Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.01.2010, Qupperneq 33
Margir eyða allri ævinni í leit að hamingju en best er að átta sig sem fyrst á því að ham- ingjan er hugarástand en ekki áfangastaður sem maður kemst á einn daginn. Það mun alltaf eitthvað koma upp á en það er undir hverjum og ein- um komið hvernig hann tekur því. Margir álíta að þegar þetta eða hitt gerist þá verði þeir loksins hamingjusamir en líklegra er að hamingjan komi innan frá. Með því að sættast við sjálfan sig og líf sitt eða breyta því sem hægt er að breyta má ná sátt sem margir myndu eflaust kalla hamingju. MORGUNBLAÐIÐ | 33 Flestir eiga sér ákveðna dagdrauma þar sem þeir láta sig dreyma um allt sem þeir vilja áorka, hvort sem það er að verða framkvæmdastjóri í stóru fyrirtæki, í góðu formi eða jafnvel í betri samskiptum við fjölskylduna. En það er ekki nóg að dreyma og til að ná þessum markmiðum er nauðsynlegt að koma sér af stað og byrja að mennta sig, fara í ræktina eða hringja í fjöl- skylduna. Allt hefst það með einu skrefi og þá er snið- ugt að skipta þessum markmiðum niður í smærri mark- mið, skammtímamarkmið, sem geta komið viðkomandi áleiðis að stóra langtímamarkmiðinu. Þá kemst hann af stað, kemst í gírinn og langtímamarkmiðið virðist raun- hæfur möguleiki. Nokkur skammtímamarkmið Það er þó alltaf mikilvægt að vera undir það búinn að viðkomandi fyllist vonleysi á miðri leið og fari að velta sér upp úr því hve langt er á leiðarenda. Þá verð- ur mikilvægi skammtímamarkmiða enn meira og jafnvel mætti verðlauna fyrir hvert skammtímamark- mið. Það getur haldið við áhuganum á langtímamark- miðinu og þannig virðist það ekki vera eins óyfirstíg- anlegt vandamál. Vissulega getur tekið mislangan tíma að ná lokamarkmiðinu en með því að hafa skamm- tímamarkmið virkar það allt miklu raunsæislegra. Aukið sjálfstraust Hins vegar er ósköp eðililegt að finna fyrir leiða og að missa áhugann eftir smátíma og því mikilvægt að halda sér við efnið, hvað sem það kostar. Það getur kostað einhver fjárútlát að verðlauna sig en það er þó ekki nauðsynlegt því hægt er að finna verðlaun sem kosta lítið sem ekkert. Hvort heldur sem er þá gera verðlaunin það að verkum að viðkomandi hefur gaman af leiðinni að lokatakmarkinu auk þess sem sjálfs- traustið styrkist töluvert þegar hvert markmiðið á fæt- ur öðru næst. svanhvit@mbl.is Árangur Til að ná einstaklega góðum árangri í ræktinni getur verið mikil- vægt að setja sér bæði skammtíma- og langtímamarkmið. Að komast á leiðarenda Það er mjög algengt að fólk gefist upp á markmiðum sín- um eftir mistök. Kannski var borðað of mikið í afmælinu, drukkinn hitaeiningaríkur bjór í vinnupartíinu og svo framvegis. Það er sorglegt að láta slíkt eyðileggja góð áform því staðreyndin er að allir gera mistök einhvern tímann og oftast fleiri en ein og fleiri en tvenn. Það sem aðgreinir sigurvegarana frá okkur hin- um er að þeir standa upp aftur og halda áfram. Aðeins þannig er hægt að ná góðum árangri, með því að halda áfram og gefast aldrei upp sama hvað á gengur. Að gefast upp Það er mikil- vægt að gefast aldrei upp held- ur að halda áfram þótt hindr- anirnar séu margar. Að líða sem sigurvegara Jákvæðni Hamingjan er ekki áfangastaður heldur frekar hugarástand og tilfinning sem kemur og fer. Leitin að hamingjunni ÁRSKORT Í LÍKAMSRÆKT OG SUND Á 31.990 KR. KORTIÐ GILDIR Í LÍKAMSRÆKT OG SUND Á BÁÐUM STÖÐVUM NAUTILUS Í KÓPAVOGI – SUNDLAUG KÓPAVOGS OG ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI VERSÖLUM. Sundlaug Kópavogs / sími 570 0470 Íþróttamiðstöðin Versalir / sími 570 0480 www.nautilus.is Aðeins 2.666 kr. á mánuði. Bjóðum vaxtalausar Visa/Euro-léttgreiðslur Ókeypis prufutími undir leiðsögn þjálfara. Bjóðum öllum að panta ókeypis prufutíma með þjálfara. Frítt í sund eftir tímann. 15 ára aldurstakmark (10. bekkur). AÐEINS 29.990 KR. Á MANN Tvö kort keypt í einu eða aðeins 2.499 kr. á mánuði á mann í 12 mánuði. Bjóðum vaxtalausar Visa/Euro-léttgreiðslur. Tilboðið gildir 2.-20. janúar 2010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.