, prufað og séð hvort þér líki þetta,“ útskýrir hann. Hann segir þá sem standa að hjólagarð- inum í Skálafelli hafa „risastórar hugmyndir“ um svæðið. „Það getur þróast og stækkað með tímanum með fleiri brautum og betri lyftu. Hjólaleiga gæti líka gert mikið fyrir svona svæði,“ segir Ingvar, sem hefur heim- sótt stærsta hjólasvæði í Evrópu, í Les Gets í Frakklandi, og segir það hafa verið magnaða upplifun. Vantar fjármagn Stefnan var að hafa hjólagarðinn í Skálafelli opinn fram eftir hausti en það gekk ekki eftir þó Ingvar og félagar voni að það breytist. „Stólalyftan í Skálafelli þolir ekki álagið við það að láta slökkva á sér og starta aftur eins oft og þarf við flutninga á reiðhjólum,“ segir í tilkynningu starfsfólks Skálafells. „Eini möguleikinn til að geta haldið verkefninu áfram er að veitt sé frekara fjármagn í verk- efnið svo hægt sé að laga þetta. Það liggur ekki fyrir að svo stöddu og því verðum við að taka þá ákvörðun að keyra ekki lyftuna. Ef að- stæður breytast munum við kynna það á heimasíðunni og símsvaranum og á Facebo- ok,“ segir þar ennfremur. Hjólagarður í Skálafelli Ingvar mætti að sjálfsögðu á hjóli í við- talið í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum. „Síðan ég byrjaði í þessu hef ég farið allar mínar ferðir á hjóli og hef gaman af því. Ég sé þetta sem góðan ferðamáta og held mér í formi á saman tíma,“ segir hann en reyndar mætti hann ekki á fjallabruns- hjólinu, heldur á hjóli sem hann festi kaup á í sumar og hentar betur til götuhjólreiða og er sambland af fjalla- hjóli og götuhjóli. Það er með mjóum dekkjum, sem eru rákalaus og mikið er pumpað í en stýrið er þó beint eins og á fjallahjóli og með diskabremsum. Sparnaðarráð og líkamsrækt „Mér finnst þetta miklu skemmtilegra en að keyra á milli staða. Kosturinn við að vera í góðu formi og á góðu hjóli er að maður er fljótur að koma sér milli staða.“ Á veturna er hann síðan á nagla- dekkjum og klæðir sig eftir veðri. „Þetta er einhver besta líkamsrækt sem þú kemst í og er nánast ókeypis. Startgjaldið er hjólið og svo ferðu bara út að hjóla þegar þér sýnist og þarft ekki að stimpla þig inn í líkamsrækt- arstöð.“ Ingvar gefur þeim sem eru að byrja að nota hjól sem samgöngutæki það ráð að gefa sér nógan tíma til ferða- lagsins í fyrstu. Hann bendir þó á að þegar umferð er mikil sé hægt að vera fljótari í ferðum á hjóli en bíl. „Síðustu tvö ár hefur fólk farið að hjóla meira, þá frekar sem sparnaðar- ráð en það hefur alltaf verið þessi tenging milli efnahags og hjólreiða,“ segir hann en útskýrir að það hætti auðvitað ekkert allir að hjóla þó fjár- ráðin aukist. Vantar fleiri hjólastíga Hann myndi þó kjósa að það væri bor- in meiri virðing fyrir hjólreiðafólki í um- ferðinni almennt en finnst viðhorfið til hjólamenningar vera að batna með nýrri borgastjórn. Hann vildi gjarnan að hjólreiða- stígum væri fjölgað, bæði þá sér- stígum og stígum sem liggja samhliða umferðargötum. Hann notar Portland í Oregon-ríki í Bandaríkjunum sem dæmi um vel heppnaða hjólaborg. „Þar tóku borgaryfirvöld markvissa ákvörðun um uppbyggingu hjólreiðastíga og það skil- aði sér í notkun,“ segir hann en sam- kvæmt Wikipediu hjóla 8% íbúa til og frá vinnu, sem er tíu sinnum meira en meðaltalið í Bandaríkjunum. Þykir Port- land vera á meðal hjólreiðavænustu borga í heimi. Á líka götuhjól íþróttarinnar. Hann fékk þessa hugmynd sumarið 2008 og opnaði síðuna í nóvember það ár. „Þetta gengur bara vel, það er stöðugt flæði af myndum og myndböndum og spjallið er ágætlega virkt,“ segir Ingvar, sem ætlar að fá fleiri í lið með sér til að stýra vefnum. Grafísk hönnun er nokkuð sem Ingvar hefur áhuga á að starfa við en þess má geta að hann hannaði nýjan vef Laugarásbíós og setti upp veglegt skólablað Borgarholtsskóla. Ingvar byrjaði líka að taka ljósmyndir skömmu eftir að hann fór á fullt í hjólreiðarnar og hefur því komið sér upp góðu safni af myndum af hjólreiðafólki í keppni og leik eins og sést á meðfylgjandi myndum. Farið úr hnjálið nokkrum sinnum En skyldi Ingvar ekki hafa slasað sig í öllum hama- ganginum á hjólinu? „Ég er búinn að vera heppinn með það, hef ekki brotið mig, frekar lent í einhverju svona,“ segir hann og sýnir skrámaðan handlegg. „Ég hef að vísu farið úr hnjálið nokkrum sinnum ...“ Hann bendir á að víða sé hægt að slasa sig. „Menn slasa sig meira í mörgum öðrum íþróttum. Það góða við fjallabrunið er að þú ræður því algjörlega hversu langt þú gengur. Ef þú ert til dæmis í fótbolta hefurðu ekki stjórn á því hvernig 22 manneskjur spila. Í fjalla- bruninu ertu einn á hjólinu og að keppa við klukkuna og hefur stjórn á því hversu langt þú vilt ganga. Það er alltaf hægt að taka meira í bremsuna og hjóla hæg- ar.“ Samsett mynd sem sýnir stökk á BMX-hjóli. Ljósmynd/Ingvar Ómarsson Fjallabrunskeppni snýst um að komast eins hratt og mögulegt er niður ákveðna braut. Það kemur sér vel í fjallabruni að geta farið upp á topp með skíðalyftu. Ljósmynd/Ingvar Ómarsson ’ Þetta er lítið og nýtt sport og við erum alltaf að berjast fyrir betri aðstöðu. Ingvar Ómarsson sýnir manninn á bak við hjálminn, sem er svo oft á höfði. Morgunblaðið/Ómar Verið að leika sér með hjól í moldinni. Ljósmynd/Ingvar Ómarsson Ljósmynd/Ingvar Ómarsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.