Morgunblaðið - 16.02.2010, Page 16
16 Daglegt líf ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
Skíðaunnendur komust á toppinn í
liðinni viku eftir töluverða bið þegar
topplyftan í Oddsskarði var opnuð.
Þrátt fyrir litla úrkomu það sem af er
ári hefur umsjónarmanni skíðasvæð-
isins í Oddsskarði tekist með útsjón-
arsemi og elju að koma snjónum á
réttan stað í brekkurnar. Til að hægt
væri að opna topplyftuna var snjó ýtt
í um 40 klukkustundir. Þá er verið að
leggja lokahönd á flóðlýsingu í brekk-
ur efri lyftunnar og mun það auka
notagildi svæðisins.
Mjög góð aðsókn hefur verið í Odds-
skarði og var aukningin frá fyrra ári
um 30% í janúar. Heldur hefur að-
sóknin minnkað í febrúar vegna hlák-
unnar. Dagfinnur Smári Ómarsson,
staðarhaldari í Oddsskarði, telur
heildaraukninguna á þessu ári vera
um 15-20%.
Snjóbyssurnar í Oddsskarði eru til
sölu. Þær voru teknar í notkun vet-
urinn 2007-2008. Skemmst er frá því
að segja að byssurnar voru lítið not-
aðar. Fyrsta veturinn voru þær not-
aðar í þrjá sólarhringa og snjóuðu svo
í kaf, en síðan hafa þær ekki verið
notaðar vegna sparnaðar og í raun
hefur verið nægur snjór á skíðasvæð-
inu, að söng Dagfinns. Þar sem ekki
er útlit fyrir að fé fáist til að koma
byssunum fyrir og framleiða snjó hef-
ur verið ákveðið að selja græjurnar
og nýta söluandvirðið til áframhald-
andi uppbyggingar á skíðasvæðinu,
m.a. til kaupa á snjósöfnunargirð-
ingum.
Dalahöllin er risin á áreyrum Norð-
fjarðarár. Dalahöllin er reiðhöll
hestamannfélagsins Blæs, sem réðst í
það stórvirki að reisa 1.100 fermetra
reiðskemmu á athafnasvæði félagsins
í botni Norðfjarðar. Verkið hefur
gengið vel, en það var í lok september
sl. sem félagið ákvað að reiðhöll
skyldi reist. Fyrsta skóflustungan
var tekin 6. nóvember sl. og síðan þá
hafa margir lagt hönd á plóg. Verk-
efnið er fjármagnað með styrkjum
frá ríki og sveitarfélagi auk þess sem
búið er að vinna óhemju sjálfboða-
vinnu þar sem bæði einstaklingar og
fyrirtæki hafa lagt til tæki og vinnu.
Þegar betur árar er fyrirhugað að
setja hesthús og áhorfendastúku í
húsið. Að sögn Guðröðar Há-
konarsonar, stjórnarformanns Dala-
hallarinnar, sem sér um að byggja
húsið fyrir hestamannafélagið, er
enginn vilji til að skuldsetja félagið til
slíkra framkvæmda um þessar mund-
ir. Húsið er nú fullbúið að utan og
ráðgert er að húsið verði tilbúið til
notkunar á allra næstu dögum.
Félagsmiðstöð ungmenna 18 ára og
eldri hefur verið opnuð í gömlu vél-
smiðjunni á Neseyrinni fyrir til-
stuðlan forvarnarráðs. Forvarnarráð
er sjálfsprottið afl sem hefur hag og
velferð ungs fólks að leiðarljósi. Er
þetta tilraunaverkefni til 6 mánaða
sem styrkt er af Fjarðabyggð og
Sparisjóði Norðfjarðar og verður
endurskoðað að þeim tíma liðnum.
Jófríður Gilsdóttir, starfsmaður fé-
lagsmiðstöðvarinnar, segir að starfið
verði fyrst og fremst mótað af þeim
sem sækja félagsmiðstöðina.
Loðna er fryst af kappi hjá Síld-
arvinnslunni. Loðnuvertíðin hófst 4.
febrúar sl. þegar Börkur NK landaði
fyrstu loðnunni til vinnslu í fisk-
iðjuveri SVN. Síðan þá er búið er að
vinna vel yfir 4.000 tonn af frystri
loðnu á linnulausum vökum og hefur
yfir 90% íslenska aflans farið til
manneldis. Afli erlendra skipa hefur
farið í bræðslu. Þá hafa verið töluverð
umsvif við frystigeymslu SVN, þar
sem frystri loðnu hefur verið landað
og skipað út af kappi. Það má því
segja að líflegt hafi verið við höfnina í
febrúar. Nú bíða menn eftir nið-
urstöðum fiskifræðinga og ákvörðun
um viðbótarkvóta.
