Morgunblaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010 SIGRÍÐUR Laufey Einarsdóttir er ósátt við bæjarstjórn Kópa- vogs (Mbl. 28. jan.) Að hennar mati hefur bæjarstjórnin veist að réttindum eldri borg- ara, rýrt lífsgæði og jafnvel dregið úr lífs- líkum þeirra með því að leggja á þá lág- marksgjald (svonefnt barnagjald) í sund- laugar bæjarins. Hvetur hún af því tilefni Ragnheiði Kristínu Guð- mundsdóttur, formann íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs, til að íhuga þau samfélagslegu siðferð- isgildi sem þessi rangláta aðgerð felur í sér. Áður en lengra er haldið er rétt að halda til haga Morgunblaðsgrein Ragnheiðar Kristínar frá 15. janúar sl. um málið, en lækka má þetta 120 kr. lágmarksgjald niður í allt að 29 kr. skiptið með árskorti, sem kostar eldri borgara 7.500 kr. og er þá miðað við fimm heimsóknir í viku. Hafi ég enda skilið þessa ágætu félagskonu eldri borgara hér í Kópavogi rétt gerir hún sér vel grein fyrir að umrædd gjaldtaka fær vart staðið ein og sér undir ávirðingum hennar í garð bæj- arstjórnarinnar. Sigríður Laufey sér í það minnsta ástæðu til að taka sérstaklega fram að málið snúist ekki um gjaldtökuna sem slíka, heldur sé um prinsipp- mál að ræða. Ég get vel skilið óánægju greinar- höfundar. Hver er sáttur, eins og um- horfs er í þjóðfélaginu okkar nú þegar krepp- an sverfur að óvægin og óréttlát? Án þess að ég vilji gera lítið úr stöðu (h)eldri borgara í Kópavogi er mér hins vegar ekki alveg ljóst hvert verið er að fara með þessum skrifum. Er verið að halda því fram af prinsippástæðum, að það standi öll- um öðrum nær en eldri borgurum að axla byrðarnar á erfiðum tím- um? Og ef svo er, hverjum þá? Ungum barnafjölskyldum, ein- stæðum foreldrum eða atvinnulaus- um? Hvernig reiðir samfélagslegum siðferðisgildum okkar af, ef umræð- an fer að snúast um „meting“ af þessu tagi? Þá virðist Sigríður Laufey sann- færð um að árshátíð bæjarstarfs- manna hafi verið felld niður í ár fyrir nirfilshátt eða skort á útsjón- arsemi. Vel hefði mátt halda gleð- skapinn með því einu að draga úr tilkostnaði eða eins og það er orð- að: „Flestir þekkja söguna um naglasúpuna er varð að dýrindis máltíð, viðkomandi til mikillar gleði eftir að hafa yfirstigið nískuna er kom í veg fyrir að gleðjast saman.“ Hér hlýtur einhver misskilningur að vera á ferð eða trúir greinarhöf- undur því í raun, að árshátíð bæj- arfélagsins hafi verið felld niður fyrir skort á útsjónarsemi hjá öllum þeim starfsmönnum bæjarins og bæjarfulltrúum sem komu að þess- ari ákvörðun? Í óbreyttri mynd hefði árshátíðin kostað bæjarsjóð vel á annan tug milljóna kr. Gæti staðreyndin verið sú, að jafnvel naglasúpa væri of dýru verði keypt, með hliðsjón af þeim niðurskurði í mannaráðn- ingum eða þjónustu sem bæj- arfélagið þyrfti ella að ráðast í? Greinarhöfundur lýkur svo máli sínum með þeirri ósk, að Gunnar Birgisson fái að ríkja áfram í Kópa- vogi og segja má að þá fyrst komi eiginlegur tilgangur skrifanna ljós. Óneitanlega hefði þó farið betur á því, að Sigríður Laufey hefði látið sér nægja stuðningsskrif við odd- vitann. Eins og nú háttar til er Gunnari vini mínum enginn greiði gerður með ómálefnalegri gagnrýni á bæjarstjórn Kópavogs. Nánar um naglasúpu Sigríðar Eftir Helgu Guð- rúnu Jónasdóttur »Eins og nú háttar til er Gunnari Birgis- syni enginn greiði gerð- ur með ómálefnalegri gagnrýni á bæjarstjórn Kópavogs. Helga Guðrún Jónasdóttir Greinarhöfundur er