Morgunblaðið - 16.02.2010, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 47. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-*
*.),-)
)**,/
*0,-)0
*),12/
)3,122
))2,0-
),/*30
)23,0
)3-,.-
456
4 )-" 7585 *.).
)*+,+0
*.*
)**,31
*0,-+*
*),3-+
)3,3-)
))2,1+
),/0)-
)23,23
)3-,-/
*0),1//2
%
9: )*2,)/
*.*,/2
)*0,)*
*0,1-)
*),+**
)3,+.0
)*.,.)
),/0-3
)2+,-1
)31,.0
Heitast 7°C | Kaldast -4°C
Dregur mjög úr
vindi og ofankomu í
dag. Hiti nálægt frost-
marki víðast hvar á
landinu. » 10
Útvarpsstjóri segir
ekkert ákveðið um
framtíð Spaugstof-
unnar sem myndi þó
hverfa á braut án
biturleika. »40
SJÓNVARP»
Ótímabær
andlátsfrétt
TÓNLIST»
Megasarheftin þrjú
endurútgefin. »36
Sylvester Stallone
og Madonna fá
skammarverðlaun
fyrir leik í kvik-
myndum. Eiga þau
það skilið? »40
KVIKMYNDIR»
Vafasamur
heiður
LEIKLIST»
Blekking sem gengur
ekki upp. »41
LEIKLIST»
Gerpla er fjögurra
stjörnu sýning. »38
Menning
VEÐUR»
1. „Við sáum þarna þúst“
2. Gisti hjá sinni fyrrverandi
3. Gerðu skjól úr sleðanum
4. Sýslumaður rannsakar atvikið
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Hin þrautreynda
knattspyrnukona
Edda Garð-
arsdóttir verður
fjarri góðu gamni
þegar íslenska
landsliðið mætir
bestu liðum heims í
Algarve-bikarnum í Portúgal síðar í
þessum mánuði. Edda, sem leikur
með Örebro í Svíþjóð, hefur verið frá
keppni vegna hnémeiðsla að und-
anförnu og verður ekki leikfær
næstu vikurnar. Óvíst er að hún nái
að spila með landsliðinu gegn Serbíu
og Króatíu í undankeppni heims-
meistaramótsins í lok mars.
KNATTSPYRNA
Edda Garðarsdóttir ekki
með landsliðinu í Portúgal
Sérstakar sýn-
ingar fyrir heyrn-
arlausa/heyrn-
arskerta og þá sem
skilja ekki íslensku
verða á kvikmynd-
inni Bjarnfreð-
arson nú í febr-
úar. Verður myndin sýnd með
íslenskum og enskum texta fyrir
þessa tvo hópa sem hafa hingað til
ekki getað notið hennar sem skyldi.
Sýning fyrir heyrnarlausa og
heyrnarskerta verður 19. febrúar kl.
17.50 í Sambíóunum Kringlunni og
sýning með enskum texta verður 22.
febrúar kl. 17.50 í sama bíói.
KVIKMYNDIR
Bjarnfreðarson fyrir heyrn-
arlausa og enskumælandi
Dansverkið
Fresh Meat, eftir
þær Sigríði
Soffíu Níels-
dóttur og Snædísi
Lilju Ingadóttur, í
samvinnu við
myndlistarmann-
inn Björk Viggósdóttur, verður sýnt
17. og 18. febrúar í Rose Theater í
Lundúnum. Verkið fjallar um heim-
ilisofbeldi en sýningar á því í Lond-
on tengjast átaki gegn kynbundnu
ofbeldi sem standa mun yfir í Rose
Buford College 15.-19. febrúar.
Hljóðmynd verksins er eftir Lydíu
Grétarsdóttur.
DANS
Fresh Meat sýnt í Rose
Theater 17. og 18. febrúar
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÍSLENDINGAR geta komið í veg
fyrir að barnaskólanum á norsku
eyjunni Feøy skammt frá Hauga-
sundi verði lokað í vor rétt eins og
Britt og fjölskylda gerðu í norska
sjónvarsþættinum Himinbláma
sem var sýndur í Ríkissjónvarp-
inu. Íslensk hjón með tvö börn
fluttu nýlega frá Hvanneyri út í
eyjuna og önnur fjögurra manna
fjölskylda úr Borgarfirði er á leið-
inni og reyndar er fjölskyldufað-
irinn mættur þar til starfa.
