Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Góð heilsa skiptir afar miklu máli, eins og allir sem hafa einhvern tímann misst heilsuna vita. Það er ekki nóg að borða vel og hreyfa sig reglulega heldur þarf líka að huga að andlegu heilsunni. Þó hefur hreyfing og hollt mataræði alltaf töluvert að segja og þeim sem hreyfa sig reglulega líður gjarnan bet- ur í sálartetrinu eftir hressandi æfingu. Andlega hliðin hefur oft áhrif á líkamlega heilsu líka og því má ekki gleyma að iðka og æfa hana líka. Það er tilvalið að nýta sér hjálp fagfólks ef vanda- málið er alvarlegt og til að mynda eru margir góðir sálfræðingar og geðlæknar sem geta aðstoðað. Það er líka hægt að fara á alls kyns sjálfstyrking- arnámskeið eða önnur námskeið sem geta bætt líð- anina. Það er um að gera að prófa allt sem getur virkar því lífið er of stutt til að njóta þess ekki. Lífsgleði Það er mikilvægt að gera sitt besta til að njóta lífsins. Að njóta þess að vera til Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is M ígreni lýsir sér með end- urteknum höfuðverkjaköstum sem standa oftast í nokkra klukkutíma og jafnvel upp í þrjá til fjóra sólarhringa. Þetta er oftast höf- uðverkur sem er öðrum megin í höfðinu og það fylgir honum annaðhvort ógleði og/eða áberandi ljós- og hljóðfælni. Mígreni getur byrjað á hvaða aldri sem er en það er algeng- ast að það byrji á unglings- eða fullorðins- aldri. Svokallað barnamígreni getur horfið þegar kemur fram á fullorðinsár. Mígreni hef- ur alltaf verið til en segja má að síðustu 10 eða 20 árin hafi meðferðarmöguleikar aukist veru- lega og þannig hefur þetta verið meira í um- ræðunni,“ segir Jón Hersir Elíasson, sérfræð- ingur í taugalækningum, sem í sínu starfi hefur unnið töluvert mikið með mígrenisjúk- lingum. Sértæk mígrenilyf Jón Hersir segir þrjá algengustu höfuð- verkjasjúkdómana vera mígreni, spennuhöf- uðverk og lyfjahöfuðverk. Lyfjameðferð við mígreni skiptist í tvennt, annars vegar í lyf sem eru tekin þegar mígreniköstin koma og geta haft áhrif á einkennin. Í öðru lagi er hægt að nota fyrirbyggjandi lyf sem eru tekin alla daga til að fækka mígreniköstum. Flest- um dugar að taka bólgueyðandi lyf eða para- cetamol við mígreniköstum en í sumum til- fellum dugar það ekki og þá þarf að grípa til sértækra mígrenilyfja. Þau kallast triptan-lyf eins og til dæmis súmatriptan en til eru fimm gerðir af sérhæfðum mígrenilyfjum á Íslandi. Jón Hersir segir mikilvægt fyrir þá sem taka höfuðverkjalyf að nota ekki lyf við mí- greniköstum oftar en tvo daga í viku að jafn- aði því annars geta lyfin farið að valda svo- kölluðum lyfjahöfuðverk. Ef mígreniköstin eru tíð, þrjú eða fleiri í mánuði, eru fyr- irbyggjandi lyf notuð við þeim. Algengara hjá konum „Mígreni liggur oft í fjölskyldum og algengt að þeir sem eru með mígreni eigi foreldra, systkini eða börn með mígreni. Í erlendum rannsóknum er algengi mígrenis um 6% hjá körlum og 18% hjá konum. Það eru vísbend- ingar um að þetta sé svipað hér á landi. Mí- greni er jafnalgengt hjá kynjunum upp að 12 ára aldri, eftir það er mígreni þrisvar til fjór- um sinnum algengara hjá konum og líklegast að það tengist að einhverju leyti kvenhorm- ónum eins og estrógeni. Annað er að það er algengt að aukið stress og álag geti fjölgað mígreniköstum,“ segir Jón Hersir. Almennt segir Jón Hersir að ekki sé veru- legur munur á milli árstíma hjá mígrenisjúk- lingum. Þó séu þeir sem séu næmir fyrir birtu og fái mígreniköst í birtu verri á sumrin og eins geti köstin aukist í mánuðum eins og des- ember með auknu álagi. Mataræðið getur skipt máli „Mígreni er algengur sjúkdómur sem getur verið mjög slæmur og veldur fjarvistum frá námi og starfi enda geta þetta verið mjög svæsnir höfuðverkir. Það er mikilvægt fyrir flesta með mígreni að sofa og borða reglulega og takmarka álag eins og hægt er. Einnig þarf að fara í gegnum mataræðið því ýmsar matartegundir geta komið af stað mígreni- köstum og þannig getur lífsstíllinn skipt máli,“ segir Jón Hersir. Algengir höfuðverkjasjúkdómar Morgunblaðið/Heiddi Slæmur höfuðverkur Jón Hersir segir að aukið stress og álag geti fjölgað mígreniköstum. Mígreni er algengur sjúkdómur sem herjar mun meira á konur. Meðferðarúrræðum hefur fjölgað síðastliðin ár og umræða um sjúkdóminn um leið orðið meiri. »Mígreni er jafnalgengt hjá kynjunum upp að 12 ára aldri, eftir það er mígreni þrisvar til fjórum sinnum al- gengara hjá konum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.