Morgunblaðið - 16.02.2010, Síða 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
YFIRVÖLD í Mílanó hafa fyrir-
skipað lögreglu að gera fyrirvara-
lausar athuganir á persónuskilríkj-
um fólks í hverfum innflytjenda í því
skyni að hafa uppi á ólöglegum inn-
flytjendum sem þar hafist við.
Tilefnið eru kynþáttaóeirðir í
borginni um helgina í kjölfar þess að
19 ára gamall egypskur piltur, Ha-
med Mamoud El Fayed Adou, var
myrtur af gengi innflytjenda frá
Suður-Ameríku, að því er talið er,
eftir rifrildi um borð í strætisvagni.
Morðið olli gífurlegri reiði í röðum
innflytjenda frá Norður-Afríku sem
gengu berserksgang í Via Padova,
hverfi þar sem er að finna fjölda
verslana og fyrirtækja í eigu fólks
frá Perú, Ekvador og öðrum ríkjum
Rómönsku-Ameríku.
Riccardo de Corato, aðstoðar-
borgarstjóra Mílanó, var brugðið en
hann lýsti ástandinu svo að ofbeldi
hefði breytt borgarhlutanum í „villt
vestur á milli gengja frá Norður-
Afríku og Rómönsku Ameríku“.
Stjórnmálamenn á hægri vængn-
um gripu óeirðirnar á lofti og sögðu
þær til marks um hvernig sú stefna
að opna landið fyrir útlendingum
hefði beðið skipbrot. Meðal þeirra er
Roberto Calderoli, ráðherra
Norðurbandalagsins í stjórninni,
sem boðar aukna hörku í garð ólög-
legra innflytjenda, ellegar geti Ítalir
átt í vændum sama vanda og Frakk-
ar hafa glímt við á síðustu árum, svo
sem í úthverfum Parísar.
Beiti hörku í aðgerðum sínum
Flokksbróðir hans Matteo Salvini
gengur lengra en hann leggur til að
ólöglegir innflytjendur verði gerðir
brottrækir í aðgerðum lögreglu sem
fínkembi hverfin, „hús úr húsi“.
Ignazio La Russa varnarmála-
ráðherra boðar sömuleiðis aukna
hörku. Stjórnvöld muni ekki „gefa
eftir millimetra“ í málinu.
Ljóst þykir að innflytjendamálin
muni fléttast inn í sveitarstjórnar-
kosningar á Ítalíu eftir um mánuð en
þess er jafnframt vænst að mikil gjá
verði í afstöðu hægri- og vinstri-
manna í afstöðunni til þess hvort
herða beri á innflytjendastefnunni
eða halda í horfinu.
De Corato, flokksbróðir Berlu-
sconis forsætisráðherra, áætlar að
um 200.000 löglegir og um 40.000
ólöglegir innflytjendur hafi sest að í
Mílanó á síðustu árum en hann hefur
gefið í skyn að leitast verði við að
sporna gegn straumnum.
„Þessi tilvik sýna skýrt fram á að
aðlögun er aðeins möguleg þegar
tölurnar eru viðunandi, að öðrum
kosti geta þær valdið spennu í sam-
félögum innflytjenda.“
Yfirvöld hafi brugðist
Þessi afstaða er hins vegar um-
deild og segir stjórnmálamaðurinn
Filippo Penati, sem býður sig fram í
Lombardy, héraðinu þar sem Mílanó
er höfuðborg, að síðustu atburðir
sýni að stefna yfirvalda í innflytj-
endamálum hafi ekki borið árangur.
Allt á suðupunkti
Kynþáttaóeirðir í Mílanó um helgina draga athyglina að
undirliggjandi ólgu Stjórnvöld óttast myndun gettóa
ÞEIR sem sækja um dvalarleyfi á Ítalíu þurfa framvegis að fallast á þátt-
töku í punktakerfi þar sem skilyrðislaus krafa er að umsækjendur læri
ítölsku. Fjallað var um málið á vef dagblaðsins Corriere della Sera fyrr í
mánuðinum en þar var haft eftir Roberto Maroni innanríkisráðherra að
umsækjendur fengju aðeins leyfið ef þeir næðu 30 punktum á innan við
tveimur árum frá umsókn. Meðal annarra krafna sem veita punkta er að
umsækjendur þekki stjórnarskrána, hafi skráð sig í heilbrigðiskerfið og
sent börnin sín í ítalska skóla. Gerist umsækjendur brotlegir við lögin eru
punktarnir þurrkaðir út en þeir fá eitt viðbótarár til að uppfylla kröfurnar
að tveimur árum liðnum. Takist það ekki þurfa þeir að yfirgefa landið.