stjórnmálafræð- ingur, sjálfstæðiskona og býr í Kópa- vogi. UM EÐA eftir 900 nam land í Skagafirði ágætur maður er Þórð- ur hét, sonur „Bjarnar byrðusmjörs, Hróalds- sonar Hryggs, Bjarna- sonar járnsíðu, Ragn- arssonar Loðbrókar“ eins og Landnáma orðar það. Þórður nam land austan megin í Skagafirði og bjó að Höfða, og er sá Höfði jafnan nefndur Þórðarhöfði. Viðurnefni manna í Landnámu hafa iðulega verið túlkuð á þann hátt, að af þeim mætti draga fram útlit manna, skaphöfn, gáfnafar og andlega eiginleika. Sum þessara nafna vitna líka um hagleik manna, störf og atvinnu. Þannig hygg ég að Björn, faðir Þórðar landnámsmanns í Skagafirði, hafi í Noregi stundað skipasmíðar á 9. öld. Til þess bendir viðurnefni hans í Landnámu; byr- ðusmjör. Að Björn hafi líka hugs- anlega verið kominn af smiðum, bendir líka viðurnefni afa hans til, er Landnáma kallar Björn járnsíðu. Að hann hafi stundað járnsmíði og járn- gerð snemma á 9. öld heima í Noregi er ekki óhugsandi. Ekki er útilokað að Höfða-Þórður hafi einmitt farið til Íslands vegna skipasmíða föður síns, en hvort þarna má e.t.v. finna tengingu við utanferðir manna, Þor- finns Karlsefnis og fleiri síðar, úr Skagafirði til Vesturheims um árið 1000, svo sem vegna kunnáttu heimamanna í Skagafirði í skipa- smíðum og siglingum, skal ósagt lát- ið, en ekki er það óhugsandi, enda var Þorfinnur afkomandi Höfða- Þórðar. Viðurnefnið byrðusmjör Var smjör notað við smíði báta og skipa í Noregi á 9. öld, áður en Ís- land var numið? Til þess bendir forliðurinn byrða í viðurnefninu byrðusmjör. Líklega merkir orðið hér byrðu á bát, þ.e. úr tré, þ.e. síðu á skipi, fremur en ílátið byrðu, sem var kista eða kassi úr tré. Varla var smjör á 9. öld og síðar geymt í slíkum ílátum því ílát af slíku tagi hefðu lekið smjör- inu út. Venja var að geyma smjör í belgjum til forna eins og kæfu. Ég sé því ekki betur en að við- urnefnið „byrðusmjör“ í Landnámu merki smjör sem roðið var utan og innan á borð í byrðingi báta og skipa um leið og þeir voru smíðaðir. Vænt- anlega hefur þetta verið þekkt þar í landi á 9. öld, þ.e. á árunum á milli 800 og 900. Smjörið var sem sé notað á viðinn til að þétta hann gegn leka og seltu. Tjara var notuð á víkingaöld í Noregi á skip og báta, og á árabáta hér á landi frá upphafi landnáms allt fram á 19. og 20. öld, er farið var al- mennt að mála báta hér á landi. Hvenær Norðmenn hófu að bika eða tjarga skip sín í upphafi og hvar þeir kynntust tjörunni fyrst til skipasmíða veit ég ekki. E.t.v. eftir að þeir hófu víkingaferðir til Bret- landseyja og Frakklands um 800. Það er hugsanlegt því tjara var inn- flutt í upphafi til Noregs. Hugs- anlega var sú aðferð að nota heima- gert smjör við skipasmíðar þar í landi eldri og upprunalegri við að þétta viði í skipum og e.t.v. húsum í landi, en notkun tjöru, sem var inn- flutt. Íslenskt smjör notað á möstur danskra skipa Hvergi hef ég þó séð í norskum heimildum né gömlum íslenskum, að smjör hafi verið notað á skipsbyrð- inga, en þó hef ég séð þess getið að danskir skipasmiðir, sem smíðuðu dönsk herskip á Hólminum í Kaup- mannahöfn, hafi roðið möstur á skip- um með íslensku smjöri og að það hafi verið borið reglulega á möstur seglskipanna til varnar seltu og bleytu. Þetta bendir til að skipa- smiðir á 17. og 18. öld hafi þekkt til notkunar smjörs til varnar fúa og seltu í tréskipum. Þetta styður því tilgátu mína um að heimagert smjör hafi hugsanlega fyrr á öldum verið notað við smíði skipa. E.t.v. áður