Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 40
40 | MORGUNBLAÐIÐ Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Á þessum árstíma er jafnan mikið að gera í helstu líkams- ræktarstöðvunum enda ansi margir sem vilja byrja árið með krafti. Í Baðhúsinu er boðið upp á Gravity-tíma sem eru lokaðir styrktar- þjálfunartímar sem ku vera mjög vin- sælir. Linda Pétursdóttir, eigandi Bað- hússins, segir Gravity-námskeiðin hafa reynst mjög vel þar sem þar vinni kon- ur með sína eigin þyngd. „Það eru not- aðir sérstakir bekkir og við erum bara með tíu bekki þannig að hver kona fær mikla athygli frá kennaranum. Það er legið í bekknum og unnið með sína eig- in þyngd,“ segir Linda og tekur fram að æfingarnar séu einmitt góðar fyrir konur sem hafa ekki stundað líkams- rækt lengi því það er hægt að stjórna því hve erfið æfingin er eftir hæðinni á bekknum. „Fyrir þá sem hafa ekki stundað líkamsrækt lengi þá eru æf- ingarnar mjög góðar fyrir styrkingu. Þetta er aðallega styrking en getur verið mjög erfitt líka. Þess vegna henta æfingarnar líka fyrir fólk sem er í mjög góðri þjálfun og því breiður hóp- ur sem sækir tímana.“ Bara 45 mínútna tímar Gravity námskeiðin eru lokuð fjög- urra vikna námskeið en hægt er að koma annað hvort tvisvar eða þrisvar sinnum í viku. „Við bjóðum upp á tíma á morgnana, í hádeginu, um miðjan dag og á kvöldin,“ segir Linda. „Það góða við Gravity-tímana er að þeir eru bara í 45 mínútur. Þetta er því mjög gott í nútímasam- félagi þar sem allir eru að flýta sér. Fyrir þær sem hafa lengri tíma þá er gott að taka smá brennslu í 10-20 mínútur fyrir eða eftir tímann,“ segir Linda og bætir við að öll námskeið hjá Baðhúsinu byrji 11. janúar. „Það eru ákveðin námskeið sem eru alltaf vinsæl en ég finn að eftir að kreppan skall á þá eru opin kort vinsælli en lokuð námskeið. Fólk kaupir því öðru- vísi kort og einblínir frekar á hag- stæðasta verðið og bindur sig þá í nokkra mánuði. Það hefur náttúrlega verið lögð mikil áhersla á það í fjöl- miðlum að fólk væri að huga að and- legu og líkamlegu hliðinni. Fólk sem var með kort fyrir fór að nýta þau bet- ur og svo sér maður líka fullt af nýjum andlitum sem er frábært.“ Trommusláttur og afródans Linda talar um að í Baðhúsinu sé lögð áhersla á fjölbreytta stundaskrá þar sem konur geti valið tíma við sitt hæfi. „Í haust vorum við með um 100 tíma í hverri viku og konurnar sem kaupa ódýrari kortin hafa því í raun mesta valið. Við erum til dæmis með æðislega afrótíma þar sem er lifandi trommusláttur og mæðgur sem dansa. Þetta er meiri háttar æfing og það rennur svitinn af fólki. Við erum líka að byrja með meðgöngujóga sem á eflaust eftir að slá í gegn og auk þess erum við með tíma sem heita Móðir og barn. Við höfum verið með þetta nám- skeið annars slagið og það hefur alltaf verið vinsælt. Í tímunum koma mæð- ur með nýfædd börn sín með sér í tím- ann. Þetta er létt styrktarleikfimi þar sem börnin eru notuð sem lóðin,“ seg- ir Linda og bætir við að lokum að nú hafi konur enga afsökun til að hreyfa sig ekki þar sem komin er ný og glæsileg barnagæsla í Baðhúsið. Góðar styrktaræfingar fyrir konur Morgunblaðið/Heiddi Linda Pétursdóttir: „Það eru ákveðin námskeið sem eru alltaf vinsæl en ég finn að eftir að kreppan skall á þá eru opin kort vinsælli en námskeið. Fólk kaupir því öðruvísi kort og einblínir frekar á hagstæðasta verðið.