Morgunblaðið - 16.02.2010, Síða 9

Morgunblaðið - 16.02.2010, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010 Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Neysluvatnshitarar Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar. Við erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Kaplahrauni 7a • Hafnarfirði, Sími 565 3265 • Fax 565 3260 rafhitun@rafhitun.is • www.rifhitun.is Rafhitun www.rita.is Eddufelli 2, sími 557 1730 Bæjarlind 6, sími 554 7030 str. 36-40 og 50-56 1.990 kr. allar gallabuxur á ÚTSÖLU www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Erum að taka upp nýjar vörur Str. 38-56 VERÐHRUN Verslunin hættir rekstri Fyrstir koma fyrstir fá Opið virka daga 13-18 Lokað laugard. ÚTSÖLULOK, VERÐHRUN vera • Laugavegi 49 Sími 552 2020 Ný sending frá Olsen Eftir Nönnu Gunnarsdóttur GRIPIÐ verður til margskonar að- gerða hjá Háskólanum á Akureyri til að mæta 100 milljóna króna niður- skurðarkröfu stjórnvalda. Fram hef- ur komið að kennarar skólans lögðu sjálfir til að laun þeirra yrðu lækkuð um 8,5% en kennsluskylda kennara hefur breyst til samræmis við kennsluskyldu við HÍ, þannig að raunskerðing launa er 5,5%. Rektor segir HA taka á sig meiri niðurskurð en t.d. Háskóli Íslands. „Niðurskurðurinn við HA er í heild 6,6% en við HÍ ekki nema 1,7%, þar sem nemendafjölgun varð umtalsverð og niðurskurðarkrafan því minni,“ segir Stefán B. Sigurðs- son, rektor HA. „Niðurskurðar- krafan var því einna mest hjá HA fyrir árið 2010.“ Launakostnaður 75% af rekstri skólans „Um 30 milljónir af þessum 100 koma fram í beinni launalækkun, um 50 milljónir eru niðurskurður vegna frestunar á rannsóknarmisserum og síðustu 20 milljónirnar eru hagræð- ing, sameining námskeiða og fleira slíkt sem kemur þá niður á minnk- aðri yfirvinnu, óbeinni launalækkun má segja,“ segir Stefán. Fundað var með starfsmönnum strax í byrjun september og þeim gerð grein fyrir niðurskurðarkröf- unni og þeim kynnt að það væri ekki spurning hvort, heldur hvernig skor- ið yrði niður. „Félag háskólakennara við Há- skólann á Akureyri fundaði marg- sinnis með okkur og kom með hug- myndir og svo varð þessi tillaga til og háskólaráð ræddi hana og sam- þykkti, svo samstarfsviljinn var til staðar,“ segir Stefán. Yfirvinna minnkar mikið Kennarar og starfsfólk halda þó unninni yfirvinnu, en hún minnkar mikið, að sögn Stefáns. Um er að ræða kennsluyfirvinnu, þegar menn kenna meira en þeim ber. Föst yfir- vinna hjá starfsfólki var skorin niður um helming og kennsluyfirvinnan minnkar af sjálfu sér vegna hagræð- ingar í kennslu. „Það er hins vegar ljóst að þetta sem við erum að gera 2010 verður ekki endurtekið, það verður að grípa til annarra ráða 2011,“ segir Stefán. Sem dæmi um hagræðingu má nefna að aðferðafræði og tölfræði er kennd í hjúkrunarfræði, við- skiptafræði og auðlindafræði og far- ið var í að skoða hvort ekki mætti samkenna þessar greinar milli námslína. „Á svipuðum nótum mætti kenna saman til dæmis læknanem- um og tannlæknanemum. Með þessu mætti ná fram hagræðingu en yrði niðurskurðurinn meiri kæmi upp sú spurning hvort hægt yrði að kenna allt það sem nú væri