Morgunblaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
ÐARSON YFIR 63.000 GESTIRHHHHMEINFYNDIN...
– FRÉTTABLAÐIÐ/BERGSTEINN
SIGURÐSSON
DENZEL WASHINGTON OG GARY
OLDMAN ERU FRÁBÆRIR
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND
Í ANDA I AM LEGEND OG MAD MAX
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
HHHH
- S.V.,MBL
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
EDDUVERÐLAUNA
GEORGE CLOONEY, VERA
FARMIGA OG ANNA KENDRICK
FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FRÁBÆRU MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
HHHH
„JONZE HEFUR KVIKMYNDAÐ ÆVINTÝRI EINS OG ÞAÐ SÉ
ALGERLEGA RAUNVERULEGT, SEM LEYFIR OKKUR AÐ SJÁ
HEIMINN MEÐ AUGUM MAX, FULLAN AF FEGURÐ OG HÆTTU.“
- ROLLING STONE, PETER TRAVERS
“FÁRÁNLEGA FRÁBÆR”
- ELLE MAGAZINE
Frábær mynd frá leikstjóranum
SPIKE JONZE
HHH
- S.V. – MBL.
HHH
„RÆMAN ER MJÖG GRÍPANDI OG JÁ, GÓГ
- Ó.H.T - RÁS2
SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
"Ein besta mynd ársins"
New York Observer
HHHH
"Einstök skemmtun"
Ebert
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
OG SELFOSSISÝND Í KRINGLUNNI
“SANNKALLAÐ MEISTARAVERK”
- FOX-TV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
EIN VINSÆLASTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA ER LOKSINS KOMIN Í ÞRÍVÍDD
Sýnd með
íslensku t
ali
7
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
/ KEFLAVÍK
VALENTINE'S DAY kl. 8 - 10:20 L
PLANET 51 m. ísl. tali kl. 6 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 m. ísl. tali kl. 6 L
WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 8 L
IT'S COMPLICATED kl. 10:10 L
VALENTINE'S DAY kl. 8 -10:30 L
DID YOU HEAR ABOUT THE MORGANS kl. 8 7
UP IN THE AIR kl. 10:20 L
/ SELFOSSI
VALENTINE'S DAY kl. 8 - 10:20 L
TOY STORY 2 - 3D m. ísl. tali kl. 6 3D L
PLANET 51 m. ísl. tali kl. 6 L
THE BOOK OF ELI kl. 8 16
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 12
/ AKUREYRI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
13.02.2010
8 13 15 19 29
2 3 5 9 7
5 6 9 6 0
26
10.02.2010
1 2 7 23 29 42
4535 40
Wolfman sem fékk tvær og hálfa
stjörnu hjá gagnrýnanda hér í
blaðinu í gær sem sagði bestu þætti
myndarinnar vera myrka og ógn-
andi kvikmyndatöku og förð-
unarvinnuna.
Ævintýramyndin Percy Jackson
& The Lighting Thief var einnig
frumsýnd fyrir helgi og er þriðja
tekjuhæsta myndin eftir helgina.
Myndin fjallar um strákinn Percy
Jackson sem hélt að hann væri
ósköp venjulegur unglingur en upp-
götvar að hann er hálfguð. Með hjálp
vina sinna leggur hann á sig mikið
ferðalag m.a. til undirheimanna til
að bjarga heiminum frá tortímingu
og þarf auk þess að berjast við
grísku guðina sem ætla í stríð.
Hljómar mjög spennandi.
Íslenska gamanmyndin Bjarn-
freðarson, sem var frumsýnd um jól-
in, er enn meðal tekjuhæstu mynd-
anna. Situr hún nú í áttunda sæti og
sáu um sex hundruð og fimmtíu
manns hana um helgina. Georg laðar
enn að.
DETTA mér nú allar dauðar lýs úr
höfði; stórmyndin Avatar er komin
niður í fjórða sæti Bíólistans, fellur
um þrjú sæti á milli vikna. Avatar
hefur verið níu vikur í sýningu og
mestan þann tíma verið tekjuhæsta
myndin, enda hafa nú rúmlega
hundrað og tíu þúsund manns séð
hana. Hún hefur slegið öll Íslands-
met í aðsókn og tekjum, skilað rúm-
um 133 milljónum í kassann frá
fyrsta sýningardegi, forvitnilegt
verður að sjá hvaða mynd slær Ís-
landsmet Avatar.
Það er rómantíska gamanmyndin
Valentine’s Day sem tekur topp-
sætið af Avatar, myndin var frum-
sýnd fyrir helgi og stíluð á róm-
antískar hugleiðingar fólks í
kringum Valentínusardaginn sem
var á sunnudaginn. Um fjögur þús-
und og fimm hundruð manns sáu
myndina um helgina. Hún fékk tvær
stjörnur hjá gagnrýnanda í Morg-
unblaðinu í gær sem sagði syk-
urhúðaðri skemmtun vandfundnari.
Í öðru sæti Bíólistans er The
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Rómantíkin ryð-
ur Avatar í burtu
!"
#
$%
& '( )
&
*
+,,
+ - . /
0
-
/
1
2
3
4
5
6
07
Valentínusardagurinn Var vel sótt og vinsæl um helgina.