“ Á Gravity-námskeiðum í Baðhúsinu getur hver kona stjórnað því hve erf- ið æfingin er þar sem hver og einn vinnur með sína eigin þyngd. Það eru mest tíu manns saman í tíma og kennarinn getur því einbeitt sér að hverj- um og einum nemanda. » Í tímunum koma mæður með nýfædd börn sín með sér í tím- ann. Þetta er létt styrkt- arleikfimi þar sem börn- in eru notuð sem lóðin. Vani og venjur eru sennilega það sem erfiðast er að breyta þegar fólk ákveður að breyta lífi sínu. Flestir hafa vanið sig á allt mögulegt í gegnum ævina og sérstaklega á það við um alls kyns mataræði. Okkur líður betur þegar við vitum hverju við má búast og jafnvel þótt mat- urinn sé ekki það spennandi þá vit- um við að minnsta kosti hvað við er- um að borða. Oft er það einmitt það sem er svo ógnvekjandi við að breyta mataræði sínu, þessi óvissa um hvað eigi að elda og hvað eigi að borða. Slæmir matarsiðir Stór hluti af því að borða hollan mat er því að fylgjast vel með hvað er verið að borða. Til að breytingin verði varanleg er líka gott að byrja hægt og rólega og þá má til dæmis byrja á því að borða eins og venju- lega, en fylgjast vel með hve mikið er borðað. Þannig er gott að halda matardagbók og skrifa niður allt sem er borðað og drukkið, hvort sem það er einn hamborgari eða ein hneta. Það eru margir sem átta sig fyrst á því hve mikið þeir borða þegar þeir skrifa allt niður í slíka dagbók. Þannig er líka auðvelt að sjá slæma matarsiði sem virtust kannski ekki svo slæmir fyrr en þeir sjást svart á hvítu. Þegar aug- ljóst er að einhverra breytinga er þörf er oft auðveldara að taka næsta skref. Nýjar lausnir Þegar verið er að breyta um mataræði mun smekkurinn smátt og smátt breytast með og til að mynda munu langanir í alls kyns óhollustu hverfa ef passað er upp á að borða reglulega. Ein af helstu áskorununum við að borða hollt er að finna lausnir sem koma í staðinn fyrir mat sem áður var stór hluti af mataræðinu. Hér eru nokkrar til- lögur: Í stað þess að nota smjör á brauð eða hrökkbrauð er tilvalið að nota þunnt lag af sýrðum rjóma. Mun- urinn er ekki mikill og ætti að venj- Góðar breytingar gerast hægt MFM MIÐSTÖÐIN Meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskana Borgarúni 3, 105 Rvk, sími 568 3868 www.matarfikn.is Esther Helga Guðmundsdóttir B.M., M.Sc. (nemi) Átt þú í vanda með mat/sykur og/eða þyngd? Vilt þú finna varanlega lausn? Opnir fræðslufyrirlestrar: Þriðjudagana 5. og 19. jan. kl. 20.00 í Borgartúni 3 Næstu meðferðanámskeið hefjast 15.-17. og 29.-31. janúar. Endurkomufólk boðið sérstaklega velkomið. Upplýsingar og skráning í síma 568 3868 eða sendið póst á matarfikn@matarfikn.is Nýtt: Námskeið fyrir unglinga sem eiga í vanda með mat og þyngd Einstaklingsmiðuð meðferð hjá Leiðarljósi innifelur: · Fræðslu um offitu, matarfíkn og átraskanir; orsakir og afleiðingar. · Ráðgjöf og kynningu á leiðum til lausna, m.a. 12 spora bataleiðinni. · Meðferð og stuðning í 8 manna meðferðahópum og einstaklingsviðtölum. · Leiðbeiningu um breytt mataræði og stuðning við fráhald. · Matreiðslunámskeið; lært að elda fyrir nýjan lífstíl. Leiðarljós, meðferðahús Við lýsum þér leið Umsagnir skjólstæðinga hjá Leiðarljósi: “Það sem mér hefur fundist best við meðferðina er jákvæðnin og fagmennska þar sem nálgunin er ávallt að styðja einstaklinginn í því að ná árangri á öllum sviðum” “Hvar á að byrja. Betri heilsa, betri andleg líðan, hef léttst í fyrsta skipti án þess að vera í þráhyggju. Betri stjórn á lífi mínu”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.