Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 35
» Á mataræðis-átaksnám-skeiði er ákveðnum mat- seðlum fylgt og eru þeir settir upp þannig að konurnar geti haldið áfram að fylgja þeim að námskeiði loknu. C urves líkamsræktarstöð hefur nú flutt í nýtt og stærra húsnæði í Mjódd. Stöðin er í sama húsnæði og meðferðar- og snyrtistofur þannig að viðskiptavinir stöðvarinnar geta gert vel við sig að lokinni heilsurækt. Sérhönnuð tæki fyrir konur Curves kerfið er bandarískt og byggist upp á tækjahring með pöllum en tækin eru sérhönnuð fyrir konur og eru mjög einföld í notkun. Aðeins tekur 30 mínútur að fara hringinn og einkaþjálfarar eru ætíð til staðar í æfingasalnum til að aðstoða þá sem þurfa. Líkamsræktin hentar konum á öllum aldri hvort sem þær vilja styrkja sig eða léttast en reknar eru 10.000 Curves líkamsræktar- stöðvar víða um heim. Mataræðis-átaksnámskeið „Í janúar hefst sérstakt sex vikna Curves mataræðis-átaksnámskeið hjá okkur. Nám- skeiðið er haldið árlega en hefur nú verið vandlega yfirfarið og breytt frá því sem áður var. Það miðar að því að þátttakendur borði til að grennast. Fylgt er ákveðnum matseðl- um sem nú hafa verið gerðir bæði ódýrari og aðgengilegri og settir upp þannig að kon- urnar geti haldið áfram að fylgja þeim að námskeiði loknu. Þá hittist hópurinn einu sinni í viku þar sem er spjallað og farið yfir árangur vikunnar og næsta vika rædd. Einn- ig eru konurnar fitumældar og svo æfa þær hér samhliða þessu þrisvar til sex sinnum í viku. Sú sem stjórnar námskeiðinu er líka með opinn síma þangað sem konurnar geta hringt og leitað ráða. Þetta námskeið hefur reynst mjög vel frá fyrsta degi og margar konur hafa tekið þátt í því,“ segir Ólafur Víðir Ólafsson hjá Curves líkamsræktarstöð. Öndunaræfingar og hugleiðsla Kundalini jóga er nú einnig kennt í stöð- inni en þar er fléttað saman líkamlegum æf- ingum, öndunaræfingum og hugleiðslu. Ástundunin heldur líkamanum í formi og þjálfar hugann, eykur súrefnisupptöku og blóðflæði, styrkir innkirtlakerfið og tauga- kerfið en dregur jafnframt úr framleiðslu á streituhormónum. Kundalini eru aldagömul vísindi sem gengið hafa í arf frá háþróuðum jógum sem kortlögðu líkamann og bentu á leiðir til að koma jafnvægi á hið innra, hækka orkutíðni og vitund. Hver tími er helgaður einhverjum ákveðnum þætti líkams- starfseminnar. Þessi æfingasett eru kölluð krýur og eru sumar sérstaklega fyrir melt- ingina, aðrar fyrir lungun, innkirtlastarfsem- ina eða nýrun og svo mætti lengi telja. Kun- dalini hentar allri líkamsgetu og fólki á öllum aldri. maria@mbl.is Mataræðis- átaksnámskeið Bætt aðstaða Curves líkamsræktarstöðin hefur nú flutt sig um set í rýmra húsnæði með stærri tækjasal. MORGUNBLAÐIÐ | 35 Hólmfríður Magnúsdóttir atvinnumaður og landsliðskona í knattspyrnu mælir með NOW FJÖLBREITT ÚRVAL AF LÍFRÆNUM VÖRUM FRÁ HIMNESKRI HOLLUSTU NÝTT ÁR, NÝ OG BETRI LÍÐAN … BYGGÐU ÞIG UPP! Úrval af vítamínum og bætiefnum. Fæst í matvöruverslunum um land allt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.