Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25 Ís er ljúffengur og gott að nota hann í eftirrétti eða eiga í frystinum til að gæða sér á eftir kvöldmatinn. Ísinn þarf ekki að vera fullur af rjóma. Einnig má búa til frískandi ís úr jógúrt og hvers kyns frosnum ávöxtum. Hann má síðan bera fram með heitri eða kaldri ávaxtasósu. Best er að taka ísinn frosinn úr forminu og skera í sneiðar að vild en geyma hann síðan vandlega innpakkaðan eða í boxi. Hindberjaís 50 g flórsykur 300 g frosin hindber 4 msk. hunang 500 g hrein jógúrt 75 g möndlur Aðferð: Byrjið á því að klæða langt form með plastfilmu. Sáldrið flórsykrinum yfir berin í skál og bætið hunanginu saman við. Hrærið vel saman og blandið jógúrtið og möndlurnar saman við. Hellið blöndunni í formið og setjið plastfilmu yfir. Setjið í frystinn og hafið þar yfir nótt, skerið síðan niður og skreytið hverja sneið með hindberjum, ferskum eða frosnum. Það er líka um að gera að prófa sig áfram með aðra frosna ávexti eins og blönduð ber, ananas eða papaja. Einn- ig er gott að setja ferska ávexti saman við til að gera ísinn enn bragðmeiri. Ljúffengur Hægt er að búa til léttan, hollan og frískandi ís úr frosnum ávöxtum, til dæmis banana, hindberjum, ananas eða papaya. Ljúffengur hindberjaís Það verður að muna að borða vel í dagsins önn og bæta holl- ustu ofan á hvar sem maður getur. Fái maður sér skyr er til dæmis tilvalið að brytja of- an í það banana eða bæta við það nokkrum blá- eða jarðar- berjum. Hrískökur eru góðar en léttar í maga og tilvalið að setja ofan á þær kotasælu og grænmeti eða annað álegg til að þær fylli betur í maga. Þurrkaðir ávextir og hnetur hafa líka mikið að segja og getur munað um eins og hand- fylli af slíku til að sefa sárasta hungrið. Svo er að passa sig að borða vel í hádeginu og ekki sleppa úr miðdegishressing- unni. Til að borða nóg af grænmeti og ávöxtum yfir daginn er góð hugmynd að eiga safapressu til að ná öllum safanum fullum af vítamínum úr þeim. Fátt er betri vítamínsprauta á morgn- ana en gott safaglas og gera má safa úr hinu ólíklegasta hráefni til dæmis selleríi og gulrótum. Prófaðu þig áfram með mismunandi tegundir saman eins og epli og gulrót eða jafnvel rófu og appelsínu. Þetta er líka sniðug leið til að koma grænmeti og ávexti ofan í yngstu kynslóðina og gera spennandi með því að setja í litríkt glas með röri. Vítamínsprauta Tómatsafi er hollur og góður en ávöxt- um og grænmeti má blanda saman í ljúffengan safa. Frískandi safar Gott snarl Hnetur eru góðar til að grípa með sér og líka til að setja út á salöt eða jógúrt. Orka á orku ofan Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til að koma þér af stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar líkamlega og andlega heilsu. Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur 3 öflugir brennslutímar 2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara Vikulegar mælingar Ítarleg næringarráðgjöf Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu Hollustudrykkur eftir hverja æfingu Takmarkaður fjöldi 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. 2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. Ný námskeið hefjast 11. janúar Fyrirlestur 9. janúar Skráning er hafin í síma 444 5090 eða nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is Hilton Reykjavík Nordica Hotel Suðurlandsbraut 2 Sími 444 5090 nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is fyrir konur og karla Sjöfn Sigþórsdóttir hjúkrunarfræðingur og María Kristjánsdóttir lögmaður Námskeiðið er frábær leið til að auka styrk, úthald og hreyfigetu. Við erum betur í stakk búnar að takast á við krefjandi verkefni Ég breytti um LÍFSSTÍL og þú getur það líka. Búinn að missa yfir 20 kíló á tveimur og hálfum mánuði og er enn að léttast Gissur Ísleifsson tölvunarfræðingur Ungbarnanuddnámskeið fyrir þig og barnið þitt Uppl. í síma 896 9653 og á www.heilsusetur.is .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.