en norrænir sæfarar fóru að nota tjöru. Í Íslendingasögum er aðeins getið um smjör til matar og hæpið að smjör hafi nokkurn tíma verið notað á skip á Íslandi, þar sem alltaf var matarskortur og smjör afar verð- mætt öldum saman. Tólg var hins vegar notuð til að þétta með báta á Íslandi, eins og sést af Sjávarháttum Lúðvíks Kristjáns- sonar, tíðkaðist slíkt fram á fyrri hluta 20. aldar, t.d. við Ísafjarð- ardjúp, hefur sagt mér Tómas Helgason frá Hnífsdal. Hvað segir fornleifafræðin? Aðeins norskir fornleifafræðingar geta hugsanlega svarað spurningu minni um hvort skipasmiðir í Noregi á 9. öld og fyrr notuðu heimaunnið smjör við þéttingu byrðinga á bátum sem þeir smíðuðu. Var smjör notað við skipa- smíðar í Noregi á 9. öld? Eftir Skúla Magnússon »Ég sé því ekki betur en að viðurnefnið „byrðusmjör“ í Land- námu merki smjör sem roðið var utan og innan á borð í byrðingi báta og skipa um leið og þeir voru smíðaðir. Skúli Magnússon Höfundur er sagnfræðingur. Í NÓVEMBER 2008 birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu um meðferð félagsþjón- ustufulltrúa á þroska- heftum og flogaveikum manni og nefndi ég hann Svein og enn er meðferðin á þessum manni umdeilanleg. Þessi maður var vist- aður hjá félagsþjónustu en undi sér ekki og strauk sífellt til for- eldranna. Ástæðan fyrir því var ein- föld. Flogaveikir, sem missa meðvit- und í köstunum, eru með undirliggjandi kvíða og jafnvel ótta um að þeir geti slasast er þeir detta með- vitundarlausir, þess vegna vilja þeir aldrei vera einir, og að einhver heyri til þeirra, fái þeir kast að næturlagi. Þar sem Sveinn er metinn með greind átta ára barns er hann haldinn barnslegum ótta við það að vera einn með ókunnugum. Þess vegna sótti hann svo fast að komast til móðurinnar þar sem hann hafði notið nærveru hennar í köstunum, bæði nótt og dag, því hún vaknaði alltaf ef eitthvert hljóð kom frá hans herbergi. Þetta skilgreindi félagsþjónustan sem alvarlega þráhyggju. Foreldrarnir vildu taka Svein heim, en fengu ekki. Í framhaldi af þessari skilgreiningu fé- lagsþjónustunnar ákvað hún að láta svipta Svein sjálfræði svo hægt væri að fara með hann hvert sem þeim sýndist, eins og hvert annað heimilisdýr. Svipt- ingin var byggð á því að móðirin væri ekki fær um að gefa honum flogaveiki- lyfin, þó hafði hún gefið honum lyfin í tæp 40 ár og lengst af tekið til skammt hvers dags eftir tímasetningu, en nú eru lyfin í sérumbúðum og merkt dag- og tímasetningu svo ekki þarf annað en rétta Sveini skammtinn og horfa á hann taka hann. Báðir foreldrar eru fullfærir um þetta. Sérstaka athygli vekur að móðirin fékk ekki að verja mannorð sitt fyrir dómi, þótt rudda- lega væri að því vegið. Sviptingin breytti engu um hegðan Sveins því hann hélt áfram að strjúka heim. Þá var lögreglunni sigað á hann og hún sótti hann jafnvel inn í íbúð til foreldranna. Þetta ferli hófst í október og lauk í desember með því að lög- reglan handjárnaði Svein, við heimili foreldranna, vegna mótþróa. Eftir að lögreglan gafst upp á því að elta Svein var hann hjá foreldrunum. Þá tók fulltrúi félagsþjónustunnar upp á því að halda flogaveikilyfjunum og krafðist þess að Sveinn kæmi til fulltrúans og tæki lyfin en hann var ófáanlegur til þess. Setti fulltrúinn þá það skilyrði að faðir hans sækti lyfin daglega og stóð þetta ástand alllangan tíma og raskaði mjög tímasetningu töku lyfjanna sem getur haft slæm áhrif á þann floga- veika og reyndar fór það svo að