Herða innflytjendalögin
Reuters
Ólga Um 100 ungmenni frá Norður-Afríku skemmdu 17 bifreiðar og fimm verslanir í Mílanó um helgina.
Rabat. AFP. | Samtökin „Hús visk-
unnar“, fjöldahreyfing frjálslyndra í
Marokkó, krefst þess að bann við
sölu áfengis til heimamanna verði
afnumið og sömuleiðis viðurlögin
sem liggja við neyslu þess.
Brot á áfengislögum varðar allt að
sex mánaða fangelsi og sekt upp á
sem svarar allt að 7.730 krónum.
Tvískinnungur þykir hins vegar
ríkja í garð áfengisbannsins, enda
geta heimamenn auðveldlega nálg-
ast áfengi á börum eða í stórmörk-
uðum, líkt og ferðamenn sem mega
drekka að vild í þessu íslamska ríki.
Bannið stjórnarskrárbrot
Rök talsmanna Húss viskunnar
eru einkum þau að bannið brjóti í
bága við stjórnarskrána og þar með
grundvallarréttindi einstaklinga.
Meðal talsmanna þeirra er Kha-
dija Rouissi, forystumaður í nýju
stjórnmálaafli sem útleggst Trú-
verðugleika- og umbótaflokkurinn í
lauslegri þýðingu úr ensku, en hann
telur afnám bannsins snúast um
frelsi einstaklinga til athafna.
Það sjónarmið er umdeilt og brást
Ahmed Raissouni, einn áhrifamesti
klerkur landsins, við málflutn-
ingnum með því að hvetja trúbræð-
ur sína til að sniðganga stórmarkaði
þar sem áfengi er á boðstólum.
Raissouni er nátengdur Lýðræðis-
og þróunarflokknum (PJD), ísl-
ömskum flokki í stjórnarandstöðu,
og hafa flokksbræður hans efnt til
mótmæla fyrir framan nýjar versl-
unarmiðstöðvar til að minna á að
þar sé höndlað með áfengi þvert á
íslamskan lagabókstafinn.
Hafa tekjur af vínframleiðslu
Það er til að auka á tvískinnung-
inn að stjórnvöld heimila fram-
leiðslu áfengis og hafa af henni
tekjur, eða sem svarar 11,3 millj-
örðum króna árið 2006 sem er tals-
verð fjárhæð á mælikvarða heima-
manna.
Þá er talið að 85% áfengisfram-
leiðslunnar – mikill meirihluti víns –
séu seld á heimamarkaði og að
áfengi sé í öðru sæti á eftir tei á
lista yfir neyslu drykkjarvara.
Mjólk er í þriðja sæti.
Vilja afnema
áfengisbann
fyrir innfædda
Frjálslyndir vilja nýja stefnu í Marokkó
Frá Marrakesh Í dagsins önn.
RÚSSNESKI
auðjöfurinn Vla-
dímír Lísin á fyr-
ir salti í grautinn
og gott betur því
á milli áranna
2008 og 2009 juk-
ust eigur hans
um sem svarar
1.430 milljörðum
króna og nema
nú alls 2.422
milljörðum, að því er áætlað er.
Til samanburðar spáði íslenska
fjármálaráðuneytið því 1. október
sl. að verg þjóðarframleiðsla árið
2009 myndi nema 1.473 milljörðum
króna og á Lísin því fyrir þjóðar-
framleiðslu landsins í 20 mánuði.
Auðsöfnunin skilar Lísin, eig-
anda stálfyrirtækisins Novolipetsk
Steel, í efsta sæti listans yfir auð-
ugustu menn Rússlands og veltir
þar með Míkhaíl Prokhorov, eig-
anda fjárfestingarfyrirtækisins
Onexim, úr sessi en eigur hans eru
metnar á 2.299 milljarða króna,
sem gerir hann 483 milljörðum
króna ríkari en árið áður.
Þriðji í röðinni er Roman
Abramovich, eigandi knattspyrnu-
liðsins Chelsea, en kreppuárið 2009
reyndist honum einnig gjöfult þar
sem eigur hans jukust úr 1.790 í
2.190 milljarða króna.
Lísin þykir hæglátur og berst lít-
ið á miðað við auðinn en hann á
meðal annars fjölmiðla í Lipetsk.
Á þjóðarframleiðslu
Íslands í 20 mánuði
Vladímír
Lísin
A
T
A
R
N
A
Hreinlætisvörur fyrir fyrirtæki og stofnanir
Hreinsiefni - íslensk framleiðsla
Pappírs- og sápuskammtarar
Hlífðarfatnaður
Pappír, plast og filmur
Þrifabúnaður
Ræstivagnar og sorpílát
Gólfhreinsivélar
VIKAN burstar og sköfur
Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur
Sími: 510 1200 - www.tandur.is
- Þegar hreinlæti skiptir máli