í boði“. Stúdentar virðast ánægðir Stefán segir að nokkur reynsla sé komin á slíka samkennslu í fé- lagsvísindum og viðskiptafræði og stúdentar virðist nokkuð sáttir, enda geri þeir sér grein fyrir ástandinu. „Þegar komið er upp á háskólastig er það nemandinn sem er aðalatriðið og hlutverk skólans er að skapa hon- um sem bestar aðstæður til að hann geti sjálfur lært,“ segir Stefán. Laun lækka að tillögu kennaranna sjálfra Skapti Hallgrímsson Niðurskurður Stefán B. Sigurðsson, rektor HA, segir alla hafa tekið hönd- um saman við að mæta niðurskurðarkröfum stjórnvalda. Í HNOTSKURN » Háskólanum á Akureyrier samkvæmt fjárlögum gert að skera niður um 100 milljónir króna í ár. » Meðal aðgerða sem gripiðhefur verið til í því skyni að mæta niðurskurðarkröf- unni er lækkun launa kenn- ara, sameining námskeiða og samkennsla í ákveðnum fög- um. NÝ Skipaskrá og sjómannaalm- anak fyrir árið 2010 er komið út og er bókinni dreift frítt til út- gerða skipa og báta í rekstri, einnig framkvæmda- og útgerð- arstjóra stærri fyrirtækja auk fleiri aðila. Dreifingu á bókinni lauk fyrir áramót, útgefandi er fyrirtækið Árakló slf og er þetta fjórða útgáfa þess. Auglýsingar kosta bókina. Skipaskráin og sjómannaalm- anakið er hefðbundin handbók sjómanna með upplýsingar um: sjávarföll, vita- og sjómerki, veð- ur og sjólag, fjarskipti, öryggis- mál og fleira. Lagakaflinn er á geisladiski sem fylgir bókinni. Í skipaskrá eru öll skip og bátar sem eru á skrá hjá Sigl- ingastofnun, skránni er skipt í tvo hluta, mynda- og textaskrá. Í myndaskrá eru skip og bátar sem eru í rekstri. Í textaskrá eru upp- lýsingar um önnur skip og báta. Á diskinum eru auk lagakafl- ans ýmis kort og eyðublöð, línurit yfir sjávarföll til margra ára á átján stöðum á landinu og meira en þúsund stöðum á jörðinni. Skipaskrá og sjómannaalmanak. Ný Skipaskrá og sjómannaalmanak smáauglýsingar mbl.is BRIMBORG íhugar nú skaðabóta- mál á hendur Reykjavíkurborg, sem og einstaka borgarfulltrúum, í kjöl- far þess að samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytið úr- skurðaði síðast- liðinn fimmtudag að borgin hefði brotið gegn jafn- ræðisreglu. En borgin neitaði fyrirtækinu um að skila lóð sem það hafði fengið á Esjumelum á Kjalarnesi. „Að okkar mati var bara verið að fresta málinu,“ segir Egill Jóhanns- son, forstjóri Brimborgar. Hann tel- ur að borgarfulltrúum hafi verið fyllilega ljóst að synjunin stæðist ekki og því spurning hver ábyrgð þeirra sé. „Við erum að fara yfir og meta skaðann,“ segir hann og áætlar að tjónið nemi tugmilljónum króna. Langan tíma hafi tekið að fá úr- skurðinn og grípa hafi þurft til ým- issa ráðstafana til að halda Brimborg gangandi í kjölfar fjármálahrunsins. Egill segir borginni verða sent innheimtubréf vegna lóðakostnaðar- ins á morgun. „Úrskurður ráðuneyt- isins felur í raun eingöngu í sér til- mæli til borgarinnar þannig að það liggur væntanlega ekki fyrir fyrr en að loknum borgarráðsfundi á fimmtudag hvort borgin fari eftir þeim.“ annaei@mbl.is „Bara verið að fresta málinu“ Egill Jóhannsson Stórfréttir í tölvupósti Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.