Sveinn fór að fá alvarleg flogaköst sem ollu honum slæmum höfuðáverkum. Um þetta ástand var móðurinni kennt, en var mjög óheiðarlegt. Síðan var Sveinn sendur vestur í Dali. Þótt móðirin væri ekki sátt við heimilið sem hann var vistaður á sætti hún sig við það til bráða- birgða en óskaði eftir því að fundinn yrði staður sem hentaði honum bet- ur. Jafnframt krafðist hún þess að hann fengi að hafa samband við for- eldra sína símleiðis og jafnframt að Sveinn fengi að koma í heimsókn einu sinni í mánuði. Þessu var svarað með því að tilkynna henni að hún væri aðeins móðir Sveins, og ekkert annað, hann væri fullorðinn maður, því ætti hún ekki að skipta sér af honum. Rétt er að geta þess að Sveinn hafði margoft, áður en hann fór í Dalina, beðið móðurina að hjálpa sér að losna frá félagsþjónustunni í áheyrn lögreglu. Á sextugsafmæli móðurinnar bað hún um að Sveinn fengi að koma í af- mælið, því var alfarið hafnað af full- trúa félagsþjónustunnar. Þetta sýnir vel þann valdhroka sem einkennir þennan þjónustufulltrúa og lýsir vel mannfyrirlitningunni. Hinn 10. okt. 2009 féll úr gildi sjálfræðissviptingin frá 10. okt. 2008. Hinn 14. okt. 2009 var Sveinn svo aftur sviptur sjálfræði ótímabundið, sem þýðir ævilangt ef fé- lagsþjónustunni sýnist svo. Móðirin vildi fá að velja verjanda fyrir Svein en fékk ekki. Hún vildi einnig vísa dómn- um til hæstaréttar en fékk ekki. Svona vinnubrögð eiga ekki að geta viðgeng- ist í lýðræðisríki og lögmönnum ekki sæmandi. Allir eiga að hafa tækifæri til að verja rétt sinn og mannorð. Ég er ekki að mótmæla því að Sveinn væri vistaður á þjónustuheim- ili, heldur vinnubrögðunum, sem sýna allgreinilega ofríkisvinnubrögð sem beitt er vegna þess að þroskaheftur aðili og fátækt fólk á í hlut. Það er líka rétt að hafa það í huga að Sveinn á rétt á því að vera heima og fá aðstoð frá fé- lagsþjónustu. Þroskahjálp og önnur félög og fulltrúar, sem telja sig gæta réttar þessa fólks, eru einskis virði í svona tilvikum. Sjálfræðissviptingin á Sveini var algjörlega tilefnislaus. Fé- lagsmálaráðherra hlýtur að geta haft sérstakan fulltrúa sem fólk getur leit- að til í svona tilvikum því hann ber ábyrgð á því að réttur þess sé virtur. Breiðavík á ekki að vera endalaust fyr- irmynd fulltrúa félagsþjónustunnar. Hver er réttur þroskahamlaðra? Eftir Guðvarð Jónsson Guðvarður Jónsson » Þroskahamlaður maður var handjárn- aður fyrir að vilja vera heima hjá foreldrum, sviptur eignarrétti lyfja og dæmt af honum sjálf- ræði. Höfundur er bifreiðastjóri. HÖFUNDUR þess- arar greinar átti nokk- uð endasleppar við- ræður árin 1999 og 2000 við þá Guðmund Víði Guðmundsson og dr. Þorkel Jóhannesson um framangreint ör- nefni á síðum lesbókar Mbl. þ.e. að ég skuldaði þeim báðum svar við þeirra greinum. Reyndar fóru þeir báðir dálítið um víðari völl en ég og ræddu allmikið um þingstað Kjal- arnesþings við Elliðavatn og eru þær umræður að mestu utan við efni míns fyrsta máls og læt ég þær því að mestu liggja milli hluta. Mitt svar snýst um örnefnið Norðlingaholt og er þessi grein- arstúfur aðeins til að benda á að síðbúið svar mitt við greinum þeirra frá árinu 2000 er nú farið á síðu að- sendra greina Mbl.is og þar með skýring á þessu seinlæti ásamt og með rökstuðningi mínum fyrir hinni réttu staðsetningu örnefnisins. Meira: mbl.is/greinar Með góðri kveðju. Norðlingaholt Eftir Einar Birnir Einar Birnir Höfundur er fv. heildsali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.