Morgunblaðið - 16.02.2010, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
Sýnd kl. 8 og 10:20
HHH
„Gibson hefur
engu gleymt”
Þ.Þ. - FBL
Fráskilin... með fríðindum
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 8 og 10:10 Sýnd kl. 5:40
PERCY JACKSON LEGGUR Á SIG
MIKIÐ FERÐALAG TIL AÐ BJARGA
HEIMINUM FRÁ TORTÍMINGU GUÐANNA!
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
„Flottur stíll, góðar
brellur, afbragðs
förðun og MIKIÐ blóð.
Ég fékk semsagt allt
sem bjóst við og gekk
alls ekki út ósáttur.”
T.V. -Kvikmyndir.is
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
The Wolfman kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Skýjað með kjötbollum... 3D kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
Edge of the Darkness kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Skýjað með kjötbollum... 2D kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
PJ / The Lightning Thief kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 10 ára Alvin og Íkornarnir kl. 3:30 LEYFÐ
PJ / The Lightning Thief kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Avatar 3D kl. 4:40 - 8 B.i.10 ára
SÝND HÁSKÓLABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Nú með
íslenskum
texta
HHHHH
-H.K., Bylgjan
HHHHH
-H.S., MBL
HHHH+
-Ó.H.T., Rás 2
HHHHH
-V.J.V., FBL
HHHHH
-T.V., Kvikmyndir.is
HHHH
-Á.J., DV
111.000 MANNS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÓSKARSTILNEFNINGAR
M.A. BESTA MYND OG BESTI LEIKSTJÓRI9
HHH
H.S.S. - MBL
HHH
„Gibson hefur
engu gleymt”
Þ.Þ. - FBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR!
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR!
600 kr.
900 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
HHH
„Kom mér þægilega
á óvart... Stórfín fjöl-
skylduafþreying.”
T.V. - Kvikmyndir.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isáskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Ég hef mjög gaman af því aðdansa og vakna oft á dag-inn eftir gott djamm með
verki í fótunum og harðsperrur á
skrýtnum stöðum í hálsi eða hönd-
um eftir framúrstefnulegar dans-
hreyfingar. Flesta tónlist finnst
mér skemmtilegt að dansa við þótt
vissulega fari meira fyrir mér á
dansgólfinu ef lagið er í miklu
uppáhaldi. Ég hreyfi fæturna,
baða út höndunum, hnykki til
mjöðmunum og syng oftast hástöf-
um með (sleppi samt orminum af
því að gólfið er skítugt). Nú þetta
gengur allt saman vel fyrir sig að
mér finnst en sá hængur er á
minni danskunnáttu að spor gera
ekkert nema þvælast fyrir mér.
Þegar kemur að sporum verð ég
aftur sex ára í stærðfræðitíma;
þrjósk, pínu fýld og harðákveðin í
að þetta geti ég ekki! Hingað til
hefur því lítið dugað að draga mig
á dansnámskeið og ég held áfram
að dansa minn freestyle-dans á
dansgólfum borgarinnar eða í stof-
unni, nágrönnunum vafalaust til
mikillar gleði.
En nú í vikunni kvað skyndilegavið nýjan hljóm. Smáskilaboð
frá vinkonu minni bárust þar sem
hún bað mig að koma með sér í
Bollywood-dans í Magadanshúsinu.
Já, hugsaði ég, nú hlýtur að vera
komið að því að ég skelli mér á
dansnámskeið og nái að læra hálfa
eða jafnvel alla rútínuna án þess
að fara í öfuga átt við alla hina og
bregða fyrir sjálfa mig fæti! Ekki
veit ég alveg hvað gerðist innra
með mér en ég hef lengi haft gam-
an af Bollywood-tónlist og notað
hana óspart í freestyle-dansi
heima á stofugólfi svo kannski
fannst mér bara kominn tími til að
læra þetta almennilega. Það var í
mér óvenjulítill beygur þegar við
mættum í fyrsta tímann og ég
hafði hitað mig upp heima með því
að skella hressandi Bollywood-disk
í tækið. Síðan byrjaði ballið og
kennarinn sýndi okkur hreyfingar
og spor sem smám saman röðuðust
upp í fjörugan Bollywood-dans.
Rútínan var eins og sú sem maður
sér oftast í Bollywood-kvikmynd-
um og myndböndum; kvenmenn og
karlmenn að kallast á, vekja á sér
athygli en láta síðan ganga á eftir
sér, kalla á eftir og leita hvert að
öðru. Bollywood-dans er að
stórum hluta til leikræn tjáning og
dansinum fylgja því ýmis svip-
brigði og hreyfingar sem tákna
viðbrögð og tilfinningar. Ég held
að einmitt þetta hafi kannski
hjálpað mér þar sem innst inni í
blaðakonunni mér hefur lengi
blundað leikkona. Í það minnsta
tókst mér að læra sporin sem
kennd voru í tímanum og það
meira að segja skælbrosandi og
næstum hlæjandi á köflum.
Eftir tímann tjáði ég kenn-aranum ómælda gleði mína
með tímann og útskýrði að ég
hefði ætíð átt erfitt með að læra
dansspor en þessi tónlist væri í
uppáhaldi hjá mér og hefði greini-
lega haft einhver áhrif. Hún kvað
það ekki skrýtið og sagði að þegar
maður hefði gaman af einhverju
væri stundum eins og líkaminn
ákvæði skyndilega að já nú ætlaði
hann að vera samvinnuþýður. Svo
líkaminn minn og ég höfum greini-
lega gert þarna þegjandi sam-
komulag um gott samstarf. Eftir
tímann hélt ég svífandi sæl heim á
leið og lét mig dreyma um frægð
og frama í Bollywood. Ég lét mig
dreyma svo mikið að um nóttina
dreymdi mig að ég og Bollyood-
stjarnan Prabhu Deva (Benny
Lava) dönsuðum hamingjusöm í
Himalajafjöllunum. Eitthvað hlýt-
ur það að tákna svo nú held ég
ótrauð áfram að virkja Bollywood-
dansarann sem leynist þarna innst
inni við hliðina á leikkonunni.
maria@mbl.is
Rísandi Bollywood-stjarna
» Bollywood-dans erað stórum hluta til
leikræn tjáning og dans-
inum fylgja því ýmis
svipbrigði og hreyfingar
sem tákna viðbrögð og
tilfinningar.
Bollywood Benny Lava er með
mjaðmahnykkinn á hreinu.
AF DANSI
María Ólafsdóttir
Bollywood Benny Lava er með mjaðmahnykkinn alveg á hreinu.