Morgunblaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
✝ Anna MaríaMagnúsdóttir
Danielsen fæddist
að Seljamýri í Loð-
mundarfirði 17.
janúar 1925. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu á
Vífilsstöðum 31.
janúar sl.
Foreldar hennar
voru Magnús Stef-
ánsson frá Heið-
arseli í Hróars-
tungu, fv.
dyravörður í
Stjórnarráði Íslands og bóndi, f.
30. apríl 1891, d. 25. maí 1982 og
Arnbjörg Jónsdóttir frá Gils-
árteigi í Eiðaþingi, húsmóðir, f.
14. nóvember 1895, d. 1. maí
1980. Systkini Önnu Maríu eru:
1) Guðbjörg, f. 16.4. 1923, gift
Benedikt Thorarensen, fv. fram-
kvæmdastjóra í Þorlákshöfn, f.
1.2. 1926, d. 26.1. 2008. 2) Stefán,
flugstjóri, f. 26.8. 1926, er fórst í
flugslysi 18.3. 1963, giftur Svövu
M. Þórðardóttur, f. 24.8. 1929, d.
13.9. 2007. Börn þeirra eru
Magnús Örn, Halla og Þorleifur,
en áður átti Stefán dótturina Sig-
ríði, móðir hennar er Anna Ca-
milla Einarsdóttir, f. 4.6. 1925. 3)
Seyðisfirði þar til þau fluttu með
fjölskylduna frá Austurlandi til
Reykjavíkur 1926. Eftir að þau
keyptu og hófu búskap að
Laugahvoli í Laugarásnum 1929
ólst Anna María þar upp og bjó
öll sín bernsku- og unglingsár.
Að loknu gagnfræðaskólaprófi
vann hún ýmis störf og var m.a.
um tíma ritari hjá Borgarfógeta
Reykjavíkur. Eftir að hún giftist
og eignaðist syni sína helgaði
hún sig húsmóðurstörfum um
árabil og tók þátt í félagsstörf-
um, m.a. í Nordmannslaget og
kvenfélagi Ás-prestakalls. Á ár-
unum 1956-58 reistu Anna og
Hans, ásamt foreldrum hennar
og Jóni bróður hennar, þríbýlis-
hús í landi gamla Laugahvols.
Þar bjuggu þau flest sín sambúð-
arár, en Hans féll frá 1977 langt
um aldur fram. Á þessum árum
var byggð að eflast í Laug-
arásnum og mikill samgangur
milli nágranna er leiddi til ævi-
langra vinatengsla.
Eftir að synirnir komust á legg
hóf Anna María störf hjá Hag-
kaupum 1970. Vann hún fyrst við
afgreiðslu og sem versl-
unarstjóri, en síðar á skrifstofu
fyrirtækisins þar til hún fór á
eftirlaun. Síðustu æviárin dvaldi
hún á hjúkrunarheimilinu á Víf-
ilsstöðum og naut þar góðrar
umönnunar allt fram í andlátið.
Útför Önnu Maríu fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, þriðju-
daginn 16. febrúar, og hefst at-
höfnin kl. 15.
Ragnar Jón, fv.
flugvélstjóri, f.
15.7. 1932, d. 7.2.
2009.
Anna María gift-
ist þann 30.11. 1946
Hans Danielsen,
framkvæmdastjóra
hjá skipadeild SÍS,
f. 15.11. 1920, d.
16.9. 1977. For-
eldrar hans voru
Asser Danielsen
frá Salhus við
Bergen í Noregi, f.
21.12. 1881, d. 13.2.
1944, og Martha Danielsen, f.
Sande, f. 22.7. 1882, d. 13.8. 1947.
Synir Önnu Maríu og Hans eru:
1) Ragnar, hjartalæknir, f. 26.10.
1951. Fyrri kona hans er Stein-
unn Jónsdóttir, f. 27.3. 1951,
dóttir þeirra er Arnbjörg María,
f. 13.6. 1980. Seinni kona hans er
Anna Guðrún Gunnarsdóttir, f.