Allir þeir sem komnir eru tilvits og ára og sjálfsagt ein-hverjir fleiri muna eftirPalla, tuskudúkku í Stund-
inni okkar, barnatíma Sjónvarpsins á
áttunda áratug síðustu aldar. Palli
öðlaðist mikinn frama meðal þjóð-
arinnar og komst á grammófónplötu
sem formlega hét Algjör sveppur en
var sjaldnast kölluð annað en Pallap-
latan manna (barna) í millum. Nú,
rúmum þrjátíu árum síðar, fá menn
þá hugmynd að efni þessarar plötu sé
efni í leikrit – að svo sé er auðvitað
virðingarverð skoðun; sjónarmið.
Það er skemmst frá því að segja að
útkoman er dapurleg, hamagangur
og ærsl. Pínlega klisjukenndir orða-
leikir og útúrsnúningar á færibandi.
Færibandi sem snýst alltof lengi.
Hallærislegt grín í flottum umbúð-
um. En þetta er þó framborið í glæsi-
legri tæknilegri umgjörð, með flottri
músík sem er vel uppsett með smart
dansatriðum, ágætum söng – þó svo
leikstjóri hefði mátt leggja meiri
áherslu á að greina mætti orðaskil
hjá Sverri Þór Sverrissyni en alltof
oft í söngatriðum fór texti hans fyrir
ofan garð og neðan. Tæknibrellur,
skuggamyndir, lýsing og hljóðmynd
til fyrirmyndar. Búningar frábærir
og gæddu sýninguna lífi ásamt með
stórskemmtilegum gervum. Drama-
túrgía fábrotin.
Tveir leikarar: Á milli þeirra er
himinn og haf í tækni og leikrænni
getu. Er þá sama hvort litið er til
framsagnar eða líkamsburðar eða
fjölbreytileikans sem þessi við-
kvæma listgrein kallar stöðugt á svo
hún geti hrifið fólk, haldið því föngnu
í þeim faðmlögum sem leikhúsgestir
sækjast eftir. Leiklistin þarf að hafa í
sinni þjónustu fagfólk sem kann að
blekkja, uppfyllir samninginn af leik-
hópsins hálfu; samningin um tál og
sjónhverfingar – um trúverðugar
listilega frambornar lygar. Ég sagði
tveir leikarar: Annar mónótónískur,
þokkalegur söngvari og sprellikarl
ágætur, liðugur og einlægur. Sá heit-
ir Sverrir Þór Sverrisson. Hinn býr
yfir aga þess sem kann, breytist og
blekkir á svipstundu aftur og aftur
eins og ekkert sé, útsmoginn í radd-
beitingu og dansar eins og þokkafull
eiturslanga á leið sinni upp úr ind-
versku keri, syngur vel og ber enn
betur fram; kann að taka utan um
orðin og fá þau til að líða út í hrörleg-
an brakandi salinn í Gamla bíói,
fylgir þeim eftir og fangar um leið
þann sem nemur. Leikur af einlægni
og trúmennsku. Sá heitir Orri Hug-
inn Ágústsson, skammarlega van-
nýttur leikari þegar horft er á ís-
lenska leiklistarheiminn.
Felix Bergsson hefur gert vel í því
að ná þessu öllu saman á flot – en
hann á líka sök á því að þetta flýtur
alltof lengi. Það hefði þurft að skera
textann stórlega niður og stytta sýn-
inguna um u.þ.b. 40 mínútur. En Fel-
ix á hól skilið fyrir skemmtilega
heildarmynd; flottan pakka, fínar
slaufur.
Þessi húmor hefur elst illa og við-
bæturnar eru verri en það gamla.
Maður hefur aftur og aftur á tilfinn-
ingunni að höfundurinn sé ekki í takt
við samfélagið. Það er eitthvað stór-
kostlega skakkt við þetta allt saman.
Þetta er skökk mynd í fallegum
ramma. Langdregin lýsing á degi í
lífi stráks sem er ekki til – og passar
illa. Þessi leiksýning er blekking sem
gengur ekki upp.
Langdreginn dagur í lífi stráks
Morgunblaðið/RAX
Úr takti „Það er eitthvað stórkostlega skakkt við þetta allt saman. Þetta er
skökk mynd í fallegum ramma,“ segir rýnir um sýningu Sveppa og Gísla.
Íslenska óperan (Gamla bíó)
Algjör Sveppi: Dagur í lífi stráks, Gísli
Rúnar Jónsson
bbnnn
Algjör Sveppi: Dagur í lífi stráks. Ís-
lenska óperan, 10. sýning 14. febrúar
2010. Framleiðandi: Ingvar Sverrisson.
Leikstjóri: Felix Bergsson. Leikarar:
Sverrir Þór Sverrisson og Orri Huginn
Ágústsson. Tónlistarstjóri: Jón Ólafs-
son. Leikmynda- og ljósahönnun: Egill
Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir.
Búningahönnuður: Margrét Einars-
dóttir. Gervahönnuður: Áslaug Dröfn
Sigurðardóttir. Danshöfundur: Guð-
mundur Elías Knudsen. Hljóð: Magnús
Jónsson. Tökumaður: Bragi Þór Hinriks-
son.
GUÐMUNDUR S.
BRYNJÓLFSSON
LEIKLIST