NESKAUPSTAÐUR
Kristín Ágústsdóttir
Morgunblaðið/Kristín Ágústs
Á toppinn Birkir Freyr Andrason við skíðalyftu í Oddsskarði.
Eftir Árnýju E. Ásgeirsdóttur
ÞAÐ ER nauðsynlegt að vera laus við
hvers kyns tortryggni gagnvart
náunganum þegar fólk skiptist á
heimilum, sínum griðastað. Þetta
gera Felix Bergsson leikari og maður
hans Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
minnst einu sinni á ári.
„Það þarf auðvitað að vera hægt að
treysta fólki þegar maður býður
ókunnugum að búa á heimilinu að
manni fjarstöddum. En við höfum
alltaf gefið okkur minnst þrjá mánuði
til þess að kynnast viðkomandi á net-
inu áður en skiptin fara fram,“ segir
Felix.
Felix og Baldur eru meðal að
minnsta kosti 63 íslenskra fjöl-
skyldna sem eiga nú í heim-
ilisskiptum í gegnum vefsíðuna
Intervac. Inni á síðunni eru skráð
heimili víðs vegar um heiminn.
„Við byrjuðum á þessu fyrir tíu ár-
um eftir að hafa leitað að ódýrum
leiðum til þess að ferðast,“ útskýrir
Felix. „Við höfum mest skipt við fólk í
Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi.
Þetta er oftast fólk sem er búið að
koma sér ágætlega fyrir en vill finna
leiðir til þess að spara sér hótelkostn-
aðinn. Stór hluti er kennarar en einn-
ig er mikið af eftirlaunaþegum.“
Felix segir aldrei neitt stór-
vægilegt hafa komið fyrir og þeir
hafi mjög góða reynslu af þessu.
„Ekki nema þegar ég setti óvart
bensín á dísilbíl sem ég fékk afnot af
frá einu heimili,“ segir hann og hlær.
Starfsemi Intervac hófst árið 1950
þegar hópur kennara í Evrópu skipti
á heimilum milli landa. Í dag þjónar
vefsíðan um 50 löndum og 20.000
fjölskyldum í hinum ýmsu heims-
álfum.
Heimili
eins er
gleði
annars
Auðvelt og ódýrt
að skipta á íbúð-
um milli landa
Morgunblaðið/Ernir
Íbúðaskipti Felix Bergsson leikari við heimili sitt að Starhaga.
www.intervac.com
ELLEFU prósent fráskilinna Breta
stunda kynlíf oftar en 21 sinni í mán-
uði, næstum tvisvar sinnum oftar en
giftir, einhleypir, ekklar og ekkjur.
Tæp 70% fráskilinna hafa að meðal-
tali kynmök 6-20 sinnum í mánuði.
Streita sem fylgir því að vera á
vinnumarkaði og ala upp börn veld-
ur því að eftirlaunaþegar stunda
kynlíf tvisvar sinnum oftar en yngra
fólk sem er í fullri vinnu.
Þetta er niðurstaða nýrrar
breskrar könnunar. Þar segir enn-
fremur að 22% karlmanna 55 ára og
eldri taki stinningarlyf og að 37%
kvenna eigi kynlífsleikföng.
Enginn vill kúra hjá Brown
Einnig leiðir könnunin í ljós að
kynþokki frambjóðenda í bresku
þingkosningunum mun ekki hafa úr-
slitaáhrif á niðurstöðu kosning-
anna. Enginn þátttakandi könn-
unarinnar vildi njóta ásta með
Gordon Brown og aðeins 5% voru
til að hoppa í rúmið með David
Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins.
Könnunin var framkvæmd á netinu
og tóku 1.800 manns þátt í henni.
Hún birtist á Valentínusardag í The
Daily Telegraph.
Fráskildir stunda
oftast kynlíf
Árvakur/Golli
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Best er að panta sem fyrst til að
tryggja sér góðan stað í blaðinu!
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matar-
hátíðinni með sérlega glæsi-
legri umfjöllun um mat, vín og
veitingastaði
laugardaginn 20.febrúar.
Food and Fun verður haldið í
Reykjavík í níunda skipti
dagana 24.-28. feb.
MEÐAL EFNIS:
Umfjöllun um veitingastaðina
Umfjöllun um erlendu
sérfræðingana sem taka þátt
Sælkerauppskriftir
Lambakjöt
Villibráð
Sjávarfang
Sætir réttir
Matarmenning Íslendinga
Rætt við keppendur
Og fullt af öðru
spennandi efni
Food and Fun
P NTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 16. FEBRÚR
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 16. febrúar