Morgunblaðið - 04.01.2010, Síða 22
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
M
argir byrjuðu þegar fyrir jól að
skipuleggja átakið mikla sem
á að hefjast núna í janúar
þegar jólakílóunum hefur ver-
ið bætt á. Það er að sjálfsögðu gott að
hugsa um að bæta sig en um leið er mikil-
vægt að bíða ekki fram yfir hátíðir eða
stórveislur til að breyta um lífsstíl. Best er
að standa upp og byrja strax. Allt er gott í
hófi og allt sem kallast megrun ætti hrein-
lega að strika úr orðaforðanum okkar.
Heldur ætti að horfa á breyttan lífstíl og
ákveða að byrja strax á breytingum. Það
þarf ekki róttækar breytingar, bara taka
eitt skref í einu því margt smátt gerir jú
eitt stórt! Við höfum flest heyrt margoft
hvað virkar og hvað ekki til að bæta heil-
brigði okkar en samt virðumst við sjaldan
fara eftir því,“ segir Elísabet Tanía Smára-
dóttir, eigandi heilsuræktarinnar Stúdíó
Fitt ehf.
Brennandi áhugi á líkamsrækt
Elísabet Tanía hefur lengi haft brenn-
andi áhuga á líkamsrækt og næringu og
segist án efa munu halda áfram að bæta
við sig aukinni þekkingu. Hún hefur nú
þegar hlotið réttindi sem Fitness Inst-
ruktor frá Instruktorskolen í Danmörku og
er auk þess bæði Boot Camp og Fit Pilates
þjálfari. Elísabet Tanía hefur stundað
íþróttir síðan hún var barn en kynntist lík-
amsrækt 17 ára gömul. Síðan þá hafði hana
langað að eiga sína eigin líkamsræktarstöð
og rættist sá draumur í ársbyrjun 2009.
„Ég lauk námi í viðskiptafræði í Danmörku
árið 2008 og flutti heim það sumar. Þá fékk
ég vinnu en missti hana aftur um haustið
svo og Ásdís, sem vann með mér, og er
menntuð þolfimi- og fit-pilates kennari. Við
höfðum mikið talað um að langa að opna
eigin stöð og ákváðum á þessum tíma-
punkti að slá til og reyna að finna húsnæði.
Það gekk vonum framar því við fundum
húsnæðið fyrir jólin og eyddum síðan
tveimur mánuðum í að taka það í gegn með
ómetanlegri hjálp vina og vandamanna. Við
rákum síðan stöðina saman þar til nú fyrir
skömmu að ég tók alfarið við rekstrinum,“
segir Elísabet Tanía.
Stirðir og stressaðir karlmenn
Segja má að Stúdíó Fitt sé hverfisstöð
þó fólk sé nú farið að koma víða að til að
sækja ákveðna tíma. Ýmiss konar tímar
eru í boði í stöðinni, Fit Pilates, Boot
Camp – G.I. Jane, Hatha Yoga, Meðgöngu
Fit Pilates, Mömmu Fit Pilates og Yoga
fyrir börn. Einnig er hægt að koma í nudd
og framundan er að setja upp tækjasal. El-
ísabet Tanía segir konur vera í meirihluta
viðskiptavina en framundan er sérstakt Fit
Pilates námskeið fyrir karlmenn og jóga
fyrir stirða og stressaða karlmenn sem hún
segir að muni eflaust laða karlana betur að.
Þó sé misskilningur að jógatímar séu ein-
göngu fyrir konur þó svo virðist vera á
yfirborðinu.
Engin kvöð
„Það er svo margt hægt að þylja upp en
þetta er það mikilvægasta að mínu mati,“
segir Elísabet Tanía sem gefur hér nokkur
góð ráð fyrir þá sem vilja taka upp breytt-
an lífsstíl á nýju ári. „Munið að hafa gaman
af breytingunum og hugsa jákvætt til
þeirra. Um leið og þetta verður of mikil
kvöð eru meiri líkur á að þið missið sjónar
á markmiðum, árangrinum og gefist upp.
Þá verður alltaf erfiðara og erfiðara að
koma sér stað því þér finnst þú hafa brugð-
ist sjálfum þér. Ef þú byrjar daginn vel
með staðgóðum og hollum morgunmat,
heldur svo brennslunni gangandi allan dag-
inn með litlum máltíðum á ca þriggja tíma
fresti og færð hreyfingu þá þarftu engan
veginn að sjá eftir jólamatnum, jólaglögg-
inu eða konfektinu.“
Orðið megrun er strikað út
Morgunblaðið/Golli
Orka Það getur verið gott að grípa í jógurthristing um miðj-
an dag eða á milli mála til að seðja sárasta hungrið.
Nóg af vatni Það er æskilegt að drekka nóg af vatni dag-
lega, 1,5 til 2 l af vatni yfir daginn og á meðan æft er.
Byrjun nýs árs boðar bót og
betrun þegar margir ætla sér
að rífa sig upp úr jólasleninu,
borða bara hollt og hreyfa sig af
krafti. Þá er ráðlegt að hafa í
huga að góðir hlutir gerast
hægt og rifja upp það sem við
vitum öll en gleymum oft.