23.5. 1965, sonur þeirra er Hans
Gunnar, f. 26.9. 1995. 2). Magnús,
rannsóknamaður, f. 29.9. 1955,
kvæntur Jónu Arnfríði Imsland,
f. 24.2. 1960. Börn þeirra eru
Breki, f. 1.8. 1990, og Tara Þöll,
f. 13.11. 1993.
Foreldrar Önnu Maríu bjuggu
fyrst í Loðmundarfirði en síðan á
Kveðja til ömmu minnar.
Elsku amma mín, ég vona að þér
líði vel núna. Og ég vona að þú getir
gert það sem þig langaði að gera í svo
langan tíma, að vera frjáls á betri
stað. Og örugglega í fallegri blóma-
veröld með afa Hans. Þú varst svo
góð og hress kona og umfram allt
hugsaðir þú svo vel til allra sem þú
þekktir. Og þú átt svo sannarlega
skilið að hvílast í friði og ró.
Vertu sæl amma mín Anna.
Kærleikskveðja,
Tara Þöll.
Því fækkar hratt fólkinu af eldri
kynslóðinni, fólkinu sem umvafði mig
og mína ást sinni og umhyggju og
stóð með okkur í blíðu og stríðu. Anna
frænka hefur verið einn af föstu
punktunum í lífinu frá því ég man eft-
ir mér.
Fyrstu minningarnar eru úr dyra-
varðarbústaðnum sem stóð bak við
Stjórnarráðið. Þar bjuggu afi og
amma og þar hittist fjölskyldan.
Einnig man ég eftir heimsóknum á
Eiríksgötuna til Önnu og Hans
mannsins hennar. Þar er alveg sér-
staklega minnisstæð ein mubla, for-
láta skápur sem í var útvarp, segul-
band og plötuspilari. Þess háttar
dýrgripur var ekki algengur á sjötta
áratugnum. Ég man að við Ragnar
gátum endalaust hlustað á plötuna
með Ingibjörgu Þorbergs sem á voru
Aravísur og „Gaman er fyrir hin góðu
börn …“ og kynntumst við þarna líka
fyrstu rokkstjörnunum eins og Bill
Haley.
En flestar minningarnar úr
bernsku og fram á fullorðinsár eru
síðan bundnar húsinu á Laugarásvegi
75, sem reist var á lóð Laugarhvols,
þar sem afi og amma höfðu áður búið.
Þarna bjuggu, frá árinu 1958, Anna
og Hans ásamt sonunum tveim í öðr-
um helmingnum, afi og amma á efri
hæðinni í hinum endanum og Jón
frændi á þeirri neðri. Þetta sambýli
var gott – allir höfðu sitt pláss út af
fyrir sig, en voru í þægilegri nálægð
og áttu líka góða nágranna. Og það
var alltaf gott og gaman að koma í
heimsókn, ganga á milli íbúða og
skoða falleg blóm og jurtir í garðin-
um.
Anna frænka var fínleg og glæsileg
kona og ég hef heyrt að margir ungir
menn í Reykjavík hafi rennt hýru
auga til hennar. En Hans vann hjarta
hennar. Hann kom frá Noregi, var
mikill Norðmaður en samlagaðist þó
lífinu á Íslandi vel. Fjölskylda Önnu
var hans fjölskylda og hann var alveg
einstaklega hlýr og hjálplegur við afa
og ömmu. Saman ræktuðu þau líka
samband við Noreg og við Norðmenn
á Íslandi og ég fékk stundum að fara
með á skemmtilegar samkomur, t.d. í
skála Nordmannslaget í Heiðmörk.
Hans dó árið 1977, langt um aldur
fram.
Anna vann árum saman í Hag-
kaupum við verslunarstörf, verslun-
arstjórn og á skrifstofunni. Eftir að
hún hætti að vinna var hún dugleg að
taka þátt í félagslífi, ferðast og um-
gangast vinkonur.
Hún var flutt í íbúð í Fossvoginum
og þar eins og alls staðar þar sem hún
bjó sér heimili var fallegt og snyrti-
legt í kringum hana. En svo bilaði
heilsan og þar kom að ekki var um
annað að ræða en að finna henni
öruggara umhverfi. Síðustu árin
dvaldi hún á Vífilstöðum og fékk þar
gott atlæti.