„Það er ósköp rólegt hérna,“
segir Jóhann Helgi Harðarson,
skipstjóri á ferju sem siglir á milli
eyja á svæðinu, en hann var at-
vinnulaus á Íslandi. Hann segir að
um 30 til 40 manns búi þarna á
veturna en íbúafjöldinn margfald-
ist á sumrin. Tvö börn hafi verið í
barnaskólanum, en þegar annað
barnið flutti með foreldrum sínum
á fastalandið hafi verið tekin
ákvörðun um að loka skólanum.
Íbúarnir hafi brugðist skjótt við
og reynt að finna barnafólk í stað-
inn. Tvær íslenskar fjölskyldur
hafi svarað kallinu og nú séu tvö
börn í skólanum en fljótlega verði
þau fjögur. „Staðan hefur því
breyst og íbúarnir eru að berjast
við kerfið um að fá að halda skól-
anum,“ segir Jóhann Helgi, sem
gjarnan er kallaður Roy eftir
ferjumanninum í norska sjón-
varpsþættinum.
Hótelið bíður
Birgitta Birgisdóttir ætlaði að
fylgja manni sínum eftir í sumar
en segir að hugsanlega fari hún
fyrr með börnin. „Ég fer að hugsa
um kindur og hesta,“ segir hún og
bætir við að þannig komi námið í
búfræði í Bændaskólanum á
Hvanneyri best að gagni. Jóhann
segir að það vanti líka starfskraft
í hótelið og hún geti örugglega
fengið þar vinnu yfir sumartím-
ann, eins og Marit í Himinbláma.
Íslenskur himinblámi í Noregi
Reyna að halda skóla á lítilli eyju opnum með íslenskum börnum
Íslenskur skipstjóri kallaður Roy eftir norsku sögupersónunni
Karmøy og Feøy
Karmøy
Feøy
Haugasund
Stavanger
„ÞAÐ er alltaf gott að fá klapp á bakið og viðurkenningu
fyrir störf sín. Þetta hvetur okkur áfram til dáða,“ segir
Magni Ásgeirsson söngvari þegar hann tók við Eyr-
arrósinni, sérstakri viðurkenningu til framúrskarandi
menningarverkefnis á landsbyggðinni. Eyrarrósin góða
kom að þessu sinni í hlut Bræðslunnar, tónlistarhátíð-
arinnar á Borgarfirði eystra, sem hefur vakið mikla at-
hygli á undanförnum árum og er jafnan fjölsótt. Magni
stendur að hátíðinni með bróður sínum, Áskeli Heiðari
og saman veittu þeir viðtöku í gær verðlaunagrip hátíð-
arinnar, sem að þessu sinni var stytta eftir Steinunni
Þórarinsdóttur myndhöggvara. Var vel við hæfi að stytt-
an væri kall með skalla, rétt eins og bræðurnir frá Borg-
arfirði eystra. | 35
Bræðslan á Borgarfirði eystra fékk Eyrarrósina
Morgunblaðið/Kristinn
Svipur með styttu og bræðrum
TVEIR ungir Reykjavíkurpiltar
hafa lagt fyrir sig að spila Delta-
blús, tónlistarform sem var vin-
sælt á Delta-svæðinu í Miss-
issippi-ríki í Bandaríkjunum á
þriðja áratug tuttugustu ald-
arinnar. Þetta eru þeir Jóhann
Páll Hreinsson og Elliði Tuma-
son. „Við erum tveir mismunandi
pólar á mjög lítilli plánetu,“ segir
Jóhann um spilamennsku þeirra
félaga sem hann segir heillandi
enda þótt þeir nálgist hlutina
hvor með sínu lagi.
„Tilfinningin í þessari tónlist er
rosaleg, mikil og þrúgandi,“ segir
Elliði sem er ekki síður forfallinn
blúsari. „Sársaukinn skín svo vel
í gegn og það heillar. Það er ekki
erfitt að spila þetta tæknilega en
það er miklu erfiðara að ná til-
finningu í blús.“ | 36
Tilfinning í blúsnum
mikil og þrúgandi
SIGURÐUR
Ragnar Eyjólfs-
son, landsliðs-
þjálfari kvenna í
knattspyrnu,
ætlar að gefa
fimm ungum
stúlkum tæki-
færi gegn
nokkrum af
bestu liðum heims þegar landsliðið
fer til Portúgals í næstu viku.
Stúlkurnar fimm eru allar 18-19
ára gamlar og hafa aldrei áður
spilað með A-landsliði Íslands. Í
staðinn verða fimm af reyndustu
knattspyrnukonum landsins fjarri
góðu gamni í Algarve-bikarnum. |
Íþróttir
Fimm ungar fyrir
fimm reyndar