»Elísabet Tanía segir
að allt sé gott í hófi og
að allt það sem kallist
megrun ætti hreinlega að
strika úr orðaforðanum.
Mun betra sé að horfa á
breyttan lífstíl og ákveða
að byrja strax á breyt-
ingum í litlum skrefum.
Orkumikil Elísabet Tanía hefur lengi haft áhuga á líkamsrækt og rekur í dag sína eigin líkamsræktarstöð.
22 | MORGUNBLAÐIÐ
1. Hreyfðu þig
Bættu inn allri hreyfingu sem þú getur,
allt leggst saman og stutt hreyfing er
betri en engin. Ef dagurinn er fullbókaður
þá er fátt notalegra en að vakna örlítið
fyrr, hreyfa sig og koma púlsinum af
stað. Í staðinn mun orkan margfaldast
fyrir verkefni dagsins.
2. Borðaðu reglulega
Það er hættulegast þegar við leyfum
okkur að verða of svöng. Þá fellur blóð-
sykurinn og við náum okkur í næsta bita
sem er því miður oft ekki sá hollasti. Frá-
bært er að ná fimm til sex máltíðum á
dag og hafa þær minni í staðinn! Borð-
aðu staðgóðan morgunmat sem sam-
anstendur af kolvetnum, próteini og fitu,
svo og góðan hádegis- og kvöldmat.
Hafðu tilbúið snarl í töskunni eða bílnum
ef þú ert mikið á ferðinni. Það að hafa til
dæmis ávexti, hnetur eða „smoothie“ í
töskunni getur haldið blóðsykrinum í
jafnvægi og bjargað þér frá óhollum
skyndibita. Hafðu mataræðið fjölbreytt
og úr öllum fæðuflokkum. Próteinríkt
fæði ásamt nóg af hollum kolvetnum,
hollum fitum með miklu magni af græn-
meti og ávöxtum er ákjósanlegt. Forð-
astu helst hvítan sykur, hvítt hveiti, feitt
kjöt, mikið unnar matvörur, gos og sæl-
gæti.
3. Drekktu mikið vatn
Þetta verður ekki of oft minnst á enda
mjög mikilvægt. Það er nauðsynlegt að
minna sig á þetta stanslaust yfir daginn.
Drekka vatn í staðinn fyrir sykraða drykki
og fá sér allavega eitt glas fyrir hverja
máltíð. Æskilegt er að drekka 1,5 til 2 l á
dag en þetta er þó breytilegt eftir stærð,
kyni, hreyfingu og fleiru.
4. Ekki ganga út í öfgar
Það er engum hollt að leyfa sér ekkert
og heldur engum hollt að leyfa sér allt
sem hann vill. Nema jú í algeru hófi! Það
vill svo til að flestir sem byrja átakið
(sem hér eftir verður kölluð lífstílsbreyt-
ing) taka allt út sem er að einhverju leyti
óhollt, borða allt of lítið og jafnvel hreyfa
sig aðeins of mikið. Þeir eru yfirleitt fljót-
ir að gefast upp og komast í fyrra horf
og því er heilbrigðara að taka eitt skref í
einu og aðlagast nýju líferni. Finna sér
„staðgöngumat“ fyrir það sem tekið er
úr matarplaninu og finna sér hreyfingu
sem þér þykir skemmtileg. Þannig eykur
þú líkur á að halda áfram og ná betri ár-
angri.
5. Settu þér markmið
Að stefna að markmiði gerir breytt líferni
auðveldara. Það að setja niður á blað
hvað þig langar að gera, hversu mikið og
á hve löngum tíma skýrir leiðina sem
þarf að fara og auðveldara er að fara eft-
ir henni. Það er gott að setja sér tvenns
konar markmið, skammtíma og langtíma.
Skammtímamarkmið nær yfir styttri
tíma en færir þig nær langtímamarkmið-
inu. Það gæti til dæmis verið að ætla að
missa 4 kíló fyrir lok janúar eða ætla sér
að hreyfa sig í meira en 30 mínútur í
senn minnst fimm sinnum í viku. Lang-
tímamarkmiðin geta virst næstum
ómöguleg í dag en er þó gerlegt með
breytingum. Að sjálfsögðu verða þau þó
að vera raunhæft eins og til dæmis að
ætla sér að hlaupa hálft maraþon í
Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst 2010 eða
ætla sér að komast í gömlu gallabux-
urnar á afmælinu sínu í nóvember. Eina
sem þarf að muna er að halda mark-
miðum raunhæfum, mælanlegum og ger-
legum og njóta þess svo að ná þeim.
6. Ekki gefast upp þótt móti blási
Hvort sem þú vilt bæta á þig vöðvum
eða missa fitu þá munu alltaf koma hæð-
ir og lægðir. Það mun stundum ganga
hratt og vel að ná settum árangri árangri
en stundum mun það ganga hægt og
jafnvel mjög hægt. Þá er svo mikilvægt
að vera undir það búin og halda áfram
sama hvað. Þetta hefst á endanum.