Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Þ að getur verið erfitt að finna líkams- rækt sem viðkomandi hefur gaman af þótt ljóst sé að margt er í boði. Mar- grét Erla Maack útvarpskona hefur þó fundið heilsurækt sem hún hefur gaman af því hún kennir bæði magadans og Bollywood í Kramhúsinu. „Ég þarf því mjög lítið að pæla í því að halda mér í formi því það er vinnan mín og þetta er heilsurækt sem ég hef gaman af. Ég get ekki farið á hlaupabrettið því ég verð líka að gera eitthvað með höfðinu, eða eins og móður- bróðir minn segir: Maður verður ekki bara grannur á kroppinn ef maður hleypur, maður verður að gera eitthvað fyrir höfuðið líka.“ Er stöðugt að Margrét hefur kennt magadans í nokkur ár en hún kennir magadans tvisvar í viku og Bollywood tvisvar í viku, hvort tveggja í einn og hálfan tíma í senn. „Svo er ég allar helgar að kenna í gæsapartíum eða troða upp þannig að ég er stöðugt að. Ef ég er svo ekki að dansa þá er ég að hlusta á tónlistina heima hjá mér, semja dansa og fá hugmyndir þannig að þetta er mjög stöðugt og skemmtilegt,“ segir Mar- grét og hlær. „Þetta er líka mjög góð brennsla en maður tekur jafnan ekki eftir því þar sem maður er að læra tæknina og svo fattar maður ekki fyrr en maður leggst niður til að teygja á eftir að maður er alveg löðrandi sveittur. Tón- listin er þannig að maður kemst ekkert upp með að gera þetta rólega því þetta kveikir svo í manni.“ Gott fyrir bakið Margrét byrjaði upphaflega í magadansi samkvæmt læknisráði því hún var bakveik. „Síðan þá hef ég ekki hætt að dansa. Með magadansinum er allur efri líkaminn styrktur sem og allt stoðkerfið og maður fer að bera sig öðruvísi. Um leið og maður byrjar í dansi verð- ur maður ósjálfrátt betri í baki þannig að þetta lagar ótrúlega mikið. Til að mynda er hægt að dansa af sér túrverki. Vinkona mín gerði líka dansæfingu í gegnum hríðar og náði þannig að halda sársaukanum niðri. Þetta er því alvöru líkamsrækt fyrir konur,“ segir Margrét og tek- ur fram að svo sé sérstaklega gaman að mæta í magadans eftir jólin. „Aðrir dansarar mæta í tíma eftir jólahátíðina og hafa áhyggjur af því að hafa fitnað en í magadansinum er það mikil guðsgjöf að hafa eitthvað að hrista. Ég var í ballett í mörg ár þar sem var ekki í boði að vera svona í laginu en í magadansi er öllum líkömum fagnað. Þetta er því líka mjög styrkjandi fyrir sjálfstraustið.“ Guðsgjöf að hafa eitthvað til að hrista Morgunblaðið/Golli Margrét Erla Maack: „Um leið og maður byrjar í dansi þá verður maður ósjálfrátt betri í baki.“ Magadans Margrét Erla kennir magadans nokkrum sinnum í viku og segir það vera guðsgjöf að hafa eitthvað til að hrista. Margrét Erla Maack segir að öll- um líkömum sé fagnað í maga- dansi en hún hefur kennt maga- dans í Kramhúsinu í nokkur ár. Hún segir dansinn vera mjög skemmtilegan auk þess sem brennslan sé mikil. Langar þig að breyta lífsvenjum þínum og bæta heilsu en veist ekki hvar þú átt að byrja? Borgartúni 24  Hæðasmára 6  Hafnarborg  s: 58 58 700  www.madurlifandi.is Maður Lifandi kynnir ný lífsstílsnámskeið 6 vikna þjálfun í bættum lífsvenjum með áherslu á fræðslu um heilsusamlega næringu og hugarfar Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.madurlifandi.is Námskeiðin eru undir handleiðslu Ingibjargar Stefánsdóttur, jógakennara, markþjálfa og heilsuráðgjafa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.