Síðustu árin og mánuðina hrakaði
minninu og sambandinu við umhverf-
ið. Lengi vel horfði hún samt á sjón-
varpið og var oft með Norsk Ukeblad
í hönd. Í síðasta skipti sem ég heim-
sótti hana efaðist ég um að hún þekkti
mig, hún hélt samt fast í höndina á
mér og það var augljóst að lengi býr
að góðum eiginleikum. Snyrti-
mennskan var enn til staðar og hún
strauk burt kusk af kápunni minni og
þegar ég rifjaði upp skemmtilegar
minningar kom glettnisblik í auga og
bros færðist yfir andlitið. Ég og fjöl-
skylda mín minnumst margra góðra
stunda með Önnu frænku og þökkum
góða samfylgd.
Sigríður Stefánsdóttir.
Anna María
Danielsen
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma Anna.
Mikið vona ég að þú hafir nú
fundið það sem þér þykir
himnaríki. Ég sakna þeirra
tíma sem við áttum saman og
held áfram að óska þess að þeir
hefðu verið fleiri. Þú varst frá-
bær manneskja og ég mun
sakna þín. Hvíldu í friði.
Kærleikskveðja,
Breki.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hóli,
Önundarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn
11. febrúar.
Minningarathöfn verður í Digraneskirkju Kópavogi
fimmtudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Jarðsungið verður frá Holtskirkju í Önundarfirði mánudaginn
22. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð Kópavogi njóta þess.
Aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐMUNDUR SÆVIN BJARNASON
frá Ökrum í Fljótum,
Hverfisgötu 47,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði laugardaginn
13. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Marheiður Viggósdóttir,
Ásdís Guðmundsdóttir, Birgir Sigmundsson,
Bjarney Guðmundsdóttir, Bjarni Guðjónsson,
Guðlaug Guðmundsdóttir, Jón Alfreðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir og mágkona,
HALLDÓRA BIRNA
GUÐMUNDSDÓTTIR FABIAN,
Bidda,
Belford New Jersey,
Bandaríkjunum,
lést í Belford, New Jersey sunnudaginn 31. janúar.
Jarðsett var í New Jersey fimmtudaginn 4. febrúar.
Tomas Fabian,
Guðni Fabian, Theresa Fabian,
Thomas Fabian,
Marie Olivier, Richard Olivier,
Eric Fabian, Carolyn Fabian,
Anna Bjarnadóttir,
Ásdís Þorsteinsdóttir, Ragnar Eðvaldsson,
Anna Steins Þorsteinsdóttir, Stefán Björnsson,
Rut Þorsteinsdóttir, Sæmundur Alexandersson.
✝
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞÓRIR HEIÐMAR JÓHANNSSON,
Urðarbraut 8,
Blönduósi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
9. febrúar.
Útförin fer fram frá Blönduósskirkju laugardaginn
20. febrúar kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á reikning nr. 0307-26-000095, kt. 440105-2540 í eigu Félags
harmonikkuunnenda Húnv.
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Jóhann Þröstur Þórisson,
Bergþór Valur Þórisson,
Björn Svanur Þórisson,
Ingiríður Ásta Þórisdóttir,
Sigrún Eva Þórisdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær tengdamóðir mín, amma okkar og lang-
amma,
FRIÐRIKA TRYGGVADÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, laugardaginn
13. febrúar.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn
22. febrúar kl. 13.30.
Kristín B. Alfreðsdóttir, Pétur Ásgeirsson,
Friðrik Hreinsson, Þórdís Ólafsdóttir,
Jóhanna Hreinsdóttir, Jón Eðvald Halldórsson
og ömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN SKAGFJÖRÐ JÓHANNESSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn
11. febrúar.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Jón Sigurjónsson, Rósa Arngrímsdóttir,
Róbert Sigurjónsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Vignir Sigurjónsson, Fjóla Tyrfingsdóttir,
Grétar Skagfjörð Guðjónsson, Sudwan Sonpukdee,
Magnea Skagfjörð Guðjónsdóttir,
Þorleifur Guðjón Guðjónsson, Elín Bjarnadóttir,
Gísli Þorberg Guðjónsson, Kolbrún Ósk Þórarinsdóttir,
Helga Guðjónsdóttir, Skarphéðinn Haraldsson.